Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 27 UNDIR SAMA ÞAKI Einstaklingar- Starfsmannahópar - Félagar - Vinkonur - Erlendir gestir í sumar bjóðum við íslendingum og eriendum gestum upp á ævintýraferðir um hálendi íslands > á Hummer og öðrum gg ID* ofurjeppum! Spennandi ferðir á hvetjum degi í allt sumar ! Settu í útivistargírinn - hringdu strax í okkur og fáðu að vita allt um sumarferðimar 1998 - ðekki eftirþví! DIGITAL sjónvarp og margmiðlun um gervihnött Við kynnum nýja tækni, stafrœnt sjónvarp. Ótrúleg myndgæði. Sjónvarp frá flestum löndum Evrópu. Tilboð 1: Nokia-9602 digital-móttakari á 76,600 kr. (Áður 89,200 kr.) J JVNI Tilboð 2: "DátMo^faet í kciuþ&etái'. Ef þú kaupir á tilboðsverði, Nokia-9602 digital-móttakara á 76,600 kr. og LNB-nema (0,7dB) á 5,800 kr. þá færðu l,0m diskloftnet i kaupbœtir. elnet-tœkni ehf - Auðbrekku 16 - 200 Kópavogur - Sími: 554-2727 Netfang: elnet @ elnet.is - Heimasíða: www.elnet.is LEIKLIST Katfileikhúsið ANNAÐ FÓLK Höfundur: Hallgrímur H. Helgason. Leikstjóri: Vigdís Jakobsdóttir. Leik- arar: Helga Bachmann, Jón Hjartar- son og Marta Nordal. Leikmynd og búningar: Þorgerður Sigurðardóttir og Sigrún Elsa Sigurðardóttir. Lýs- ing: Ævar Gunnarsson. Tónlist: Ósk- ar Guðjónsson í samvinnu við Jóhann Jóhannsson. Föstudagur 5. júni. ANNAÐ FÓLK eftir Hallgrím H. Helgason er nýtt leikrit samið fyrir ákveðna leikara og íyrirfram ákveðið leiksvið, það er Kaffileik- húsið, þar sem leikritið var frum: sýnt síðastliðið fóstudagskvöld. I stuttu máli fjallar verkið um unga stúlku, Krillu (Mörtu Nordal), sem tekur á leigu íbúð í gömlu timbur- húsi í miðbæ Reykjavíkur og kynn- ist smám saman öðrum íbúum húss- ins, Áslaugu (Helgu Backmann), sem býr á loftinu, og Eyvindi (Jóni Hjartarsyni), sem býr í kjallaran- um. Unga stúlkan virðist í fyrstunni heldur hornótt, hún er hrokafuO og snögg upp á lagið og ætlar sér síður en svo að blanda geði við hina öldr- uðu nágranna sína. Hún fær þó áhuga á þeim og þeirra sögu áður en yfir lýkur. Marta Nordal var afar sannfærandi í hlutverki stúlkunnar og túlkaði hana á lifandi og kraft- mikinn hátt. Jón Hjartarson var einnig trú- verðugur í hlutverki „einstæðings- ins“ í kjallaranum, en líður þó fyrir það hversu mikil klisja persónan er frá hendi höfundar. Helga Bach- mann leikur ekkjuna á loftinu sem man flfil sinn fegri og lifir mestan- part í minningum. Helga virtist á stundum nokkuð ráðvillt í hlutverk- inu, en það verður þó að segjast að stundum átti það vel við persónuna. Einnig bar á óöryggi í textaflutn- ingi Helgu og kom það stundum niður á samleiknum við hina leikar- ana. Flétta leikritsins snýst um mann- leg samskipti (eða skort á þeim) og áherslan er á samtöl fremur en at- burðarás. Samtölin voru víða skemmtilega saman sett, en verkið skortir þann hljómbotn sem gríp- andi atburðarás getur veitt. Vanda- mál íbúanna sem og ris verksins var fyrirsjáanlegt. Erfitt var að sjá hvemig höfundur hefur haft sýning- arhúsnæðið sérstaklega í huga við samninguna, því nýting á húsi og sviði var ekki betri en gengur og gerist um sýningar þar. Hér getur einnig verið við sviðshönnuð að sakast því sviðsmynd virkaði frem- ur dauð og studdi illa verkið. Þátta- skil voru mörkuð með tónlist og lýs- ingu og var hvoru tveggja vel heppnað; sérstaklega er ástæða til að hæla tónlist Óskars Guðjónsson- ar. Leikstjóri sýningarinnar, Vigdís Jakobsdóttir, þreytir hér frumraun sína í íslensku leikhúsi og má hún vel við sinn hlut una. Hallgrímur H. Helgason hefur undanfarin misseri fengist við bæði að þýða og frumsemja leikverk og er hægt og sígandi að marka sér sess meðal íslenskra leikskálda af yngri kynslóðinni. Hann hefur þó ekki náð að „slá í gegn“ ennþá og þetta nýja verk hans mun ekki færa honum þann árangur. Til þess er efnið of ófrumlegt og flækjur þess of fyrirsjáanlegar. A móti kemur að Hallgrímur tekur greinilegum framförum í meðferð tungumálsins og er texti þessa leikrits víða vel saman settur, samtöl eðlileg og víða góður húmor á ferðinni sem leik- húsgestir kunnu vel að meta. Fyllsta ástæða er til að ætla að þessi höfundur eigi eftir að „slá í gegn“ einhvern tíma á næstu árum ef hann gefur ímyndunarafli sínu lausari tauminn og setur metnaðin- um hærra mark. Soffía Auður Birgisdóttir Hefur þú skodad heimasíduna okkar ? minÍng Árangutsrík gagnagreining Námskeið á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 9. júní kl. 9 til 18, ætlað stjórnendum, markaðsfólki og tölvunarfræðingum. Leiðbeinendur: Michael J. A. Berry og Gordon Linoff. Markvissari og arðbærari markaðsaðgerðir Hvernig greinum við betur góðu viðskiptavinina? Hvernig nýtum við betur þau verðmæti sem felast í tölvugögnum fyrirtækisins? Styrktaraðilar: BREYTA ehf Skráning og nánari upplýsingar í síma 552 8371 í tölvupósti: atli@breyta.is LANDS SÍMINN EIMSKIP Þakrennur Þakrennur og ror frá... 1 SiBA BLIKKAS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Ðleik gata KÓPAVOGI 1 m Sími: 552 2040 - Fax 551 0022 - E-mail: staff@jeepsafari.com - WWW.jeepsafari.com www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.