Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 1
120 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
121. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kohl í
kröppum
dansi
Bonn. Reuters.
GYÐINGAR og raeðlimir í sam-
steypustjórn Helmuts Kohl, kansl-
ara Þýskalands, gagnrýndu í gær
Kristilega demókrata (CDU) fyrir að
líkja PDS, arftakaflokki a-þýska
Kommúnistaflokksins, við Nasista-
flokk Adolfs Hitlers. Er CDU, flokk-
ur Kohls, sakaður um að standa fyrir
„hræðsluáróðri" vegna þingkosninga
sem framundan eru í Þýskalandi en
Guido Westerwelle, kosningastjóri
frjálsra demókrata (FDP) sem á aðild
að samsteypustjóm Kohls, taldi slík-
an málflutning ekki líklegan til að
vinna atkvæði. Jafnframt sagði
Ignatz Bubis, forseti samráðs gyð-
inga í Þýskalandi, að samlíking Kohls
við nasista væri „fáránleg" og að
stjómmálamönnum ætti ekki að
leyfast slíkur málflutningur.
Kohl varð fyrir frekari skakkaföll-
um í gær þegar ný skoðanakönnun
sýndi að CDU er nú átta prósentu-
stigum fyrir aftan SPD-flokk Ger-
hards Sehröders í fylgi. CDU hefur
skv. könnuninni 36% á móti 44%
SPD, en í síðustu skoðanakönnun
munaði einungis sex prósentustigum
á fylgi flokkanna.
--------------
125 tonn af
eldislaxi
drepast
Ósló. Morgunblaðið.
EITRAÐIR þörungar halda áfram
að valda norskum fiskeldismönnum
erfiðleikum en undanfama daga hafa
125 tonn af eldislaxi drepist í kvíum í
Tromsfýlki í N-Noregi og standa
bæði dýralæknar og forstöðumenn
eldisstöðvanna ráðþrota.
Engin lyf eru til gegn þörungun-
um sem leggjast á tálkn fiska og
kæfa þá og heldur er ekki hægt að
flýja þörungaflekkina með því að
flytja eldiskvíarnar úr stað. „Maður
stendur bjargarlaus gagnvart þess-
um ósýnilega óvini,“ segir Rolf-Erik
Berglund, forstöðumaður eldisstöðv-
arinnar Blámannsvik í Kaldfjorden í
Tromsfylki. I gær var hafist þai'
handa við að háfa um 50 tonn af
dauðum laxi úr kvíum.
I byrjun maí ollu þörungar af
annarri tegund usla í strandeldis-
stöðvum í Suður-Noregi. Drápust
þar um 500 tonn af laxi og urriða.
Eitraðir sjávarþörungai- hafa um
árabil valdið norskum eldisstöðvum
talsverðum búsifjum. Alvarlegast
varð ástandið 1988 og 1991 er rúm-
lega 1.200 tonn af laxi drápust og
stöðvarnar töpuðu jafnvirði rúmlega
milljarðs íslenskra króna.
Reuters.
MOTMÆLAGANGA var farin í Bombay á Indlandi í gær gegn kjarnorkuvopnatilraunum Pakistana. Mót-
mælendur brenndu gúmmísnáka sem tákna áttu erkióvininn Pakistan.
Viagra olli
skilnaði
EFTIR fjögur ár án kynlífs
hafði Viagra, nýja lyfið gegn
getuleysi, svo góð áhrif á 70
ára gamlan milljónamæring í
New York í Bandaríkjunum að
hann ákvað snarlega að segja
skilið við eiginkonuna. Eigin-
konan, sem heitir Roberta
Burke og er 63 ára gömul, hef-
ur nú höfðað mál á hendur eig-
inmanni sínum, Frank
„Sonny“ Bernardo, og krafist
skaðabóta upp á 2 milljónir
bandarískra dollara, um 142
milljónir íslenskra króna. I
ákæru eiginkonunnar segir að
einungis nokkrum dögum eftir
að ástarlíf þeirra hjóna komst
í gang að nýju með aðstoð Vi-
agra, eftir fjögurra ára hvíld,
hafi Bernardo verið farinn að
hitta aðra konu. Hann tók sig
síðan til og gekk á dyr 5. maí
síðastliðinn og býr nú með vin-
konu sinni í New Jersey.
Hann passaði hins vegar vel
að gleyma ekki flöskunni með
Viagra-lyfinu þegar hann yfir-
gaf glæsilega íbúð þeirra Bur-
kes í New York.
Alþjóðleg fordæming í kjölfar frekari kjarnorkutilrauna í Pakistan
Pakistanar segja kjarn-
orkutilraunum lokið
Nýju-Dehlí. Washington. London. Tókýó. Islainabad. Reuters.
PAKISTANAR sprengdu í gær eina kjarnorku-
sprengju til viðbótar þeim fimm sem sprengdar
voi-u á fimmtudag. Fyrst í stað var talið að
Pakistanar hefðu sprengt tvær sprengjur en þær
fregnir voru síðan dregnar til baka. Segist
Pakistanstjóm nú hafa lokið kjamorkutilraunum
sínum í bili og bauð einn talsmanna hennar Ind-
verjum nú til friðarviðræðna. Fulltrúi Indlands-
stjórnar sagði Indverja ekki hafa uppi áætlanir
að bregðast við nýjum tilraunum Pakistana með
því að gera frekari kjarnorkutilraunir.
Bandaríkin, Japan, Frakkland og Bretland
fordæmdu kjarnorkutilraunirnar harðlega strax
og fréttir bárust af þeim. Talsmaður Bandaríkja-
stjórnar kvað það hafa valdið Bandaríkjunum
miklum vonbrigðum að Pakistanar skyldu ekki
hafa orðið við óskum annarra ríkja um að sýna
stillingu í kjölfar kjamorkutilrauna þeirra á
fimmtudag. Hvatti hann bæði Pakistana og Ind-
verja til að hafa hemil á sér, hætta við allar frek-
ari tilraunir með kjarnavopn og draga úr yfirlýs-
ingum sem yllu aukinni spennu.
Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, tók í
sama streng og sagði í yfirlýsingu að áframhald-
andi tilraunir „væru alls ekki til þess fallnar að
tryggja öryggi Pakistana. Þær auka enn frekar
spennu á þessu svæði og valda miklum áhyggjum
vegna kjamorkuvopnakapphlaups í Suður-Asíu.“
Sólarhring áður en tilraunirnar voru gerðar hafði
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hvatt Indverja
og Pakistana til að sýna skynsemi og stillingu.
Jaswanth Sing, háttsettm' fulltrúi Janata-
flokksins, sem fer með stjórn Indlands, sagðist í
sjónvarpsviðtali í gær harma kjamorkutilraunir
Pakistana en lýsti jafnframt skilningi á ákvörðun
Pakistana. Því gæti hann ekki fordæmt þær.
Segja sínar aðferðir
þróaðri en Indverja
Aðspurður um það snemma í gærmorgun
hvort Pakistanar hefðu sprengt tvær sprengjur
til viðbótar sagði Gohar Ayub Khan, utanríkis-
ráðherra Pakistans, svo vera „með Guðs hjálp“.
Seinna leiðréttu Pakistanar þessar fregnir og
sögðu eina sprengju hafa verið sprengda.
Tilraunimar fóru fram í Baluchistan-héraði
Pakistans eins og þær fyrri og hafa Pakistanar
nú alls sprengt sex kjarnorkusprengjur, jafn
margar og Indverjar hafa sprengt frá árinu 1974.
Khan hafði áður viðurkennt að Indland og
Pakistan ættu nú í kjamorkuvígbúnaðarkapp-
hlaupi. „Því miður er það rétt, Indland hefur
þvingað okkur út í það.“
Indverjar sögðust í síðustu viku vera reiðubún-
ir að stöðva frekari kjarnorkutilraunir í sam-
vinnu við önnur ríki. Utanríkisráðherra Pakist-
ans sagði hins vegar að hann hefði fengið vís--
bendingar um að Indverjar áfonnuðu að
sprengja eina sprengju til viðbótar í júlí.
í viðtali sem birtist í gær sagði Abdul Qadeer
Khan, helsti vísindamaður Pakistana á sviði
kjamorku, að tilraunimar á fimmtudag hefðu
tekist afar vel. Hann hélt því jafnframt fram að
sú tækni sem Pakistanar hefðu notað við spreng-
ingarnar væri miklu háþróaðri og öruggari en sú
sem Indverjar hefðu beitt. Khan, sem er hetja í
augum almennings og stjómvalda í Pakistan eftir
sprengingamar á fimmtudag, sagði að kjarn-
orkutilraunirnar sönnuðu fyrir Indverjum að
Pakistan réði einnig yfir kjarnavopnum og að
Indverjar myndu því „hugsa sig um tíu sinnum
áður en þeir gerðu árás á Pakistan.“
Lífróð-
ur í
Lands-
banka
Vinnan er besta
lyfjagjöfin
Frsmliræmda-
stjérimeð
ritlimg
íélóðimi