Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 19 LANDIÐ Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir AÐALSTEINN Sigurðsson sjómaður, útgerðarmaður og sfldarsöltunarstjóri með meiru. ——- Vopnafirði - Það var vor í lofti á Vopnafirði. Blikinn farinn að hópa sig og sjómenn stungu sam- an nefjum á bryggjupollunum. Smábátasjómenn á Vopnafírði segjast halda að sér höndum þessa dagana, enda verð á hrognum 1/3 minna en á síðustu vertíð, kvótinn minni og umfram- birgðir frá því í fyrra um 15.000 tunnur. Eftirspurnin á markaðn- um ræður ríkjum þar eins og annars staðar. Sjómenn hafa þó lagt eitt og eitt rauðmaganet og „vorboðinn ljúfi“ - rauðmaginn - kominn í pottana. Vorboðinn kominn í pottana Fiskanesmenn hyggja á kola- veiðar annað árið í röð og verið var að skipa upp afla úr togar- arallinu eða Hafrótúrnum af Brettingi, en þeir komust þó ekki á allar stöðvarnar vegna hafíss. Aðalsteinn Sigurðsson sjómað- ur, útgerðarmaður og sfldarsölt- unarsljóri með meiru sat á einum pollanum og ræddi um lífið og tilveruna. Hann fór fyrst 17 ára á vertíð til Hornafjarðar og byijaði að salta sfld á Vopnafirði 1956. Hann sagðist muna sfldina vaða ljörðinn, en var hlynntur því að vemda þyrfti norsk-íslenska sfld- arstofninn, hann sagðist óttast að þetta yrði veitt um leið og það kæmi upp að landinu, grindhor- að. „Græðgin ein má ekki ráða ríkjum. Menn verða að sjást fyrir í veiðum, sem öðru.“ „Fjárnám“ í Hvols- skóla Morgunblaðið/Silli EINAR Njálsson þakkaði Sigríði Böðvarsdóttur langt og gott starf. Lætur af íþrótta- kennslu eftir 37 ár Húsavík - Sigríður Böðvarsdóttir, íþróttakennari á Húsavík, varð sjö- tug 22. mars sl. og lætur því af störf- um eftir 37 ára starf sem forstjóri Sundlaugar Húsavíkur í 21 ár og síð- ar kennari. Við það tækifæri mætti bæjar- stjórinn, Einar Njálsson, í sundlaug- ina og færði afmælisbarninu gjöf sem þakklætisvott fyrir langt og gott starf í þágu bæjar og byggðar. Hann sagði Sigríði hafa lengstan starfsald- ur þeirra sem nú störfuðu fyrir bæ- inn og að ekki væru margir sem svo löngum starfsaldri hefðu náð. Forstöðumaður sundlaugarinnar nú er Sveinn Rúnar Arason og bauð hann öllum viðstöddum sundlaugar- gestum til kaffidrykkju og tertuáts að sundi loknu og þeim sem síðar kæmu um daginn. Veður á afmælis- daginn var hið besta og sundlaugar- gestir með fjölmennasta móti en í frosthörkunum nú fyrr í mánuðinum var aðsókn frekar lítil þó alltaf séu einhverjir sem hvorki láta frost né hríðar aftra sér frá því að fá sér sundsprett í útisundlauginni. Hvolsvelli - Föstudaginn 27. mars nk. ætla nemendur í 7. og 8. bekk Hvolsskóla á Hvolsvelli að efna til áheitanáms sem þeir kalla „Fjár- nám“. Tilefnið er söfnun fyrir náms- og kynnisferð til Svíþjóðar í lok apríl. Undirbúningur ferðarinnar hef- ur staðið í á annað ár og er tilefni ferðarinnar m.a. að endurgjalda heimsókn nemenda grunnskólans í Danike frá síðasta vori. Dvalið verður á einkaheimilum og verður farið í margvíslegar skoðunar- og kynnisferðir um nágrenni Danike. Fjárnámið verður með þeim hætti að nemendur ætla að vera í skólanum einn fóstudag og munu leysa ýmsar þrautir og stærð- fræðiverkefni í hópvinnu. Fólki mun síðan gefast kostur á að heita á nemendur eftir frammistöðu þeirra í fjámáminu. Að fjámám- inu loknu efna nemendurnir til kvöldvöku fyrir sig og fjölskyldur sínar. Yillta vestrið endurbyggt MorgunblaðWÓlafur Bernódusson GAMLI Kántrýbæ rifinn. Nýja húsið mun rísa á sama stað. Skagaströnd - Nú eru að hefjast framkvæmdir við byggingu nýs Kán- trýbæjar í stað þess sem brann nú í vetur. Það er að sjálfsögðu Hallbjörn Hjartarson sem byggir nýjan veit- inga- og skemmtistað á sama stað og sá gamli stóð. Utvarp Kántrýbær kemur einnig til með að vera með að- stöðu á efri hæð nýja hússins. Nýi Kántrýbær verður bjálkahús sem Hallbjörn flytur inn frá Finn- landi. Bjálkarnir í húsið eru 25 cm þykkir og verður það ekkert ein- angrað þar sem framleiðendumir segja að það sé óþarft. Húsið verður 234 fm að stærð á tveimur hæðum og verður tengt við Kántrý 2, en það er sá hluti Kántrýbæjar sem ekki skemmdist í eldinum í vetur. Verður Kántrý 2 klætt að utan með hálf- bjálkum til að fá betri heildarmynd á bygginguna eftir að nýi hlutinn verð- ur risinn. Hallbjörn tjáði fréttaritara að tveir menn væru væntanlegir frá framleiðandanum til að reisa húsið í samvinnu við Helga Gunnarsson byggingameistara sem er nú að hefj- ast handa við að steypa undirstöður og gera allt klárt fyrir komu þess. Húsið verður flutt til landsins í 5-6 gámum og ætlar Eimskip að sjá um flutninginn á mjög sanngjörnu verði, að sögn Hallbjöms. Verða þeir allir komnir á byggingarstað fyrstu dag- ana í apríl og dreymir Hallbjörn um að geta hafið starfsemi í húsinu í júní. Hallbjörn sagði að áætlað væri að kostnaðurinn við þessa endurupp- byggingu mundi kosta um 20 millj- ónir króna. Til að fjármagna þetta dæmi ætlar Hallbjörn meðal annars að senda bréf ásamt gíróseðli inn á hvert heimili landsins þar sem fólki verður boðið að gerast hluthafar í „Hinu villta vestri" með 1.000 króna framlagi. „Eg er viss um að því verður vel tekið, því ég hef fundið fyrir ótrúlega miklum stuðningi í þjóðfélaginu við það sem ég er að gera, - mun meiri en ég hefði nokkurn tíma trúað að óreyndu," sagði Hallbjörn. 9 ____________________________________f STURE SKRIFBOfl~ Ólakkað gegnheilt birki/krossviður, grálakkað stál og tvö hjól. L150 sm, B75 sm, H75 sm. SUFFLOfi SKfilFBOfiÐ Svart, hamrað lakk á borði. Skúffueining bæsuð í kirsuberjalit. L140 sm, B70 sm, H75 sm. Matthias skrifborösstóll 5900 kr. 34-900- Antik bæsuð fura. Skápar og skúffúr að framan og hillur á bakhlið svo borðið getur verið frfstandandi. L152 sm, B72 sm, H72 sm. FRfiBFERRR FERMINGfiRGJRFIR STÓRGOTT VERÐ, HÖNNUN, ÚRVRL OG NOTRGILDI Allir vita hversu miklu munar að vinna við gott og vel hannað skrif- borð; hvort sem verið er að læra heima, gera skattskýrslu eða skrifa verðlaunaskáldsögu. Skrifborðin í IKEA uppfylla þessi skilyrði og eru auk þess bæði ódýr og vönduð. Það gerir þau einmitt afar hentug til fermingargjafa. 0PXÐ RLLfi DRGfl lOIOO - 18:30 VXBKH ÐKOB 10:00 - 17:00 LBUOBBOBOB 13:00 - 17:00 SUNNUOBOB - fyrir alla muni MOPPE SHRKOHMÓÐR M. 6 SKÚFFUM 1.850«,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.