Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
sama húsi. „Nei, við opnum þessa
tölvudeild einmitt vegna nábýlis
við allar hinar tölvuverslanirnar,"
segir hann ákveðinn. „I Skeifuna
koma fjölmargir í tölvuleit og
hvers vegna ættum við þá ekki að
bjóða upp á slíka þjónustu? Fólk
kynnir sér auðvitað vel þá kosti
sem eru í boði og það er einfald-
lega okkar verkefni að sýna fram
á að við bjóðum góða vöru á lágu
verði. I Síðumúlanum vora áður
fyrr margar bókaverslanir og þær
nutu sambýlisins frekar en hitt.“
Meðal fastra viðskiptavina
Griffils eru mörg fyrirtæki, en
sala til einstaklinga er þó um 60%
af heildarsölu. „Það er hins vegar
ekki hægt að fullyrða að einhverj-
ar vönir séu stærri hluti af velt-
unni en aðrar. Stundum er rekstur
með þeim hætti að 20% vörunnar
stendur undir 80% af veltu, en það
á ekki við í sama mæli um rit-
fangaverslanir. Sá sem kaupir
penna þarf líka blek.“
Griffill skiptir fyrst og fremst
við innlendar heildsölur. „Við ger-
um lítið af því að flytja vörur inn
beint frá útlöndum," segir Jóhann
Ingi. „Einstaka sinnum sér maður
eitthvað í útlöndum, sem býðst á
betri kjörum en hér á landi. Þá er
yfirleitt nóg að láta heildsöluna
hérna vita og fara fram á betri
kjör. Samkeppnin er stíf og
heildsalar vita að verslanir fylgj-
ast mjög vel með. Aðhaldið er því
mikið.“
Ritfangasala er Jóhanni Inga
líklega í blóð borin. Afi hans er
Sigurður H. Egilsson ritfanga-
heildsali og langafi hans var Egill
Guttormsson, einn fyrsti ritfanga-
heildsali landsins. Heildsala
langafans er nú í eigu Pennans.
„Jú, jú, við skiptum við þá heild-
sölu eins og aðrar," segir Jóhann
Ingi. „Við kaupum líka pappír og
límmiða af Odda, en Penninn og
Oddi eru helstu samkeppnisaðilar
okkar. Viðskiptin við þessi fyrir-
tæki hafa verið farsæl og góð,
þrátt fyrir þessa samkeppni."
Lægra verð á
skiptibókamarkaði
Jóhann Ingi hefur leitað nýrra
leiða í rekstrinum. „Ég var auðvit-
að nýskriðinn út úr skóla þegar ég
hóf störf hjá Griffli, svo ég vissi
hvað brann heitast á nemendum.
Haustið 1996 ákvað ég því að opna
skiptimarkað með skólabækur.
Hann tókst mjög vel og við endur-
tókum leikinn síðasta haust.“
I Morgunblaðinu 1. september
1996 var frétt um skiptibókamark-
að Griffils, sem hafði auglýst „áð-
ur óþekkt kjör á námsbókum" í
heilsíðuauglýsingu í blaðinu. I
auglýsingunni var birtur saman-
burður á kjörum á skiptibóka-
mörkuðum nokkurra bókaversl-
ana í Reykjavík. Þar kom fram að
Griffill greiddi 50% af verði nýrr-
ar bókar fyrir notaða bók á skipti-
bókamarkaði, en hinir markaðirn-
ir greiddu 45%. Þá seldi Griffill
sömu bók út á 60% af verði nýrr-
ar, en hinar verslanirnar á 65-70%
af verði nýrrar.
„Við lækkuðum verulega verðið
á skiptibókamarkaði, enda komum
við ágætlega út í verðkönnunum í
dagblöðum," segir Jóhann Ingi.
„Við ætluðum okkur að opna
verslunina hér í Skeifunni fyrir
skiptibókamarkaðinn síðasta
haust, en náðum ekki að ljúka
framkvæmdum. Við létum það
ekki á okkur fá, heldur settum
upp markað í ófrágengnu gímald-
inu og aðsóknin var svo góð að við
þurftum að hafa dyravörð til að
hleypa viðskiptavinum inn í
smærri hópum. Þessi skiptibóka-
markaður var fyrir framhalds-
skólanemendur og við höfðum
dúndrandi tónlist, svo það var
heilmikið fjör. I Síðumúlanum var
öllu rólegra, en þar voru seldar
skólavörur fyrir grunnskólann.
Þegar markaðnum lauk í septem-
ber réðumst við í að mála og setja
upp innréttingar og opnuðum svo
formlega 1. nóvember."
Skiptibókamarkaður á haustin
er ekki eina vertíðin hjá Griffli.
„Hérna er auðvitað mikið að gera í
JÓHANN Ingi Kristjánsson, eigandi og framkvæmdastjóri Griffils, í versluninni í Skeifunni 11D.
Morgunblaðið/Ásdís
borga við kassann og aka vörun-
um beint út í bíl, en verslunin býð-
ur líka sendingarþjónustu ef farið
er fram á slíkt. Jóhann Ingi segir
þetta gert til að halda kostnaði við
reksturinn í lágmarki, sem tryggi
um leið lágt vöruverð.
Sumir hafa annan hátt á. „Þá
þarf einn starfsmann til að taka
niður pantanir í síma, annar
starfsmaður sér um að ganga frá
sendingunni, þriðji keyrir hana til
viðskiptavinarins og sá fjórði
sendir út reikninga. Þetta þýðir
mikinn kostnað, sem skilar sér að
sjálfsögðu í vöruverði. Hjá Griffli
eru fimm stöðugildi og við vinnum
allt í sameiningu. Þess vegna get-
um við brugðist hart við. Héma
þarf ekki að ræða hvert mál á
löngum fundum, við vindum okkur
einfaldlega í að gera það sem
þarf.“
Verslun inni
í versluninni
Verslunin í Skeifunni, sem var
450 fermetrar í nóvember í fyrra,
er nú um 700 fermetrar. „Við höf-
um alltaf ætlað okkur að bjóða
upp á allt sem þarf á skrifstofuna
og því urðum við að opna tölvu-
deild,“ segir Jóhann Ingi. „Ég hef
ekki þá þekkingu á tölvum sem
þarf, svo niðurstaðan varð sú að
ganga til samstarfs við Digital á
Islandi, sem rekur núna verslun
innan Griffils. Ég er mjög ánægð-
ur með þetta samstarf. Ég ætla að
einbeita mér að því sem ég kann,
að selja skrifstofuvörur og aðra
skylda hluti, en Digital sér um að
þjónusta þá viðskiptayini sem vilja
kaupa tölvur og ýmsan tölvubún-
að. Fljótlega bætast svo við ljós-
ritunarvélar, faxtæki og aðrar
skrifstofuvélar."
Jóhann Ingi er spurður hvort
það hafi ekki verið óðs manns æði
að opna tölvuverslun á þessum
stað, því allt í kring eru aðrar
tölvuverslanir, þar af ein stór í
-----------------.
STÚDENTAFAGNAÐUR
Stúdentafagnaður Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík
verður haldinn föstudaginn 5. júní nk. á Broadway (Hótel fsland) og hefst kl. 19.00.
Nýstúdentar og allir afmælisárgangar eru hvattir til þess að fjölmenna.
Miðasala verður í anddyri Broadway
miðvikudaginn 3. og fimmtudaginn 4. júní kl. 16-19 báða dagana.
Samkvæmisklæðnaður. ___
Stjórnin. V,SA J
: ■
—
Framk væm dastjóri
með ritföng í blóðinu
msnpn/xrmmúF
ÁSUNNUDEGI
►Jóhann Ingi Kristjánsson er eigandi og framkvæmdastjóri
skólavöruverslunarinnar Griffils. Hann fæddist árið 1975 í
Reykjavík. Að loknu stúdentsprófí frá Verzlunarskóla íslands
hóf hann störf hjá ritfangaversluninni Griffli, sem þá var í
Síðumúla, en hafði áður rekið bókamarkað í Verzlunarskólan-
um á útskriftarári sínu. Jóhann Ingi eignaðist Griffil fyrir ári
og var velta verslunarinnar tvöfalt meiri á síðasta ári en árið
1996. Sambýliskona Jóhanns Inga er Inga Rósa Guðmundsdótt-
ir, nemi í lyfjafræði.
eftir Ragnhildi Sverrisdóttur
JÓHANN Ingi Kristjánsson
var ráðinn til Griffils í maí
1996 til að kanna hvort
hægt væri að koma fyrir-
tækinu á rétta braut eftir nokkur
erfið ár. Nýir eigendur höfðu þá
nýlega yfirtekið fyrirtækið og
vildu tryggja hag sinn ef þess
væri nokkur kostur. „Ég kannaði
markaðinn vel og komst að þeirri
niðurstöðu að það væri rúm fyrir
verslunina, ef rekstrinum yrði
breytt nokkuð," segir Jóhann
Ingi. „Við stofnun Griffils um 1980
voru skrifstofuvörur blað, penni
og aðrir einfaldir hlutir. Núna
þarf tölvu, prentara, faxtæki og
fleira af því tagi. Ég ákvað því að
breyta ritfangavöruversluninni
Griffli í alhliða verslun, þar sem
fólk gæti fengið allt til skrifstof-
unnar á sama stað, í stað þess að
þurfa að fara á milli margra versl-
ana.“
Eitt af fyrstu verkefnum Jó-
hanns Inga var að leita eftir hent-
ugu húsnæði. „I Síðumúlanum
voru örfá bflastæði við verslunina
og því erfitt að tryggja viðskipta-
vinum gott aðgengi að versluninni.
Ég sá að við svo búið mátti ekki
standa. A síðasta sumri bauðst
mér 450 fermetra húsnæði í Skeif-
unni 11D sem ég ákvað að taka á
leigu. Hérna er nóg pláss fyrir
verslunina og enginn bílastæða-
vandi. Kaup á skrifstofuvörum eru
oft skyndiákvörðun; starfsmenn
átta sig allt í einu á að ýmislegt
vantar og þá er gott að geta leitað
til verslunar sem er miðsvæðis og
býður upp á allt sem þarf á lágu
verði. Ég hefði ekki getað hugsað
mér betri stað fyrir verslun af
þessu tagi en Skeifuna. Viðskipta-
vinir okkar voru líka fljótir að átta
sig á því að verslunin var flutt. Þó
við færum ekki langt, úr Síðumúla
í Skeifuna, höfðu flutningarnir
mikil áhrif.“
Nýja verslunin var formlega
opnuð 1. nóvember á síðasta ári.
Hún er byggð upp eins og stór-
markaður. Viðskiptavinir taka
kerru, velja það sem þeir þurfa,
Í
i
>
i
>
i
I'
i
►
>
i
I
►
i
i
i
i
i
i
i
i
j
i
i
♦
i