Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ OFVIRKNI OG AT- HYGLISBRESTUR í SÍAUKNUM mæli eru íslensk börn greind með það sem kallað er ofvirkni og athyglisbrest (skamm- stafað hér á eftir OA). Greiningin er nokkuð á reiki en ýmis atriði hafa áhrif á greininguna. Til dæmis er tilhneiging til að greina börn ofvirk eða með athyglisbrest ef þau geta ekki haldið athygli og einbeitingu vakandi í skóla eða þau geta ekki setið kyrr, tala of mikið, of hratt eða of hátt. Eg hef séð ýmis grein- ingarpróf varðandi ofvirkni og hafa þar verið allt upp í 30 atriði til skoð- unar. Ekki verður þó farið nánar út í greiningu hér en segja má að þessi atriði séu meira og minna háð smekk hvers og eins, þ.e. hvað sé óeðliiegt og hvað ekki. Þannig er greiningin oft hreint smekksatriði. Ef barn er greint með OA þá virðist það verða æ algengara að viðkomandi sé gefið lyf sem heitir ritalin, þetta fer að sjálfsögðu mikið eftir læknum. Eg á barn í fyrsta bekk í grunnskóla og það sem ég hef séð og heyrt af þessari lyfjagjöf frá fagfólki í skólum og fleirum þá finnst mér þessi lyfjagjöf vera kom- in út í öfgar. Ég veit dæmi þess að 5 böm í einni skóladeild á Norður- landi séu á þessu lyfi. Bandaríska lyfjaeftirlitið (DEÁ) hefiir varað við mikilli notkun lyfs- ins í Bandaríkjunum en hún hefur sexfaldast á síðustu árum og skv. skýrslum DEA er notkunin þannig að í sumum skólum eru 20% barna á þessu lyfi. Af því sem ég hef heyrt virðist ísland ætla að fylgja þessari þróun. Ég hef ekki séð neinar tölur um það hve mörg skólabörn á Is- landi taki lyfið - það væri fróðlegt að heyra slíkar tölur og ennfremur hvort eitthvert eftirlit sé haft með því hvernig þessu lyfi er ávísað. Todd Forte talsmaður Cyba Geigy fyrirtækisins sem framleiðir ritalin hefur sagt að um 3 milljónir manna taki lyfið, aðallega börn. Ef við gerum ráð fyrir að lyfjaskammt- urinn kosti kr. 2.000 á mánuði sem er sjálfsagt varlega áætlað þá er um að ræða sex milljarða ísl. kr. á mánuði (6.000.000.000 ísl. kr.) eða 72 milljarða ísl. kr. á ári, sem er ekki svo slæmt fyrir eitt lyfjafyrir- tæki. Hvað er ritalin? Ég þekki tilfelli þar sem læknir ávísar ritalini til bams án þess að segja foreldrum frá því hvað ritalin er og frá aukaverkunum lyfsins og alveg án þess að fjalla um möguleg- ar aðrar leiðir til þess að taka á vandanum án lyfsins. Ég veit að sjálfsögðu ekki um það hvemig þessu er venju- lega háttað en ég óttast það að þetta sé ekki einsdæmi. íslendinga myndi hrylla við þeirri tilhugs- un að læknar gæfu ís- lenskum bömum kóka- ín til að þau höguðu sér betur í skólanum. Þetta er nú hins vegar svo ná- lægt sannleikanum að það þyrfti efnafræðing til þess að sjá muninn. Verkun ritalins er hin sama og kókaíns og má því segja að bömin séu í eiturlyfjavímu. Methýlfenídat HCl er hið virka efni í ritalini. Ritalin er markaðs- nafnið sem lyfjaframleiðandinn Ciba-Geigy notar. Efnið er nær því eins og kókaín. Það notar sömu nemana í heilanum og virknin er sú sama, gefur sömu vímuna, og eru efnin notuð í læknisfræðilegum rannsóknum jöfnum höndum þar sem um samskonar verkun er að ræða. Eini munurinn virðist vera sá að kókaín yfirgefur nemana í heil- anum fljótar sem getur leitt til meiri ávana.1 Fíkniefnavandinn verður sennilega ekki minni með því að gefa bömum allt niður í þriggja ára lyf sem hafa sömu verk- un og kókaín. Emm við e.t.v. að kenna börnum að lyfjainntaka sé svarið við öllum vandamálum? Aukaverkanir ritalins í íslensku lyfjahandbókinni seg- ir: „Ritalin getur valdið angist og óróa og aukið hættu á gláku. - Mikil hætta er á að lyfið valdi ávana, sér- staklega ef það er gefið samfellt í langan tíma.“ I erlendum fræðum segir, að vitað sé um að ritalin valdi ýmsum aukaverkunum þegar til skamms tíma er litið, nefndar eru þessar helstar: Missir matarlystar, minni vöxtur og þroski, vöðvakippir eða fjörfiskur, sjóntraflanir, tauga- veiklun, svefnleysi, þunglyndi, óframfærni, geðvonska, magaverk- ir, hjartsláttaraukning, ýmis geð- ræn vandamál og getur hindrað eðlilegan þroska og vöxt hjá börn- um.2 Ekki er hins vegar nákvæm- lega vitað hver langtímaáhrif á börnin era. Lyfjaíyrirtækin taka það sérstaklega fram á þeim varúð- armiðum sem fylgja lyfinu að lang- tímaáhrif séu ekki kunn og að ekki eigi að gefa lyfið börnum yngri en 6 ára. Ennfremur að ekki eigi að gefa börnum lyfið nema ljóst sé að vandamálið eigi ekki rót í umhverfinu með einum eða öðrum hætti og að ekki eigi að gefa lyfið eitt og sér heldur eigi samtímis að fylgja með viðeigandi með- ferðarúrræði. Ég skora á foreldra að skoða þessa varúðarmiða, stundum eru þeir reyndar fjarlægðir en það ætti að vera hægt að óska eftir að fá þá með lyfinu. Ritalin verkar vel, þ.e. að börnin verða meðfærileg og geta ein- beitt sér lengur að náminu. Við foreldrar ættum því bara að þegja og vera fegin þessu undralyfi. Eg er því ósammála. Lyf- ið hefur margai' aukaverkanir sbr. Er lyfíð ritalin ofnotað? Þorsteinn Hjaltason veltir þeirri spurningu fyrir sér sem og með- ferð á börnum sem greind eru með ofvirkni o g athyglisbrest. hér að ofan en læknar engan. Lyfið slær á einkennin og hylur þau en læknar ekki þann vanda, sem or- sakar einkennin, þannig að ef lyfja- gjöfinni er hætt koma einkennin fram aftm\ Barnið þróar upp þol gegn lyfinu og þá verður að auka skammtinn. Nú er talið að enginn læknist sjálfkrafa af OA með tíman- um, vandamálið sé til lífstíðar sé ekkert að gert, einkennin eldast sem sé ekki af börnunum. Menn hljóta því að spyrja sig hvort gefa eigi ritalin alla ævina? - Sú tilhugs- un er sjálfsagt góð fyrir lyfjafram- leiðandann Ciba Geigy en ekki fyrir foreldra né börnin sjálf. Ef ekki er unnið á grannvandan- um þá er um lífstíðarvandamál að ræða. Það að gefa börnum lyf til þess að hylja einkennin er ekki gott. Það hlýtur að vera betra að taka strax á grannvandanum í æsku frekar en að bíða með það þar til að unglingsárum kemur eða að meðhöndla vandann með því að hylja einkennin með kókaínlíkum lyfjum til lífstíðar. Það eru ýmis önnur lyf notuð til þess að eiga við það sem kallað er Þorsteinn Hjaltason KEW Hobby léttir þér þrifin Staðgreitt kr. 19.944,- Með Hobby 1500 og Dynamic 4600 X-tra getum við boðið þér hagkvæmar lausnir á hreingerningarþörfum þínum. Bílasettið inni- heldur þessa þrjá hluti sem gera þvottinn ennþá auðveldari. Snúningsbursti ÞEKKING • ÚRVAL • ÞJÓNUSTA REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi 2*110 Rvk • Sími: 520 6666 mmmswsmmmmw&mmmmsmsim IW ofvirkni og athyglisbrest, nefna má: Dextroamphetamine (Dexedrin), sem er líkt og amfetamín og hefiu- verið selt á götum úti sem vímuefni, og hefur líkar aukaverkanir og ritalin. Pemoline (cylert) hefur margar aukaverkanir t.d. lifrar- skemmdir. Auk þess má nefna im- ipramine hydrochloride (tofranil), desipramine (norpramin), clonidine (catapres) og prozac. Þessi lyf hafa öll miklar aukaverkanir og um sum hafa framleiðendur sérstaklega tek- ið fram að ekki eigi að gefa börnum lyfin. Þó ritalin virðist eitt og sér hafa margvíslegar aukaverkanir þá hef- ur lyfið ennfremur ýmsar óæskileg- ar afleiðingar ef það er tekið inn með ýmsum öðram lyfjum. Enn- fremur geta komið fram ýmis óæskileg einkenni ef menn sem era á lyfinu neyta matar eða drykkjar sem inniheldur mikið magn af tyramine, sem er efni sem hækkar blóðþrýsting. Matur og drykkur sem inniheldur mikið tyramine er ýmis en nefna má sem dæmi: Gam- all ostur, avocado, súkkulaði, þurrk- aður og saltaður fiskur, lifur, kryddsíld, pepperóní, rúsínur, spægipylsa (salami), bologna-pylsa og sojasósa. Ennfremur má nefna að með ritalini má alls ekki neita koffeins í neinu formi, hvort sem það er í kaffi eða dökkum kóla gos- drykkjum.3 Hvað er annað til ráða en ritalin? Ritalin er ekki lækning, það hyl- ur einungis einkennin. Menn hafa því mikið rannsakað og velt því fyr- ir sér hver sé orsök OA einkenna í börnum. Þessi einkenni geta or- sakast af ýmsum ástæðum en að sjálfsögðu hljóta á stundum ekki að finnast nein ráð og þá er að sjálf- sögðu mikilvægt að geta gripið til lyfja eins og ritalins sem gerir lífið bærilegt þeim börnum sem eiga við OA að stríða. Hins vegar er fjöldi barna sem fær lækningu eftir ýms- um leiðum. Hér á eftir verður fjall- að um nokkrar orsakir einkenna OA í börnum og eru þær allar með- höndlanlegar. 1. Lár blóðsykur (hypoglycemia) Ef sykur (glúkósi) verður of lítill í blóði þá missa menn meðvitund og falla í dá ef ekkert er að gert. Sjálf- virkt viðvörunarkerfi líkamans bregst við lágum blóðsykri með því að framleiða adrenalín (epinephrine), sem verður til þess að líkaminn losar sykur (glúkósa) úr frumum, sem kemst til heilans og kemur í veg fyrir að menn missi meðvitund eða falli í dá. Adrenalín- ið hefur hins vegar sín eigin áhrif á líkamann og þau eru mjög víðtæk, hefur áhrif á nánast öll líffæri. Um adrenalín er oft sagt að það sé „árásar-eða-flótta“ hormón. Adrenalíni er dælt í blóðið þegar við erum í hættu eða verðum hrædd, það gerir okkur kleift að verja okkur, orka er tekin frá annarri starfsemi líkamans til þess að gera okkur betur fær til að þerj- ast eða flýja. Þegar adrenalín fer í blóð barna era áhrifin mjög mikil. Barn sem hafði fram að því setið kyrrt í skóla- stofunni verður ókyirt, hjartsláttur verður hraðari og öll líkamsstarf- semi örari. Það getur ekki einbeitt sér og smámunir geta orðið til þess að barnið verði æst og árásar- gjarnt. Þessi hegðun er ekki eigin- leg eða meðvituð barninu. Barnið kýs ekki að hegða sér með þessum hætti, heldur er það adrenalínlosun sem veldur vandanum. Adrenalín- losun hjá börnum verður oft út af því sem þau borða eða borða ekki. Lágur blóðsykur getur orðið a.m.k. með tvennum hætti. I fyrsta lagi ef ekki er borðað nógu títt, þ.e. líkaminn verður einfaldlega uppi- skroppa með sykur í blóði. Þó það hljómi þversagnarkennt þá getur sykurmagn í blóði einnig orðið of lítið af þeim sökum að við borðum mikinn sykur eða eitthvað sem inni- heldur mikið magn af sykri. Þá er um að ræða sjúkleg einkenni þ.e. að insúlín er framleitt í of miklu magni sem tekur of mikið af sykri úr blóð- inu sem veldur svo aftur því að lík- aminn sendir adrenalín út í blóðið. Svo virðist vera að þegar við neytum hvíts sykurs þá framleiði líkaminn alltaf adrenalín til þess að stjórna þessum sveiflum sem verða í sykurbúskap blóðsins. Það er adrenalínverkunin sem við verðum vitni að þegar börn verða gjörsam- lega víðáttuvitlaus eftir að hafa borðað of mikil sætindi, þ.e. þau verða ofvirk vegna verkunar adrenalínsins. Samanburður hefur verið gerður á áhrifum sykurneyslu hjá fullorðnum og börnum. í ljós hefur komið að sykurneyslan hefur mun meiri áhrif á börnin en full- orðna. Líkami barnanna brást þannig við að adrenalín var sent út í blóðið fyrr en hjá fullorðnum, þ.e. sykurmagn þurfti ekki að falla eins mikið hjá börnum og hjá fullorðn- um áður en líkaminn sendi adrena- lín út í blóðið. Adrenalínið var allt að tíu sinnum meira hjá börnunum og entist mun lengur, þ.e. upp í 5 klst., í blóði barna. Þannig verður sykurneysla til þess að adrenalín fer fljótt út í blóð barna og í mildu magni og endist lengi. Skortur á blóðsykri lýsir sér m.a. með slappleika, titringi í höndum eða víðar, taugaveiklun, kvíða fyrir hinu og þessu og helst öllu, doða eða yfirliðstilfinningu og svo með eiginlegu yfirliði og dái. Ef barnið er erfitt viðureignar og sérstaklega úrillt á morgnana eða þegar það er svangt en verður rólegra eftir mat- inn þá eru líkur til þess að vanda- málið felist í blóðsykurmagni. Með- ferðin er einföld, þ.e. að breyta mataræði. Gæta þess að barnið verði ekki svangt og útiloka með öllu fínan unninn hvítan sykur í mataræði barnsins, þ.e. sælgæti, kökur, gosdrykki o.s.frv. Tilgangur- inn er að halda blóðsykurmagninu stöðugu, ekki láta það falla vegna þess að barnið verður svangt eða hækka mjög hratt vegna sykuráts. Ef foreldra grunar að vandamálið sé blóðsykurmagnið mæli ég með því að menn leiti sér nákvæmari upplýsinga um heppilegt mataræði. Slíkar breytingai- á mataræði barna hafa leitt til þess að þau hafa getað stjórnað hegðun sinni og lyfjaát var ónauðsynlegt. 2. Fæðuofnæmi og fæðuviðkvæmni Önnur fæða en sykur getur enn- fremur haft mikil áhrif á hegðun barna. Börn geta haft ákveðið of- næmi eða verið viðkvæm fyrir ákveðmnn fæðuflokkum. Einkenni slíks geta verið öll sem talin eru einkenna ofvirkni og einbeitingar- skort. Til að prófa slíkt verður hreinlega að útiloka einn og einn fæðuflokk í a.m.k. 5-7 daga til að sjá áhrifin af slíku. Einnig er hægt að gera blóðofnæmispróf (RAST) eða gera ofnæmispróf á húð. Mönnum kann að vaxa í augun að taka ákveðna fæðuflokka úr mataræði barna en spyrja má á móti hvort það sé ekki þægilegra en að eiga við barn sem er algerlega stjórnlaust? 3. Mismunandi aðferðir við lærdóm Algengast er að menn noti vinstra heilahvelið meira en það hægra. Sumir eru þó þannig gerðir að þeir nýta það hægra meira en það vinstra. Þeir sem eru hægri menn hvað þetta varðar læra á allt annan máta en við hin og hugsa öðravísi. ÞeiiTa hugsun er t.d. mjög myndræn, þ.e. hugsun fer fram í myndum en ekki orðum eins og hjá okkur hinum. Sömu kennsluaðferð- ir henta ekki þessum hópum. Kennsluaðferðir eru hins vegai’ oft- ast sniðnar að þeim sem nota vinstra heilahvelið meira en það hægra, þ.e. þeim sem hugsa í orð- um og rökrænt og geta lært með því að hlusta án þess að hafa neitt áþreifanlegt fyrir sér. Slíkar kennsluaðferðir henta hins vegar ekki hinum börnunum sem nota hægra heilahvelið meira og geta þau því ekki fylgst með og lært eins og hin. Til eru dæmi um bráðgáfuð börn sem hafa ekki lært að lesa fyrr en seint og um síðir og þá með erf-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.