Morgunblaðið - 01.02.1998, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsuátak bakara
Suðvest-
anáttir
skorti
EINN allra snjóléttasti janúar-
mánuður sem sögur herma hef-
ur kvatt. Varla hefur blásið af
suðvestan allan mánuðinn og er
það að sögn Einars Svein-
bjömssonar veðurfræðings ein
aðalástæða snjóleysisins að
undanfómu, þar sem sú vindátt
er drýgsta snjókomuáttin
sunnanlands og vestan.
Hann segir þó ekki algert
einsdæmi að svo lítið hafí snjó-
að í janúarmánuði. „Janúar
1940 fær þau eftirmæli að þá
festi aldrei snjó allan mánuð-
inn, það er einsdæmið,“ segir
Einar.
Frummat
vegna Búr-
fellslínu kært
STJÓRN Landsvirkjunar hef-
ur ákveðið að kæra til um-
hverfisráðherra úrskurð skipu-
lagsstjóra ríkisins vegna fmm-
mats á umhverfisáhrifum 400
kV Búrfellslínu 3A og fara þess
á leit að ráðherra heimili
Landsvirkjun að leggja 400 kV
línu á því línustæði sem þegar
hefur verið samþykkt af skipu-
lagsyfirvöldum fyrir 220 kV
línu.
Jafnframt hefur stjóm
Landsvirkjunar samþykkt að
stefna áfram að því að Búrfells-
lína 3A verði byggð með 400
kV spennu ef þess er kostur.
Afnám skatts
á umhverfis-
væn ökutæki
HJÁLMAR Árnason ásamt
þremur öðrum þingmönnum
Framsóknarflokks hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp um af-
nám skyldu til greiðslu þunga-
skatts og virðisaukaskatts á
umhverfisvæn ökutæki.
í greinargerð frumvarpsins
segir m.a. að ný tækni sé að
ryðja sér til rúms þar sem
hægt sé að knýja ökutæki með
óhefðbundnum orkugjöfum, til
dæmis rafhreyfli eða vetni, sem
leiði til hverfandi mengunar.
„Telja verður eðlilegt að al-
menningi sé gefinn kostur á að
kynnast þessum nýjungum og
með því að fella niður greiðslu
þungaskatts og virðisauka-
skatts er honum gert auðveld-
ara að nálgast þessa umhverf-
isvænu tækni,“ segir m.a. í
greinargerð.
Tíu íslenskar
skáldsögur í
Þýskalandi
Á ÞESSU ári munu að líkind-
um koma út 10-12 nýjar ís-
lenskar skáldsögur á þýsku,
auk allmargra sem verða end-
urútgefnar í kiljuformi. Að auki
hafa komið út heildarútgáfur á
íslenskum fornbókmenntum og
verkum Halldórs Laxness, sem
fengið hafa mikla umfjöllun í
þýskum fjölmiðlum.
Það þykir tíðindum sæta að
íslenskar bókmenntir eru nú
gefnar út hjá stórum og öflug-
um forlögum í Þýskalandi, en
það tryggir almenna útbreiðslu
bókanna og mikla kynningu. Ef
vel gengur getur því verið um
að ræða umtalsverðar fjárhæð-
ir sem koma í hlut höfundanna,
en þýski bókamarkaðurinn er
einn sá stærsti í heimi.
■ Nýtt landnám/11
LANDSÁTAK Landssambands
bakarameistara og Samtaka iðn-
aðarins með yfírskriftinni Heilsu-
dagar bakarameistara hófst í
gær. Stendur það til 15. febrúar.
Bakarameistarar um allt land
munu kynna almenningi brauð
NÝR fréttavefur Morgunblaðsins
verður opnaður á Netinu á mið-
nætti í nótt á slóðinni
http://www.mbl.is/.
Vefurinn verður öllum opinn og
birtast þar helstu fréttir dagsins af
innlendum og erlendum vettvangi,
bæði fréttir Morgunblaðsins þann
dag, og einnig fréttir sem sérstak-
lega eru skrifaðar fyrir netútgáf-
una, en fréttaskrif hefjast kl. sex
að morgni og standa fram á kvöld.
UM 700 manns höfðu greitt at-
kvæði í prófkjöri Reykjavíkurlist-
ans fyrir komandi borgarstjómar-
kosningar á hádegi í gær, laugar-
dag, að sögn Atla Gíslasonar, for-
manns kjörstjómar. Aukinheldur
höfðu þá 430 manns greitt atkvæði
utan kjörfundar.
Prófkjörið hófst í gær kl. 10 og
og annað kornmeti sem inniheld-
ur trefjar og bætiefni sem líkam-
inn þarfnast daglega.
Stöllurnar Alexandra
Klonowski og Viktoría Sigtryggs
í Bakarameistaranum sýna okk-
ur heilsubrauð.
Þá verða fréttir skrifaðar á vefinn
laugardaga og sunnudaga.
Lögð er áhersla á að hafa vefinn
sem einfaldastan og léttastan fyrir
þá sem hafa miðlungs nettengingu
eða þaðan af lakari, en einnig er
reynt að haga honum svo að flestir
netskoðarar geti lesið hann vand-
ræðalaust.
■ Lifandi fréttamiðill/20
lauk kjörfundi kl. 20. Kosið var á
fimm stöðum í Reykjavík og á
Kjalamesi.
Talning átti að hefjast um
þrjúleytið síðdegis og úrslita í próf-
kjörinu var vænzt fyrir miðnætti.
Að sögn Atla Gíslasonar var ráð
fyrir því gert að fyrstu tölur yrðu
birtar strax upp úr klukkan 20 á
Afurðahæstu búin
Búrfell í
efsta sæti
BÚIÐ á Búrfelli í Miðfirði var af-
urðahæsta kúabú landsins á síðasta
ári, samkvæmt niðurstöðum
skýrsluhalds nautgriparæktarfélag-
anna. Kýrnar mjólkuðu að meðaltali
6.336 kg mjólkur á árinu. Kýrin
Sonja 109 í Saurbæ í Lýtingsstaða-
hreppi varð afurðahæsta kýr lands-
ins, mjólkaði 9.085 kg.
Meðalnytin jókst í heildina á síð-
asta ári, var 4.233 kg yfir árið, sem
er 69 kg meira en árið áður. Nytin
hefur aldrei verið meiri. Að sögn
Jóns Viðar Jónmundssonar, naut-
griparæktarráðunautar Bændasam-
taka íslands, skýrist aukningin að
hluta af aukinni kjarnfóðurnotkun
en einnig af sífellt aukinni getu ís-
lensku kúnna til mjólkurfram-
leiðslu.
íslandsmetið óhaggað
Bú Jóns Eiríkssonar og Sigur-
bjargar Geirsdóttur á Búrfelli í
Miðfirði varð efst á listanum yfir
þau kúabú landsins sem sýna bestu
meðalnytina. Búið hefur lengi verið
í fremstu röð en aldrei áður náð
fyrsta sætinu. íslandsmet Sturlaugs
og Birnu á Efri-Brunná í Dölum frá
árinu á undan stendur óhaggað,
6.594 kg, en eftir eigendaskipti á
síðasta ári datt búið á Efri-Brunná
út af „topp 10“ listanum.
■ Stendur allt í Handbók/18-19
--------
Vala setti
norrænt met
VALA Flosadóttir setti Norður-
landamet í stangarstökki kvenna
þegar hún fór yfir 4,26 metra á al-
þjóðamóti í Gautaborg í gær. Hún
átti fyrra metið, sem var 4,20.
Vala lét síðan hækka rána í 4,36,
sem engin stúlka hefur farið yfir á
árinu, en felldi naumlega.
miðnætti
Hótel Sögu.
28 frambjóðendur eru í kjöri í
prófkjöri Reykjavíkurlistans og
keppa um sjö efstu sætin á fram-
boðslistanum. Niðurstaða próf-
kjörsins er bindandi. Prófkjörið er
opið, en litið er svo á að þátttaka í
því jafngildi stuðningsyfirlýsingu
við Reykjavíkurlistann/
Fjölskyldan, þjóðfé-
lagið og heilsa kvenna
►íslenskar konur leita oftar eftir
bjónustu í heilbrigðiskerfinu og
neyta meira af lyfjum. /12
Frá hugsjónum
lil hagfræði
►Þrátt fyrir hrakspár og Færeyja-
mál er staða Nyrups sterk eftir
Fimm ár í embætti forsætisráð-
nerra. /22
Stendur allt
í handbók bænda
►Bú hjónanna á Búrfelli í Mið-
firði varð á síðasta ári afurða-
hæsta kúabú landsins. /12
Göngin níu mánuðum
á undan áætlun
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Stefán Reyn-
ir Kristinsson nýráðinn fram-
kvæmdastjóra hjá Speli. /26
B
► l-20
Kristinn og brekkan
►Hann fór á skíði áður en hann
gat gengið; í poka ábaki föður síns
en þriggja ára var Kristinn Bjöms-
son kominn á eigin skíði. /1&2
Leikhúsið er leit
eins og lífið
►Baltasar Kormákur hefur vakið
töluverða athygli sem leikstjóri
undanfarin ár og sennilega aldrei
sem nú fyrir uppsetningy sína á
Hamlet í Þjóðleikhúsinu. /4
Að virkja menn
►í Lífsbroti sem að þessu sinni
er myndafrásögn Þorkels Þorkels-
sonar er linsunni beint að Norður-
álsframkvæmdunum og einum
þeirra fjölmörgu sem unnið hafa
að verkefninu, verkfræðingnum
Tómasi Má Sigurðssyni. /10-11
FERÐALÖG
► 1-4
La Crosse
►Af fiskveiðum á Mississippi. /2
Arosa
►Svissneskur skíðabær sem er
þekktur fyrir sól og góðar skíða-
brekkur. /4
13 BÍLAR
► 1-4
Voru tilnef ndir en
unnu ekki
►Yfir 60 bílar af 22 gerðum
kepptu um titilinn Bíll ársins í
Evrópu 1998. /2
Reynsluakstur
►Volvo V70 XC alltaf með veg-
gripi. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-20
Vísindastarf í
Háskóla íslands
►Fjárveitingar Rannsóknasjóðs
nær82 milljónir. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42
Leiðari 28 Stjömuspá 42
Helgispjall 28 Skák 42
Reylgavíkurbréf 28 Fólk (fréttum 46
Skoðun 30 Útv./sjónv. 44,54
Minningar 33 Dagbók/veður 55
Myndasögur ■1(1 Mannlífsstr. 12b
Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 16b
ídag 42
INNLENDAR FI ÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
Morgunblaðið opnar
fréttavef á Netinu
Netdeild Morgunblaðsins
Guðmundur Sv. Her-
mannsson fréttastjóri
GUÐMUNDUR Sv.
Hermannsson hefur
verið ráðinn fréttastjóri
netdeildar Morgun-
blaðsins en hinn nýi
fréttavefur blaðsins á
Netinu verður opnaður
á miðnætti í nótt. Guð-
mundur Sv. Hermanns-
son hefur verið blaða-
maður á Morgunblað-
inu frá árinu 1986 og
hin síðari ár hefur hann
verið einn af staðgengl-
um fréttastjóra blaðs-
ins.
Guðmundur Sv. Her-
Guðmundur Sv.
Hermannsson
mannsson hóf störf við
blaðamennsku á árinu
1983 er hann var ráð-
inn blaðamaður á Tím-
anum og tók síðar við
starfi fréttastjóra Tím-
ans og NT. Hann hafði
áður verið fram-
kvæmdastjóri Brids-
sambands íslands og
er í hópi fremstu brids-
spilara landsins.
Guðmundur Sv.
Hermannsson er
kvæntur Lovísu Sig-
urðardóttur og eiga
þau tvö böm.
Prófkjör Reykjavíkurlistans
A
Urslita vænzt fyrir