Morgunblaðið - 01.02.1998, Side 32

Morgunblaðið - 01.02.1998, Side 32
82 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MINNINGAR MOBGUNBLAÐIÐ DRÖFN HANNESDÓTTIR + Dröfn Hannes- dóttir kennarí var fædd 11. nóvember 1935. Hún lést 23. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Hannes M. Þórðarson, kennarí, f. 4. febrúar 1902, d. 4. janúar 1998, og Ólöf Guð- Iaugsdóttir, kennari, f. 27. júlí 1903, d. 29. október 1952. Dröfn tók stúdentspróf frá MR 1955 og kennara- próf 1956. Kenndi við Austurbæjarskólann í Reykjavík 1956-1960. Hinn 1. janúar 1960 giftist hún Skúla Gunnarssyni kennara. Hún lét af kennslu 1960 er hún eignaðist sitt annað bam og helgaði sig móðurhlutverkinu. Börn hennar eru fjögur: Védís, f. 1957, Sólrún, f. 1960, Sindri, f. 1967, og Sólbrá, f. 1976. Barnabörnin urðu sjö. Síðustu árin átti hún við veikindi að stríða. títför Drafnar fer fram frá Fossvogs- kirkju á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku mamma, lífshlaupi þínu verður best lýst með því, hvernig þú varðir síðustu ævidögum þínum. Helsjúk íylgdirðu nánustu ástvin- um þínum til grafar. Það var frost- stilla og stjömubjart kvöld, þegar við stóðum saman í síðasta skiptið. Þung þóttu mér vera þau örlög að sú samverustund skyldi vera yfir moldum fóður þíns, viku eftir að við fylgdum systur hans til grafar. Ekki leið nema einn dagur, eftir að þú kvaddir föður þinn, að þú lagðist banaleguna og andaðist 11 dögum síðar. Á þessari síðustu gönguferð þinni vildirðu leiða mig. Höndin þín þrýsti mína til að fullvissa sig um að mér væri ekki kalt, eins og hún hafði ótal sinnum gert þegar ég var barn, þessi síðustu spor þín með mér í jarðlífinu. Gömul mynd stendur á skrif- borðinu mínu, meira en 35 ára göm- ul. Á henni er gullfalleg ung kona með mikið og þykkt liðað svart hár í tagli. Hún heldur í höndina á dótt- ur sinni og bendir á andahjón á svamli með hinni hendinni. Hvaða fræðsla fylgdi andahjónunum er gleymd. Myndin minnir mig hins vegar alltaf á, hvað þú helgaðir þig uppeldi og umönnun bama þinna. Önnur ættmenni fóru heldur ekki varhluta af umhyggju þinni. Þeim hjálpaðirðu líka, hvenær sem þú gast. Þú varst kennari að mennt og hafðir allt til að bera sem prýða má góðan kennara. Það er því ekki of- sögum sagt að þú hafir verið mesti kennari okkar bamanna, þótt við væmm flest það heppin að hafa góða kennara á öllum skólastigum. Veg okkar vildirðu sem mestan og hvattir okkur því óspart, þegar við lentum í stormum h'fsins. Þar varstu sjálf fyrirmyndin. Betra veganesti er ekki hægt að gefa bömum sínum en að standa undir merkjum í því sem við boðum og kennum. Eins og afi, faðir þinn, hafðir þú mikinn áhuga á íslenskri tungu, menningararfleifð og sjálfstæði landsins. Einnig hafðirðu yndi af ljóðum og ævintýram og notaðir allar þær stundir þegar þú gast komið því við, til að lesa fyrir °kk- ur. Minnisstæðust af öllum þessum ævintýram sem þú sagðir era þau sem þú skáldaðir sjálf um hvers- 2 1 1 I 3 | 5 Fersk blóm og skreytingar við öll tækifæri Opið til kl.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, si'mi 568 9120 o I 5 1 2 I 3 OIOI#IOI#0OIO dagslega hluti, hvort sem um stein eða ljósastaur var að ræða. Þú varst viðkvæm og barst umhyggju fyrir lítilmagnanum og slæddist sá boðskapur inn í mörg af þeim ævin- týram sem ég man eftir. Einnig lagðirðu mikla áherslu á að vandað væri til verka, hvert sem verkið var. Það var því líka algengur sögu- þráður í ævintýram þínum. Þú varst með greindustu konum og hafðir einstaka skapgerð, sem mótaði okkur systkinin mikið. Glað- værð þín og eiginleikinn til að finna eitthvað gott í hlutum, þegar á móti blés, var einstakur. Einnig varstu með jafnlyndustu persónum sem ég þekkti, ég sá þig svo til aldrei skipta skapi. Fjölskylda þín var þér allt og þú lagðir allt í sölurnar fyrir hana, til hinstu stundar. Sem mikil fjölskyldukona naustu þín því best í faðmi fjölskyldunnar og á fjölskylduboðin þín var komin löng hefð. Þú varst höfðingi heim að sækja og með ólíkindum hvað þér tókst að töfra fram margar kökur og annað góðgæti á skömm- um tíma. Tómlegt verður í Hvassa- leitinu í framtíðinni, með þrjú auð sæti við borðstofuborðið, svo tóm- legt að ég má vart hugsa til þess. Nöturlegt var það ár, þegar vá- gesturinn mikli krabbameinið réðst inn á heimili þitt í Hvassaleitinu. Þrír fjölskyldumeðlimir greindust með sjúkdóminn og varðst þú innan kjamafjölskyldunnar fyrst fyrir barðinu á því. Baráttan sem hófst þá var afar erfið. í kjölfar hefðbundinnar erf- iðrar meðferðar þurftirðu að gang- ast undir hvem stórappskurðinn á fætur öðram. Þú hafðir alltaf verið hugrökk, en hugrekki þínu og æðraleysi á meðan á þessu stóð verður ekki lýst með orðum. Aldrei heyrði ég þig kvarta. Þú hafðir aft- ur á móti áhyggjur af dóttur þinni, sem greindist með illkynja sjúkdóm skömmu á eftir þér. Það lýsir þér vel að sárþjáð fórstu, varla göngu- fær, til að heimsækja hana eftir að- gerðir, þegar þið láguð báðar á sama spítala um leið. Oft er það svo að við göngum í gegnum mikla gleði og sorg á svip- uðum tíma. Þökk sé læknavísindun- um líta horfurnar hjá dóttur þinni miklu betur út núna en áður. Sama dag og þú fékkst þær fréttir lá það ljóst fyrir að ekki væri hægt að gera meira fyrir þig. Yfir dótturinni gladdistu innilega en sagðir ekki stakt orð um, í hvað stefndi hjá þér. Sem betur fer göngum við ekki nema einu sinni í gegnum þá miklu raun, sem móðurmissir er fyrir fiesta, sumu verður ekki lýst með orðum. Að leiðarlokum er ég stolt yfir því að vera dóttir þín og hafa notið þeirra forréttinda sem ást þín og uppeldi var. Ég vil einnig þakka systkinum mínum og föður fyrir alla þá umönnun og stuðning sem þau veittu mömmu í veikindum hennar. Sú aðhlynning var alveg einstök, þið stóðuð eins og klettar við hlið hennar, uns yfir lauk. Góður guð, veittu föður mínum, systkinum mínum, móðursystram og öðrum aðstandendum mömmu styrk í þeirra miklu sorg. Mig lang- ar til að kveðja þig, elsku mamma mín, með kvæði eftir eitt af okkar uppáhaldsskáldum. Þú Mærð svo himnamii- ljóma A heillandi dans minna öD þín spor orð þitt er ilmur blóma ást þín gróandi vor sál þín Ijósið, sem ljóma vefur löndin bræðir og þjartað kalt. Ein og sama eiiífð tengir allt sem var og koma skal I hvílunni enginn jafn sólhvít sefur - þú gefur oggefurallt Hvert blóm sem grær við götu mína er gjöf frá þér og á þig minnir allt hið fagra sem augað sér Sól og jörð og svanir loftsins syngja um þig Hvert fótspor, sem ég færist nær þér friðarmig. (Davíð Stefánsson) Þín dóttir, Védís. Þá er fegursta lauf trésins fölnar og fellur að rótum þess, þá samlag- ast það þeim hinum sama jarðvegi og áður gaf því líf og verður sú upp- spretta sem viðheldur hringrás lífs- ins þar sem í endi er falið upphaf. Þannig deyr það ekki heldur lifir áfram í gegnum það líf er það gefur af sér. Því ber ekki að syrgja það þó við minnumst fegurðar þess, heldur gleðjast yfir minningunni er við geymum í hjörtum okkar. Með ástúð þinni, visku og hlýju mótaðir þú æsku okkar og hlóðst þann grann sem við síðar byggðum á þegar út í lífsbaráttuna kom. Betra veganesti fyrir lífið hefði enginn getað gefið okkur. Þú varst ekki einungis móðir heldur lika okkar besti vinur og félagi allt fram til síðustu stundar. Við deildum með þér gleði okkar, vonum og áformum og ef á móti blés þá stappaðir þú í okkur stálinu og stóðst við hlið okkar í gegnun þykkt og þunnt. Þið pabbi bjugguð okkur hamingjuríkt heimili sem var okkar griðastaður í ágangi lífsins. Þú lést okkur eftir sjóð sem er öHum öðram verðmætari, en það er hafsjór hamingjuríkra minninga um allar þær stundir sem við eydd- um saman. Þau vora fjölmörg skiptin sem við sátum öll saman, og þið pabbi skiptust á að lesa fyrir okkur sögur og ævintýri svo + Sigríður Þórðardóttir var fædd í Jórvík í Breiðdal 5. desember 1906. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 20. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey. Hvað gerir okkur að þeim ein- staklingum sem við erum? Svarið er ekki einfalt, en nokkuð er víst að við erum samspil erfða, uppeldis, umhverfis og fleiri þátta. í þessari blöndu vega þeir einstaklingar þungt sem við höfum lært af eða haft varanleg áhrif á okkur. I þess- ari mótun vegur okkar nánasta umhverfi þyngst, á meðan er verið að slíta barnsskónum. Sú reynsla sem við öðlumst þar verður síðar mikilvæg í lífssýn okkar, skoðunum og hugmyndum. Hún er það vega- nesti sem við leggjum af stað með út í lífið. Það era margir einstaklingar sem leggja okkur til nestissneið- amar í veganestisboxið og sneið- arnar era misstórar eftir aðstæð- um. Mismunandi mikið er lagt í áleggið og víst er að maður verður ekki saddastur af dýrastu sneiðun- um. Það era þær sem vandað er til, með það að markmiði að seðja, sem skipta sköpum um hvernig okkur reiðir síðar af í lífinu. Sigríður var systir móðurafa míns Hannesar og voru þau systk- inin mjög nátengd. Þrátt fyrir að klukkustundum skipti. Þær minn- ingar gleymast seint. Það var líka ósjaldan, þegar við komum köld og hrakin inn úr kalsa skammdegisins, að á eldúsborðinu logaði á kertum og okkar beið heitt kakó og pönnu- kökur. Bókin var þá líka yfirleitt skammt undan og kuldinn og hrá- slaginn hurfu eins og dögg fyrir sólu. Þessar minningar munu ylja okkur lengi. Gönguferðirnar voru óteljandi og oft var skoðað í glugga eða farið til þess að ná sér í ís ein- ungis til að njóta samverannar. Jól- in voru alltaf yndislegur tími og þú sást til þess að við nytum þeirra til fullnustu. Þá var íbúðin þrifín frá toppi til táar, bakað, föndrað, hlust- að á jólalög, sungið og auðvitað lesnar jólasögur. Á Þorláksmessu var jólatréð skreytt og þá söfnuð- umst við öll saman og áttum hátíð- lega og notalega stund. Ibúðin breyttist í lítið jólaríki og óhætt er að segja að þessi tími lýsti upp myrkasta skammdegið og hleypti sannri jólastemmningu inn í hjörtu okkar allra. Jólin munu alltaf verða okkur hjartfólgin og um leið vekja hamingjuríkar minningar. Þér tókst alltaf að sjá það góða í lífinu og styrkur þinn þegar halla tók undan fæti í baráttu þinni við veikindin var okkur öllum hvatning. Þitt innra ljós hefur auðgað og lýst upp líf okkar allra. Minning þín verður ávallt umvafin ást og hlýju. Þetta Ijóð var ort til hennar af föður hennar Hannesi M. Þórðar- syni, sem lést 4. janúar síðastlið- inn: Elsku blómin blíðu, berið kveðju mína. Ilms og yndis neytið, atlot henni veitið, Þegargrundugengur gróna yðar stóði, jarphærð kosta kona, kona stórra vona. Látið ilm og angan allar lautir fylla, breiðast yfir bungur, brekkur, holt og klungur. Ilmsins voðum vefjið væna konu, blómin. Alstaðar þá eimir, unaðurinn streymir. Hvíl í friði elsku mamma. Þín börn, Sindri, Sólbrá og Sólrún. Elsku Dröfn mín. Mig langar til að skap og framkoma væri ólík vora þau miklir vinir. Þau vörðu því mikið frítíma sínum saman, ásamt börnum beggja. Móðuramma mín dó ung, áður en ég fæddist. Sigríð- ur var því Dröfn móður minni meira sem móðir en fóðursystir og kölluðum við hana því yfirleitt frænku, sjaldan Sigríði. Væri talað um önnur ættmenni, þá voru notuð skírnarnöfn. Börn frænku urðu því mömmu sem systkini og hún okkur Drafnarbörnum sem sú amma sem við þekktum aldrei. Segja má að það sé táknrænt fyrir þau sterku tengsl, sem tengdu systkinin, að afi okkar Hannes dó kvöldið fyrii- jarðarför frænku. Sú ósk þeirra systkina að verða samferða til æðri heima, rættist því nokkurn veginn. Frænka okkar var með hógvær- ustu og lítillátustu konum sem ég hef kynnst. Hún hafði sig því lítt í frammi. Því skemmtilegra var að heyra í henni, ef hún sagði eitt- hvað, þar sem hún var mjög víðles- in og fróð, reyndar hafsjór af fróð- leik. Hún var góður hagyrðingur, en var ekki að flíka því, fremur en öðra. Hins vegar myndi hún ekki kunna mér miklar þakkir fyrir ein- hverja lofræðu um sig og orða- flaum. Hún var fámál en lét athafnir tala. Sem dæmi um það missti þessi fíngerða, smávaxna kona ekki minnast þín og þakka þér með því sem hér á eftir kemur. Minning- arnar renna fram hjá. Hvar á ég að nema staðar? Þetta eru hlýjar og góðar minningar um yndislega konu, sem geislaði af góðum vilja og fórnfysi. Dröfn mín, alltaf varstu tilbúin til að rétta fram hjálparhönd ef eitthvert okkar átti í erfiðleikum. Þú máttir ekkert aumt sjá og vildir ætíð að allt endaði vel. Þú fæddir af þér fjögur falleg og góð börn sem undu vel í hlýjum faðmi þínum. Þar fór vel um þau. Öryggi, friður, ást og viska umlukti þau og gerðu þau að því sem þau eru í dag. Þetta eru fallegar og sterkar manneskjur, sem munu án efa halda áfram að miðla því sem þeim var eitt sinn gefið. Það er margs að minnast frá þessum tíma er þið fjölskyldan tókuð mér opn- um örmum og gáfuð mér hlutdeild í því sem þið áttuð. I Hvassaleitið var alltaf gott að koma, þar ríkti góður andi og alltaf biðu okkar ýmsar kræsingar á borðum sem þú reiddir fram af þinni einstöku snilld og enginn mátti fara svangur frá borði eða fara illa klæddur heim þegar kuldi var úti. Áður en fólk vissi varstu komin með húfur og vettlinga og farin að renna úlp- um upp í háls. Þannig varst þú og umhyggja þín fyrir velferð okkar allra verður aldrei gleymd. Skúla manni þínum varstu góður félagi og lífsförunautur, sorg hans og missir er mikill en við munum öll, elsku Dröfn mín, vera til staðar fyrir hann og veita honum allan okkar stuðning, vináttu og ást á komandi áram. Ég veit þú munt vaka yfir okkur áfram og minning- in um þig, minningin um konu sem gaf svo mikið og átti hjarta fullt af ást, sú minning mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. „Þótt ég látinn sé, harmið mig ekki með táram, hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt þið lát- inn mig kallið . . . En þegar þið hlæjið og syngið með góðum hug, þá sál mín lyftist upp í mót til ljóss- ins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og þótt ég látinn sé, tek ég þátt í gleði ykkar yfir líf- inu.“ Hvfldu í friði, elsku tengda- mamma. Þín Magnea Margrét. dag úr vinnu í 30 ár. Þrátt fyrir að annar fóturinn væri styttri, sem olli helti, gekk hún öll þessi ár, úr og í vinnu, margra kflómetra vega- lengd. Ekki vildi hún viðurkenna að þetta væri erfitt í slæmum veðr- um og aldrei heyrði ég hana kvarta. Ég man heldur ekki eftir að hafa heyrt hana hallmæla nokkram manni, eða dæma. Hún virti annað fólk og skoðanir þess, bæði fullorð- inna og barna. Fyrir böm og ung- linga er slíkt afar mikilvægt og reynist farsælla, þegar einstakling- urinn endurskoðar viðkomandi skoðun eða ákvörðun síðar. Þegar ég var átta til níu ára skrifaði hún eftirfarandi vísu í minningabók sem ég á. Oft er það svo að vísur og málshættir, sem eru valdir í slíkar bækur, segja meira um þann sem valdi en þann sem fékk. Láttu ekki í bók þína letra nema það sem geyma viltu gullnum stöfum greypt í hjartastað. Hlýja hennar, ábendingar og ráð til okkar barnanna höfðu því mikil áhrif á, hvemig lífssýn okkar mót- aðist. Þetta er arfur sem við búum að á fullorðinsárum og gengur áfram til barna okkar. Dýrmætari arf en þann sem þú lést allri þinni stórfjölskyldu eftir er ekki hægt að fá. Ég, foreldrar mínir og systkini viljum þakka þér, frænka, árin sem við áttum saman. Guð blessi þig og varðveiti börn þín, barnabörn og afkomendur um ókomna tíð. Védís Daníelsdóttir. SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.