Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
AKREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur ÚA
Selja eign-
ir til að
lækka
skuldir
ÁHERSLA verður lögð á að
selja þær eignir Útgerðarfé-
lags Akureyringa sem ekki
nýtast í daglegum rekstri og
fjármunir sem þannig fást
verða notaðir til að lækka
skuldir félagsins.
Friðrik Jóhannsson stjórnar-
formaður ÚA sagði í ræðu sinni
á aðalfundi ÚA að skuldir
hefðu aukist umtalsvert m.a.
vegna mikilla fjárfestinga sem í
var ráðist í landvinnslunni.
Stefnt er að því að lækka þess-
ar skuldir á árinu.
Nýlega var gengið frá sölu
hlutabréfa Útgerðarfélags
Akureyringa í Skagstrendingi
en þar átti ÚA 18,6% hlut.
Sölugengi bréfanna var 6,31 og
söluverðmætið var 368 milljón-
ir króna.
Greiða 5% arð
Á aðalfundinum var sam-
þykkt tillaga stjómar um að
greiddur verði 5% arður til
hlutahafa á árinu vegna síðasta
árs. Fram kom í máli Friðriks
að þrátt fyrir að illa hafi árað
og undanförnu og rekstur fé-
lagins ekki verið með viðunandi
hætti væri það fjárhagslega
sterkt. Reksturinn hefði batn-
að á síðasta ári og væru vænt-
ingar um að hann myndi halda
áfram að styrkjast á þessu ári,
en kapp yrði lagt á að jafnvægi
næðist í rekstri þess á árinu.
Þrír sparisjóðir í Eyjafírði og S-Þingeyjarsýslu
Samkomulag um rekstur póstaf-
greiðslustöðva fyrir Islandspóst
ÞRÍR sparisjóðir í Eyjafirði og
Suður-Þingeyjarsýslu hafa gert
samkomulag við Islandspóst hf. um
að þeir taki að sér rekstur póstaf-
greiðslustöðva og er stefnt að því
að sparisjóðirnir muni kaupa hús-
næði Islandspósts á þeim stöðum
sem um ræðir. Þetta eru Sparisjóð-
urinn í Hrísey, Sparisjóður Höfð-
hverfinga á Grenivík og Sparisjóð-
ur Suður-Þingeyinga, þ.e. af-
greiðslurnar á Laugum í Reykjadal
og í Mývatnssveit. Þessar breyt-
ingar taka gildi 1. júní næstkom-
andi.
Friðrik Friðriksson sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Svarfdæla á Dal-
vík sagði að sparisjóðirnir á þessum
svæðum muni eftir þessar breyt-
ingar sinna íbúunum á svæðunum
varðandi þá margvíslegu þjónustu
sem sparisjóðirnir hafa upp á að
bjóða auk þess að afgreiða póst og
sinna því sem honum tilheyrir. Þá
hefðu sparisjóðirnir einnig þjón-
ustuhlutverki að gegna gagnvart
Landssímanum, m.a. að líta eftir
tækjum og tólum í eigu fyrirtækis-
ins og sjá um sölu á símum og fleiru
þeim tengdum.
Tryggjum áframhaldandi
góða þjónustu
Samningurinn gildir til 12 ára, eða
til ársins 2010. „Með þessu móti vilj-
um við tryggja áframhaldandi góða
þjónustu Islandspósts við íbúa þess-
ara svæða, jafnframt því sem við
bætum okkar þjónustu,“ sagði Frið-
rik. „Þetta er heilmikið landsbyggð-
armál og við ætlum okkur að verða á
undan. I kjölfar þess að fyrirtæki em
einkavædd og krafa um arðsemi
verður meiri heyrast oft þær raddir
sem óttast að þeir staðir verði útund-
an sem minnstan arð sýna. Með þess-
um samningi ætlum við okkur að
styðja við bakið á íbúunum á þessum
stöðum og styrkja þjónustustigið, að
það verði áfram gott og dah ekki.“
Nefndi Friðrik sem dæmi um
betri þjónustu að til að mynda yrði
settur upp hraðbanki í Hrísey og
afgreiðslutími yrði lengdur, en
nokkuð hefði borið á óánægju t.d.
meðal ferðafólks að geta ekki sinnt
viðskiptum í hádeginu úti í eyju.
Friðrik vildi ekki tjá sig um hvort
sparisjóðir á fleiri stöðum myndu
taka að sér rekstur póstafgreiðslna,
sagði tímann mundu leiða það í ljós.
A k u r e y r i
-bA'r tíol>kvUitmnar?
Bor^arafundur í Alþýðuhúsinu við Skipagötu, 4.
hæð, laugardaginn 28, mars nJk, ld, 14:00.
A fundinum verður fjallað um stefnu
Akureyrarbæjar í málefnum fjölskyldunnar
og þá þjónustu sem fjölskyldufólki stendur
til boða á Akureyri. Frummælendur segja
skoðanir sínar á þjónustu bæjarins og koma
með tillögur um úrbætur, en meðal frum-
mælenda eru:
• Foreldri nýfædds bams
• Foreldri 4-5 ára bams
• Foreldri 6-9 ára bams
• Foreldri 10-12 ára barns
• 11-12 ára barn
• Foreldri tánings
• Táningur
• Nemandi í framhaldsskóla
• Nemandi í sérskóla
• Nemandi í háskóla
• íbúi sem er nýlega fluttur til Akureyrar
• Þátttakandi í íþróttum
• Faðir eða móðir sem eru að stofna heimili
• Atvinnurekandi á Akureyri
• Launþegi á Akureyri
• Laimþegi á Akureyri án atvinnu
• Ellilífeyrisþegi í heimahúsi
• Ellilífeyrisþegi í sérbyggðu húsnæði
• „Brottfluttur" Akureyringur
Að fundinum loknum fara fram pallborðsumræður með þátt-
töku fulltrúa stjómmálaflokkanna.
í ljósi umræðna á síðustu vikum um ýmsa þætti þeirrar
þjónustu sem boðið er upp á af hálfu Akureyrarbæjar má
búast við líflegum umræðum á fundinum og eru
Akureyringar hvattir til að mæta.
Aðgangur er ókeypis.
Kaffiveitingar og bamagæsla á staðnum.
Akureyrarbær
Morgunblaðið/Kristján
Sprett
úr spori
FEÐGARNIR Einar Örn Grant
og Amar Grant tóku léttan
sprett á hestunum Þrándi og
Mími á svellinu á Leirutjöminni
á Akureyri í vikunni. Þeir feðg-
ar svo og hestar þeirra tóku sig
vel út, enda veðrið mjög fallegt,
þótt blési nokkuð köldu að sunn-
an.
Hestur Einars, Þrándur frá
Litla-Hvammi, fékk næsthæstu
einkunn yfir landið á síðasta ári
fyrir byggingu, í flokki fjögurra
vetra stóðhesta. Arnar sonur
hans sat hestinn Mfmi, sem er í
eigu Lilju Sigurðardóttur, en
miklar væntingar eru bundnar
við þann hest á komandi Lands-
móti.
_ ^
Elvar Oskarsson
Kjötmeistari 1998
ELVAR Óskarsson kjötiðnaðar-
maður hjá Kjötiðnaðarstöð KEA
á Akureyri hlaut titilinn Kjöt-
meistari 1998 í fagkeppni kjötiðn-
aðarmeistara sem efnt var til um
liðna helgi og var hún haldin í
tengslum við sýninguna Matur
‘98.
Annar ungur kjötiðnaðarmaður
hjá Kjötiðnaðarstöð KEA, Örn
Thorleifsson, varð í öðru sæti og
þriðji norðanmaðurinn varð í þriðja
sæti, Eiður Guðni Eiðsson hjá
Kjarnafæði.
Samtals voru sendar inn 169
vörur, en keppt var í 6 flokkum,
hráar og soðnar kjötvörur, hrá-
verkaðar vörur, soðnar matar- og
áleggspylsur, kæfur og paté, blóð-
pylsur, sultur og slátur og loks í
sérvörar og nýjungar. Titilinn
Kjötmeistari 1998 hlýtur sá kjöt-
iðnaðarmaður sem fær flest stig
samanlagt úr öllum þessum flokk-
um, en aðeins var leyfilegt að
senda inn eina vöru í hvern flokk.
Elvar sendi inn úrbeinað
hangilæri, Pedersen salami, Roast
bratwurst, stjörnupaté, soðinn
blóðmör og graflax. Fékk hann
gullverðlaun fyrir hangilærið, en
ekki var gefið annað gull fyrir þá
vörutegund.
„Við eram afskaplega hreyknir
af okkar mönnum, þetta er frá-
bær árangur," sagði Stefán Vil-
hjálmsson hjá Kjötiðnaðarstöð
KEA.
Morgunblaðið/Kristján
ÖRN Thorleifsson og Elvar Óskarsson, Kjötmeistari 1998, en Örn varð
í öðru sæti. Þeir starfa báðir hjá Kjötiðnaðarstöð KEA. Á bak við þá á
myndinni má sjá þau verðlaun sem kjötiðnaðarmenn þar hafa fengið á
síðustu árum.
Erfitt tíðarfar
við Grímsey
frá áramótum
TÍÐARFAR hefur verið sérlega
leiðinlegt við Grímsey frá áramót-
um og einkennst af miklum um-
hleypingum.
Bjarni Magnússon hreppstjóri í
Grímsey sagði að sjaldan hefði verið
jafn umhleypingasamt og nú í vetur
og tíðin frá áramótum hefði verið
sérstaklega leiðinleg fyrir sjómenn.
„Þetta er óskaplega þreytandi fyrir
sjómennina, þetta tíðarfar. Það
fiskast alveg þokkalega þegar gefur
á sjó, en þeir þurfa sí og æ að vera
að taka upp netin, þeir hafa engan
frið,“ sagði Bjami.
í fyrradag gerði mikinn byl í
Grímsey, norðanátt og fór frostið
upp í 11 stig í fyrrinótt. í gær var
svo komið ágætis skyggni og suð-
vestan átt. „Það er glansbjart núna
en gerði mikið áhlaup í fyrradag,
svona gengur þetta, það skiptir sí-
fellt um,“ sagði Bjarni.
Sjá engan ís
Ekki sást í hafís við Grímsey í
gær, en Bjarni sagði að hann væri
fljótur að bráðna þegar svo mikill
vindur væri úr suðri eða suðvestri
og þá væri sjórinn líka um tveimur
gráðum hlýrri en hann hefði verið
undanfarin ár.
Bflabón
Akureyrar
Styrkur
til hjart-
veikra
barna
STARFSMENN Bílabóns
Akureyrar við Dalsbraut 1
ætla að styrkja hjartveik böm
á Akureyri á morgun, fóstu-
daginn 27. mars. Öll innkoma
þess dags mun renna óskert
til þeirra. Starfsmenn munu
bóna og þrífa bíla og fulltráar
hjartveikra barna verða á
staðnum og taka við greiðslu
og gefa allir vinnu sína.