Morgunblaðið - 07.06.1998, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
ERLENT
Reuters
SERGEI Kíríjenkó og Borís Jeltsín á fundi með helstu frammámönnum banka og iðnaðar í Rússlandi.
Kírijenko eflist við
fyrstu eldraunina
Sergej Kíríjenko, hinn ungi og óreyndi
forsætisráðherra Rússlands, virðist hafa
staðist fyrstu eldraunina með sóma og
afstýrt pólitískri og efnahagslegri upp-
lausn í landinu - í bili að minnsta kosti.
EGAR umrótið á róss-
nesku fjármálamörkuð-
unum náði hámarki fyrir
rámri viku töldu nokkur
dagblöð í Moskvu að stjórn
Sergejs Kíríjenkos forsætisráð-
herra kæmist ekki hjá því að
fella gengi rúblunnar. Gengisfell-
ing hefði leitt til verðhækkana og
skert lífskjör almennings frekar,
valdið félagslegri og pólitískri
upplausn og stefnt umbótastefnu
stjórnarinnar í mikla hættu.
Nú er hins vegar ljóst að
hrakspár blaðanna rætast ekki
að þessu sinni því stjórninni hef-
ur tekist að verja
rúbluna, í bili
minnsta kosti. Þótt því
fari fjarri að stjórnin
hafi unnið fullnaðar-
sigur í baráttunni við
efnahagsvandann eru flestir
sammála um að Kíríjenko hafi
eflst við eldskírnina, öðlast meiri
virðingu og standi sterkari að
vígi en áður. Það ætti að koma
honum til góða þegar næsta
kreppa skellur á.
Hylltur erlendis
Kíríjenko lét ekki vandamálin
heima fyrir aftra sér frá því að
fara til Frakklands á miðvikudag
og Lionel Jospin forsætisráð-
herra hyllti hann þar sem hold-
tekju nýs og kröftugs Rússlands.
„Hann hefur komið mönnum
nokkuð vel fyrir sjónir. Hann
hefur verið kraftmikill og virðist
mun sjálfsöruggari en fyrir
nokkrum vikum,“ sagði Dmítrí
Trenín, fréttaskýrandi í Moskvu.
„Hann er enn pólitískur léttvigt-
armaður, sem hefur engan flokk
eða samtök á bak við sig, og reið-
ir sig aðeins á stuðning Borís
Jeltsíns forseta. En vinni hann
sig út úr þessari kreppu, sem
virðist líklegt, verður hann í
betri aðstöðu til að standa af sér
næstu storma.“
Jospin er ekki eini vestræni
leiðtoginn sem hefur mært Kíríj-
enko. Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, kvaðst bera fullt traust
til forsætisráðherrans og fór lof-
samlegum orðum um „trausta
stefnu“ hans í fjármál-
Helmut Kohl,
kanslari Þýskalands,
sendi svipuð skilaboð,
en Þjóðverjar eru
helstu lánardrottnar
og fjárfestar Rússa í Evrópu.
Almenningur sáttur
við forsætisráðherrann
Franujanga Kíríjenkos hefur
jafnvel mælst vel fyrir meðal al-
mennings í Rússlandi. Ef marka
má viðhorfskönnun, sem frétta-
stofan Interfax birti á miðviku-
dag, var rúmur helmingur Rússa
ánægður með nýleg sjónvarpsá-
vörp hans um efnahagsvandann
og þykir það góð útkoma þar
sem stjórnmálamenn hafa verið í
litlum metum þar í landi.
Kíríjenko er 35 ára íyrrver-
andi bankastjóri og orkumála-
ráðherra og hafði aðeins gegnt
ráðherraembættinu í nokkra
mánuði þegar Jeltsín tilnefndi
hann forsætisráðherra og fól
honum hið vandasama verkefni
að rétta efnahaginn við. Tilnefn-
ingin mæltist illa fyrir í
Dúmunni, neðri deild þingsins,
og hún var ekki samþykkt fyrr
en við þriðju atkvæðagreiðslu
eftir að Jeltsín hafði hótað að
rjúfa þing og boða til kosninga.
Kíríjenko þótti of ungur og
reynslulítill til að geta farið iyrir
stjórninni og tekist á við efna-
hagsvandann.
Kíríjenko hefur nú gegnt emb-
ættinu í hálfan annan mánuð og
sýnt hvað í honum býr. Honum
hefur tekist að binda enda á
verkfall námamanna, sem ollu
miklu uppnámi með því að
hindra lestasamgöngur í Síberíu,
og gert ráðstafanir til að auka
traust fjárfesta á efnahag Rúss-
lands.
Fjármagnsflóttinn
stöðvaður
í fyrstu röktu rússnesk stjóm-
völd umrótið á fjármálamörkuð-
unum einkum til fjármálakrepp-
unnar í Asíu, lægra olíuverðs og
spákaupmennsku erlendra gjald-
eyrisbraskara. Jeltsín viður-
kenndi þó á fóstudag
að þetta væri aðeins
hluti skýringarinnar
því umrótið hefði
einnig átt rætur að
rekja til fjölmargra
vandamála heima fyrir, sem
stjóm Viktors Tsjemomyrdíns,
forvera Kíríjenkos, tókst ekki að
leysa.
Þessi vandamál urðu til þess
að erlendum fjárfestum leist ekki
á blikuna og þeir lögðu á flótta
með fjármagnið, enda höfðu
margir þeirra tapað miklu fé
vegna kreppunnar í Asíu. Afleið-
ingin var sú að gengi rússneskra
verðbréfa snarlækkaði, vextir
ríkis\úxla hækkuðu og gengis-
lækkun rúblunnar vofði yfir.
Fjárfestamir höfðu einkum
áhyggjur af mikilli skuldasöfnun
Rússa erlendis, gífurlegum fjár-
lagahalla, einkum vegna lélegrar
skattheimtu og lægra olíuverðs,
og ólgu á vinnumarkaðnum
vegna ógreiddra launa.
Skuldimar hlóðust upp
og ríkið varð að selja
víxla til að greiða vexti
af eldri líkisvíxlum.
Stjórn Kíríjenkos
brást skjótt við, boðaði
strangt aðhald í ríkis-
fjármálum og kvaðst
ætla að minnka útgjöld
ríkisins um 12%.
Seðlabankinn þrefald-
aði vexti sína, hækkaði
þá í 150%, og stjómin
hamraði á því að geng-
isfelling rúblunnar
kæmi ekki til greina.
Jeltsín lýsti því yfir að
Rússar hefðu næga
varasjóði til að verja
rúbluna. Yfirmaður
skattheimtunnar var
rekinn og stjómin lof-
aði að grípa til harðra
aðgerða gegn
skattsvikumm til að
minnka fjárlagahall-
ann.
Þessar ráðstafanir
og vísbendingar um að
alþjóðlegar lánastofn-
anir væra tilbúnar að
koma Rússum til
hjálpar ef þörf krefði
urðu til þess að gengi verðbréf-
anna tók að hækka aftur og vext-
ir ríkisvíxla lækkuðu.
„Til marks um mikið
hugrekki“
„Aðgei'ðir stjómvalda era
vissulega til marks um mikið
hugrekki og þau hafa sannfært
fjárfesta um að fastgengisstefnan
sé einn af hornsteinum allrar
efnahagsstefnunnar," sagði
Lauretta Gell, starfskona evr-
ópska verðbréfaíyrirtækisins
MCM.
Hún bætti þó við að fjárfestar
teldu þörf á „allróttækum að-
gerðum“ á næstunni til að leysa
fjárhagsvandann og biðu eftir
frekari staðfestingu á því að um-
bótum og einkavæðingu yrði
haldið áfram.
Gell sagði að biðlund fjárfest-
anna gæti brostið ef Rússar
fengju ekki lán frá alþjóðlegum
lánastofnunum og ef stjómin
stendur ekki við loforðin um
sparnaðaraðgerðir. Aðrir óttast
að fleiri lán verði aðeins til þess
að auka enn vanda ríkissjóðsins.
Jeltsín lætur að sér kveða
Rod Pounsett, greinahöfundur
Russia Today, segir að umrótið á
mörkuðunum hafi verið mjög
lærdómsríkt fyrir ráðamennina í
Moskvu. Þeir hafi loksins áttað
sig á því að þeir geti ekki fram-
fylgt efnahagsstefnu sinni án
þess að gera sér fyrst grein fyrir
hugsanlegum viðbrögðum alþjóð-
lega fjármagnsmarkaðarins.
Pounsett hefur eftir Constant-
in Vojtsekhovítsj, fréttafulltrúa
Kíríjenkos, að stjórnin þurfi að
leggja meiri áherslu á
að bæta almanna-
tengslin og ímynd sína
meðal erlendra fjár-
festa. Ráðamennimir
hafi hingað til látið hjá
líða að senda markaðnum jákvæð
skilaboð og það hafi torveldað
þeim að takast á við vandamálin.
Þessu sé Kíríjenko staðráðinn í
að breyta.
Jeltsín forseti virðist einnig
hafa áttað sig á þessu og hefur
ekki legið á liði sínu að undan-
förnu. Þegar Tsjernomyrdín var
forsætisráðherra átti forsetinn
það oft til að halda sig til hlés
þegar stormarnir geisuðu og láta
aðra um að taka á sig sökina.
Ábyrgðinni var velt yfir á stjórn-
ina og hún síðan rekin. Forsetinn
hefur hins vegar tekið virkari
þátt í aðgerðum stjórnar Karíjen-
kos vegna fjármálaumrótsins og
notað hvert tækifæri til að styðja
hana.
að Stjórnin hefur um.
ekki unnið
fulian sigur
Fjárfestum
leist ekki á
blikuna
Reuters
Austurrísk-
ur skopbjór
AUSTURRÍSK námsmær held-
ur á lofti bjórflöskum með
skopmyndum af Gerhard
Schröder, kanzlaraefni þýzka
Jafnaðarmannaflokksins (SPD),
og Oskar Lafontaine, formanni
SPD. Sigl-ölgerðin í Salzburg
hefur tekið upp á því að merkja
bjórflöskur úr sinni framleiðslu
með slíkum skopmyndum í til-
efni komandi þingkosninga í
Þýzkalandi. A hverri flösku í 6
flaskna kippu er mynd af einum
þeirra stjórnmálamanna, sem
mest ber á í kosningabarátt-
unni. Á hverjum miða stendur
kjörorðið „Kjósið að minnsta
kosti rétta flösku“, en á þýzku
getur „flaska“ líka haft merk-
inguna „bjáni“.
------♦ ♦♦-----
Atvinnu-
leysi eykst
íJapan
Tokyo. Reuters.
ATVINNULEYSI í Japan jókst
enn í aprílmánuði og er nú 4.1%, en
svo hátt hefur hlutfall atvinnulausra
ekki verið síðan mælingar hófust
árið 1953. Fjöldi atvinnulausra er
talinn enn ein vísbendingin um
slæma stöðu efnahagsmála í Japan
en japanska ríkisstjórnin lofaði að
bregðast skjótt við. Á fjármála-
mörkuðum túlkuðu menn tölurnar
hins vegar sem sönnun þess að
efnahagur Japana væri alls ekki á
uppleið.
Þriðja mánuðinn í röð jókst at-
vinnuleysi í Japan og hafa menn af
því miklar áhyggjur. Þetta er í
fyrsta skipti sem hlutfall atvinnu-
lausra í Japan fer yfir 4% og vöraðu
hagfræðingar við því að ástandið
ætti enn eftir að versna og að þess
væri ekki langt að bíða að hlutfall
atvinnulausra Japana yrði hærra en
í Bandaríkjunum. Þar er hlutfall at-
vinnulausra 4,3% en sérfræðingar
benda á að hlutfallstalan í Japan
mælist yfirleitt lægri en veruleildnn
gefi tilefni til.
Áhrif á neyslu
Shimpei Nukaya, sérfræðingur í
gerð efnahagsáætlana, sagði að
mikilvægt væri að tekin yrðu skref
til að lækka atvinnuleysistölur því
ella færa þær að hafa áhrif á neyslu,
þvert á vilja stjórnvalda. Ryutaro
Hashimoto, forsætisráðherra
Japans, hyggst endui-vekja sérstaka
atvinnumálanefnd sem í sitja ráð-
herrar úr ríkisstjórn hans og telja
fréttaskýrendur að nefndin muni
hafa næg tilefni til svartsýni er hún
kemur saman í fyrsta sldpti síðan í
febrúar 1998.
Fjármálamarkaðir leiða jafnan
hjá sér tölur um hlutfall atvinnu-
leysis en að þessu sinni ollu fréttir
af auknu atvinnuleysi þvi að lang-
tímavextir lækkuðu mjög, verð á
hlutabréfum lækkaði einnig um 1%
á mörkuðum í Tókýó og jenið var
áfram afar veikt gagnvart dollaran-
um.