Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 43
■ ■■
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 43
3
|
J
■
3
?
I
!
UMFERÐ OG ÖRYGGI
Á TÍMAMÓTUM
UM ÞESSAR mundir
eru rúm 10 ár frá því
fyrsta tjónaskoðunar-
stöðin tók til starfa hér-
lendis en það voru
Brunabótafélag íslands
og Almennar tryggingar
hf. sem stofnuðu hana
saman. Frumkvöðlar
voru þeir Ingi R. Helga-
son og Hilmar Pálsson,
þáverandi forstjórar
Brunabótafélags íslands,
og Ólafur B. Thors, for-
stjóri Almennra trygg-
inga. Sú tjónaskoðunar-
stöð, sem tók til starfa 12.
ágúst 1987, markaði
ákveðin þáttaskil því með
Kristján G.
Tryggvason
möguleika sem þá höfðu
skapast með fyrstu
tjónaskoðunarstöð
tiyggingafélaganna.
Margt í þeirri grein hef-
m- gengið eftir. Þrátt
fyrir ýmsa gagnrýni geta
flestir verið sammála um
að þróunin hefur verið í
rétta átt. Þótt bilum hafi
fjölgað gríðarlega á
Reykjaríkursvaeðinu og
álag á umferðarmann-
virki aukist að sama
skapi hefur umferðaró-
höppum ekki fjölgað
hlutfallslega og iðgjöld
bflatrygginga ekki
hækkað umfram aðra hði
í rekstri heimila. An efa
henni hófst tæknileg ut-
tekt tjóna á bflum og öðrum farar-
tækjum, í samræmi við alþjóðlegar
verklagsreglur og af fagmönnum með
til þess gerð tæki og aðstöðu.
A árinu 1988 tók Bifreiðaskoðun ís-
lands hf. við hlutveriri Bifreiðaeftirlits
rfldsins. Þar með hófst loks sú tækni-
lega uppbygging sem nú veitir bfleig-
endum jafn ítarlegar upplýsingar rnn
ástand bfls og öryggi eins og tíðkast
hefur í nágrannalöndum í marga ára-
tugi. Tækja- og aðstöðuvæðing bfla-
skoðunar, ekki einungis í Reykjavik
heldur jafnframt úti á landsbyggðinni,
er mikilvægur þáttur í öiyggismálum,
ekki síst sem slysavemd.
Fræðslumiðstöð bflgreina, FMB,
sem stofnuð var á vegum fagfélaga
bflgreinarinnar; þ.e. Bílgreinasam-
bandinu og Samiðn er einn þessara
tímamótaáfanga. Ég lít svo á að flutn-
ingur iðnnáms í bflgreinum frá Iðn-
skólum yfir til sérskóla (Borgarholts-
skóla/FMB), hafi verið rökréttur liður
í þróuninni og ákveðin hliðstæða við
að leggja niður Bifi'eiðaeftirlitið á sín-
um tíma. Hvort tveggja hefur orðið til
framfara að mínu mati.
Framfarir - Þróun í rétta átt
Undanfarinn áratug hefur stöðug
þróun átt sér stað; tjónaskoðunar-
stöðvum hefur fjölgað, landsmenn
geta valið á milli fyrirtækja sem ann-
ast skylduskoðun bfla, endurskoðun
er framkvæmd á löggiltum bflaverk-
stæðum til hagræðis fyrir bfleigendur
og þeir sem starfa í bflgreininni eiga
nú kost á endur- og símenntun á
skipulögðum námskeiðum FMB og
víðar.
Með tilkomu tjónaskoðunarstöðva,
sem líta má á sem vísi að tæknideild-
um tryggingafélaga, hefur jafhframt
skapast vettvangur - aðstaða til að
veita aukna tækniþekkingu tfl starf-
andi verkstæða. Þannig hafa verið
haldin námskeið í ýmiss konar verk-
tækni, t.d. hjá YIS tjónaskoðunar-
stöðinni. Sum þeirra hafa verið haldin
í samvinnu við erlenda aðila svo sem
kynning á nýjum vinnubrögðum og
efnum til rúðuísetninga, námskeið í
mælingum og viðgerðum á burðar-
vh-kjum flutningatækja, námskeið í
plastviðgerðum auk þess sem sýning-
ar hafa verið haldnar á nýjustu tækj-
um og tækni í málmsuðu, réttingum
og alhliða viðgerðum.
Tjónaskoðunarstöðvamar gegn því
ekki einungis því hlutverki að meta
tjón þeirra sem tryggðir eru heldur
þjóna þær einnig því markmiði trygg-
ingafélaganna að draga úr viðgerðar-
kostnaði með aukinni tækni og
fræðslu. VIS, svo dæmi sé tekið, rek-
ur jafnframt slripulegt forvamastarf,
sem sérstakur forvamafulltrúi, Ragn-
heiður Davíðsdóttir, hefur umsjón
með. Tilgangurinn er að fækka slys-
um og draga þannig úr tjóni. Hvort
tveggja, fæm slys og minna tjón,
kemur tryggingataka (bfleiganda o.fl.)
til góða sem lægra iðgjald.
Fleiri verkefni
Árið 1988 skrifaði ég grein í Mbl.
undir fyrirsögninni ^Áfangar á leið til
umferðaröryggis". I henni benti ég
m.a. á þýðingu skipulegra tjónarann-
sókna sem liðs í slysavömum og þá
er þetta mælanlegur árangur þeirra
endurbóta sem orðið hafa á skyldu-
skoðun og af því auknu öryggiseftirliti
með bflum og farartækjum sem nú fer
fram á verkstæðum og þjónustustöðv-
um. Það eftirlit er virkara nú en áður
fyrir tflstilli skipulegrar fræðslustarf-
semi innan bflgreinarinnar sjálfrar.
Meira að segja stjómmálamenn em
famir að líta á þessi mál og taka þau
alvarlega sem slysavamir.
En áframhaldandi þróun krefst
þess að menn haldi vöku sinni. Þótt
merkir áfangar séu að baki em næg
verkefhi framundan: Einn þáttur sem
orðið hefúr útundan og er á ábyrgð
hins opinbera, er löggæslan í umferð-
inni. Eftirlit lögreglu með ástandi bfla
og farartæþja í umferðinni er eklri
nægflegt; hvorki nægilega skipulegt,
markvisst né öflugt I Skandinavíu er
eftirlit lögreglu með ástandi bfla
drjúgur þáttur í slysavömum. Hér er
slfikt eftirlit með minnsta móti og
nægir í því samabandi að benda á
slfyrslur sem hlaðist hafa upp t.d. hjá
VIS tjónaskoðunarstöðinni þar sem
lesa má um ótrúlegt ástand bfla sem
valda eða lenda í óhöppum (sléttsUtin
dekk, botnlausir af ryði, bremsulausir,
slit í stýrisgangi, ijósíausir o.s.frv.).
Þótt það teljist margsannað mál að
bflbelti geti bjargað lífi og forðað frá
alvarlegum slysum (og notkun þeirra
lögbundin) virðist eftárlit lögreglunnar
með notkun þeirra óskipulagt og til-
vfljanakennt.
Öryggistæki eða
„kjaftakerling“?
Aðfld íslands að Evrópska efna-
hagssvæðinu þýðir að hérlendis gilda
ákveðnar reglur um akstur atvinnu-
tækja og hvfldartíma þeirra sem þeim
stjóma. Til að hægt sé að framfylgja
reglunum skulu ökuritar vera í fólks-
og vöruflutningabflum sem era yfir
3,5 tonn. Ökuritinn, sem er sjálfvirkur
mælir, skráir á hringlaga pappaskífu
ökuhraða, ekna vegalengd, stöðutíma
(hvfld) o.fl. Þetta er ekki gert til að
fylgjast með því hvort t.d. flutninga-
bflstjórar séu að svíkjast um og slóra,
heldur til að auka öryggi þeirra og
annarra í umferðinni. Of þreyttir bfl-
stjórar, sem jafhvel eiga það tfl að
sofna við stýrið, skapa ótvíræða
hættu.
í Þýskalandi, þar sem ég þekki vel
tfl, em sérstök stæði meðfram hrað-
brautum ætluð stórum flutningabflum
þegar stjómendur þehra hvflast.
Þýska lögreglan hefur eftirlit með
ökuritum þessara bfla og skoðar
skráningarskífur þeirra skipulega á
þessum stæðum. Þetta er sjáifsagt ör-
yggismál í augum Þjóðverja - liður í
því að auka öiyggi vegfarenda og
fækka slysum.
Einhverjir uppnefndu þetta örygg-
istæki „kjaftakerlingu", líklega í háð-
ungarskyni, a.m.k. hafa þeir ekki ver-
ið að hugsa um öryggi almennings úti
á þjóðvegunum.
Eg vil nota þetta tækifæri og neftia
eitt ákveðið dæmi um hvaða þýðingu
ökuritar í flutningabflum gætu haft
fyrir umferðaröryggi í landinu ef lög-
reglan hefði skipulegt eftirlit með
skráningu ökuritans og ástandi farar-
tækjanna og beitti sektum eins og
henni er heimflt: Veturinn 1997 valt
stór flutningabfll á Suðurlandi í hálku.
Slys urðu ekki á mönnum, sem betur
fer, en bfllinn og tengivagn skemmd-
ust mikið. Tjónið nam rúmum 4 millj-
ónum króna. Lögreglan gerði engar
athugasemdir varðandi þetta óhapp
utan hefðbundinnar skráningar.
Við skoðun á flutningabflnum hjá
tjónaskoðunarstöð kom í Ijós að bæði
bfllinn og tengivagninn voru á sumar-
dekkjum. Auk þess reyndust 4 dekkj-
anna á vagninum vera sléttslitin (ekk-
ert munstur). Við skoðun á ökurita
bflsins kom í ljós að honum hafði verið
ekið á 115 km hraða þar sem leyffleg-
ur hámarkshraði (við bestu aðstæður)
var 70 km/klst.
Við þetta má bæta að í gildi eru lög
um hraðatakmarkanir fólks- og vöru-
flutningabfla: I Ijósi þess hve framúr-
akstur þessara stóru bfla er algengur
mætti ætla að stjómendur þeirra
vissu ekki um takmarkanimar eða
vissu að litið sem ekkert eftirlit er
með ökuritunum. Þá má einnig benda
á að ennfremur eru í gfldi lög um að
Skoðunarstöðvar eiga
að vinna eftir settum
reglum, segir Kristján
G. Tryggvason, og
standast þær kröfur
sem gerðar eru
til þeirra.
stórir flutningabflar og rútur séu bún-
ir sjálfvirkum hraðatakmarkara (hluti
af ökurita) þannig að rúta komist ekki
hraðar en 90 km/klst. og flutningabfll
80 km/klst. Er ekki kominn tími tfl að
fara að framfylgja þessum reglum?
„Rassíur" leysa ekki málið
Eitt af sameiginlegum verkefnum
þeiira sem vinna að auknu umferðar-
öiyggi er að breyta ríkjandi hugsun-
arhætti varðandi umferðarlög. I stað
þess að líta á lögin sem tryggingu fyr-
ir „rétti“ sínum í umferðinni eða stoð í
skaðabótakröfu þarf hinn almenni bfl-
stjóri að virða reglurnar til þess að
forðast óhöpp og slys. Öll vitum við að
mikið vantar upp á að reglur séu virt-
ar - ekki þarf nema eina ferð í bæinn
tfl að sjá það.
Það leysir ekki vandann að senda
lögregluna af stað í „rassíur" öðru
hverju, - að því virðist tfl að friða sam-
visku lögreglumannanna sjálfra
eða/og tfl að safna peningum í rflris-
kassann í leiðinni. Rflrisváldið verður
einfaldalega að fai-a að viðurkenna að
eftii'lit með ástandi farartækja er
hlutverk sem heyrir tfl daglegum
störfum lögreglunnar hér eins og í ná-
grannalöndunum - þetta er einfald-
lega slysavamaþáttur lögreglustarfs-
ins og um leið þáttur í ímynd lögregl-
unnar sem jákvæðs afls í samfélaginu.
Eftirlit með þeim sem skoða
Þróunin hefur skapað ný verkefni:
Einkavæðing skoðunarstöðvanna
undanfarin ár og endurskoðunarheim-
ild verkstæða hefur verið til hagræðis.
Engu að síður fylgir böggull skamm-
rifi. Að mínu áliti er þörf á eftirliti
með því að skoðunarstöðvar vinni eftir
settum reglum og standist þær kröfur
sem gerðar eru tfl þehTa. Bfleigandi
getur varla metið þjónustuna eftir
öðru en verði og viðmóti hjá einstakri
skoðunarstöð en hefur engar tækni-
legar forsendui- til að meta gæði skoð-
unarinnar sjálfrar eða það öryggi sem
hún skapar. Gæðavottun með eftirliti
eða annars konar eftirlit (stikkprufúr)
er augljóst hagsmunamál bfleigenda.
Spumingin er hver eigi að fram-
kvæma þannig eftirlit með skoðunar-
stöðvum?
Höfímdur er bifvélavirkjameistari og
stöðvarstjóri VÍS tjónaskoðunar-
stöðvar i Kópavogi.
ISETNINGARÞJONUSTA
SERSMIÐI
Bílavörubúðin Fjöðrin selur pústkerfi,
dráttarbeisli og höggdeyfa í miklu úrvali.
Á verkstæði okkar er boðið upp á sérsmíði á
pústkerfum og ísetningu á höggdeyfum og
dráttarbeislum.
BílavörubúSin
FJÖÐRIN
ífararbroddi
SÉRSMÍÐAVERKSTÆÐI, GRENSÁSVEGI5, SÍMI588 2555.
HÁRKÚR, FJÖLVÍTAMÍN & STEINEFNI ESTER C
Fæst í mörgum heilsubúðum, apótekum og mörkuðum.
|f:Pai»to<g
• X T H ‘s
i^'áriiju f,;r lu'ir
11,11 oeli njiýl-"'
*A.ÍÍBTTÍ*
Áhrifaríkur hárkúr
Vítamín, steinefni,
aminósýrur,
prótein og
valdar jurtir.
Hugsaðu vel um
hárið.
ESTER
([“vitamin
Healthilife
f=EKt)V
UTRAL
Ester C
tryggir gæðin. Margföld áhrif. Fer vel í
Náttúrulegt E-500. maga. EC-200, EC-500 og
Öflug oxunarvörn EC-Plus með zínki, seleni,
fyrir frumurnar. magnesíum og kalki.
BfQ-sEUEN immmm
Sími 557 6610
r
Fyrsti Fulbright-styrkurinn var veittur árið 1957 og á þeim
fjörtíu árum sem liðin eru frá fyrstu styrkveitingu hefur
fjölmörgum íslendingum verið úthlutað Fulbright-styrk.
Um þessar mundir eru unnið að skráningu styrkþega. Til
að auðvelda verkið er þess farið á leit að styrkþegar sendi
Fulbrightstofnuninni neðanskráðar upplýsingar.
NAFN:
HEIMILISFANG:
KENNITALA:
TEGUND STYRKS:
STYRKÁR:
Þeir sem hafa áhuga á að gerast stofnfélagar HOLLVINAFÉLAGS
FULBRIGHT-starfseminnar á íslandi, vinsamlegast sendið inn
upplýsingar fyrir föstudaginn 3. apríl, þar sem stofnfundurinn
mun fara hátíðlega fram fimmtudaginn 16. apríl.
ÉG HEF ÁHUGA Á AÐ GERAST STOFNFÉLAGI:
UNOIRSKRIFI
Upplýsingarnar má senda í pósti, með faxi, simleiðis, eða með tölvupósti:
Póstfang:
Fulbright-stofnunin
Laugavegi 59,3. hæð
101 Reykjavík
Sími: 551 0860
eSa 552 0830
Fax: 552 0886
E-mail: fulb@centrum.is