Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 56
trgunÞlnfctfe
|T|W|T| Express
Worldwide
. 580 1010
fslandspóstur hf
Hraðflutningar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SJÚKRAFLUTNINGAMENN og lögregla að störfum á slysstað.
Bflvelta á Þingvallavegi
Karl og* kona flutt
á sj*úkrahús
KARLMAÐUR og kona voru flutt á
slysadeild Sjúki'ahúss Reykjavíkur
eftir bflveltu á Þingvallavegi skammt
frá afleggjaranum að Stardal
skömmu fyrir hádegi í gær, laugar-
dag.
Tilkynnt var um slysið kl. 11.38 og
fóru þrír sjúkrabflar á slysstað, þar
■
Enn mæl-
ast jarð-
skjálftar
JARÐSKJÁLFTAHRINAN
sem hefur verið á Hengils-
svæðinu undanfarna daga virð-
ist vera að deyja út segir Einar
Kjartansson jarðeðlisfræðing-
ur á Veðurstofu Islands.
Enn eru nokkrar hræringar
á svæðinu en stærð skjálftanna
hefur farið minnkandi. Á föstu-
dagskvöld mældist jarðskjálfti
af stærðinni 3,4 á Richter.
Hann átti upptök sín í Litla
Skarðsmýi-arfjalli líkt og
stærsti skjálftinn í hrinunni
sem mældist 5,3 stig á Richter.
Frá föstudagskvöldi hafa
mælst nokkrir smærri skjálft-
ar, þeir stærstu um 2 stig á
Richter.
sem fólksbfll hafði farið út af vegin-
um og oltið.
Curtis Snook, læknir á slysadeild
Sjúki’ahúss Reykjavíkur, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið skömmu áðui’
en það fór í prentun að fólkið væri í
rannsókn, ástand þess væri stöðugt
en að það væri ekki í lífshættu.
Tíu hand-
teknir með
fíkniefni í
Hafnarfírði
LÖGREGLAN í Hafnarfirði hand-
tók tíu manns í húsi við Dranga-
hraun aðfaranótt laugardags og við
leit í húsinu fannst töluvert af fíkni-
efnum, áhöldum til neyslu þeirra og
ætluðu þýfí.
Lögreglan hefur undanfarið
fylgst með húsinu, sem er í iðnaðar-
hverfí, vegna gruns um fíkniefna-
neyslu, þar sem fólk hefur komið
saman eftir að lokun veitingahúsa. I
fyrrinótt fór lögregla inn í húsið og
fann nokkuð af fíkniefnum með að-
stoð leitarhunda frá fíkniefnadeild
Ríkistollstjóra. Fólkið, sem er á
aldrinum 17-36 ára og hefur flest
komið við sögu lögreglu áður, var
handtekið og fært til yfírheyrslu.
iÉɧ
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Sýnt fram á tengsl milli reykinga unglinga og annarra þátta
Samtaka
• /
Uppeldi og reykingar for-
eldra eru veigamikið atriði
UNGLINGAR sem búa við leiðandi
uppeldishætti við 14 ára aldur eru
ólíklegri til að reykja en unglingar af-
skiptalausra, skipandi og eftirlátra
foreldra. í hópi unglinga sem ekki
reykja 14 ára eru þeir einnig ólíklegri
til að vera byrjaðir að reykja við 17
__ ára aldur sem telja foreldra sína leið-
ándi en þeir sem telja foreldra sína
afskiptalausa eða skipandi.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsóknar á tengslum tóbaksreyk-
inga unglinga við uppeldishætti for-
eldra og reykingar foreldra og vina.
Hún er liður í langtímarannsókn á
áhættuhegðun unglinga, þar sem
vHf '300 reykvískum unglingum var
fylgt eftir frá 14 ára til 17 ára aldurs.
Aðeins 7% unglinga leiðandi for-
eldra reyktu daglega við 14 ára aldur
á móti 18% unglinga eftirlátra, 24%
unglinga skipandi og 41% unglinga
afskiptalausra foreldra. Hlutfall ung-
linga sem reykja og búa við afskipta-
lausa uppeldishætti er því sexfalt
hlutfall unglinga leiðandi foreldra.
Þá segir í niðurstöðunum að þrátt
fyrir sterk tengsl reykinga vina við
reykingar unglinga á hverjum tíma
gefi reykingar vina við 14 ára aldur
ekki vísbendingu um hvort unglingur
hafi byrjað að reykja eftir 14 ára ald-
ur. „Hins vegar er sá reyklausi ung-
lingur, sem á foreldri sem reykir, lík-
legii til að vera byrjaður að reykja
við 17 ára aldur en sá sem á foreldri
sem ekki reykir. Þannig spá reyking-
ar foreldra betur fram í tímann um
reykingar unglings en reykingar
vina.“
Mikilvægt að upplýsa foreldra
Sigrún Aðalbjarnardóttir prófess-
or og Leifur Geir Hafsteinsson, sem
gerðu könnunina, segja að þau
sterku tengsl, sem fram komi í rann-
sókninni milli reykinga unglinga
annars vegar og uppeldishátta og
reykinga foreldra hins vegar, minni
á hve brýnt sé að leita leiða til að
upplýsa foreldra um eðli og gildi
leiðandi uppeldishátta og horfa ekki
fram hjá líkum á því að barn þeirra
fari að reykja ef þeir reyki sjálfír.
„Varla þarf að taka fram að ekki er
tryggt að barnið byrji ekki að reykja
þótt það búi við leiðandi uppeldis-
hætti og foreldri reyki ekki. Tóbaks-
reykingar og önnur áhættuhegðun
unglinga er afleiðing flókins sam-
spils margra þátta sem sumum
hverjum er erfitt að stjórna. Rann-
sókn okkar sýnir aðeins að líkurnar
eru minni á því að unglingurinn
byrji að reykja ef hann býr við ofan-
greindar aðstæður."
Leiðandi uppeldishættir/10
sjomenn
SJÓMENNIRNIR á skipinu Júlia
Dan IS 19 frá Isafirði voru við
veiðar í rjómablíðu í Smugunni
fyrir helgi. Aflanum var Iandað í
Þórshöfn á Langanesi á miðviku-
dag. Nægur tími gafst því til að
halda heim í faðm fjölskyldu og
vina fyrir sjómannadaginn sem i
dag er haldinn hátíðlegur um allt
land í sextugasta skipti.
------♦♦♦.----
30 laxar úr
Blöndu
Klönduósi. Morgunblaðið.
VEIÐI hófst í Blöndu í fyrradag og
á hádegi í gær höfðu veiðst 30 laxar
á fjórar stangir. Voru þetta allt laxar
á bilinu 12 til 17 pund.
Veiðimenn sjá að mikill lax er
genginn í ána og voru kátir í blíðunni
og bjartviðrinu fyrir norðan.