Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tilraunasprengingar Indverja og Pakistana haía vakið ótta um að stórfelld kjarnorkuvígvæðing sé yílrvofandi í S-Asíu. Ásgeir Sverrisson segir frá áætlunum ríkjanna tveggja og þeirri herfræði sem að baki býr. Klifrað upp kj amorku E Reuters UNGMENNI í Islambad fagna þeirri yfirlýsingu ráðamanna að Pakist- an sé orðið „islamskt kjarnorkuveldi". Forgangsröðunin er skýr:um fjórðungur þjóðartekna í Pakistan rennur til vígbúnaðarmála, um 62% landsmanna eru ólæs og meðalaldurinn er rúmlega 59 ár. I Indlandi teljast 48% landsmanna ólæs og þar er meðalaldurinn um 62 ár. ’ jamavopnatilraunir Ind- verja og Pakistana hafa raskað ríkjandi valda- jafnvægi á heimsvísu og »verða til þess að auka enn á þá óvissu sem einkennt hefur þróun alþjóðamála frá því að kalda stríðinu lauk. Margir óttast að af- vopnunarþróun síðustu ára sé á enda runnin og að fleiri ríkisstjómir taki að nota kjamorkuvígvæðingu til að blása í glæður trúarofstækis og þjóð- rembu í þeirri von að þannig gefist kostur á að fá alþýðu manna til að gleyma efnahagsþrengingum og hraklegum lífskjörum. Utanríkisráð- herrar kjarnorkuveldanna fimm, Bandaríkjanna, Rússlands, Kína , Frakklands og Bretlands, komu saman til fundai' í Sviss á fimmtu- daginn til að ræða hvernig unnt væri að þrýsta á Pakistana og Indverja um að hverfa af þessari braut en stjórnvöld í ríkjunum tveimur hafa sýnt að þau era öldungis tilbúin til að hundsa fordæmingar á alþjóða- vettvangi og hótanir um refsiað- gerðir. Ljóst má heita að tímabil mikillar óvissu er að renna upp í Suður-Asíu. Fjórar ef ekki fímm símhringing- ar frá Bill Clinton Bandaríkjafor- seta dugðu ekki til þess að fá Pakistana til að hætta við kjam- orkuvopnatilraunir sínar sem voru svar við sprengingum Indverja. Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, taldi sig sýnilega þurfa að láta undan kröfum um að landsmenn reyndust ekki eftirbátar Indverja í þessu efni enda almennt litið svo á að bæði öryggi þjóðarinnar og stolt væri í húfi. Pakistanar hættu íýrst þegar jafntefli, 6-6, hafði verið tryggt á kjarnorkusviðinu en Ind- verjar höfðu náð einnar tilraunar forskoti er þeir sprengdu fyrst kjarnorkusprengju neðanjarðar árið 1974. Pakistanar og Indverjar hafa raunar lengi verið taldir í hópi svo- nefndra „óyfirlýstra kjarnorku- velda“ þ.e. löngum hefur verið vitað að ríkin búi yfir þeirri þekkingu sem nauðsynleg er til að beisla kjaraork- una í hernaðarskyni. Með sprenging- unum nú hefur „kjarnorkuklúbbur- inn“ því stækl^að ‘og telur, sjö ríki, átta ef Israel er talið méð eh stjórn- völd þar hafa aldréi viljað lýsá form* lega yfir því sem talið er fullvíst þ.e. að heraflinn ráði yfir kjamorkuvopn- um. Nú er spurt með hvaða hætti kjarnorkutilraunirnar muni hafa áhrif á metinginn milli Indverja og Pakistana en þessi ríki hafa þrívegis lent í vopnuðum átökum frá því þau hlutu sjálfstæði frá Bretum árið 1947. Árið 1990 munaði minnstu að ríkin berðust á ný, þá sem oftast áð- ur um yfirráð yfir Kashmir, víðlendu héraði í Himalayafjöllum, sem skipt var á milli þeirra er breska heims- veldið leið undir lok. Þar hafa landamærasveitir ríkjanna átt í stigann skæi’um sem þróast hafa út í viðvar- andi átök þótt á lágu spennustigi séu. Hefðbundin vopn og gereyðingarhótun Yfirlýsingar Pakistana gefa til kynna að þeir telji nauðsynlegt að ráða yfir kjarnorkuvopnum til að geta brugðist við yfirburðum Ind- verja á sviði hefðbundins herafla. Indverjar hafa jafnan farið með sig- ur af hólmi í átökum ríkjanna en matið á þeim yfirburðum myndi breytast ef fyrir lægi að andstæðing- ui'inn réði yfir gereyðingarvopnum. Kenning Pakistana virðist því vera sú að Indverjar muni hugsa sig tvis- ar um áður en haldið verði út í stríð með hefðbundnum vopnum. Svipuð herfræði einkenndi viðbúnað ríkja Atlantshafsbandalagsins í Vestur- Evrópu á tímum kalda stríðsins en þá voru kjarnavopnin hugsuð til að fæla Sovétríkin frá stórfelldri innrás til vesturs í ki'afti yfirburða á sviði hefðbundinna vopna. Indverjar hafa nú um 1,2 milljónir manna undir vopnum, tvöfalt fleiri menn en Pakistanar. Sambærilegra yfirburða njóta þeir hvað flugvélai' varðar. Að auki háttar þannig til í Pakistan að helstu þéttbýliskjarna og þar með um leið þungmamiðjuna í efnahagslífinu er að fínna skammt frá landamærunum og ættu því Ind- verjar heldur greiðan aðgang að þeim ef blásið yrði til hefðbundinnar árásar. Þá eru Indverjar rúmlega sjö sinnum fleiri, um 140 milljónir manna búa í Pakistan. Hvað Indverja varðar er heríræð- in augljóslega sú að nauðsynlegt sé að ráða yfir kjarnorkuvopnum til að koma í veg fyrir að óvinir sem ráða einnig yfir þeim áræði að beita slík- um drápstólum. Á þann veg gætu Indverjar nýtt sér yfirburði sína á sviði hefðbundinna vopna og unnið sigur í „venjulegu" stríði. Áherslafi þróun eldflauga Þetta eilffí grundvallaratriðum þær hei’fræðikenningar sem að baki tilraunasprengingunum búa. En eitt er það stig tækniþekkingar að geta hleypt af stað kjarnorkusprengingu neðanjarðar og annað er það að geta útbúið eldflaugar með kjarnahleðsl- um, stýrikerfum og nákvæmum mið- unarbúnaði. Þróun og smíði kjarna- vopna fer yfirleitt fram í skýrum áfongum. Eftir að nauðsynlegum grunnrannsóknum er lokið er hafist handa við hönnun en að henni lokinni taka tilraunir við. Lokastigið er síð- an hönnun vopnanna, sem geta verið fallsprengjur eða kjarnaoddar sem eldflaugar bera. Pakistanar hafa þegar lýst yfir því að þeir séu teknir til við að koma kjarnahleðslum fyrir í eldflaugum sínum. Helsti höfundur kjarnorkuá- ætlunar þeirra, Abdul Qadeer Khan, sem nú er þjóðhetja í heimalandi sínu, sagði um liðna helgi að unnt væri að koma slíkum oddum fyrir á eldflaugum innan fárra daga. AI- mennt Iíta vígbúnaðarsérfræðingar svo á að þetta fái ekki staðist en á hinn bóginn hefur bandaríska leyni- þjónustan löngum talið að Pakistan- ar standi Indverjum framar að þessu leyti. Þannig hafa flestfr talið að Ind- verjar myndu þurfa að beita flugvél- um ákvæðu þeir að gera kjarna- vopnaárás á nági'anna sína í Pakist- an. Líklegt er að hið sama eigi einnig við um síðarnefnda ríkið. Slíkt er talið heldur óhentugt þar eð unnt er að granda flugvélum áður en þær hafa náð til skotmarksins. Eldflaug- ar hafa því löngum verið taldai- mun áreiðanlegri burðarkerfi fyi’ir ger- eyðingarvopn. Paul Beaver, þekktur vígbúnaðar- sérfræðingur sem starfar fyrir her- fræðitímaritið Jane's Defense Weekly, kveðst telja að Indverjar og Pakistanar eigi hvorir um sig á bil- inu 12 til 18 kjamasþrengjur. Er þá miðað við að hver sprengja sé um 20 kílótonn en sprengjan sem Banda- ríkjamenn vörpuðu á Hiroshima árið 1945 leysti úr læðingi ámóta eyðing- arafl. Beaver segist ennfremur telja líklegt að báðar þjóðimar verði bún- ar að koma sér upp „þokkalega skil- virkum burðarkerfum" á næstu tveimur árum eða svo. Báðar þjóðirnar hafa lokið við hönnun á prýðilega öflugum eld- flaugum, sem ætla má að þung áhersla verði nú lögð á að þróa þannig að þær geti borið kjarna- hleðslur. Indversk Prithvi-eldflaug gæti fræðilega hæft Islambad, höf- uðborg Pakistan, aðeins þremur mínútum eftir að henni hefði verið skotið á loft frá Norður-Indlandi. Ghauri-eldflaug Pakistana, sem ut- anríkisráðherra landsins hefur sagt að hönnuð sé til að bera kjarna- hleðslu, myndi hæfa Nýju-Delhi að- eins fjórum mínútum eftir skot frá landamæraborginni Lahore. í Nýju- Delhí búa um 10 milljónir manna þannig að um réttnefnda gjöreyð- ingu yrði að ræða yrði borgin fyrfr kjarnorkuárás. Ætlanir og geta Fræði kjarnorkuvígbúnaðar byggja á ísköldu mati á ætlunum annars vegar og hernaðargetu hins vegar. Þessar staðreyndir liggja til gi-undvallar þeim ótta sem nú hefur gripið um sig. Nú fer í hönd mikið óvissutímabil sem tæpast mun ljúka fyrr en þjóðirnar tvær hafa komið sér upp áreiðanlegum burðarkerfum þ.e. eldflaugum sem komið geta kjarnhleðslum „til skila“ af þokka- legri nákvæmni. Um þær ætlanir sem að baki búa verður ávallt erfið- ai-a að fullyrða. Þannig má skilja víg- búnaðaráætlanir og herfræði Pakistana á þann veg að þefr stefni að því að geta gert kjamorkuvopna- árás á Indland af fyrra bragði. Á tímum kalda stríðsins vai- þi-óað fram jafnvægi á þessu sviði herafl- ans sem, byggði á kenningunni um fælingu sem og hinni sem bar hið heldur kuldalega nafn „gagnkvæm gjöreyðing" (MAD á enskri tungu eða „Mutual Assured Destruction"). Komið var upp háþróuðum eftirlits- búnaði og beinum línum á milli höf- uðborga Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna til að gefa leiðtogum þeirra ráðrám til að bregðast við hugsan- legum ógnunum. Slíkt samráð var og er raunar enn talið lífsnauðsynlegt (í orðsins fyllstu merkingu) til að koma í veg fyrir misskilning, sem aftur gæti leitt til átaka þar sem gereyð- ingai-vopnum væri beitt. Hið sama gildir ef kjamorkueldflaug yrði skot- ið á loft fyrir mistök. Ekkert af þessu er til staðar hvað varðar Pakistana og Indverja. Að auki ræður hvorugt ríki yfir viðbún- aðarkerfi, sem gerir kleift að stig- magna spennu án þess að vopnum sé beitt. Þá byggði kjarnorkuvopna- kapphlaup risaveldanna á kalda- stríðsárunum fyrst og fremst á póli- tískum forsendum, viðbúnaði vegna þeirrar hættu að hugmyndafræðileg- um ágreiningi myndi lykta með vopnaskaki. Bandaríkin og Sovétrík- in áttu sér ekki sögu vopnaðra átaka líkt og Indverjar og Pakistanar, sem barist hafa þrívegis á síðustu 50 ár- um. Fælingarstefnan í gildi? En snúa má röksemdafærslunni við og komast að annarri niðurstöðu. Þannig má líta svo á að tilkoma kjarnorkuvopna í vopnabúrum beggja verði til þess að nýr stöðug- leiki myndist í Suður-Asíu með sama hætti og gerðist í hinni tvískiptu Evrópu kalda stríðsins. Fælingar- stefnan kom að tilætluðum notum því að á endanum komust bæði sov- éskir og bandarískir leiðtogar að þeirri niðurstöðu að „sigur“ væri óhugsandi í kjarnorkustríði. Því skyldu Indverjar og Pakistanar ekki komast að sömu niðurstöðu eftir að hafa lokið kjarnorkuvopnaáætlunum sínum? Er hugsanlegt að kjarnorku- vopnin geri þessum tveimur ríkjum auðveldara en áður að freista þess að leiða til lykta deiluna um Kas- hmir með friðsamlegum hætti? Þessi röksemdafærsla er um margt sannfærandi. Gallinn við hana er á hinn bóginn sá að hún kallar í raun á kjarnorkuvígvæðingu viða um heim og býður upp á að henni verði beitt allt þar til niðurstaðan verður þveröfug við það sem stefnt var að. Áð auki er ekki fyllilega unnt að bera saman stöðuna í Evrópu á tímum kalda stríðsins og þær hatrömmu nágrannaerjur sem eitr- að hafa samskipti þessara ríkja og kallað hafa fram háskalegar og her- skáar yfirlýsingar á síðustu vikum er fallið hafa í frjóan svörð á meðal alþýðu manna. Ráðamenn í Ind- landi og Pakistan eru nýgræðingar á leiksviði kjarnorkuvopnanna og reglurnar eru þeim um margt fram- andi. Alltjent er ekki í gildi skýr fælingarkenning í samskiptum landanna. Sáttmálar og afvopnun í uppnámi Viðbrögðin við tilraunasprenging- um Indverja og Pakistana hafa ver- ið harkaleg og munu, einkum í til- felli hinna síðarnefndu, kalla enn frekari efnahagsþrengingar yfir bæði ríkin. Slíkar hótanir afréðu bæði ríkin að hundsa, sem sýnir að stöðumat stjórnvalda var það, að pólitísk nauðsyn kallaði á að haldið yrði út á þessa braut. Indverjar hafa löngum þráð að komast í hóp kjarnorkuvelda og geta þannig mætt ráðandi ríkjunum fimm á grundvelli jafnstöðu. Pakistanai- telja sig ekki geta orðið eftirbátar þeirra í því efni. Flefri ríkisstjórnfr kunna að kom- ast að sömu niðurstöðu. Vestur- landabúar hafa löngum óttast að múslimaríki kæmu sér upp gereyð- ingarvopnum. Nú hefur eitt slíkt, Pakistan, bæst í „kjai'norkuklúbb- inn.“ Ótti margra á vesturlöndum um að tráaröfgamenn hyggist kom- ast yfir slíkan vopnabúnað hefur því fengið byr undir báða vængi á síð- ustu dögum. Vígvæðing Pakistana og Indverja kann og að verða öðrum hvatning, ekki síst „útlagaríkjum" á borð við Iran, Irak og Líbýu. Vitað er að íranir hafa lagt þunga áherslu á að koma sér upp kjarnavopnum á síðustu misserum og Irakar höfðu hrint af stokkunum slíkri áætlun óð- ur en Flóastríðið síðara skall á árið 1991. Kjarnorkuveldin fimm hafa nú boðað frekari aðgerðir til að bregð- ast við vígvæðingu Indverja og Pakistana. Siðferðislega má ef til vill segja að staða kjarnorkuríkjanna sé ekki sterk; markmið þefrra er að fá þessi tvö ríki til að feta ekki í fótspor þeirra sjálfra. Mikið er á hinn bóginn í húfi. Tilraunasprengingar ríkjanna tveggja eru í senn alvarleg ógnun við sáttmálann um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna og í andstöðu við þann anda kjarnorkuafvopnunar sem einkennt hefur þennan áratug. Verði ekki brugðist við af fullri hörku er hættan sú að tiltekin ríki, t.a.m. íran og írak, segi sig frá ákvæðum sáttmálans og gerist „yfir- lýst“ kjarnorkuveldi. Vera kann að síðar verði litið á kjarnorkutilraunir Indverja og Pakistana sem sköip vatnaskil. Til skemmri tíma litið verður ekki dreg- ið í efa að fyrirsjáanlegt kjarnorku- vígbúnaðarkapphlaup í Suður- Asíu þýðir að óvissan um framvindu al- þjóðamála er komin á nýtt stig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.