Morgunblaðið - 01.02.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 01.02.1998, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Gangagerðin er samkvæmt þessu ekki aðeins tækni- lega óvenjuleg, heldur einnig samningalega, því það eru ekki ábyrgðir á þeim lánum sem í gangi eru. Það liggur í tekjunum með hvaða hætti lánsféð verður greitt til baka fram fjármagn á byggingartíman- um. Lánveitendur fá síðan greitt til baka eftir fastmótuðu kerfi. Gangagerðin er samkvæmt þessu ekki aðeins tæknilega óvenjuleg, heldur einnig samninga- lega, því það eru ekki ábyrgðir á þeim lánum sem í gangi eru. Það liggur í tekjunum með hvaða hætti lánsféð verður greitt til baka. Til þess að þetta gæti virkað þurftum við að sýna þessum fjár- festum fram á að dæmið gæti gengið upp og í það fór gríðarleg vinna, auk þess sem þessir erlendu aðilar settu kastljósið á okkur, sendu hingað sérfræðinga sína og vógu og mátu hvaða vonir menn gætu gert sér hér á landi með verkefni af þessu tagi.“ Góðar horfur og batnandi Samkvæmt öllum sólarmerkjum stendur fyrii-tækið og fellur með því að landsmenn noti göngin. Þið eruð þá væntanlega bjartsýnir á góðar undirtektir? „Það eru alltaf einhverjir sem nýta sér ekki svona lagað, en á heildina litið getum við verið bjart- sýnir og ef eitthvað er þá em horf- ur stöðugt batnandi þar sem um- ferðarþungi eykst hér á landi meira heldur en við reiknuðum með í áætlunum okkar. Við áætlum að ná um 64% af léttari umferð og 78% af þungu umferðinni. Þá emm við að tala um veltu á ári upp á milli 500 og 600 milljónir." Þið haldið ekki að andúð lands- manna á vegtollum sem sýnd var á Reykjanesbraut um árið muni ganga aftur? „Nei, við höfum ekki áhyggjur af því. Nú em breyttir tímar. Auk þess varð strax ljóst þegar farið var að þreifa á þessu máli að ekki var fótur fýrir því að vinna verk af þessu tagi fyrir almannafé og því var þessi leið farin. Menn borga með ferjum, því ættu menn ekki að borga fyrir göng? Við emm raunar ekki búnir að ákveða það endanlega enn hvað það muni kosta að aka um göngin, en miðað við léttari bfla er ekki ólíklegt að meðalverð verði um 800 krónur. Það verður eitt fast verð og ekki aukreitis fyrir hvem ein- stakan farþega. Svo verður völ á afsláttargjöldum ef menn t.d. borga fyrirfram. Menn spara kannski ekki í bensíni sem nemur þessari upphæð, en það má ekki gleyma öðrum þáttum, eins og al- mennu sliti á bifreið, dekkjum og öðmm búnaði, og ekki má gleyma þeirri gífurlegu samgöngubót að stytta leiðina um, ja, 60 kílómetra ef menn em á leið á iðnaðarsvæðið á Grundartanga eða til Akraness. Bara ef litið er á þann þátt gefur það fullt tilefni til bjartsýni af okk- ar hálfu.“ Það er af og til að heyrast að ör- yggisbúnaður í göngunum sé ekki í takt við viðurkennda staðla, er það rétt? „Nei, það er ekki rétt. Við höfum sótt þekldngu og reynslu í þessum efnum til Norðmanna sem em manna fremstir á þessu sviði. Frá- gangur öryggismála í göngunum er í takt við norska staðla og stenst þá fuflkomlega.“ Hvenær verða svo göngin tilbú- in? eftir Guðmund Guðjónsson STEFÁN ólst upp í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá MR 1966 og viðskiptafræðinámi frá HÍ 1971. Næstu árin starfaði Stefán víðs vegar, hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur, Hagfræðideild Reykjavíkur og hjá Flugleiðum þar sem hann var lengst af fjárreiðustjóri. Árið 1981 hóf hann störf sem fjármálastjóri hjá Islenska Jám- blendifélaginu á Grundartanga í Hvalfirði og þar starfar hann enn þó starfslok hjá því fyrirtæki blasi nú við. „Þetta er orðinn ansi langur tími og ætli ég geti ekki sagt að ég sé orðinn frekar þreyttur þó þetta hafi jafnframt verið góður tími, lærdómsríkur og á margan hátt skemmtilegur. Viss tímamót era auk þess fyrir hendi, t.d. er for- stjórinn, Jón Sigurðsson, sem ég starfaði með í gegnum árin sestur í helgan stein. Maður kemur í manns stað og auk þess hef ég frá upphafi verið í stjórn Spalar sam- hliða starfi mínu hjá Járnblendifé- laginu, lagt þar fram mikla vinnu og því má ef til vill segja að þetta sé eðlileg breyting hjá mér og langt frá því að ég sé að taka mér fyrir hendur eitthvert framandi starf. Samt verða eflaust mikil við- brigði að hætta hjá Jámblendinu eftir öll þessi ár,“ segir Stefán. Göng eða eitthvað annað ... Áður en lengra er haldið er rétt að rifja upp tilurð þess fyrirtækis sem Stefán tekur nú við, en hefur raunar lengi stjómað ásamt öðr- um. Spölur heitir það og var stofn- að um gerð ganga undir Hvalfjörð. Rætumar er að rekja til ársins 1982 er Stefán var ásamt fleirum, m.a. nokkmm Norðmönnum, á leið á stjómarfund á Gmndartanga. Hvalfjörðurinn var þá ómalbikaður og holóttur með afbrigðum í rign- ingunni sem steyptist úr loftinu þann dag. Á fundinum var m.a., vegna þessa, rætt nokkuð um samgöngu- bætur og einn Norðmaðurinn lagði til að ein milljón yrði sett í að UNNIÐ í göngunum. VIÐSKIPTIATVINNULÍF Á SUNNUDEGI ► Stefán Reynir Kristinsson hefur verið fjármálastjóri hjá íslenska járnblendifélaginu um árabil. Hann hefur einnig frá upphafí verið í sljórn Spalar sem stendur að gangagerð undir Hvalfjörð og 1. mars næstkomandi tek- ur hann við framkvæmdastjórastóli hjá Speli. Stefán er Reykvíkingur, fæddur 1945, kvæntur Guðríði Þorsteins- dóttur lögfræðingi og eiga þau eina dóttur Hann segir annasama tíma framundan hjá sér og í mörg horn að líta. kanna hagkvæmni ferjureksturs yfir Hvalfjörðinn á þessum slóðum. Útkoman, segir Stefán, var ekki óhagstæð og var jafnvel ekki óvit- laust að reka tvær litlar ferjur sem gengju ört, frekar en eina stærri. Samt varð ekkert úr þessu, póli- tískur stuðningur fékkst ekki og Skagamenn litu vangaveltumar hornauga af augljósum ástæðum. Sumarið 1988 gerðist það síðan að Stefán Guðbergsson verkfræð- ingur, sem vann miMð við Blöndu- virkjun, átti þarna leið um hvað eftir annað, oftast með norskum sérfræðingum. „Þeir komu til okk- ar og og forráðamanna Sements- verksmiðjunnar og ræddu um að jarðgöng væm alls ekM fráleitur kostur. Norðmenn hafa manna mesta og besta reynslu í þeim efn- um og þeir vom mjög ákveðnir á þessum línum. Um haustið fengum við fremsta norska sérfræðinginn, Ake Blind- heim, til að koma og skoða þetta með okkur. Þetta vatt upp á sig er æ fleiri, sem málið, varðaði tóku þátt í umræðum. Þetta ferli endaði í janúar 1991, er Spölur var stofn- aður og fékk einkaleyfi til að gera jarðgöng undir Hvalfjörð og inn- heimta vegtoll til að fjármagna verMð,“ segir Stefán. Þetta tók sinn tíma eins og lesa má úr ártölum þeim sem Stefán nefnir. Ein af ástæðunum var óvenjuleg fjármögnunarleið og ein- hverjir „flóknustu lögfræðivefir sem blasað hafa við íslenskum lög- mönnum“, eins og Stefán orðar það. Óvenjuleg íjármögnun o.fl. „Flóknustu lögfræðivefirnir“ fólust m.a. í því að ýmsir aðilar komu að málinu og frá ýmsum löndum. Hver og einn hafði sína lögfræðinga sem þurftu að skoða málið frá öllum hliðum, samræma og staðfesta. Þannig kom jap- ansk/enski banMnn Normura Bank að málinu á ráðgjafastigi og hafði með sér dótturfyrirtæki sitt, Ba- bcock&Brown, Landsbréf vom innlendi ráðgjafinn og einnig komu að þessu síðar bandaríska fyrir- tæMð John Hancock Insurance frá Boston og íslenskir lífeyrissjóðir, báðir sem fjárfestar. Á einu stigi málsins þurfti hópur banka, m.a. Beringsbank, EnsMlda og LandsbanMnn, að koma í málið og samþykkja að fjármagna alla vinnuna á byggingartímanum. Lögmenn allra þessara fyrirtækja, auk lögmanna Spalar þurftu að taka vel til hendinni, því svona lag- að verður ekki gert nema með miklum og öraggum undirbúningi. Það má ekkert liggja á lausu,“ seg- ir Stefán. En hvernig var svo verkið fjár- magnað? „Þegar upp var staðið vora stærstu fjárfestamir John Hancock Insurance sem lagði fram um 2,7 milljarða og íslenskir lífeyr- issjóðir sem lögðu til um 1,8 millj- arða, en sem fyrr segir leggja bankarnir sem áður voru nefndir GÖNGIN NÍU MÁNUÐUM Á UNDANÁÆTLUN > I * > > > > [I > 1 > > ► t ► > > I >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.