Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 4
4 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 31/5 - 6/6
Kröftugur jarðskjálfti
á Suðurlandi
►ODDVITASKIPTI urðu í
borgarstjórnarflokki sjálf-
stæðismanna í vikunni. Að
loknum fundi í Valhöll síð-
degis á föstudag vék Árni
Sigfússon úr sæti sem odd-
viti. í stað hans kom Inga
Jóna Þórðardóttir en hún
skipaði þriðja sæti á fram-
boðslistanum í sfðustu
borgarsfjórnar-
kosningum.
► Vöruskiptajöfnuður
var 16,6 milljörðum króna
lakari það sem af er árinu
miðað við í fyrra. Þessa
mánuði voru fluttar út vör-
ur fyrir 40 milljarða króna,
en inn fyrir 52,3 milljarða
fob. Því var halli á vöru-
skiptum við útlönd sem
nam 12,3 milljörðum króna.
Á sama tfma í fyrra voru
vöruskipti hagstæð um
4,3 milljarða þannig að
alls nam breytingin milli
ára 16,6 milljörðum
króna.
► Undirbúningsfundur
nýrra stjórnmálasamtaka
var nú í vikunni. í forsvari
samtakanna er Sverrir
Hermannsson en auk hans
eru aðrir áhugamenn um
stofnun nýrra stjórnmála-
samtaka. Meginmarkmið
þessara samtaka verður að
afnema núverandi kvóta-
kerfi.
► Þingsályktunartillögu
stjórnarandstæðinga um að
skipuð yrði sérstök rann-
sóknarnefnd um málefni
Landsbanka íslands var
hafnað af stjórnarsinnum.
Sögðu stjórnarliðar m.a. að
einstök rannsóknarefni í
tillögu stjómarandstæð-
inga væm þegar til með-
ferðar hjá þar til bærum
aðilum.
STERKUR jarðskjálfti reið yfir Suður-
land kl. 21.37 á fimmtudagskvöldið.
Skjálftinn átti upptök sín í Litlu
Skarðsmýrai’fjalli, og var hann metinn
á 5,3 stig á Richters-kvarða. Lék allt á
reiðiskjálfi í Hveragerði en skemmdir
urðu þó óvenilegar fyrir utan tjón í
gróðurhúsum og á innanstokksmunum
sem duttu úr hillum. í kjölfar skálftans
fylgdi annar minni um klukkan 23 og
mældist hann 4,5 á Richter. í framhaldi
af stóra skjálftanum fóru Almannavarn-
ir í viðbragsstöðu en henni var aflétt á
föstudag þar sem eðlilega dró úr virkni
skjálftanna. Skjálftarnir fundust víða
um Suðurland, Reykjanes, Vestmanna-
eyjar og undir Vestur-Eyjafjöllum.
ÍE fær athugasemd
TÖLVUNEFND gerði mjög alvarlegar
athugasemdir við erfðarannsóknh- sem
unnar eru á vegum íslenskrar erfða-
greiningar og samstarfslækna þess. í
bréfi sem nefndin ritaði og sendi ÍE og
samstarfslæknum þess, þá segir að full-
trúar nefndarinnar hafi farið í eftirlits-
ferð í aðsetur ÍE 27. maí og komið hafi i
ljós alvarlegir misbrestir á að læknam-
ir og ÍE fari eftir skilmálum þeim sem
nefndin setti til að tryggja persónu-
vemd þess fólks sem tekur þátt í um-
ræddum rannsóknum. Forsvarsmenn
ÍE mótmæltu bréfi Tölvunefndar og
skrifuðu sjö læknar, sem átt hafa sam-
starf við fyrirtældð, út harðorða yfirlýs-
ingu í mótmælaskyni við vinnubrögð
nefndarinnar. ÍE var veittur frestur til
20. júní til að gera úrbætur en fram að
þeim tíma skuli öll vinnsla óheimil. Fyr-
irtækið lagði fram tillögu að vinnutil-
högun í vikunni.
Aukning í bflasölu
SALA á nýjum fólksbílum jókst um
tæp 40% í maí síðastliðnum miðað við
sama mánuð í fyrra. Alls seldust 1.449
fólksbílar en 1.036 bílar í maí 1997
sem er 39,8% aukning.
Lestarslys í
Þýzkalandi
HRAÐLEST á leið frá Miinchen til
Hamborgar með yfir 400 farþega inn-
anborðs fór um kl. 11 að staðartíma á
miðvikudag út af sporinu og skall á
um 200 km hraða á vegbrú sem lá yf-
ir teinana, í smábænum Eschede um
30 km norðan við Hannover. í gær
höfðu björgunarmenn fundið 102 lík í
braki lestarinnar, en um 300 manns
slösuðust, margir alvarlega. I fyrstu
var talið að áður en lestin lenti á
brúnni hefði hún rekizt á bíl sem
hefði fallið á teinana út af annarri
vegbrú. Frá þessari kenningu var
fljótt horfið og telja rannsakendur
slyssins nú líklegast að brotið hjól á
fremsta farþegavagninum hafi valdið
því að lestin fór út af teinunum með
fyrrgreindum afleiðingum. Þetta er
alvarlegasta lestarslysið í sögu
Þýzkalands frá því 1945, en í júní það
ár, rétt eftir stríðslok, fórust 102 þeg-
ar bandarísk herflutningalest skall á
lest með þýzkum stríðsföngum.
Þetta er í fyrsta sinn sem nýjasta
gerð þýzkra hraðlesta, Inter-City
Express (ICE), lendir í alvarlegu
slysi, en þær hafa verið í umferð frá
1991. Þær aka eftir teinum sem eru
sérlagðir fyrir þær og ná allt að 280
km hraða á áætlunarleiðum.
Hörmungar í
Afganistan
LAUGARDAG fyrir hvítasunnu riðu
geysiharðir jarðskjálftar yfir fjalla-
héruð í norðurhluta Afganistans og
lögðu mörg þorp í rúst. Sá harðasti
var 7,1 á Richterskvarða. Talið er að
allt að 4.000 manns hafi látið lífið,
álíka margir og fórust í skjálftum
sem urðu á sömu slóðum í febrúar.
Um 1.500 slösuðust. Erfiðlega geng-
ur að flytja hjálpargögn til nauð-
staddra á svæðinu vegna skorts á
þyrlum.
►ÞRJÁTÍU óbreyttir borg-
arar að minnsta kosti féllu
og rúmlega hundrað særðust
þegar eritrískar herþotur
gerðu sprengjuárús á borg-
ina Mekele í Eþíópíu öðru
sinni á fóstudag, að því er
sjónarvottar greindu frá.
Eþíópíu- og Erítreumenn
deila um 400 ferkílómetra
grýtt landsvæði sem báðir
gera tilkall til. Erítrea var
lýst sjálfstæð frá Eþíópíu í
kjölfar þjóðaratkvæða-
greiðslu 1993, og hafði
landamæradeilan milli rfkj-
anna verið friðsamleg um
árabil þar til að skarst í odda
6. maí sl., en síðan þá hafa
þessi tvö fátækustu ríki Af-
ríku staðið í hernaðarátök-
um.
►PASCAL Milo, utanríkis-
ráðherra Albaniu, varaði við
því í vikunni að Kosovo-hér-
að í Serbíu væri „á barmi
allsherjarstrfðs" og skoraði á
þjóðir heims að grípa strax
til aðgerða til að binda enda
á „þjóðernishreinsanir“
Serba í héraðinu. Um 20.000
Kosovo-AIbanar hafa nú flú-
ið héraðið.
►VERKFALL flugmanna hjá
franska flugfélaginu Air
France hófst á mánudag.
Samningaviðræðum um
lausn á vinnudeilunni var
frestað á föstudagskvöld, en
auk flugmanna standa
franskir lestarstjórar nú í
verkfallsaðgerðum, skipu-
leggjendum heimsmeistara-
keppninnar í knattspymu til
hrellingar. Hún á að hefjast
10. júní.
►BREZK stjómvöld til-
kynntu á föstudag, að kjarn-
orkuendurvinnslustöðinni f
Dounreay á Skotlandi verði
lokað. Fögnuðu fslenzk
stjórnvöld ákvörðuninni.
FRÉTTIR
Bréf Tölvunefndar til íslenskrar erfðagreiningar
Aðför að starfsheiðri
hjúkrunarfræðinga
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR sem
starfa hjá Islenskri erfðagreiningu í
Þjónustumiðstöð rannsóknaverk-
efna mótmæla harðlega vinnu-
brögðum Tölvunefndar gagnvart
þeirri starfsemi sem þar fer fram. í
bréfi Tölvunefndar til íslenskrar
erfðagreiningar og samstarfslækna
sem birst hefur í fjölmiðlum komi
fram ávirðingar sem ekki sé hægt
að sitja undir án andmæla.
í yfirlýsingu hjúkrunarfræðing-
anna segir að allt starfsfólk Þjón-
ustumiðstöðvarinnar hafi farið á
námskeið og kynnt sér ítarlega
vinnuferli, vinnubrögð og öryggis-
mál varðandi meðferð persónuupp-
lýsinga og annarra rannsókna-
gagna. Með bréfi sínu dragi Tölvu-
nefnd í efa hæfni hjúkmnarfræð-
inga til að starfa samkvæmt hjúkr-
unarlögum og siðareglum hjúkrun-
arfræðinga.
„Við viljum benda á að rétt til að
stunda hjúkrun og kalla sig hjúkr-
unarfræðinga hafa þeir einir sem
hafa til þess leyfi frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. Samkvæmt
hjúkrunarlögum er okkur skylt að
gæta fyllstu þagmælsku um öll
einkamál sem við fáum vitneskju
um í starfi, nema lög bjóði annað, og
helst þagnarskyldan þó látið sé af
starfi.
í siðareglum hjúkrunarfræðinga
kemur einnig skýrt fram að hjúkr-
unarfræðingur stendur vörð um
rétt skjólstæðings til einkalífs með
því að gæta trúnaðar og fag-
mennsku. Frumskylda hans er að
virða velferð og mannhelgi skjól-
stæðings.
Allir hjúkrunarfræðingar sem
starfa hjá Islenskri erfðagreiningu í
Þjónustumiðstöð rannsóknaverk-
efna hafa áralanga reynslu af störf-
um innan heilbrigðiskerfisins og
kunna manna best að fara með per-
sónulegar upplýsingar. Til að vinna
samkvæmt lögum og virða siðaregl-
ur hjúkrunarfræðinga þurfum við
ekki tilsjónarmann Tölvunefndar.
Benda má á að í Þjónustumiðstöð
rannsóknaverkefna eru engar
sjúkraskýrslur, unnið er með nöfn,
kennitölur og sjúkdómsgreiningar
einstaklinga sem samstarfslæknar
hafa lagt til að taki þátt í viðkom-
andi rannsóknum og þess er gætt
að um algeran aðskilnað milli per-
sónuauðkenna og blóðsýna sé að
ræða. Þeir sem vinna með persónu-
legar upplýsingar sjá aldrei niður-
stöður blóðsýna einstaklinga og þeir
sem vinna á rannsóknastofum sjá
aldrei nein persónuauðkenni. Þetta
ferli ásamt lögum og reglum sem
hjúkrunarfræðingar vinna eftir,
tryggir þá nafnleynd sem Tölvu-
nefnd gerir kröfur um og nafn
launagreiðanda hefur engin áhrif á
það.
Með hliðsjón af ofangreindu og
þeirri staðreynd að unnið var sam-
kvæmt vinnuferli þvi sem Tölvu-
nefnd hafði lagt til eru viðbrögð
fulltrúa Tölvunefndar með öllu
óskiljanleg,“ segir í yfirlýsingu
hjúkrunarfræðinganna.
Undir hana rita: Berglind Frey-
móðsdóttir, Guðfinna Sif Svein-
björnsdóttir, Guðrún Jóna Guð-
laugsdóttir, Guðrún Ingadóttir,
Halldóra Gröndal, Ingibjörg Þór-
hallsdóttir og Siv Oscarsson.
Árbítur í Stýri-
mannaskólanum
í TILEFNI af 60 ára afmæli sjó-
mannadagsins ákváðu Björgvin
Þór Jóhannsson, skólameistari
Vélskóla Islands, og Guðjón Ár-
mann Eyjólfsson, skólameistari
Stýrimannaskólans í Reykjavík,
að bjóða fulltrúaráði sjómanna-
dagsins í Reykjavík og Hafnar-
firði og stjórn Hollvinasamtaka
Sjómannaskólans í morgunkaffi í
gærmorgun til að kynna skólana.
Áður en sest var að morgunverði
ávarpaði Hannes Hafstein, fyrr-
verandi formaður Slysavarnafé-
lags íslands, hópinn fyrir framan
Stýrimannaskólann þar sem nú
stendur yfir sýning hátt á annað
hundrað báts- og skipslíkana.
Tónleik ar
KRISTINS SI
ópe
CLSCLYYlt
JÓNASl
þriðjudaginn
9. júní
kl. 20.30
ÞJOÐLEIKHUSINU
Miáasala í Þjóáleikkúsinu
Algengt að
fyrirtæki
greiði eftirlit
KOMIÐ hafa fram spurningar um
réttmæti þess að laun eftirlitsaðila
hjá ÍE, sem Tölvunefnd skipar, séu
greidd af fyrirtækinu sjálfu. Bent
hefur verið á að þessi tengsl kunni
að hafa áhrif á störf eftirlitsaðilanna
og rýra gildi þeirra. Olafur W. Stef-
ánsson skrifstofustjóri dómsmála-
ráðuneytisins, sem Tölvunefnd
heyrir undir, segir það á ábyrgð
Tölvunefndar hvernig launagreiðsl-
um skuli háttað.
„Menn eru að agnúast vegna þess
að laun séu greidd af fyrirtækjunum
sjálfum en þessi þóknun er að jafn-
aði ákvörðuð af þeim sem skipa eft-
irlitsaðilana," sagði Ólafur. „Þetta er
hins vegar víða í þjóðfélaginu og má
nefna sem dæmi eftirlit með happ-
drættum sem algjörlega er greitt af
þeim sjálfum. Fleiri dæmi mætti
nefna en í tilfelli ÍE er það Tölvu-
nefndar að ákveða hvaða skilmála
hún setur. Ég tel þó að nefndin
hljóti að tryggja að slíkir menn séu
óháðir. Þetta fyrirkomulag mun þó
hafa verið rætt innan nefndarinnar
og kann því að taka breytingum."
--------------------
Tekinn á
142 km hraða
LÖGREGLAN á Húsavík stöðvaði
ökumann í Ljósavatnsskarði á fóstu-
dag og mældist hann á 142 km
hraða. Var ökumaðurinn sviptur
ökuleyfi á staðnum. Lögregla boðar
nú hertar aðgerðir gegn hraðakstri
um allt land. í fyrradag svipti lög-
reglan á ísafirði mann ökuleyfi til
bráðabirgða en hann vai- staðinn að
því að aka á 70 km hraða í bænum,
þar sem hámarkshraði er 35 km á
klukkustund.
------•-♦“•----
Bílvelta við
Grundarfjörð
BÍLL valt við Grundará við Grund-
arfjörð um fjögurleytið aðfaranótt
laugardags.
Fjórir voru í bílnum og voru tveir
þeirra fluttir á sjúkrahús í Stykkis-
hólmi til skoðunar. Meiðsl þeirra
reyndust minniháttar og fóru þeir
heim að skoðun lokinni en bíllinn er
töluvert skemmdur, að sögn lögreglu
í Stykkishólmi.