Morgunblaðið - 01.02.1998, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 01.02.1998, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ I S L E N S K I DANSFLOKKURINN 25 ára 1973-1998 Útlagar Islenski dansflokkurinn frumsýnir laugardaginn 7. febrúar nk. Útlagar þrjú dansverk eftir Ed Wubbe og Richard Wherlock. Sýningin hefst kl. 20:00 og fer fram á stóra sviði Borgarleikhússins. Iða Richard Wherlock Tvístigandi sinnaskipti II Útlagar Ed Wubbe Að lokinni sýningu verður efnt til hátiðar- veislu f Borgarleikhúsinu þar sem boðið verður * upp á smárétti og kampavín i samvinnu við Hátel Borg og Sigurð Hall matreiðslumeistara. Dansað verður fram eftir nóttu við undirleik Sýrupolkasveitar- innar Hr.ingi.r. en einnig verður boðið upp á skemmtiatriði. Aðgangseyrir á frumsýn- inguna og hátiðarveisl- una er kr. 3.700 , Veislustjóri: Sveinn Einarsson fv. þjóðleikhússtjóri. Miðapantanir i síma 568 8000 eða 588 0900 Á öðrum sýningum verður boðið upp á matartílboð f samvinnu við nýopnaðan grfskan veitingastað, Casé Frappé. Matur og sýning f Borgarleikhúsinu á ein- ungis kr. 2.750. Pantanir berist skrifstofu íslenska dansflokksins i sima 588 0900. BORGARLEIKHÚSIÐ FÓLK í FRÉTTUM SIGILD MYNDBOND SÚ VAR TÍÐIN að hlutverk kvik- myndahúsanna á Stór-Reykjavíkur- svæðinu var mun menningarlegra en það hefur verið að undanförnu. Enda fyrir tíma kvikmyndahátíða og sjónvarps. Hafnarfjarðarbióin voni í nokkrum sérflokki í þessu til- liti og kom ýmislegt til. Sérstaða þeirra í sýningu evrópskra mynda stafaði sjálfsagt fyrst og fremst af því að þau höfðu ekkert Hollywoodumboð líkt og öll Reykja- víkurbíóin. Á blómatúna þeirra, allt fram á áttunda áratuginn, áttu þau dyggan aðdáendahóp áhugafólks um listrænar kvikmyndir, auk þess sem þau stilitu af og til upp feiki- vinsælum afþreyingarmyndum frá meginlandinu. Hafnarfjarðar- og Bæjarbíó voru ekki ein um hituna. 011 Reykjavík- urbíóin gáfu listrænum myndum af og til tækifæri. I hugskotinu á mað- ur minningar um Bunuel og Berg- man í Hafnarbíói, Truffaut í Nýja bíói, Fellini í Stjörnubíói, Godard í Austurbæjarbíói, Pasolini í Tóna- bíói. Ekki má gleyma mánudags- myndunum í Háskólabíói. Þessi viðleitni kvikmyndahús- anna færði ungum bíógestum heim sanninn um að fleira er matur en feitar Hollywoodafurðir, sá sem þetta skrifar hreifst t.d. snemma af ýmsum góðum mönnum, ekki síst hinum fræga frumheija „frönsku nýbylgjunnar", tímamótamanninum Fran?ois Truffaut. Þetta er ekkert undarlegt, síst í ljósi þess sem ATRIÐI úr mynd Truffaut „La Nuit Américaine“ eða „Day for Night“ þar sem hann lék sjálfur leikstjóra í myndinni. Leslie Halliwell sejjir að Truffaut hafi sagt við sig: „Eg geri myndir sem ég hefði sjálfur viljað sjá sem ungur maður.“ Hann stóð við orð sín. Myndir hans voru langflestar einkar aðlað- andi fyrir augu og eyru, og að- gengilegar - þótt margt leynist und- ir felldu yfirborði. Fyrsta myndin sem vakti athygli mína á leiksljóranum var Jules et Jim (‘61), sýningarstaðurinn Bæj- arbíó, ‘62, ef ég man rétt. Síðan fengum við tækifæri til að sjá flest- TRUFFAUT ásamt Steven Spi- elberg við upptökur á myndinni „Close Encounters Of The Third Kind“ árið 1977. ar hinna 25 mynda meistarans, vítt og breitt um borgina. Truffaut, sem féll frá aðeins liðlega fimm- tugnr, 1984, langt fyrir aldur fram, var maður ekki einhamur. Hann er einn af höfundum auteur - kenningarinnar, sem í stuttu máli gengur út á að þeir einir séu marktækir leikstjórar sem koma sem víðast að myndum sínum. Skrifi handritið og fari gjarnan með stórt hlutverk. Truffaut hóf ungur afskipti af kvikmyndum, var orðinn forfallinn bíófíkill langt innan við fermingu. Notaði kvikmyndina sem flóttameð- al frá ömurlegum aðstæðum á ung- lingsárunum í París. Sem fagmaður kom hann fyrst að listgreininni sem kvikmyndagagnrýnandi og pistla- höfúndur við Cahiers de Cinema 1953. Nokkrir starfsfélaga hans þar, Godard, Chabrol, Rivette og Rohmer, áttu eftir að koma við sögru „nýbylgjunnar“. Á ferlinum skrifaði hann handrit flestra sinna snjöllustu mynda og nokkrar bæk- ur. Sú kunnasta vafalaust viðtals- bók hans við meistara Hitchcock, þar sem þeir starfsbræður fara á einkar læsilegan og skemmtilegan hátt ofan í saumana á hverri ein- ustu mynd hrollvekjusmiðsins. Litlu síðri er The Films in My Life, báðar ómissandi í safnið. Það fyrsta sem lá eftir Truffaut í handritsgerð var söguþráður að einni fyrstu og bestu mynd „ný- bylgjunnar“, A bout de souffle, sem Godard gerði árið 1959. Leikstjór- inn lét ekki þar við sitja heldur framleiddi hann margar mynda sinna og lék í einum tíu, fyrir sjálf- an sig og aðra. Kunnasta hlutverk hans er vafalaust vísindamaðurinn Lacombe í mynd Spielbergs Close Encounters of the Third Kind (‘77). Meðal merkustu mynda Truffauts, auk hinna þriggja útvöldu, má nefna Le Dernier Metro, (‘80), Arg- ent de poche (Small Change), (‘76), L’ Enfant sauvage (The Wild Chiid), (‘69), Fahrenheit 451, (‘66), La Peau douce (Silken Skin), (‘64), og síðast en ekki síst Les Quatre cents coups (The 400 Blows), (‘59). FRANQOIS TRUFFAUT JULES ET JIM (1961) irkirk Undursamleg, rómantísk mynd um ástarþríhyming sem hefst í París fyrir tíma fyrri heimsstyrjaldarinnar. Persónumar þrjár eru Jim, þýskur gyðingur (Oscar Wemer), og tveir Fransmenn; Jules (Henri Serre) og konan sem elskar þá báða, (Jeanne Moreau). Stríðið skellur á og breytir lífi þeirra til langframa. Leikur, handrit (byggt á sögu eftir Henri-Pi- erre Coutard) og leikstjóm em svo töfrandi, tilfmningarnar svo heitar og mannlegar í þessari hrífandi, þó sorglegu mynd, að þær smita fram í salinn og fylgja áhorfandanum ævi- langt. Menntabraut Isiandsbanka - Gagn og gaman NÁMS- OG ATHAFNASTYRKIR Námsstyrkir íslandsbanki mun í tengslum við Menntabraut, námsmanna- þjónustu íslandsbanka, veita sex námsstyrki að upphæð 150.000 kr. hver. Allir námsmenn sem skráðir eru í Menntabraut íslandsbanka geta sótt um styrkina. Styrkirnir eru óháðir skólum og náms- greinum. Athafnastyrkur Einnig efnir íslandsbanki til samkeppni meðal námsmanna sem skráðir eru í Menntabraut íslandsbanka um nýsköpunar- eöa viðskiptahugmynd. Markmiðið er að örva nýsköpun og frumkvæði meðal námsmanna. Veittur verður 200.000 kr. styrkur fyrir hugmynd að nýrri vöru eða hugmynd að rekstri fyrirtækis á sviði vöruframleiðslu eða þjónustu. Upplýsingar og umsóknareyðublöð liggja frammi í öllum útibúum bankans. Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá Markaðsdeild íslandsbanka í síma 560 8000. Skilafrestur er til 15. mars 1998. ÍSLANDSBANKI LA NUIT AMERICAINE - (DAY FOR NIGHT) (1973) ★★★★ Að líkindum frægasta mynd leik- stjórans, vann m.a. Óskarsverðaunin sem besta erlenda mynd ársins 1973. Segir af bæði persónulegum og fag- legum vandamálum kvikmyndaleik- stjóra (Fran§ois Truffaut) við tökur á nýjustu mynd sinni, stirðu sambandi við leikarana og árekstrum við tækni- menn. Fínasta skemmtun og dramat- ísk, fyndin og fróðleg innsýn í það sem gerist að tjaldabaki í kvikmynda- heiminum. Sögumannshæfileikar Truffauts eru einstakir og nýtast knnaski hvergi betur en hér í kóm- ískri og rómantískri nærskoðun hans á ævistarfinu. Valentina Cortese stendur upp úr fínum leikhóp, sem inniheldur m.a. hina glæsilegu en seinheppnu Jacqueline Bisset (hér í sínu langbesta hlutverki á skrykkjótt- um ferlinum) og Jean Pierre Áumont. BAISIERS VOLÉS - (STOLEN KISSES) (1968) -kirkVi Þriðja myndin um yngismanninn Antoine Doinel (Jean-Pierre Leaud) er sú besta í frábærri myndröð (hófst á The 400 Blows), sem höfundurinn byggir á eigin æsku. Hér er sögu- hetjan nýbúin að þola þá hneisu að vera leyst með skömm frá herþjón- ustu og á í nokkrum vandræðum í at- vinnu- og ástamálum. Truffaut fjallar um viðkvæmt efnið af næmi og hlýju, enda mál hins utangátta Doinels hon- um skyld. Eini gallinn við þessar dýr- legu myndir er leikur Leauds, sem mörgum þykir tilgerðarlegur, en hér koma líka við sögu þau Michel Lons- dale og Delphine Seyrig. Sæbjörn Valdimarsson Bakarar - Kokkar SÚRDEIGSBAKSTUR (*MSD 101) Námskeið f súrdeigsbakstri verður haldið í skólanum 14. og 16. febrúar nk. Kennari: Benedikt Hjartarson. * Námskeiðið er metið til eininga í meistaranámi. Innritun virka daga kl. 8—16. Frekari upplýsingar veitir kennslustjóri. ö HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI v/Digranesveg - 200 Kópavogur. Sími: 544 5530. Fax: 544 3961, netfang: mikilsmennt.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.