Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 23 Dularfullt og lævíslegt ERLENDAR BÆKUR Spennusaga THE TALKING CURE eftir Tam Hoskyns. Penguin Fiction 1998. 248 síður. SÁLFRÆÐITRYLLAR hafa á undanfórnum misserum verið vinsælt kvikmyndaefni einkum þeir sem lýsa því þegar myndarlegur karlgeðlækn- irinn fellur fyrir glæsilegum kven- sjúklingnum sem sækir til hans hjálp og ráðgjöf gagntekin af kynlífsvanda- málum eða einhverju þaðan af verra; Woody Allen gerir frábært grín að því í „Deconstructing Harry“. Mér dettur þetta í hug eftir lestur „The Talking Cure“ eftir breska rithöfund- inn Tam Hoskyns. Hún er upplagt kvikmyndaefni á þessum nótum og það má vel vera að einhver eigi eftir að kvikmynda hana. Breska leikkon- an Emma Thompson hefur í það minnsta sagt að hún hafí haft gaman af lestrinum og segir bókina „góðan trylli", ef marka má bókakápuna. Erótískur sálfræðitryllir Bókin er frumraun Tam þessarar og það er óhætt að taka undir orð Emmu, sagan er fín sem byrjenda- verk, dularfull og spennandi. Tam býr í London og hefur starfað fyrir sjónvarp og leikhús en er nú tekin til við að skrifa spennubækur og er vonandi að hún láti ekki af þeirri iðju. Líklega fellur bókin hennar undir skilgreininguna erótískur sál- fræðilegur tryllir. Hún er kannski ekki sérlega nýstárleg í lýsingu sinni á góða og vonda tvíburanum, sambandinu sem myndast á milli sjúklingsins og læknisins, hinni bældu ást eða fortíð sem getur komið upp um hið rétta eðli persón- anna og fyrirboðum sem vita ekki á neitt gott, en Tam vinnur giska vel úr þessum klisjum engu að síður og setur saman laglega fléttu með fremur óvæntum endi. Aðalpersónan í sögunni er ung kona, Mo Higgs, sem veitir sál- fræðiráðgjöf og fær á legubekkinn sinn miðaldra föngulegan mann sem hefur lengi átt að stríða við vandamál úr fortíðinni. Hann veit ekki hvort hann myrti systur sína í lítilli tjörn skammt frá heimili hans þegar hann var fimm ára eða hvort það var slys. Sektarkenndin hefur nagað hann æ síðan. Maður þessi heitir Howard North og er dular- fullur í meira lagi en Mo fellur fyr- ir honum þótt hún viti að hún eigi ekki að gera það og eftir því sem hún kynnist honum betur því meiri ástæða er fyrir hana að taka til fót- anna. Það gerir hún hins vegar ekki. Inní söguna blandast tvíburasyst- ir Mo, Kate, sem einnig er sálfræð- ingur en landsfrægur og miklu mun ákveðnari og sjálfsöruggari en Mo litla, sem kom í heiminn rétt á eftir henni. Eiginmaður Mo er kallaður Billy og er blaðamaður sem aldrei er heima og er hjónaband þefrra í molum. Lævíslegt andrúmsloft Og inní söguna blandast einnig framhjáhald, sviksemi, draumar auðvitað, nafnaleikir, tilviljanir og tvíburaátök, mjög svo óeðlileg móð- urást og loks morð svo aðeins nokk- uð sé nefnt. Það er því af nógu að taka í fyrstu bók Tam Hoskyns og merkilegt nokk, henni tekst að stýra þessu öllu saman í farveg sem þrátt fyrir allt reynir ekkert sér- staklega mikið á trúgirni lesandans. Frásögnin er í fyrstu persónu, Mo er sögumaðurinn, og hún er vel saminn karakter sem lesandinn á auðvelt með að samsama sig við og upplifa atburðina í gegnum og aðrar persónur eiga vel heima í þessari sögu. Hoskyns skapar lævíslegt andrúmsloft grunsemda og ótta og innilokunarkenndar og hefur í það heila tekið gert góðan trylli, eins og Emma sagði. Arnaldur Indriðason Viðskíptaháskólinn í Reykjavlk (Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands) Umsóknarfrestur er til 15. júní V VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN í REYKJAVÍK Innritun í Viðskiptadeild ogTölvufræðideild Viðskiptahá- skólans í Reykjavík er hafin og lýkur 15. júní nk. Umsókn- areyðublöð fást á skrifstofú Verzlunarskóla íslands, Of- anleiti I alla virka daga kl. 8-16. Þeir sem búa úti á landi geta fengið umsóknargögn send í pósti, en beiðni um það má leggja ffam í síma 568 8400. Ekki er krafist innritunargjalds, en þeir sem fá inngöngu í skólann greiða skólagjöld fyrstu annar í byrjun ágúst. Nemendafjöldi Viðskiptaháskólans verður takmarkaður, en nemendur af öllum brautum framhaldsskóla eru hvattir til þess að sækja um skólavist. i Tölvufræðideild er boðið upp á tveggja ára kerfisfræði- nám og þriggja ára B5. nám í tölvufræði. i Viðskiptadeild er boðið upp á þriggja ára BS. nám í viðskiptafræði, en einnig er hægt að Ijúka námi með prófvottorði (diploma) eftir tveggja ára nám. Þá er gert ráð fyrir margvfslegri samþættingu náms í Tölvufræðideild og Viðskiptadeild Viðskiptaháskólans. Nemendur þurfa ekki að ákveða í upphafi hvort þeir fara f tveggja eða þriggja ára nám. Tölvufræðideild Viðskiptaháskólans í Reykjavíker framhald á Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands. Krafist er stúdentsprófs í báðar deildir Viðskiptaháskól- ans í Reykjavík, en umsóknir þeirra sem hafa verulega tölvureynslu eða reynslu úr viðskiptalífinu verða einnig teknar til greina. Kappkostað verður að velja þá nem- endur í Viðskiptaháskólann sem búast má við að nái bestum árangri í náminu. Stefnt er að því að afgreiða umsóknir fyrir lok júní. Kennsla við Viðskiptaháskólann í Reykjavík hefet í nýju húsi að Ofanleiti 2 í september í haust. ~ o o o irisma 1.6 lítra, 100 hestöfl og 1.8 lítra CDI, 125 hestöfl hyggispúðar fyrir ökumann og farþega »ABS hemlakerfi jarstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn 'afstýrðir upphitaðir útispeglar •Rafhitun í framsætum o.m.fl. MITSUBiSHI CARISMA kostarfrákr. Calant2.0l fyrirökumann og farþega »ABS hemlakerfi •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn •Rafstýrðir upphltaðir útispeglar •Rafhituð sæti •15" álfelgur •Skriðstilli o.m.fl. MrrSUBISHI GALANT kostarfrá kr. 1.565.000 2.055.000 MITSUBISHI -ívriMttm meturn f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.