Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Horft til framtíðar í höfuðborg Inga Jóna Þórðardóttir hefur tekið við hlutverki odd- vita borgarstjórnarflokks S.jálfstæðisflokksins. Hún segir í viðtali við Ragnhildi Sverrisdóttur að úrslit síðustu tveggja kosninga til borgarstjórnar kalli á endurmat á störfum borgarstjórnarflokksins. Helsta stefnumál hennar er mótun framtíðarstefnu í borgar- málum, svo Reykjavík verði höfuðborg sem lands- menn allir geta verið stoltir af. INGA Jóna Þórðardóttir var farin að taka þátt í sveitarstjómarmálum strax upp út tvítugu í heimabænum Akranesi. Eftir viðskiptafræðipróf frá Háskóla íslands vann hún sem innkaupastjóri hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi og kennari við fjölbrautaskólann þar í bæ, en haustið 1980 varð hún framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksins. Rúmum þremur ámm síðar varð hún aðstoðarmaður Ragnhildar Helgadótt- ur, fyrst í menntamálaráðuneytinu og svo í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur gegnt ótal trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var m.a. formaður út- varpsráðs í tæp sjö ár. Þá var hún formaður Kvenréttindafélags íslands í nokkur ár. Eftir borgarstjómarkosningamar 1994 komst nýr meirihluti til valda í Reykjavík og Sjálfstæðisflokknum tókst ekki að endur- heimta völdin í nýliðnum kosningum. Borg- arstjómarflokkurinn samþykkti einróma á fostudag þá tillögu Áma Sigfússonar að Inga Jóna tæki við stöðu oddvita hópsins. Inga Jóna segir að nú muni borgarstjóm- arflokkurinn endurmeta stöðu sína. „Ég tek við hlutverki oddvita við aðstæður, sem eru auðvitað erfiðari en ef við hefðum náð meiri- hluta borgarfulltrúa. í þessu felst mjög áhugaverð brýning og ég hlakka til að takast á við verkefnið. Borgarstjómarflokkurinn okkar er samstilltur, sem hefúr endumýjast að hluta. Við byggjum því bæði á reynslu og nýjum hugmyndum og ég veit að starf þessa hóps verður öflugt. Það er með gleði og bjartsýni í huga sem ég legg af stað.“ Ekki kosið um stjórnmálastefnur Aðspurð hvað skýri niðurstöðu nýliðinna kosninga að hennar mati segir Inga Jóna að það sé alveg ljóst að kjósendur hafi ekki ver- ið að gera upp á milli stjómmálastefna. „Sig- urvegarinn er borgarstjórinn, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir. Kjósendur lýstu stuðningi sínum fyrst og fremst við hana. Eitt af því sem við verðum að skoða er hvers vegna okkur tókst ekki, á síðastliðnum fjóram ár- um, að koma stefnu okkar svo til skila að kjósendur sæju hvaða málefni greindu fram- boðin að. Hluti skýringarinnar er, að and- stæðingar okkar hafa verið á harðahlaupum að hirða upp okkar hugmyndir; skreyta sig með okkar fjöðram. Sjálfir hafa þeir engar sérstakar hugmyndir lagt fram á fjóram ár- um.“ Inga Jóna nefnir sem dæmi, að borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi ítrekað flutt tillögur um sjálfstæði skóla, sem sé lyk- ilatriði í þróun þeirra. „Við töluðum fyrir daufum eyram. Þessum tillögum okkar var ýmist vísað frá eða þær felldar. Þegar stutt var til kosninga birtust svo auglýsingar frá R-listanum, sem var búinn að gera þessar tillögur að sínum. Síst skal amast við því að okkar hugmyndir skulu framkvæmdar, en þær hefðu hins vegar aldrei orðið til í hug- myndasmiðju R-listans. Að mörgu leyti má því segja að niðurstaðan sé annars vegar persónulegur sigur borgarstjórans og hins vegar sigur sjálfstæðisstefnunnar." Skömmu fyrir kosningarnar 1994 dró Markús Öm Antonsson, sem tók við starfi borgarstjóra af Davíð Oddssyni árið 1991, sig í hlé og Árni Sigfússon tók við. Metur Inga Jóna það svo að niðurstöður kosning- anna þá megi rekja til skipta á oddvita með jafn stuttum fyrirvara og raun bar vitni? „Þetta styrkti okkur auðvitað ekki. Við gengum í gegnum ákveðna erfiðleika á þess- um tíma, en við höfum lært af þeirri reynslu og verðum að nýta hana. Hópurinn er sterk- ur og samheldinn og ætlar sér að leggja grann að sigri eftir fjögur ár.“ Hún segist ekki vilja tíunda hvaða mun hún telji á sér og Árna Sigfússyni í oddvita- hlutverkinu. „Ejnstaklingar hafa ólíkar áherslur og stfl. Ég hef aðra reynslu og ólík- an bakgrann en Árni. Ég hef reynslu úr at- vinnulífinu, stjórnsýslunni og starfí í flokkn- um frá fyrri tíð og gaf kost á mér af þvi að ég veit að þessi reynsla er gott veganesti." Er kostur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að tefla konu fram gegn núverandi borgar- stjóra? „Ég held að það sé ekki verra. Ingibjörg Sólrún á áreiðanlega hluta fylgis síns sam- | kennd kvenna að þakka. Konur í Reykjavík era ánægðar að sjá kynsystur sína á borgar- stjórastóli og ef ekki tekst að draga mun á stjórnmálastefnunni fram með nógu skýrum hætti láta þær þetta ráða.“ Inga Jóna var í 3. sæti lista Sjálfstæðis- flokksins við borgarstjómarkosningarnar. Ætlar hún að sitja í 1. sæti næst, eða taka 8. sæti, líkt og Ingibjörg Sólrún hefur gert á Reykjavíkurlistanum? „Ég er ekki farin að horfa til niðurröðunar á framboðslista eftir fjögur ár. Framundan er mikil vinna og nægur tími til að taka slík- ar ákvarðanir.“ Eigpnmaðurinn í fjármálaráðuneytinu Eiginmaður Ingu Jónu er Geir H. Haarde, fjármálaráðherra. Hvað segir hún um þá skoðun að óheppilegt sé að eiginkona fjár- málaráðherra leiði borgarstjórnarflokkinn og taki hugsanlega við starfí borgarstjóra? „Sumir hafa nefnt þetta, en færri virðast velta því fyrir sér hvort það sé vandi fyrir i fjármálaráðherra að vera kvæntur oddvita borgarstjómarflokks. Ég minnist þess ekki að þetta hafi verið orðað við oddvitá Reykja- ) víkurlistans fyrir fjóram áram, eiginkonu fé- lagsmálaráðherra sem fer með málefni sveitarstjórna. Mig rekur ekki minni til að þetta hafi verið vandamál á síðasta kjörtíma- bili. Það era skýrar reglur um hvernig taka beri á málum ef hagsmunir rekast á.“ Inga Jóna segir að það sé alþekkt bæði hérlendis og erlendis að hjón láti bæði mikið að sér kveða í stjómmálum. „Dæmi era um það á Norðurlöndunum, þar sem hjón hafa setið saman í ríkisstjórn. Jafnréttisbaráttan 'L gengur út á að einstaklingar séu metnir að * eigin verðleikum og hafi sjálfstæðan rétt.“ Grunnur framtíðar Leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálfstæð- isflokksins hefur ýmsar hugmyndir um hvað betur megi fara í borginni. Þróun höfuð- borgarinnar ber þar hæst. „Við eigum að skoða vel hvaða grann við erum að leggja . fyrir framtíðina. Þá er ég ekki að vísa til næstu örfárra ára, heldur lengra fram í tím- ann. Við þurfum að gera okkur grein fyrir ) hvernig við viljum að borgin þróist. Við eig-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.