Morgunblaðið - 01.02.1998, Page 50

Morgunblaðið - 01.02.1998, Page 50
50 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Skattaþjónustan ehf. Bergur Guðnason hdl., Suöurlandsbraut 52, Reykjavík Undirritaður hefur verið í skattamálunum frá því á sjöunda áratugnum og telst vera oðinn nokkuð sjóaður í þeim efnum. Allan þann tíma hefur verið tekist á um frádrætti og tekjur. Leiðin til einföldunar hefur verið hnökrótt hjá skatt- yfirvöldum. Núna er fjármagnstekjuskatturinn orðinn að veruleika. Halda menn að nú sé endanlega búið að ná fullkomnun í skattheimtunni? Nýtið ykkur reynslu mína til að tryggja bestu útkomu fyrir ykkur sjálf þegar talið er fram. Innifalið er að leiða ykkur í gegnum sífelldar breytingar á skattalögunum, endurgjaldslaust, allt árið 1998. Tímapantanir kl. 09-17 í síma 568 2828 Skattaþjónustan ehf. Bergur Guðnason hdl. Sími 551 6500 ★ Væntanleg í Stjörnubíó ★ Myndin hlaut 3 Golden Globe verðlaun. Var valin besta gamanmyndin, Jack Nicholson var valinn besti gamanlekari í aðalhlutverki og Helen Hunt var valin besta gamanleikkona í aðalhlutverki. iJUBLHu JACK nicholson HELEN HUNT GREG KINNEAR AS GOOD ASIT GETS FÓLK í FRÉTTUM Blöðrusalinn við musterishliðið Gamall félagi holdgerist Aðspurðir segja þeir aðdraganda þáttanna mjög langan: „Við höfum verið í kynnum við Jochum í rúm fimmtán ár. Fyrst stóð til að skrifa um hann leikrit fyrir LR, en ekkert varð af þvi. I kringum 1990 skrifuð- um við Jóladagatal fyrir Sjónvarpið. í kjölfar þess leitaði Sveinn Einars- son, þáverandi dagskrárstjóri, til okkar um að skrifa sex þátta syrpu sem við sömdum í kringum okkar gamla vin Jochum Leifsson. Við skulum segja að Sveinn hafí ekki beinlínis kokgleypt hugmyndina og þandritið hafnaði í skúffunni. A meðan Sveinbjörn var dag- skrárstjóri Sjónvarpsins var þessi skúffa opnuð og handritið tekið til endurskoðunar. I _ þetta sinn með nýjum leikstjóra, Oskari Jónassyni. Saman tókum við alla þættina til gagngerrar endurskoðunar og skrifuðum þá upp á nýtt. Verkefnið strandaði þó aftur, í þetta sinn vegna ýmissa ytri aðstæðna. I okk- ar huga kom t.d. aðeins einn leikari til greina í hlutverk Jochums. Örn Árnason var liins vegar upptekinn við annað á þessum tíma og lokaðist skúffan því á ný með þáttunum inn- anborðs. Pegar Sigurður settist í stól dag- skrárstjóra komu upp aðstæður sem opnuðu skúffuna loksins end- anlega. Það varð dráttur á skilum frá höfundi sem skrifaði fyrir Sunnudagsleikhúsið og skyndilega vantaði þriggja þátta syrpu. Þá var gripið á það ráð að setja Blöðruveldið í skarðið og Agúst Guð- _____________ mundsson var fenginn til að leikstýra styttum útgáfum af þrem þeirra sex þátta sem til voru. Útkoman verður á dagskrá Sunnu- dagsleikhússins í febrúar og það fer eftir viðtökum hvort hinir þættirnir þrír fara einhverntima í fram- leiðslu." Blöðruveldið Höfundarnir voru beðnir að segja aðeins meira frá þáttunum: sögunni, persónum og leikendum. „Ein- hverra hluta vegna höfum við alltaf átt einstaklega auðvelt með að skrifa íyrir munn vitgrannra en kokhraustra karla á ýmsum aldri. Jochum Leifsson er einn þeirra. Jochum upplifir sig sem heilmikinn athafnamann og finnst sjálfsagt að allir aðrir geri það líka. Fyrir okkur hefur hann orðið mjög raunveruleg- ur í gegnum tíðina. Við höfum stundum fengið frá honum skeyti og í kringum 17. júní förum við að pæla í því hvar Jokki sé nú með sölutjald- ið sitt. Eiginkona Jochums heitir Nína og er svona nýaldartýpa. Halldóra Geirharðsdóttir fer með hlutverkið. I hverjum þætti er sögð ein sjálfstæð saga af sama fólkinu Sigurður Sigurjónsson leikur Benna, bróður Nínu. Benni er ljós- myndari með tagl sem er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann ætlar að „meika’ða" á Islandi eða í Ameríku og býr því hjá þeim hjón- um á meðan. Svo er það Feddi, hlið- arsjálf okkar í verkinu. Hann er al- ger hálfviti sem lítur stjórnlaust upp til Jokka. Kjartan Bjargmunds- son leikur hann. Það hefur valdið okkur nokkrum áhyggjum hvað við höfum mikinn áhuga og eigum létt með að setja okkur í spor svona manna eins og Jokka og Fedda, eins og kemur í ljós þegar höfundarverk okkar er skoðað. Þetta er reyndar mál sem við forðumst að greina nánar. Svo er ann- að áhyggjuefni; þegar við byrjuðum að skrifa um Jochum vorum við að skrifa um svona karl á ““'““ fimmtugsaldri. En núna, loksins þegar hann raungerist, er- um við orðnir jafngamlir honum.“ Islenskir gamanþættir Blöðruveldið er unnið eftir fyrir- mynd rótgróinnar hefðar í banda- rísku og bresku sjónvarpi, svo kall- aðra „sit-com“ þátta (situation comedy). Allir þekkja þessa tegund sjónvarpsefnis. Þættirnir eru allir teknir upp í sömu sviðsmyndum með sömu aðalleikurum. í hverjum þætti er sögð ein sjálfstæð saga af sama fólkinu. Staupasteinn og Já ráðherra eru dæmigerðir „sit-com“ þættir. Sigurður og Sveinbjörn voru spurðir nánar út í þetta. „Þáttagerð af þessu tagi hefur margoft verið reynd, en ekki gengið sem skyldi. Það verður að segjast eins og er að handritagerð hefur verið veikasta hliðin. Áhugavert er að þetta hefur vafist fyrir öllum Norðurlandaþjóðunum og því er ekki um séríslenska fötlun að ræða. Eitthvað er þó að breytast og und- anfarið hafa heimagerðar þáttaserí- ur gengið ágætlega í Skandinavíu. Þegar leikið íslenskt efni er ann- ars vegar hefur tilhneigingin verið að setja sig í ákveðnar, dálítið upp- hafnar stellingar. Þetta á jafnt við um höfunda, leikara og áhorfendur heima í stofu. Menn hafa gjarnan rekið nefið upp í loft og búið sig undir listviðburð. Þegar fólk kemur nálægt leikhúsi eða leiklist er stundum talað um að ganga inn í musteri Þalíu, sem er gott og bless- að. En afþreyingarefni eins og „sit- com“ er algerlega á skjön við þetta viðhorf og því hefur vafist fyrir fólki hvernig á að skapa svona efni og taka því. Tjaldað við musteri Þalíu Við höfum verið sammála um að best sé að skoða samtímamenning- una í heild. Frá upphafi var það t.d. meðvituð stefna í Dagsljósi að blanda saman „hámenningu“ og „lágmenningu". Svipað er uppi á teningnum í Sunnudagsleikhúsinu. Þar koma mjög ólík verk saman undir einni yfirskrift. Þessi fjölbreytni gæti orðið til þess að framleiðendur og áhorfend- ur losuðu sig við fordóma og herp- ing sem stundum flækist fyrir. Til að hefð myndist þarf að vera til stöðug framleiðsla íslensks sjón- varpsefnis. Það er nóg til af hæfi- leikaríku fólki tilbúnu að úthella eins miklu af svita, blóði og tárum og nauðsynlegt er til að svo geti orðið. Með hverju ári styrkist þessi íslenski „bransi“ og hann hefur aldrei verið betri en nú. Það var því góður hópur fagmanna sem tók við handritinu frá okkur. Þegar við skrifuðum Blöðruveldið reyndum við að slappa af koma okk- ur úr „stellingunum" og skrifa sögu í léttum dúr um íslendinga. Þætt- irnir eru að einhverju leyti spéspeg- ill samtímans, en fyrst og fremst hugsaðir sem efni í ánægjulega kvöldstund. Ef það tekst er tilgang- inum náð. Við enim eiginlega búnir að tjalda við hliðina á musterinu hennar Þalíu og vonum bara að sanntrúaðir taki blöðrusölunni hans Jokka ekki illa.“ í VETUR hefur íslenskt sjónvarps- efni verið óvenju áberandi á öldum Ijósvakans. Sunnudagsleikhús Sjón- varpsins er t.d. nýr vettvangur íyrir íslenska leikritagerð, en þar hafa ný verk verið sýnd í bland við eldra efni frá því í haust. Margra grasa hefur kennt í verk- efnavali og mikil áhersla verið lögð á nýju verkin sem hafa fengið mest pláss. Næsti dagskrárliður Sunnu- dagsleikhússins er ný gamanþátta- röð, Blöðruveldið. Segir þar frá athafnamanninum Jochum Leifssyni og fjölskyldu hans. Þættirnir eru eftir Sigurð G. Valgeirsson, dagskrárstjóra Sjón- varpsins og Sveinbjörn I. Baldvins- son, sem er orðinn einn reyndasti og afkastamesti handritshöfundur landsins. Blaðamaður hitti félagana og spjallaði við þá í liðinni viku. ÖRN Árnason fer með hlutverk athafnamannsins Jochums Leifssonar. Ný gamanþáttaröð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.