Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 21
um í samkeppni við úlönd og verð-
um að búa fólki þau skilyrði að það
vilji starfa hér. Það getum við gert
með því að leggja mikla áherslu á
menntun barnanna, styrkja at-
vinnulífið og ekki síst menningar-
lífið.“
Inga Jóna segir að fólk gerir
aðrar kröfur til lífsins gæða nú en
fyrir nokkram áram. „Höfuðborg-
in þarf að bregðast við og sinna lífi
borgarbúa. Við þurfum að huga að
því hvar fólk geti byggt sér hús,
hvernig umhverfi borgarbúa er og
hve mikla möguleika fólk eigi til að
njóta útivistar.“
Reykjavíkurlistinn hefur ekki
framtíðarsýn, að mati hennar.
„Sjálfstæðismenn stjórnuðu af
framsýni og athafnagleði, en það
gerir R-listinn ekki. Ríkisstjórnin,
undir forystu sjálfstæðismanna,
hefur nú skapað afar góð skilyrði
og sveitarstjórnir verða að nýta
sér það og fylgjast með tímanum.
Auðvitað verðum við að sinna dag-
legum framkvæmdamálum, hvar
eigi að malbika og hvar leikskólar
eigi að rísa, en við verðum líka að
geta horft lengra fram á veg. Ef
framsýni sjálfstæðismanna hefði
ekki ráðið ríkjum í höfuðborginni
árum saman hefði hún aldrei haft
jafn sterka stöðu og raun ber vitni.
Það hefur verið eftirsóknarvert að
búa hér, ungt fólk hefur farið til
útlanda í nám en skilað sér heim
aftur, í lifandi og fallega borg.“
Forystu Reykjavíkur
glutrað niður
sjálfstæðismenn fylgja eftir hug-
myndum sínum um að tengja
efstu bekki grunnskólans við at-
vinnulífið og taka tillit til fjöl-
breyttra þarfa nemenda. „Verk-
efnin eru ótal mörg, en ég er
sannfærð um að ef við sköpum
borgarbúum góðar aðstæður þá
leysist sköpunarkraftur þeirra
sjálfra úr læðingi. Fólki þarf að
líða vel í borginni, það verður að
geta treyst því að börnin njóti
góðrar menntunar og að borgin
okkar sé örugg og að vel sé búið
að öldruðum og þeim sem höllum
fæti standa."
Höfuðborgarbarnið
frá Akranesi
Inga Jóna fæddist á Akranesi
fyrir 46 áram. Faðir hennar, Þórð-
ur Guðjónsson, er Skagamaður, en
móðir hennar, Marselía S. Guð-
jónsdóttir, er frá Olafsfirði og þar
var Inga Jóna oft í bernsku. „Ég
hef sterkar taugar til Akraness og
einnig norður. Þrátt fyrir að ég sé
ekki fædd í Reykjavík þá lít ég á
mig sem höfuðborgarbarn. Ég á
það sameiginlegt með flestum
landsmönnum að hafa mikinn
metnað fyrir hönd höfuðborgar
landsins. Þennan hug landsmanna
til borgarinnar fann ég vel þegar
ég var framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins og ferðaðist víða
um land á ári hverju til skrafs og
ráðagerða. Þess vegna er ég mjög
ósátt við umræðu um togstreitu
milli landsbyggðar og borgarinn-
ar.“
Inga Jóna segir að togstreita
milli landsbyggðar og þéttbýlis
eigi að vera liðin tíð. „Við eigum að
hugsa um landið í heild, hvort það
heldur sterkri stöðu sinni. Þar hef-
ur Reykjavíkurborg verið í for-
ystu, en núverandi meirihluti hef-
ur verið að glutra
þeirri forystu
niður. Metnaðar-
leysið fyrir hönd
höfuðborgar
landsmanna er
algert. Það er til
dæmis algengt
viðkvæði meiri-
hlutans að
Reykjavík eigi
ekki að gera
meira en önnur
sveitarfélög,
borginni beri
engin skylda til
þess, sem er
rangt. Þetta
kemur meðal
annars fram í
menningarmál-
um, þar sem
vinstri menn
hafa þó löngum
þóst hafa for-
ystu, mikið talað
en lítið gert. Eitt gleggsta merki
þessa var þegar vinstri menn vora
við stjórnvölinn 1978-1982. Það
kjörtímabil stóð grannur Borgar-
leikhússins óhreyfður. Og núver-
andi borgarstjóri velti því fyrir sér
af hverju í ósköpunum Reykjavík
ætti að styðja rekstur leikhúss,
það gerðu önnur sveitarfélög ekki.
Ég er hins vegar ófeimin að
horfast í augu við að höfuðborg
hefur allt öðrum og meiri skyldum
að gegna en önnur sveitarfélög.
Metnaðarleysi núverandi meiri-
hluta er mikið hættumerki.“
En kjósendur eiga ef til vill auð-
veldara með að átta sig á baráttu-
málum líðandi stundar en hug-
myndum um framtíðarþróun?
„Það má vel vera, en þá verðum
við bara að standa okkur betur í
því að koma þessu til skila til kjós-
enda. Stjórnmálamenn verða að
hafa framtíðarsýn. Þeir mega ekki
einblína á dægurmálin og hvaða
málefni séu líklegust til vinsælda
hjá kjósendum hverju sinni.“
Inga Jóna hefur margar hug-
myndir um að hvaða málum eigi
að vinna til að leggja grunn að
framtíð höfuðborgarinnar. Hún
segir að núverandi meirihluti hafi
ekki hugað mikið að atvinnulífinu
í borginni og engin sérstök svæði
verið skipulögð undir fyrirtæki.
Þessu þurfi að breyta. Þá vilji
Metnaðarleysið fyrir
hönd höfuðborgar
landsmanna er al-
gert. Það er til dæm-
is algengt viðkvæði
meirihlutans að
Reykjavík eigi ekki
að gera meira en
önnur sveitarfélög,
borginni beri engin
skylda til þess. Þetta
er rangt, en kemur
meðal annars fram í
menningarmálum,
þar sem vinstri menn
hafa þó löngum þóst
hafa forystu
Hún hefur bæði kynnst lands-
málapólitíkinni og sveitarstjórnar-
málum og segir hvort tveggja hafa
verið ánægjulegt og lærdómsríkt.
„Sveitarstjórnai-málin hafa það
fram yfir landsmálin að þau eru
unnin í svo mikilli nálægð við fólk.
Það skiptir mig
miklu máli að
vera í góðum
tengslum við fólk
og þær aðstæður
sem það býr við.
Þetta segi ég
ekki eingöngu
sem stjómmála-
maður, þótt þetta
sé vissulega
ómetanlegt í
starfinu, heldur
hef ég alltaf
nærst á miklum
mannlegum sam-
skiptum."
Hún segist
eiga erfitt með
að lýsa sjálfri
sér. „Ég hef
heyrt sagt að ég
sé hörð, en ég
kannast ekki við
það í sjálfri mér.
Reyndar finnst
mér ég afskaplega mjúk. Ég er í
vogarmerkinu, en geri nú ekki
mikið úr þeirri speki, þótt ég lesi
stjörnuspána af og til mér til gam-
ans. Ég er eflaust fylgin mér og
mínum skoðunum. Líkast til er það
bæði í eðli mínu og uppeldi. Mikið
keppnisskap er mér meðfætt og ég
hef barist fyrir ýmsum málefnum.
Ég var til dæmis baráttumann-
eskja fyrir kvenréttindum sem for-
maður Kvenréttindafélags íslands
í þrjú ár. Kvenréttindi eru auðvit-
að mannréttindi og sem formaður
Kvenréttindafélagsins átti ég hlut
að stofnun Mannréttindaskrifstofu
íslands.“
Inga Jóna er líka alin upp við
ást á ljóðum og tónlist. Hún segir
sér mjög mikilvægt að geta verið
úti í náttúrunni og sjálf hafi hún
alið börn sín upp við það. Frí-
stundirnar eru fjölbreytilegar, hún
fer reglulega á völlinn og stundar
leikhús.
Hún segist vera lánsöm í lífinu.
„Ég á mjög trausta fjölskyldu og
góða vini sem staðið hafa með mér
í gegnum þykkt og þunnt. Ég er
mikil fjölskyldumanneskja. Við
Geir leggjum okkur fram um að
nýta tíma okkar með fjölskyldunni
vel, því hann er svo dýrmætur,"
segir Inga Jóna Þórðardóttir, odd-
viti borgarstjórnarflokks Sjálf-
stæðisflokksins.
FRÉTTIR
DÓMARAR rýna í frímerkjasöfn á sýningunni Frímerki 98. Morgunblaðið/Halldor
Bílafrí-
merki og
ferðir páfa
Á SÝNINGUNNI Frímerki 98
sem Landssamband íslenskra frí-
merkjasafnara stendur fyrir
kennir ýmissa grasa og er þar að
finna mörg forvitnileg frímerkja-
söfn. Bæði er um að ræða þekkt
islensk frímerkjasöfn og söfn
sem hafa ákveðið þema, t.a.m.
bflafrfmerki eða ferðir páfa um
heimsbyggðina.
Sýninguna, sem haldin er í til-
efni 30 ára afmælis LIF, er að
finna í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju. Hún hófst síðastliðinn
fimmtudag og lýkur í dag,
sunnudag.
---------------
Tveir harðir
árekstrar í
Borgarfírði
TVEIR harðir árekstrar urðu í
Borgarfirði á föstudag. Flutninga-
bifreið ók á fólksbíl skammt fyi'ir
neðan Kolás í Borgarfirði á föstu-
dagskvöld. Stúlka sem var farþegi í
fólksbílnum var flutt á sjúkrahús á
Akranesi en að sögn læknis þar var
ekki um alvarlega áverka að ræða.
Flutningabíllinn var að aka fram
úr nokkrum bílum sem voru að
hægja á sér þegar fremsti bíllinn
beygði út á afleggjara að sumarbú-
staðahverfi. Lenti flutningabíllinn á
bílnum sem kastaðist út af veginum.
Aftanákeyrsla vegna
kinda á þjóðveginum
Þá var tvennt flutt á heilsugæslu-
stöðina í Borgamesi eftir aftaná-
keyrslu á þjóðvegi 1 í Norðurárdal í
Borgarfirði á fóstudag. Má rekja or-
sök slyssins til kinda sem voru á
veginum þegar þrjá bíla bar að.
Fremsta bílnum tókst að sveigja hjá
kindunum, en annar bíllinn snögg-
hemlaði og lenti þá þriðji bíllinn aft-
an á honum. Skemmdust báðir bíl-
arnir mikið við áreksturinn.
Dráttarbeisli
Eigum fyrirliggjandi á lager dráttarbeisli frá Bosal
á flestar gerðir bifreiða. Vönduð vara á góðu verði.
ALVÍB er eini lífeyrissjóðurinn
sem flytur þér þessar fréttir!
Þrjú verðbréfasöfn
sem taka mið af aldri
sjóðfélaga
^ ^
Ævisafn I Ævisafn II Ævisafn III
(16-44 ára) (45-64 ára) (65 ára og eldri)
Hlutabréf 35% 25% 15%
Skuldabréf 65% 75% 85%
Heimsæktu okkur eða hringdu í dag
og fáðu frekari upplýsingar um hvernig
þú getur sniðið ávöxtunina að þínum óskum
- sem félagi í ALVÍB.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 89 00
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is