Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„Ég rústa ekki hótelherbergi ef
ég veit að ég á eftir að sofa
þar um nóttina. Ég er ekki
heimskur.“
NILFIS
NewLine
ENN EIN NÝJUNGIN FRÁ NILFISK
MINNI 0G ÓDÝRARI RYKSUGA
SÖMU STERKU NILFISK GÆÐIN
PRODIGY varð til í svefn-
herbergi Liams Howletts
árið 1990. Þar tók hann
vakinn og sofinn upp tíu
- lög og rölti sér svo með upptökurnar
á skrifstofu XL Recordings. Þetta
var hrá og grípandi danstónlist sem
hlaut þegar náð fyrir augum ráða-
manna útgáfufyrirtækisins. Afrakst-
urinn var íyrsta smáskífa Prodigy
„What Evil Lurks“ sem kom út á
vínil í febrúar árið 1991. Seldist hún
í um 7 þúsund eintökum og nafn
sveitarinnar bar fyrst á góma í tón-
listartímaritum. Sem verður að telj-
ast ágætt í fyrstu atrennu. Tónninn
var gefinn.
Nýr stökkpallur
Smáskífan Charly kom Prodigy á
kortið nokkru síðar, fleytti henni í
eitt af tíu efstu sætum vinsældar-
listans í Bretlandi, og markaði leið-
ina fyrir fyrstu breiðskífu sveitar-
innar Experience sem var 25 vikur i
efstu 40 sætunum. En „rave“-um-
hvei'fið sem hafði verið stökkpallur
Prodigy var orðið einlitt og of lítil
áskorun fyrir Howlett sem var allt í
öllu hjá sveitinni. Hann langaði til
að spreyta sig á einhverju nýju.
Sumarið 1993 kvað við nýjan tón
hjá Prodigy þegar smáskífan One
Love kom út. Hún hafði reyndar
skömmu áður komið út nafnlaust
með stimplinum Earthbound og
fengið lofsamlega dóma. Þarna var
'farið að gæta áhrifa rokksveita á
borð við Niivana, Smashing Pump-
kins og Red Hot Chili Peppers og
þróttmikils flutnings Rage Against
The Machine og Biohazard sem
Howlett hafði komist í tæri við á
tónlistarhátíðum sem sóttust orðið
eftir kröftum Prodigy. Einnig sótti
Howlett í nýjustu stefnur og
strauma í danstónlist þar sem hann
var á heimavelli.
Ekkert spurðist til sveitarinnar
næsta árið. Howlett var önnum kaf-
!inn í hljóðveri að leggja drög að
næstu breiðskífu Music For The
Jilted Generation. Svo hófst nýtt
skeið í sögu sveitarinnar. Smáskífan
No Good (Start The Dance) lagði
grunninn að velgengni breiðskíf-
unnar, var sjö vikur í einu af tíu
efstu sætum vinsældalistans og náði
hæst í fjórða sæti. Music For The
Jilted Generation kom út í júlí árið
1994, tók flugið beint í efsta sæti og
náði gullsölu fyrstu vikuna. Gagn-
rýnendur héidu vart vatni og breið-
skífan var tilnefnd til Mercury-
verðlaunanna.
Djöfullegur kraftur
Lagið Firestarter kom út í mars
jriárið 1996 og enn náði Prodigy nýj-
um landvinningum. Það var fyrsta
iag sveitarinnar sem náði efsta sæt-
inu í Bretlandi og það hélt því í
þrjár vikur. Djöfullegur krafturinn í
laginu þeytti því í hæstu hæðir og
þotuhreyflarnir voru pönkaður
söngur Keiths Flints. Slúðurblöðin
bresku fóru í herferð gegn laginu,
„Bönnum þessa sjúklegu plötu“,
sem auðvitað ýtti aðeins undir vin-
sældir lagsins.
Vinsældir myndbandsins, sem
Prodigy hefur notið
sívaxandi vinsælda á
þessum áratug og er
með umtalaðri
hljómsveitum. Hún
er líka umdeild.
Pétur Blöndal talaði
við Maxim Reality
til að fræðast um
við hverju megi
búast á tónleikum
sveitarinnar á
Islandi 28. mars.
náði einhvem veginn að virkja
kraftinn í laginu, voru miklar og það
var ekki síður umdeilt. Þar var
Keith Flint með djöfulseyrun í hár-
inu í essinu sínu og hreinlega
kveikti í sjónvarpsskjánum. Lagið
Breathe sem kom út í nóvember
sama ár var ekki síður til vinsælda
fallið og skyndilega var Liam How-
lett ekki andlit Prodigy út á við
heldur Maxim Reality og Keith
Flint.
Nýjasta breiðskífa Prodigy nefn-
ist Fat Of The Land og kemur hún í
kjölfarið á umfangsmikilli tónleika-
heldur gerðum við okkur gr’ein fyrir
að við byggjum yfir krafti og
stemmningu og fannst gaman að
miðla því til annarra.
Verðið þið aldrei þreyttir á þessum
endalausa þeytingi?
„Nei, ef við hættum að hafa gam-
an af þessu emm við að halda tón-
leika á röngum forsendum. Við
reynum alltaf að skemmta okkur
um leið. Og fólkið í kringum okkur
veit það. Við ráðum sjálfir ferðinni
og þekkjum okkar takmörk. Við för-
um ekki yfir strikið vegna þess við
teljum okkur hafa sérgáfu og viljum
ekki spilla henni.“
Eru tónleikaferðir Prodigy eitthvað
í líkingu við alræmdar tónleikaferð-
ir rokksveita á borð við Spinal Tap?
„Nei,“ svarar hann. „Eða hvað
áttu annars við?“
Ólifnaðinn og óregluna sem er við-
loðandi frægar sveitir.
„Eg get auðvitað ekki sagt til um
aðrar sveitir, en hvað okkur varð-
ar,“ segir hann og hugsar sig um
stundarkorn. „Nei.“ Svo hlær hann
ótæpilega. „Við höldum vissulega
veislur og skemmtum okkur en ekki
upp að þvi marki áð við rústum hót-
elherbergjum. Við emm ekki
þannig hljómsveit. Eg rústa ekki
hótelherbergi ef ég veit að ég á eftir
að sofa þar um nóttina. Eg er ekki
heimskur. En við höldum auðvitað
okkar veislur og skemmtum okkur.
Þetta snýst jú um gleðistundirnar.
Eftir að hafa glatt tíu þúsund
manns og fengið þá til að hoppa og
ærslast finnst okkur í lagi að við
ljrftum okkur upp sjálfir."
Hvað ætlið þið að gera eftir tón-
leikana á íslandi?
„Það sama og venjulega. Fara á
skemmtistað, skemmta okkur og
verða fullir," segir hann glettnis-
lega. „Okkur líkar ísland. Fólk er
vinalegt og . . . það spaugilega við
Island er . . . að það er svo mikið af
konum! Bláa Jónið og konur - það
minnir mig á Island.“
Ætlið þið að einbeita ykkur meira
að Bandaríkjamarkaði í framtíð-
inni?
„Nei, við vinnum ekki þannig. Við
búum ekki til áætlanir og ákveðum
að einbeita okkur betur að þessum
og þessum markhópi. Þetta er ekki
markaðsfræði. Við eltum uppi
skemmtilegar uppákomur og sækj-
um þangað sem fólk vill fá okkur.
Þannig vinnum við. Mér líkar ekki
einu sinni við Bandaríkin. Það eina
sem mér líkar við Bandaríkin er
New York og kannski Los Angeles,
- svona vika í Los Angeles.
En Bandaríkin eru of mikið á yf-
irborðinu og Bandaríkjamenn eru
ekki nógu sannar manneskjur. Ef
Evrópumenn kunna illa við þig
segja þeir það upp í opið geðið á
þér. Ef Bandaríkjamenn kunna ekki
við þig segja þeir: „Blessaður, hvað
segirðu gott?“ En auðvitað er ekki
hægt að alhæfa um fólk og í Banda-
ríkjunum er greinilega fólk, sama
hvað okkur finnst um það, sem líkar
tónlistin okkar. Og okkar helsta
markmið er að leita það fólk uppi og
spila fyi’ir það. Það er ástæðan fyrir
því að við förum þangað, - það á
ekkert skylt við markaðssetningu."
Liam hefur verið helsti lagasmiður
og driffjöður Prodigy. Hefur fram-
lag annarra í sveitinni aukist í gegn-
um tíðina?
„Já, framlag hefur aukist frá mér
og Keith. Það er bara eðlileg þróun
á samstarfi sveitarinnar. Við höfum
gert okkur gi-ein fyrir því að gott
væri að setja meiri raddir í tónlist-
ina og það hefur gert sveitina sam-
heldnari. Þegar við byrjuðum vor-
um við aðallega danssveit. Liam
gerði tónlistina, ég sá um raddir og
Keith og Leeroy [Thornhill] voru
dansarar. Þannig byrjuðum við. En
við höfum augljóslega þróast og
gert okkur grein fyrir að Keith get-
ur samið texta, ég get samið texta
og Leeroy getur samið texta. Þetta
er því orðinn félagsskapur þar sem
reisu einkum um Bandaríkin þar
sem sveitin nýtur nú ómældra vin-
sælda. Fat Of The Land fór í efsta
sæti bæði breska og bandaríska vin-
sældalistans og lagið Smack My
Bitch Up hefur vakið sterk við-
brögð. Skiljanlega ef rýnt er í hina
illþýðanlegu merkingu textans: [Ég]
lem tíkina mína. Myndbandið er
ekki síður umdeilt og var m.a. bann-
að á MTV-sjónvarpsstöðinni. Af of-
angreindu má sjá að Prodigy hefur
langt í frá sagt sitt síðasta orð og
leiðin virðist aðeins liggja upp á við.
Maxim Reality
fær orðið
Blaðamaður sló á þráðinn til
Maxim Reality sem hefur sungið
inn á lög sveitarinnar frá upphafi,
lætur mikið að sér kveða á tónleik-
um með vitfirringslegt augnaráð og
samdi einnig nokkra texta á nýju
plötunni ásamt Keith Flint.
Hafa auknar vinsældir haft áhrif á
tónlist Prodigy?
„Nei, það eina sem hefur breyst
er að fjárhagsstoðir sveitarinnar
hafa styi'kst. Hvorki tónlistin né
ímynd sveitarinnar hefur tekið breytingum.“
En lífsstíll meðlima sveitarínnar?
„Hann hefur svo sem breyst í kjölfar velgengninn-
ar. Ég bý ekki lengur í rúmi heldur húsi, sem hefur
auðvitað ákveðna kosti í för með sér. En tónlistin er í
fyrirrúmi og allt byggist á henni. Þar hefur ekkert
breyst. Við smíðum lög og höldum tónleika á sömu
forsendum og áður. Annars værum við að fjarlægjast
okkar upphaflegu markmið."
Vinsældirnar hafa ekkert stigiðykkur til höfuðs?
„Nei, ef eiithvað er erum við betur að okkur í tón-
listarbransanum, einbeittari og föllum ekki í þá
gildru að halda að heimurinn sé okkar gólfmotta að-
eins vegna þess að fólk lítur upp til okkar. Ef til vill
stígur það sumum til höfuðs, en það á ekki við um
okkur. Við höldum tryggð við vini okkar og látum
ekki blekkjast af frægðinni sem gæti eins heyrt sög-
unni til á morgun."
Þið haíið komið hingað fjórum sinnum áður. Af
hverju komið þið hingað svona oft?
„Það er rétt hjá þér,“ svarar Maxim hugsi. „Fjór-
um sinnum er nokkuð oft... upphaflega fórum við til
íslands vegna þess að þar var svo mikið af góðum
stúlkum," heldur hann áfram og hlær.
En nú eruð þið orðnir siðmenntaðri!?
„Já,“ svarar hann og verður annars hugar. Svo
bætir hann við: „Ég kann vel við ísland. Þetta er svo
lítið land og lítið samfélag. Hvað búa annars margir
þarna? Eru það 200 þúsund?"
Tæplega 270 þúsund.
„Já, og síðast þegar við lékum á íslandi var það
fyrir 4 þúsund manns. Það er nokkuð stór hluti þjóð-
arinnar. “
Það verða ekki færri núna, segir blaðamaður nokkuð
viss í sinni sök.
„Það mættu margir á fyrstu tónleikana okkar á Is-
landi og stemmningin var góð,“ segir Maxim og nær
sér á strik. „Og af hverju ættum við ekki að fara
þangað aftur? Fyrst fólk hefur gaman af því sem við
erum að gera.“
ímynd Prodigy er jafnáleitin og stuðandi og tónlist-
in. Er það með vilja gert eða ósjálfrátt?
„Ætli það hafi ekki gerst af sjálfu sér. Þegar þú
segir að ímyndin sé áleitin er það aðeins vegna þess
sem tónlistin vekur innra með okkur. Ekki í þeim
skilningi að við verðum ofbeldisfullir. Við fáum útrás
sem snýst meira um að virkja orku tónlistarinnar
með líkamanum og koma henni til skila til fólks.
Þetta er ekki ofbeldisfullt á neinn hátt heldur aðeins
tjáningarmáti."
Eyðið þið miklum tíma í að skipuleggja framtíðina
eða gerist allt af sjálfu sér?
„Það eina sem ég ráðgeri fram í tímann er hvað ég
ætla að taka með mér til íslands, t.d. buxur og nær-
föt. Ég læt þar við sitja.“
Velgengni Prodigy undanfarín tvö ár má að miklu
leyti þakka umfangsmikilli tónleikayfirreið.
„Já, þetta er eins og með allt annað. Maður upp-
sker eins og maður sáir. Við höfum þó ekki lagt á
okkur alla þessu vinnu til þess að öðlast vinsældir
• i4uuw motor
• Stillanlegt sogafl
• 4ra þrepa síun
• Inndregin snúra
• Sundurdregið stálrör
• Sogstykkjahólf
• Biöstöðufesting
fyrir rör og slöngu
NILFISK
NewLíne
/FQnix
HÁTÚN16A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420