Morgunblaðið - 31.05.1998, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 35
SKOÐUN
ATLAGA AÐ NORÐUR-
MJÓDD í BREIÐHOLTI
SVONEFND Norður-Mjódd er
autt svæði, sem takmarkast að
vestan af Reykjanesbraut, norðan
og austan af Stekkjarbakka og að
sunnan af Álfabakka. Samkv.
skipulagi 1962 - 1983 átti þetta
svæði að vera lítið en snoturt úti-
vistarsvæði með lágum gróðri og
göngustígum og svo bekkjum, þar
sem menn gætu setzt og hvílt sig á
góðviðrisdögum. Því miður hafa
hvorki fyrrverandi né núverandi
borgaryfirvöld enn komið því í
verk að ganga frá svæðinu eftir
upphaflegu skipulagi.
Þeir, sem sóttu um og fengu á
sínum tíma lóðir neðst í svonefndu
Stekkjarhvei-fi og austan við
Stekkjarbakka, gerðu það í þeirri
trú, að þeir fengju þannig frjálst
útsýni yfir til Kópavogs og niður í
Fossvogsdal. Slíkt myndi á þann
hátt vega nokkuð uppi á móti því
að hafa hvorki mikið víðsýni til
fjalla né sjávar, svo sem víða er í
Breiðholtinu.
Því miður hefur Borgarskipulag
fram til þessa dags ekkert gert til
þess að skipuleggja þennan reit í
samræmi við upphaflegt skipulag.
Hins vegai' hafa nokkrar atlögur
verið gerðar að honum af hálfu
þess og Skipulagsnefndar borgar-
innar allt frá 1974 og í þá veru að
nýta svæðið á allt annan hátt og
koma þar fyrir mannvirkjum af
ýmsum toga.
íbúar Breiðholtshverfis hafa að
mestu getað komið í veg fyrir þess
áform með miklum samtakamætti
og einbeitni gagnvart borgaryfir-
völdum, enda getað með óyggjandi
rökum bent á, að þetta hafí átt að
vera óbyggt útivistarsvæði, sem
hafi verið vanrækt að koma í viðun-
andi horf í samræmi við þá land-
nýtingu. í íyrstu umræðu við borg-
aryfirvöld um breytta nýtingu
Mjóddarinnar kom það fram hjá
íbúunum, að sjálfsagt væri að
halda þessum reit óbyggðum og þá
ekki sízt sem grænu svæði austan
við Reykjanesbraut, enda nyti
neðsti hluti Breiðholtsins sín þá
vel, séður frá Reykjanesbraut, og
umhverfi brautarinnar til austurs
yrði með léttara yfirbragði.
í hvert sinn, sem íbúarnir hafa
neyðzt til að mótmæla breyttum
tillögum, hefur málið leystst á
þann veg, að fallið hefur að lang-
mestu leyti verið frá þeim hug-
myndum, sem skutu upp kollinum í
höfði Borgarskipulags. Þannig hef-
ur málinu verið frestað nokkrum
sinnum.
Jafnframt fylgdu þau loforð frá
forstöðumanni Borgarskipulags,
Þorvaldi S. Þorvaldssyni, við und-
irritaðan, síðast 1992, að ekkert
yi'ði gert á oftnefndu svæði, nema
íbúamir fengju um það vitneskju
og grenndarkynning færi fram
samkvæmt reglum. En svo hefur
allt dregizt úr hömlu, því miður, og
svæðið verið óræktarmói og til
engrar prýði. Þar hafa ráðamenn
borgarinnar algerlega brugðizt
Breiðhyltingum í aldarfjórðung.
Þegar fyrsta grenndarkynning
fór fram 1974 og teikningar vora
lagðar fram um nýtingu þessa
svæðis undir byggingar, var það
látið heita svo, að þama yrði komið
fyrir lágum byggingum, sem
myndu ekki trufla útsýni úr neðstu
húsum Stekkjarhverfis. Þessar
byggingar voru hugsaðar að sögn
forráðamanna Borgai-skipulags
fyrst og fremst fyrir léttan iðnað,
þar sem m.a. heimavinnandi hús-
freyjur úr hinu nýja Breiðholts-
hverfi gætu fengið vinnu hluta úr
degi. Engum frumbyggja
Því miður hefur allan
vilja vantað hjá Borg-
arskipulagi, segir Jón
Aðalsteinn Jónsson,
sem vill að staðið verði
við það skipulag, sem
samið var í upphafi um
þennan reit.
Breiðholts leizt á þessar hugmynd-
ir þrátt fyrir hlýjar hugsanir í garð
húsfreyjanna. Þeir bentu réttilega
á, að væntanlegar byggingar
myndu að sjálfsögðu spilla mjög
því útsýni og frjálsræði, sem lofað
hafði verið á þessu svæði, og mót-
mæltu þessum áætlunum svo
kröftuglega, að þær hafa ekki kom-
ið fram síðan í þeirri mynd. Hins
vegar var það þá látið óátalið af
flestum, að Olís hf., sem hafði um
þetta leyti fengið eitthvert vilyrði,
að okkur skildist, til að flytja
bensínstöð sína, sem stóð upphaf-
lega sunnan Alfabakka, yfir götuna
og verða syðst í Norður-Mjódd,
þar sem hún er nú. Var það vegna
þess, að stöðin varð að víkja, þar
sem hugmyndir munu þá hafa ver-
ið komnar fram um að reisa á
þessu svæði m. a. hverfisstöð fyrir
Strætisvagna Reykjavíkur. Jafn-
framt var skýrt tekið fram, vissu-
lega munnlega, að þaraa yrði ein-
ungis bensínstöð með þvottaplani,
en engar aðrar byggingar. Vel má
vera í Ijósi þess, sem síðar hefur
komið fram, að þessi tilslökun af
hálfu okkar, íbúanna, hafi verið
misráðin. En hún var gerði í
trausti þess, að borgaryfirvöld
stæðu þá ekki síður við gefm fyrir-
heit um hönnun þessa svæðis til
útivistar.
Þegar þetta gerðist, fylgdi
einmitt loforð frá forráðamönnum
Olís hf., að því er íbúunum var tjáð,
að umhverfi stöðvarinnar yrði
fegrað á allan hátt og m.a. með
trjágróðri, svo að stöðin og það,
sem þar færi fram, yrði ekki eins
áberandi úr húsum þeim, sem næst
stóðu, enda engum til yndisauka.
Því miður hafa engar efndir orðið
af hálfu Olís hf. fram á þennan dag,
svo sem allir geta séð, sem fara
þarna um.
Rétt er að taka fram, að lítill
hluti þessa svæðis var um þessar
mundir tekinn undir skólagarða.
Að sjálfsögðu fann enginn íbúa
Breiðholts nokkuð athugavert við
það, að svæðið yrði þannig nýtt í
þágu skólabarna, þar til Borgar-
skipulag sæi sóma sinn í því að
ganga frá öllu svæðinu í samræmi
við upphaflegt skipulag og standa
við þau loforð, sem þeir, sem reistu
hús sín í næsta nágrenni, höfðu
eðlilega treyst á. Borgin hafði að
sjálfsögðu gengið fast eftir því, að
frumbyggjamir stæðu við allt það,
sem á þá var lagt í sambandi við
húsbyggingar sínar, svo sem
gatnagerðargjöld o.fl. Veit ég ekki
annað en það hafi allt gengið eftir.
Svo gerðist það 1984, að skjól-
stæðingar þáverandi oddvita borg-
arinnar fengu óvænt leyfi fyrir að
reisa greiðasölu nyrzt í Mjóddinni,
og þá þurfti hvorki að spyrja kóng
né prest né láta grenndarkynningu
fara fram. Nýlega hefur svo það
komið fram, sem falið var vandlega
fyrir íbúum hverfisins, að þeir, sem
reistu Staldrið svonefnda, fengu
lóðarsamning til 50 ára eða til árs-
ins 2034.
Árin 1988 og 1992 voru síðan
gerðar tvær atlögur að
Norður-Mjóddinni og
báðar í tengslum við
Olís hf. Vildu forráða-
menn þess félags fá
nokkra stækkun á at-
hafnasvæði sínu og
koma þar upp smur-
stöð og eins aðstöðu til
dekkjaviðgerða. Með
harðfylgi íbúanna og
gildum rökum tókst
enn að koma í veg fyrir
þessar ráðagerðir.
Jafnframt var minnt á
áðurgefin loforð um
trjágróður og aðra
fegrun í kringum
bensínstöðina, sem
láðst hafði að efna. Loks gerist það
snemma á þessu ári, að Borgar-
skipulag og að sjálfsögðu borgaryf-
irvöld ætluðu, þrátt fyrir oft gefin
fyrirheit um það, að ekkert yrði
gert við það, sem eftir væri af
Norður-Mjódd, nema grenndar-
kynning færi fram og íbúarnir látn-
ir vita, hvað til stæði, að afhenda
einum aðila mestallt það svæði,
sem eftir var af Norður-Mjóddinni
og það án nokkurrar grenndar-
kynningar með Breiðhyltingum
eða a.m.k. með þeim, sem búa í
Stekkjarhverfi.
Fyrir hreina tilviljun barst okk-
ur til eyma, hvað til stæði. Kom þá
I ljós, að hin nýja atlaga að Norður-
Mjódd hófst með umsókn frá Gróð-
urvörum sf., Verslun Sölufélags
garðyrkjumanna í Kópavogi, í
nóvember 1995. Með því bréfi var
sótt um 1 '/> ha lóð fyrir gróðrar-
stöð og verzlun. Og viti menn. Þá
var strax rokið upp til handa og
fóta til „að vinna tillögu að breyttri
landnotkun á reit norðan bensín-
stöðvar í N-Mjódd“, eins og það er
orðað í bréfi frá Borgarskipulagi til
umsækjandans 9. janúar 1996. Er
annað tæplega hugsanlegt en hér
hafi einhverjir áhrifamenn innan
borgarkerfisins staðið að baki og
veitt umsækjanda vilyrði fyrir
lóðaúthlutun, úr því að svo skjótt
var brugðizt við að skipuleggja
svæðið og einmitt með hliðsjón af
óskum hans. Lóðarumsækjandi
endurnýjar síðan umsókn sína frá
árinu 1995 með bréfi 20. ágúst 1997
til Borgarráðs og sækir nú „um allt
að 1,5 ha lands fyrir starfsemina og
allt að 1,5 ha lands til ræktunar-
legi'a umsjóna eftir nánara sam-
komulagi við borgarskipulag", eins
og það er orðað í bréfinu. Hér er
þá um 3 ha að ræða af margnefndri
Norður-Mjódd eða allt svæðið, sem
eftii' var og borgaryfirvöld höfðu
enn umráðarétt yfir, en látið vera
umhirðulaust allan tímann, þegar
skólagai-ðurinn er undanskilinn.
Vafalaust hefur borgarstjórinn í
Reykjavík fengið afrit af þessu
nýja bréfi umsækjandans, því að
erindið er sent áfram frá skrifstofu
hans til Skipulags- og umferðar-
nefndar 27. s.m.
Þannig stóðu þá málin, þegar
þau bárust okkur til eyrna, sem bú-
um í næsta nágrenni við Norður-
Mjódd.
Sagan er samt ekki búinn enn.
Nú hugsaði eigandi Stekks ehf.,
sem rekur Staldrið, sér til hreyf-
ings í kjölfar þess, sem á undan var
gengið. Með bréfi 15. desember
1997 sækir hann „um stækkun lóð-
ar undir byggingu húsnæðis fyrir
verslun og veitingarekstur“. Jafn-
framt er vísað í „meðfylgjandi
gögn“. Það má hverjum vera ljóst,
að þeir, sem búa í nágrenni við
Staldrið, verða lítt hressir, ef til
Jón Aðalsteinn
Jónsson
þess skyldi koma, að
þarna risi upp veit-
ingastaður með þeim
glaumi og margs konar
umferð, sem
óhjákvæmilega fylgja
slíkum stöðum. Það
þarf líka vart að gera
því skóna, að þama
kæmi svo upp bjórkrá,
áður en langt um liði.
Af framansögðu er
einsætt, að sú ró og sá
friður, sem við höfum
búið við í Stekkjar-
hverfinu, sum í nær
þrjá áratugi, verður
rofinn með öllum þeim
rekstri, sem sótt er um
í Norður-Mjódd. Honum fylgir
óhjákvæmilega slík umferð til
viðbótar við þá auknu umferð, sem
Umferðamefnd hefur á liðnum ár-
um beint í æ ríkara mæli inn á
Stekkjarbakkann, að lítt verður við
unað. Ekki er ég viss um, að for-
stöðumaður Borgarskipulags
myndi una slíku í sínu nágrenni.
En hvað varðar Borgarskipulag
um aðra íbúa, þegar einkahags-
munir eru annars vegar.
Sá, sem þetta ritar, hafði strax
samband við Þorvald S. Þorvalds-
son, forstöðumann Borgarskipu-
lags, þegar fréttir af framansögðu
höfðu borizt til okkar. Minnti ég
hann að sjálfsögðu á fyrirheit hans
við mig árið 1992 , þ.e., að ekkert
yrði gert á margnefndu svæði,
nema við fengjum um það vitneskju.
Nú vai' ljóst, að hann hafði gleymt
því, sem okkur hafði farið á milli,
því að ég vil tæplega trúa því, að
hann hafi viljandi gengið á bak orða
sinna eða allan tímann verið að leika
tveim skjöldum í skiptum sínum við
mig og aðra Breiðhyltinga.
Eg vil svo að endingu, að það
komi skýrt fram, að þau mótmæli,
sem höfð hafa verið uppi af hálfu
okkar Breiðhyltinga, beinast að
sjálfsögðu einungis að Borgar-
skipulagi og borgaryfirvöldum og
þeirri lítilsvirðingu, sem þau hafa
sýnt okkur með framferði sínu
allt frá árdögum Breiðholtshverf-
isins.
Umsækjandi þessara þriggja
hektara af Norður-Mjódd, Gísli H.
Sigurðsson, f.h. Gróðurvara sf.,
hefur komið að máli við mig. I því
samtali sagði hann, að honum hafi
með öllu verið ókunnugt um fyrri
deilur okkar Breiðhyltinga við
borgaryfirvöld, þegar ég greindi
honum frá þeim. Hann sagðist ein-
ungis sjá þarna kjörið svæði fyrir
starfsemi fyrirtækis síns. Jafn-
framt vil ég ekki að óreyndu -
þrátt fyrir brigðmælgi og slæma
reynslu af öðrum - draga í efa vilja
hans til að framkvæma það, sem
hann segir í umsókn sinni frá 1995.
„Framtíðarplanið er að reisa „gar-
den center" að erlendri fyrirmynd,
þar sem blandast lágar og
skemmtilegar byggingar og opið
útivistarsvæði með gróðri og
göngustígum og uppsettum hug-
myndum að heimilisgörðum og þar
sem fólk getur notið útiveru á
góðviðrisdögum.“
Framangreint orðalag minnir að
sumu leyti á upphaflegan tilgang
skipulagsins frá því fyrir 30 árum.
Hér er auðvitað samt sá reginmun-
ur á, að úthluti borgaryfirvöld téðu
svæði til einkaaðila, er hætt við, að
áhrif þeirra verði ekki mikil á þær
framkvæmdir, sem þama eru fyr-
irhugaðar eða síðar kæmu til,
nema þá um auknar byggingar-
framkvæmdir, sem engan veginn
er loku fyrir skotið, að forráða-
menn þessa svæðis í framtíðinni
láti sér detta í hug. Við eram hins
vegar sannfærð um það, sem búum
þaraa næst vettvangi, að bygging-
ar þær, sem áformað er að reisa,
hljóta að skerða til muna það
útsýni, sem enn blasir við okkur og
við höfum haft óskert um 30 ára
skeið. Hefur þó verið látið í það
skína, að svo verði ekki.
Þá er ég viss um, að það unga
fólk, sem hefur að undanfómu ver-
ið að setjast að í húsum í neðstu
röð Stekkjarhverfisins og á von-
andi eftir að búa þar langt fram á
næstu öld, hefur treyst því, að
borgaryfirvöld stæðu innan ekki
langs tíma við það skipulag, sem
samið var í upphafi um þennan
reit, en hann má vissulega gera
mjög fallegan. En því miður hefur
allan vilja vantað hjá Borgarskipu-
lagi og þeim, sem áttu að sjá um
hönnun hans. Það er a. m. k. nú að
koma skýrt í ljós.
Höfundur er orðabókarritstjóri.
mm:M
Jóga gegn kviða
með Asmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða eða fielni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar
verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið
firelsi og lífigleði. Engin reynsla eða þekking á
jóga nauðsynleg.
Hefist 9. júní. Þri. ogjrrn. kl. 20.00.
Heildarjóga (grunnndmskeið)
með Lárusi Guðmundssyni
Fyrir fiólk á öllum aldri sem vill kynnast jóga og lœra
leiðir til slökunar.
Hathajógastöður, öndun og slökun, hugleiðsla, jóga-
heimspeki, mataræði o.fl.
Hefit 10. júní. Mán. og mið kl. 20.00.
■
■
■
Ásmundur
Ldrus
Erum flutt í Kópavog
Opnunartilboð - 3ja mánaða kort á kr. 9.900 í jógatíma og tækjasal.
Gildir til 15. júní.
Y0GA&
STU D 10
Auðbrekku 14, 200 Kópavogi,
sími 544 5560