Morgunblaðið - 01.02.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.02.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Menningarmála- nefnd Reykjavíkur Menning og saga gerð að- gengilegri MENNINGARMÁLANEFND Reykjavíkurborgar samþykkti á dögunum tillögu þess efnis að lögð verði áhersla á að menn- ing og saga borgarinnar verði gerð aðgengilegri fyrir allan al- menning, þar á meðal fyrir skólastarf í borginni. í greinargerð segir að und- anfarið hafi staðið yfir skrán- ing á menningarminjum í Reykjavík og ástæða sé til að íhuga með hvaða hætti sú skráning geti nýst í þessu skyni. Þá séu í borginni fjöldi bygginga, myndlistarverka og merkra staða sem einnig geti komið við sögu í þessu sam- bandi. Beinir nefndin tillögunni til borgarminjavarðar til um- sagnar. Þá samþykkti nefndin að óska eftir því við borgarminja- vörð að hann leggi fyrir nefnd- ina hugmyndir að þvi með hvaða hætti leita megi eftir samstarfi við fulltrúa atvinnu- lífsins um að koma upp safni um atvinnusögu Reykjavíkur. Blásið til heiðurs tónskáldum Morgunblaðið/Þorkell BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur á æfingu ásamt Miklós Dalmay. BLÁSARAKVINTETT Reykjavík- ur heldur sína fyrstu tónleika á nýju ári í Gerðubergi þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20.30. Eingöngu verða flutt íslensk verk í tilefni af fimmtíu ára afmæli STEFs, Sambands tón- skálda og eigenda flutningsréttar, sem var í gær. Að sögn Einars Jóhannessonar, klarínettuleikara kvintettsins, er vel við hæfi að heiðra íslensk tónskáld á þessum tímamótum. „Samstarf milli flytjenda og tónskálda er sennilega hvergi nánara en á íslandi og við í Blásarakvintettinum höfum svo sannarlega notið góðs af því í gegn- um árin - þó að oft hafi maður bölv- að blessuðum tónskáldunum í hljóði meðan maður er að ströggla við að læra verk þeirra," segir Einar og skellir upp úr. „Annars hef ég oft sagt um góð tónskáld að þau hafi undarlegt innsæi, jafnvel inn í tæknilega hluti sem kunna að virð- ast ómögulegir í fyrstu en er svo gerlegt að gera ef maður liggur yfir þeim. Þannig fleygir hljóðfæratón- list fram.“ Það er við hæfi að Blásarakvin- tettinn frumflytji nýtt verk, sem sérstaklega er skrifað með hann í huga, á tónleikunum. Er það úr smiðju Áma Egilssonar, tónskálds og bassaleikara í Los Angeles, og nefnist Blær. „Þetta er mjög lifandi og aðgengilegt verk,“ segir Einar, „og nafnið, Blær, er vel við hæfi því íslenska þýðingin á impressjónisma er blæstefna. Þá er maðurinn auð- vitað virtúós á sitt hljóðfæri og skrifar þannig líka. Bakgrunnur hans í djassinum leynir sér heldur ekki - það er mikill spuni í þessu verki.“ Annars má segja að um mikla af- mælistónleika sé að ræða því á efn- isskrá eru verk eftir Þorkel Sigur- björnsson, Atla Heimi Sveinsson og Jón Ásgeirsson sem allir eiga stóraf- mæli á árinu. Þá verður fluttur verð- launakvintett eftir Atla Ingólfsson. Sannarlega efnisskrá sett saman úr andstæðum, eins og Einar tekur til orða. Kveðst hann jafnframt hlakka tfl að glíma við þessi verk enda sé ekki síður mikilvægt að endurflytja verk en frumflytja. „Hið virta norska tónskáld, Árne Nordheim, sagði einhverju sinni við mig: „Það á ekki alltaf að vera að panta ný verk, það á líka að flytja eldri verk aftur.“ Þessu er ég sammála. Það er alltof algengt að verk séu pöntuð, flutt einu sinni og síðan sett upp í hillu," segir Einar og bætir við að aukin- heldur sé alltaf gaman að sjá hvem- ig verk eldast. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa, auk Einars, Bernharður Wilkinson flautuleikari, Daði Kol- beinsson óbóleikari, Jósef Ognibene hornleikari og Hafsteinn Guð- mundsson fagottleikari en með þeim leikur á tónleikunum Miklós Dalmay píanóleikari. HÁSRÓLÍ íslands ENDURMENNTUNARSTOFNUN Kvöldnámskeið fyrir almenning Haldin í samstarfí við heimspekideild HÍ og Listahátíð 1998 SÁLIN, DYGÐIN OG FARSÆLT LÍF í HUGMYNDAHEIMIARISTÓTELESAR Hugmyndir Aristótelesar um mannlegar dygðir og farsælt líf, sem reistar eru á kenningum hans um mannssálina. Mið. 11.-25. feb. kl. 20:00-22:00 og lau. 14. og 21. feb. kl. 13:00-16:00 (5x). Mikael Karlsson prófessor í heimspeki. ÍSLENSK LEIKRITUN: Kjartan Ragnarsson, Ólafur Haukur Símonarson og Birgir Sigurðsson, í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Höfundarferill þessara þriggja leikskálda verður skoðaður með hliðsjón af því sem hefur verið að gerast í íslenskri leikritun síðustu þrjá áratugina. Þáttt. boðið á loka- æfingu á Óskastjömunni og gefinn kostur á að kaupa miða með afslætti á Meiri gauragang og Grandaveg 7. Þri. 10,- 31. mars kl. 20-22 (4x). Ámi Ibsen og Melkorka Tekla Ólafsdóttir bæði leikhúsfræðingar og Gunnlaugur Ástgeirsson bókm.fr., auk höfundanna þriggja. ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR og hlutverk þeirra í þjóðmenningu okkar að fornu og nýju Þjóðsögur, uppmni þeirra og lifandi mótun í munnlegu ferli. Mið. 11. feb.-l. apr. kl. 20:00-22:00 (8x). dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson fyrrv. próf. í þjóðfr. HÍ. LÍF OG LIST BEETHOVENS Á námskeiðinu „Lff og list Beethovens" verður fjallað um dáðustu verk Beethovens í flutningi bestu tónlistarmanna með tóndæmum. Mið. 11. feb.-l. aprfl kl. 20-22 (8x). Ingólfur Guðbrandsson tónlistarmaður og forstjóri. HVERNIG HEFUR ÞRÓUNARKENNINGIN ÞRÓAST? Staða hennar í lok 20. aldar. Mið. 18. feb.-ll. mars kl. 20-22 (4x). Ömólfur Thorlacius, fyrrv. rektor. ARKITEKTÚR - BYGGINGARLIST í samstarfl við Arkitektafélag íslands. Farið yfir helstu hugtök, stefnur og sögulegt samhengi. Þri. 17. mars - 7. apr. kl. 20-22 (4x). Sigurbergur Ámason arkitekt, Geirharður Þorsteinsson arkitekt, Pálmar Kristmundsson arkitekt, Pétur H. Ármannsson arkitekt og Illugi Jökulsson rithöfundur. JARÐFRÆÐI HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Farið yfir berggmnn svæðisins, jarðsögu, uppbyggingu, aldur, halla, brot, jarðhita og eldvirkni. Einnig fjallað um sjávarstöðubreytingar, rof jökla, landmótun o.fl. Þri 21. og 28. apríl og 5. og 12. maí kl. 20:00-22:00. Auk þess em vettvangsferðir áætlaðar 7. (kvöld), 9. (10-16) og 12. (10-16) maí. Helgi Torfason og Hreggviður Norðdahl báðir jarðfr. LJÓÐASKEMMTUN: ÞJÁLFUN í LJÓÐALESTRI Mismunandi hlutverk kvæða; margvísleg ljóðform; munurinn á gömlum kvæðum og nútímaljóðum. Ljóðalesandinn verður alltaf í brennidepli. Þri. 10. feb.-lO. mars kl. 20:15-22:15 (5x). Eysteinn Þorvaldsson prófessor KHÍ. Námskeið í samstarfí við Listahátíð 1998 AFRÍSKAR BÓKMENNTIR OG LISTIR Afrísk list verður sérstaklega kynnt á Listahátíð í vor og í tilefni af því er efnt til námskeiðs um Afríku, bókmenntir hennar og listir. Mán. 23. mars-4. maí (frí 13. apríl) kl. 20-22. (6x) Guðni Elísson bókmenntafræðingur og stundakennari HÍ, Harpa Bjömsdóttir myndlistarmaður o.fl. WJRLÁKSTÍÐIR OG MENNING ARHEIMUR MIÐAIDA Fjallað verður um þann framandlega menningarheim sem Þorláks- tíðir eru sprottnar úr. Samtími Þorlákstíða verður til umfjöllunar og hlýtt á æfingu Kanúka-flokksins Voces Thules á Þorlákstíðum. Þri. 7. apríl - 19. maí kl. 20:15-22:15 (7x). Ásdís Egilsdóttir dósent, Torfi Túliníus dósent og meðlimir Kanúkaflokksins Voces Thules. „FLÖGÐ OG FÖGUR SKINN“ í samstarfi við Nýlistasafnið og menningarverktakafyrirtækið art.is. Þri. 17. feb. - 24. mars kl. 20-22 (6x). Dagný Kristjánsdóttir, Geir Svansson, Guðni Elísson og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingar og Jón Proppé gagnrýnandi. Heimsóttar vinnustofur listamanna sem taka þátt í verkefninu. Skráning og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Endur- menntunarstofnunar s. 5254923-24-25. Netfang endurmhi.is A Oþekktar ljósmyndir í Þjóðminja- safninu ÞJÓÐMINJASAFN íslands hefur staðið fyrir nokkrum ljósmynda- sýningum á undanfómum árum, þar sem sýndar hafa verið óþekkt- ar ljósmyndir, aðallega manna- myndir, úr fórum safnsins. Sýning- in hefur það að markmiði að leita upplýsinga um myndefnið hjá safn- gestum. Greiningarsýning á ljósmyndum Sæmundar Guðmundssonar ljós- myndara hefur verið opnuð, en Sæ- mundur starfaði víða við ljósmynd- un á fyrstu þremur áratugum ald- arinnar, m.a. á Stokkseyri, Bíldu- dal, Hnífsdal, Akranesi og í Hafn- arfirði. Þær myndir sem nú eru sýndar eru aðallega frá starfsárum Sæ- mundar í Hafnarfirði frá um 1922-30. Talið er að enn sé þess kostur að fá upplýsingar um nöfn þess fólks sem myndirnar sýna. Hér getur að líta alla aldurshópa, fjölskyldur, böm, konur og karla. Þess er vænst að sem flestir eldri Hafnfirðingar leggi safninu lið með því að skoða sýninguna og miðla þekkingu sinni um myndefnið. Sýningin mun standa til 15. febr- úar. Bent er á að safnið er aðeins opið fjóra daga í viku yfir vetrar- tímann; laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12-17. ---------------- Sýningum lýkur Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs TVEIMUR einkasýningum lýkur nú um helgina. Það er sýning Kjartans Ólasonar í austursal og sýning Steinunnar Helgadóttur á neðri hæð. Listasafnið er opið daglega frá kl. 12-18, nema mánudaga. I f > \ i \ ! I i i i \ i í

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.