Morgunblaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 17
LISTIR
Tónleikar til styrktar listasjóði Tónlistarskólans í Reykjavík
„Virðingarvottur við
ungt tónlistarfólku
ÞRIÐJUDAGINN 3. febrúar kl.
20.30 heldur Gunnai- Kvaran selló-
leikari einleikstónleika í Listasafni
Islands. Tónleikamir era til styrkt-
ar Listasjóði
Tónlistarskólans
í Reykjavík sem
stofnaður var
fyrir nokkrum
árum til þess að
styrkja og veita
viðurkenningu
efnilegum nem-
endum við skól-
ann.
A efnisskránni
eru tvær svítur eftir J.S. Bach, ein-
leiksverkið Skýin eftir Karólínu
Eiríksdóttur sem nú verður leikið
öðru sinni hér á landi og Serenada
í 9 köflum fyrir selló eftir eitt
helsta nútímatónskáld Þjóðverja,
Hans Wemer Henze. Efnisskráin
Hamlet í
Lista-
klúbbnum
FYRIRLESTUR og umræður
verða í Listaklúbbi Leikhúskjallar-
ans um leikritið Hamlet mánudags-
kvöldið 2. febrúar kl. 20.30. Leik-
ritið er sýnt í Þjóðleikhúsinu um
þessar mundir.
Bjarni Jónsson leikskáld, leik-
húsfræðingur og „dramatúrg" sýn-
ingarinnar talar um leikritið og
fjallar lítillega um bakgrunn þess.
Leikaramir Hilmir Snær Guðna-
son, sem fer með hlutverk Ham-
lets, Stefán Jónsson, sem leikur
Horas, vin Hamlets, og Sigurður
Sigurjónsson, sem m.a. leikur graf-
arann, flytja brot úr sýningunni.
Að lokum munu sitja fyrir svömm;
leikstjórinn Baltasar Kormákur,
leiklistarráðunauturinn Bjami
Jónsson og búningahönnuðurinn
Fillipía I. Elísdóttir en hún er höf-
undur búninga ásamt Vytautas
Narbutas frá Litháen sem einnig
er höfundur leikmyndar. Kynnir og
stjórnandi umræðna er Melkorka
Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðu-
nautur Þjóðleikhússins.
---------------
Fyrirlestrar á
vegum MHI
GRANT Watson, breskur mynd-
listarmaður og gestakennari við
MHÍ, heldur fyrirlestur í Málstofu
í Laugarnesi mánudaginn 2. febrú-
arkl. 12.30.
I fyrirlestrinum fjallar Watson
um myndlistarblaðið Victoria sem
hann gefur út í London ásamt fleir-
um og sýningarhald og margmiðl-
unarverkefni sem tengist blaðaút-
gáfunni.
Leifur Þorsteinsson, ljósmynd-
ari og umsjónarmaður tölvuvers
MHÍ, heldur fyrirlestur í Barma-
hlíð, Skipholti 1, miðvikudaginn 4.
febrúar kl. 12.30. Leifur mun fjalla
um þýska ljósmyndarann August
Sanders (1776-1964).
---------------
Aðrir tónleik-
ar Nýja tón-
listarskólans
AÐRIR tónleikar í tónleikaröð
Nýja tónlistarskólans, sem haldin
er í tilefni af 20 ára afmæli skól-
ans, verða í Grensáskirkju í dag kl.
17.
Ragnar Bjömsson leikur tvo
orgelkonserta op. 4 nr. 5 og nr. 13 í
F-dúr. Einnig kemur fram strok-
hljómsveit skólans, sem skipuð er
kennumm og nemendum sem em
á lokastigi tónlistamámsins og
mun Ragnar stjórna flutningi
hljómsveitarinnai- á Fantasíu í
f-moll eftir Mozart.
er sú sama og Gunnar heldur utan
með í tónleikaferð til Danmerkur
og Þýskalands á næstunni.
Listasjóður Tónlistarskólans í
Reykjavík var stofnaður fyrir
nokkmm ámm. Ætlunin var að
fjármagna sjóðinn með tónleika-
haldi en ekki vom haldnir nema
tvennir tónleikar. Það hefur því
ekki reynst unnt að veita styrk úr
sjóðnum enn sem komið er. „Ég
ber mikla virðingu fyrir því unga
fólki sem hefur ákveðið að leggja
tónlistina íyrir sig. Það leggur mik-
ið á sig og mig langar til þess að
viðurkenna vinnu þeirra með þess-
um tónleikum,“ segir Gunnar. „Ég
vona að það komi eitthvað í sjóðinn
svo hægt verði að veita úr honum
næsta vor.“
Gunnar segir að oft vilji gleym-
ast að viðurkenna það sem vel er
gert og kastljósið beinist gjarnan
um of að vandamálum ungs fólk.
Hann er reyndar þeirrar skoðunar
að margan vanda yngri kynslóðar-
innar megi leysa með því að efla
tónlistarkennslu í skólakerfinu.
„Möguleikar tónlistarnáms eru
ekki nýttir nægjanlega í grunn-
skólum. Ég held að það sé mjög
mikilvægt að öll börn í grunnskól-
um kynnist töfrum góðrar tónlist-
ar, ef ekki í gegnum tónlistar-
kennslu, þá með því að kenna
þeim að hlusta á og læra að meta
gildi góðrar tónlistar frá unga
aldri. Því miður er það þannig að
það er ekki einu sinni til kennslu-
efni til tónlistarkennslu í grunn-
skólum svo kennarar hafa lítið
sem ekkert að styðja sig við,“ seg-
ir Gunnar og bætir því við að hon-
um sé t.d. ómögulegt að skilja
hvers vegna morgunsöngur var
lagður niður í skólum. „Ég hef
sjálfur um 30 ára reynslu af tón-
listarkennslu og ég trúi því að ef
kynngimagn tónlistarinnar yrði
nýtt betur við kennslu barna og
ungmenna þá væri þroski og and-
leg vellíðan þeirra betri við lok
skólagöngu. Því ef það er eitthvað
sem samfélag okkar skortir í dag
þá er það sú kyrrð og ró hugans
sem góð tónlist veitir.“
Ótrúlegt
sjónanslðð
nmkms
með 28" FLÖTUM svörtum skjá (íst), íslensku
textavarpi, Scart-tengi, aðgerðastýringum á
skjá, tímarofa, fjarstýringu o.m.tl.
Tilboðsverð:
47.900,*
Framleidd í
Evrópu !
II&VL1II14 ■*»* .
26.900,
með 20" Black Matrix skjá, islensku
textavarpi, Scart-tengl, aðgerðastýringum
á skjá, limarofa, fjarstýringu o.m.fl.
stgr.
ITIVIMNIM Tilboðsverð:
19.900
með 14" Black Matrix skjá, islensku
textavarpi, Scart-tengi, aðgerðastýringum
á skjá, timarofa, fjarstýríngu o.m.fl.
!
Takmarkað magn, fyrstir koma
RADGREIOSLUR
LE mA ,
TIL ALLT AP 36 MÁNABA. w
Opið laugardaga kl. 10:00 • 14:00
fyrstir fá! Grensásvegi 11
Sími: 5 886 886
Gunnar
Kvaran