Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 61

Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 6 V Þjonusla ■ þekking - raOgjöl. flratuga reynsla. l^mebaH ÚR & SKARTGRIPIR • KRINGLUNNI MAGNÚS E. BALDVINSSON FOLK í FRÉTTUM UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 1, RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305 - kjarni málsins! /ýV EG Skrifstofubúnaður chf XT Ármúli 20 Simi 533 5900 URSMIÐUR Uugavegi 62. Sfmi: 551 4100 ur o(j sAart/jr(A(/' Jfa/uja/HHji 6/ J/suu 662 f9SO allir hafa eitthvað að segja. Svo mun verða frekari þróun á þessu samstarfi í framtíðinni. Við erum til dæmis með trommuleikara og gítar- leikara á tónleikum sem eykur lit- rófið.“ Verða þeir með á næstu plötu? „Nei. Þeir eru aðeins á tónleikum. Við erum aðeins fjórir í Prodigy og verðum um ófyrirséða framtíð. En við munum alltaf reyna að brydda upp á einhverju nýju til þess að lífga upp á stemmninguna á tónleik- um. Við erum fyrst og fremst tón- leikasveit." Ef maður hlustar á eldri lög með Prodigy má glöggt finna hvað tón- listin hefur breyst mikið á undan- fórnum árum. Eiga breytingamar eftir að halda áfram? „Já, það er engin leið að spá fyrir um hvernig við verðum á næsta ári. Við verðum samt áreiðanlega ekki eins og við erum núna. Tónlistinni á alltaf eftir að fleygja fram - alveg fram í það óendanlega. Við eigum aldrei eftir að láta staðar numið vegna þess að lengra verði ekki komist. Ef við gerðum það myndu aðrir skríða fram úr. Tónlistin mun ávallt þróast og á næsta ári á það vonandi líka við um okkur.“ Hvemig varð textinn til við lagið „Smack My Bitch Up“? „Liam samdi textann og ég veit svo sem ekki hvað hann var að hugsa á þeim tíma. Hann samdi líka tónlistina og textinn á vel við hana. Þegar hann lék þetta fyrir mig fannst mér ekkert athugavert við textann. Hann hafði enga aðra merkingu fyrir mér en að lagið gengur upp svona.“ Myndbandið hefur ekki síður verið umdeilt. Hvernig finnst þér það? „Mér finnst það áhrifamikið og hreint út sagt frábært. Konum blöskraði textinn, en hvernig getur hann gengið fram af þeim nema þær líti á sig sem tíkur [„bitches"]? Kærastan mín lítur ekki á sig sem tík og móðgast þess vegna ekki. Lagið var bannað og við ákváðum að gera myndbandið þannig að það yrði bannað líka. Það gengur upp og hefur óvænt endalok. Þá kemur í ljós að konur kalla aðrai’ konur tík- ur alveg á sama hátt og karlmenn gera. Þær eru alveg jafnslæmar. Annars sýnir myndbandið alveg dæmigert kvöld úti á lífinu. Ef til vill ekki eitt kvöld. En ef litið er yfir árið kemst þetta allt fyrir; að fara á krá, lenda í slagsmálum, verða full- ur, ná sér í vændiskonu, taka inn eiturlyf. Fólk gerir þetta um hverja helgi. Ég er ekki bara að tala um ungt fólk úti á lífinu heldur líka fólk sem hefur komist til vegs og virð- ingar í þjóðfélaginu, eins og stjóm- málamenn. Það heldur þessu bara út af fyrir sig. Ungt fólk hlustar á plötumar okkar og er ekki heimskt. Það sér út á hvað þjóðfélagið geng- ur og þótt það horfi á myndbandið fer það ekki út á götu og apar hegð- unina eftir. Hvenær kemur næsta plata út? „Ég get eiginlega ekki svarað þvi. Þetta er spurning sem aðeins Liam getur svarað. Það veltur á því hvenær hann byrjar að semja aftur. Hann fer sér hægt, - því hann legg- ur vinnu í allt sem gerir. Við bíðum bara þolinmóðir því við vitum að þetta verður gott efni sem á ekki aðeins eftir að koma fólki í opna skjöldu heldur okkur líka. Hvenær sem Liam er í hljóðverinu og leikur eitthvað nýtt spyr maður sjálfan sig: „Hvaðan fékk hann eiginlega hugmynd að þessu!?““ Áorniá (oe/cnoTOL/nL o/rn o. I boöi Heilsuhússins í Mbl og á FM 957 í hádeginu í dag Augnbaunasúpa 1 msk Ólívuolía 1 meðalstór laukur 1 lítri vatn 150 g / 1 i/4 dl. Augnbaunir, þurrkaðar 1 msk grænmetiskraftur 3 hvítlauksrif eða 3 msk hvitlauksmauk 1 msk ferskt engifer 2 tsk kóriander 1 i/z msk cummin 11/2 tsk chayenne pipar Laukurinn, hvítlaukurinn og engiferið er hreinsað og saxað. Hitið olíuna, setjið laukinn úti og steikið þar tit hann er gtær. Hreinsið hugsantegar skemmdar baunir og skolið baunirnar vel. Setjið vatn i pott og atlt hráefnið úb' og látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita i ca. 30 mínútur. Éh eilsuhúsið Þú finnur fleiri uppskriftir á heimasfðunni okkar www.heilsa.is Lagermál eru okkar sérgrein Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera. Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar. Aðeins vönduð vara úr sænsku gæðastáli. Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki. Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.