Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 68
AS/400 ó d ý r a r i en þig grunar , fr-j' Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPINKERFIHF Whpt hewlett mL'rJk PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RlTSfTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Flotinn líklega til veiða á morgun í kjölfar lagasetningar Stjórnvöld tóku tillit til gagnrýni sjómanna STJÓRNVÖLD ákváðu eftir fundi með forystumönnum sjómanna í gærmorgun að breyta ákvæði í lagafrumvarpi, sem lögfestir miðl- unartillögu ríkissáttasemjara, til samræmis við þá gagnrýni sem sjó- menn höfðu sett fram. Meðal ann- ars verður ákvæðið, sem koma á í veg fyrir að launakostnaður hækki við fækkun í áhöfn, takmarkað við rækjuveiðar. Sjómenn lögðu þar með á hilluna fyrirætlanir um að aflýsa verkfalli til að koma í veg fyrir lögfestingu miðlunartillögunnar. Útvegsmenn eru hins vegar afar ósáttir við þess- ar lyktir mála og verða þær ræddar á stjómarfundi LIÚ í dag. Forystumenn sjómanna áttu tvo fundi með sjávarútvegsráðherra í gærmorgun og i kjölfarið voru for- svarsmönnum útvegsmanna kynnt- ar niðurstöðumar í stjórnaiTáðinu. Ef umræða og afgreiðsla fmmvarpa ríkisstjórnarinnar vegna kjaradeil- unnar ganga fram eins og ráð er fyrir gert verða frumvörpin að lög- um á morgun, föstudag. Þar með yrði verkfalli sjómanna lokið og fískveiðiflotinn ætti að geta látið úr höfn í kjölfarið, en með lögfestingu miðlunartillögunnar verður kominn á samningur milli sjómanna og út- vegsmanna sem gildir næstu tvö ár. Þorsteinn Pálsson sagði m.a. er hann mælti fyrir frumvörpunum á Alþingi í gær að um mikla almanna- hagsmuni væri að tefla og nauðsyn- legt að bregðast við til að koma í veg fyrir þann mikla efnahagsskaða sem stöðvun flotans um lengri tíma myndi ella hafa í fór með sér. Fyrstu umræðu um frumvörpin lauk í gærkvöldi og var samþykkt í atkvæðagreiðslu að vísa til annarrar umræðu og sjávarútvegsnefndar. „Það að gefast upp með þessum hætti fyrir hótunum, brigslyrðum og stóryrðum af öllu tagi finnst mér svona lýsa því hvemig eigi að koma fram við þessa ríkisstjóm í málefnum er varða sjávarútveginn,“ sagði Kristján Ragnarsson, fonnaður LIÚ. „Þetta var gerræði hvemig þeir ætluðu að fara í þetta. Ég stend við það, en þeir hafa látið sér segjast og breytt þessari grein frumvarpsins í þá vem að við ætlum að láta það yfír okkur ganga,“ sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Islands. ■ Nauðsynlegt/34-35 Reykur í eldfjallastöð SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað að Norrænu eld- fjallastöðinni við Grensásveg laust eftir klukkan 19 í gær- kvöldi vegna mikils reykjar. Um reyk í blásara reyndist vera að ræða og var húsnæði stofnunarinnar reykræst. Morgunblaðið/Ásdís Uthýst úr skóla vegna deilna um greiðslur FATLAÐUR drengur sem á lög- heimili í Reykjavík en dvelst á fóst- urheimili í Flóanum hefur enga skólagöngu fengið í vetur vegna deilna milli sveitarfélaga um greiðsl- ur fyi-ir skólagöngu drengsins. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bama- vemdarstofu, segir að nánast sé ver- ið að brjóta á drengnum öll ákvæði grunnskólalaga, stjómarskrárinnar og bamasáttmála Sameinuðu þjóð- anna, og það sé í rauninni alveg óþol- andi að drengurinn skuli ekki eiga þess kost að ganga í skóla. Eftir að grunnskólinn fluttist til sveitarfélaganna hafa fjölmörg mál komið upp þar sem deilur hafa risið milli sveitarfélaga um greiðslur vegna skólabarna sem dveljast ekki í því sveitarfélagi sem þau eiga lög- heimili, en mál drengsins í Flóanum þykir hins vegar það alvarlegasta sem upp hefur komið hingað til. Sigurjón Pétursson, deildarstjóri grunnskóladeildar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að þetta sé í raun og vera eina vandamálið sem ekki hafi fundist lausn á í sam- bandi við flutning grannskólans til sveitarfélaganna. Sambandið hafí gefíð út viðmiðunargjaldskrá sem er leiðbeining til sveitarfélaganna um hvemig þau geti staðið að málum, en engar reglur séu hins vegar til um það hvernig með slík mál skuli farið. Hann segir að þetta hafi verið tekið upp á fulltrúaráðsfundi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í síð- ustu viku á Egilsstöðum, og þar hafí verið skipuð nefnd til þess að kanna hvort hægt sé að ná einhverju betra samkomulagi en viðmiðunarregl- umar eru um greiðsluskiptingu. ■ Talið brot/10 Morgunblaðið/Ásdís Fermingin nálgast FERMINGARUNDIRBÚNINGUR er víða í hámarki þessa dagana, en um 4.000 unglingar fermast frá kirkjum landsins nú í vor. Að mörgu þarf að huga áður en fermingin fer fram og víst er að annríkis gætir á mörgum heimil- um. Fastur liður í fermingarund- irbúningnum er að máta kyrtlana eins og unglingarnir í Grensás- sókn gerðu í gær. A myndinni að- stoðar Lillý Karlsdóttir þá Inga Gunnar Ingason og Adrian Sa- bido. Alls eru 4053 börn í þeim árgangi sem nú fermist og reynslan sýnir að um 95-97% hvers árgangs fermast. Þá munu 49 börn fermast borgaralegri fermingu í ár. 204 millj. hagn- aður Samherja og dótturfélaga HAGNAÐUR Samherja hf. og dótt- urfélaga nam 204 milljónum ki’óna á síðasta ári. Hagnaður af starfsemi dóttur- og hlutdeildarfélaga fyrir- tækisins innanlands nam 377 millj- ónum króna en tap varð af rekstri þeirra erlendis. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri fyrirtækisins, segir forsvars- menn þess vel sátta við afkomuna á móðurfélaginu. Laka afkomu dótt- urfélaganna og hlutdeildarfélaga erlendis megi að stórum hluta rekja til þess að þorskveiði í Barentshafí hafi bragðist síðari hluta árs. ■ Tap af rekstri/Cl Vorboðar 1 Laugardal FIMM kiðlingar eru nú í Hús- dýragarðinum í Laugardal. Sá eisti fæddist 8. mars og sá yngsti aðfaranótt þriðjudags. Samkvæmt upplýsingum dýra- hirðis er nú farið að styttast í að gæsir verpi en búast má við að gæsarungar komi úr eggjum í aprfl. Þá verða dúfur paraðar í næstu viku þannig að einnig má búast við fyrstu dúfuungunum í aprfl. Þar verður þó einungis um fyrstu dúfuunga sumarsins að ræða því hver dúfa getur komið upp 2 til 5 hópum af ungum áður en kynjunum er aftur stíað í sundur í október. Minkar og refir gjóta að jafn- aði í maí. Búast má við fyrstu lömbunum upp úr því og síðan Tyrstu hreindýrakálfunum í byij- un júní. Dómsmálaráðuneytið setur sérstakan rfkislögreglustjóra vegna hvarfs fíkniefna Rannsakað hvort refsiverð brot hafí verið framin DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur skipað Ragnar H. Hall sérstakan ríkislögreglustjóra til að rannsaka hvort starfsmenn eða yfirmenn emb- ættis lögreglustjórans í Reykjavík hafi gerst brotlegir við starfsskyldur sínar eða hegningarlög og til að kanna vörslu og meðferð fíkniefna. Er rannsóknin í framhaldi af niðurstöðu úttektar rík- islögreglustjóra á fíkniefnum í vörslu lögreglu- stjóraembættisins í Reykjavík þar sem kemur fram að rúm fjögur kíló af fíkniefnum vanti í geymslu lögreglunnar miðað við skráningu. „Þetta er mjög alvarleg niðurstaða og ég taldi nauðsynlegt að bregðast við í samræmi við það,“ sagði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær og sagði þess vegna settan sérstakan ríkislögreglustjóra í mál- inu. „Honum er falið að kanna hvort einstakir lögreglumenn eða yfírmenn lögreglunnar hafi brugðist starfsskyldum sínum eða hvort um sé að ræða brot gagnvart hegningarlögum." Um er að ræða tímabilið 1981 til 1. júlí 1997. Þegar ráðuneytið fól ríkislögreglustjóra í gær rannsókn á málinu taldi Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri sig vanhæfan samkvæmt ákvæðum í stjórnsýslulögum þar sem hann hefði undir lok umrædds tímabils verið starfsmaður lögreglustjórans í Reykjavík og því er settur sér- stakur ríkislögreglustjóri til verkefnisins. Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, segir að ljóst sé að lögreglan hafi ekki staðið sig í því að hafa birgðatalningu sjálf. Hann sagði aug- ljóslega ástæðu til að kafa rækilega í þessi mál og líkti því sem gerst hefði við sjóðþurrð. Settum ríkislögreglustjóra hefur verið falið að kanna meðferð fíkniefna hjá embætti lögreglu- stjórans í Reykjavík á fyrrgreindu árabili, hvort starfsmenn eða yfirmenn embættisins hafi brotið gegn starfsfyrirmælum eða starfsskyldum sínum og hvort grunur leiki á því að starfsmenn emb- ættisins hafi framið refsiverð brot við störf. ■ Kannað verði hvarf/4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.