Morgunblaðið - 31.05.1998, Page 24

Morgunblaðið - 31.05.1998, Page 24
24 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ EIÐUR Smári hefur sannarlega fetað í fótspor föðurins - og vonandi jafnar hann sig á meiðslunum og skráir nafn sitt í sögubækur fyrir frækilega frammi- stöðu á knattspymuvöllum álfunnar, eins og Amór gerði. Sonurinn er að- eins 19 ára, en hefur engu að síður þegar verið atvinnumaður í knatt- spyrnu í nærri fjögur ár hjá PSV Eindhoven í Hollandi, sem hann segir draumastað til að hefja ferilinn og Holland sé að hans mati ákjósan- legasta landið íyrii' unga knatt- spymumenn. Ahersla sé lögð á sóknarleik og mikinn hraða og einmitt sé dýrmætt að kynnast því. Meðbyr var mikill í byrjun en Eiður hefur haft sterkan vind í fang- ið síðustu tvö árin, vegna slæmra meiðsla í leik með landsliði 18 ára og yngri gegn Irum. Hann kom nýverið heim, samningur hans við PSV rennur út 1. júlí, Rosenborg í Nor- egi hefur sýnt Eiði Smára áhuga en hann samdi við KR og verður hjá fé- laginu í sumar. Framhaldið er óráð- ið nema hvað hann er staðráðinn í að halda áfram af fullum krafti í þessu starfi. Segist nú níu kílóum of þung- ur, en æfir af krafti og vonast til að fá að spreyta sig fljótlega - um leið og nauðsynlegir pappírar berast frá Hollandi til að hægt verði að veita honum leikheimild hériendis. Annað kom aldrei til greina en verða knattspyrnumaður að atvinnu, segir hann. Faðir hans var einn besti leikmaðurinn í Belgíu þegar Eiður Smári var barnungur og hann kynntist því atvinnumennsku vel frá þeirri hlið. En hann segir foreldrana aldrei hafa beitt sig þrýstingi. „Mér fannst einfaldlega að svona ætti þetta að vera. Ég var alltaf efnileg- ur, var stærri og líklega betri en jafnaldrarnir og svo sprakk ég út - blómstraði - árið sem ég lék með Val, 15 ára [1994]. Þegar ég hugsa um það í dag finnst mér í raun fá- ránlegt að ég skuii hafa verið að spila og þótt með þeim betri í deild- inni hér heima aðeins 15 ára. En sjálfstraustið var gífuriegt hjá mér á þessum tíma; ég hefði líklega getað flogið, hefði ég viljað!" Eiður Smári svarar þeirri spurn- ingu neitandi, hvort honum hafi ein- hvern tíma fundist erfitt að vera Guðjohnsen. Segir að pressan á sig hafi ekki verið meiri en aðra, hann hafi alla tíð leikið með eldri flokki en hann hafi í raun tilheyrt, auk síns flokks, og Valssumarið hafi sjálfs- traustið síðan rokið upp úr öllu valdi, vegna þess hve honum gekk vel. „Þegar svo er getur ekkert brot- ið mann niður. Þegar vel gengur er allt svo auðvelt inni á vellinum. Fót- bolti snýst nefnilega ekki bara um hæfileika; þeir eru auðvitað lykilat- riði en andlega hliðin skiptir rosa- lega miklu máli.“ Þetta eina sumar Eiðs Smára í efstu deild á Islandi var fólk al- mennt á því að hann virkaði mun eldri en 15 vetra en hann velti því ekki fyrir sér. „Aðeins hvernig ég væri orðinn sem knattspymumaður. Fyrirfram var ég reyndar ekki viss um að ég réði við að leika í meistara- flokki, svona ungur og óreyndur. Mér gekk hins vegar vel í fyrsta leik, líka þeim næsta, þegar ég skor- aði í fyrsta skipti í deildinni, og þar með varð sjálfstraustið ósjálfrátt mjög mikið.“ En hvernig skyldi það fara með sjálfstraustið að vera meiddur svona lengi? „Ég hef alltaf trú á sjálfum mér þrátt fyrir erfiðleikana. Þó ég sé ekki eldri hef ég öðlast þá reynslu að vita hvað þarf til að komast á fulla ferð aftur. Þetta er það eina sem ég vil gera, og ég veit að mér batnar,“ segir hann og bendir á - svona einsog í framhaldi af því sem fólki sýndist um árið - að sér líði ekki í dag eins og hann sé aðeins 19 ára. Hann sé orðinn það reyndur og þroskaður. Eiður fæddist 15. sept- ember 1978. Móðir hans er Ólöf Einarsdóttir en faðirinn Arnór var ekki viðstaddur fæðinguna. Hann hafði samið við Lokeren í Belgíu, en fór — ekki strax út, vegna þess að von var á baminu. Hann lýsti því svo í viðtali við Morgunblaðið í fyrra: „Síðan hófst bið heima eftir að bamið fædd- EIÐUR Smári Guðjohnsen ásamt unnustu sinni, Ragnhildi Sveinsdóttur og syninum óskírða, sem fæddist fyrir rúmlega hálfum mánuði, 12. maí Morgunblaðið/Golli Ungur hefur hann störf sem knattspyrnumaður á erlendri grundu; ungur eignast hann son; ungur meiðist hann illa í leik. Skapti Hallgrímsson gæti hér verið að vitna til inntaks úr kafla um Arnór Guðjohnsen á ofanverðum áttunda áratugnum og öndverðum þeim níunda en að þessu sinni er það sonur hans, Eiður Smári, sem á í hlut í dag; á seinni hluta síðasta áratugar aldarinnar. Hefur orðið af 30 milljónum á tveimur ár- um vegna meiðslanna ist en svo fór að ég fór út 14. sept- ember, var yfir nótt í Glasgow og kom til Belgíu daginn eftir. Fram- kvæmdastjóri Lokeren tók á móti mér með skeyti - sonur var fæddur. Ég sá Eið Smára fyrst hálfum mán- uði síðar þegar ég fór heim til að leika með unglingalandsliðinu á móti Hollandi.“ Því er ekki ofsagt, eins og Eiður orðar það nú sjálfur: „Segja má sem svo að líf mitt hafi snúist um fótbolta, allt frá fæð- ingu, og ég mun eflaust verða viðloðandi íþróttina “ þar til ég fer í gröfina." Hann segist þó gefa sér tíma fyrir ýmislegt annað en knattspyrnu. Blaðamaður situr með Eiði úti í sól- inni, sem baðaði höfuðborgarbúa í upphafi vikunnar, en sterkari sólar- geisli hefur skinið innandyra hjá þessum unga knattspyrnumanni og hans nánustu síðan 12. maí, þegar unnusta hans fæddi son sem vóg 15 merkur og var 50 cm langur. „Það hlýtur að vera ótrúlegasta reynslan í lífinu að eignast barn. Ég er ekki al- veg búinn að átta mig á þeirri ábyrgð sem þessu fylgir, en mér finnst gaman. Það er gott að vera hér heima í rólegheitum og geta hugsað um drenginn." Unnusta Eiðs Smára er Ragnhild- ur Sveinsdóttir úr Kópavogi. Hún verður 21 árs í júlí en hann fagnar tvítugsafmælinu í september. Hann brosir aðspurður hvort hann hafi ekki verið mikið kvennagull í skóla; orðinn svo þekktur sem raun ber vitni, vegna knattspymunnar. „Ég held það sé ekki rétt að spyrja mig. Ég er búinn að vera svo lengi í föstu sambandi." Þau Ragnhildur byrjuðu nefnilega ung að vera saman. „Ég var ennþá fímmtán ára en hún nýorðin sautján. Þetta var sumarið sem ég lék hér heima með Val.“ Eiður Smári segist heppinn; „ég er í draumastarfi þeirra sem hafa áhuga á knattspyrnu og finnst í raun ótrúlegt að geta unnið fyrir mér með þessum hætti; að geta lif- að af því sem maður hefur svona gaman af. En ekk- ert er sjálfgefið; menn átta sig best á því þegar þeir meiðast. Fólk fær oft þá mynd að knattspyrnumenn fái allt upp í hendurnar, allt sé svo einfalt, en það hefur sýnt sig og sannað á síðustu Það fyrsta sem kom upp hugann: þar fór leikurinn með pabba! árum hjá mér að svo er ekki. Og þótt ég hafi gaman af fótbolta er ekki víst að maður sé alltaf tilbúinn að mæta á æfingu, tvisvar á dag fimm sinnum í viku. Það getur verið þreytandi líkamlega og andlega eins og hver önnur vinna. Sérstaklega þegar illa gengur.“ Eiður Smári vakti mikla athygli sem ungur drengur, vegna knatt- spyrnuhæfileika. Fannst honum erfitt að bregðast við þeirri athygli sem hann fékk? Var hann ef til vill villtur unglingur? Hann glottir. „Villtur? Nei, það held ég ekki. Ég held ég hafi verið ósköp venjulegur sem unglingur; gerði það sem unglingur gerir alla jafna. Ég var aldrei í neinu rugli eða slæmum félagsskap. Unglingar eru mikið íyrir að fíflast, prófa sig áfram í lífinu..." Og svo glottir hann aftur: „Ég er að minnsta kosti ekki á saka- skrá hjá lögreglunni!" Hann segir að vissu leyti gaman að vera þekktur, að fólk kannast við hann á götu. „Hin hlið málsins er svo sú að allir vilja mér ekki endi- lega vel. Ég á sem betur fer mjög auðvelt með að taka því þó einhver kalli ókvæðisorð að mér á götu; læt þau bara sem vind um eyru þjóta. En það leiðinlegasta eru kjaftasög- urnar. Einhver býr þær til og sög- urnar eru fljótar að magnast. Ein- hvern tíma átti ég að vera orðinn dópisti og fyllibytta í Hollandi. Þeg- ar mér gekk sem best með Val átti það að vera vegna þess að ég neytti stera!“ Knattspyrnumaðurinn ungi lauk grunnskólaprófi og sat í mennta- skóla í mánaðartíma áður en hann fluttist utan á ný - varð þá yngsti at- vinnumaður íslands í knattspyrnu frá upphafi, 16 ára og 56 daga gam- all. „Mér fannst alltaf hálfleiðinlegt í skóla. Ég var á tólfta ári þegar ég fluttist með mömmu frá Belgíu og dauðbrá þegar ég kom í skóla hér heima. Aginn í skólum úti er mjög mikill en agaleysið hér fannst mér rosalegt. Eins var með lærdóminn; hér var hann ekki helmingur þess sem ég var vanur úti. Foreldrar í Belgíu setja líka miklu meiri pressu á börnin; ég man

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.