Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 22
22 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Frumleiki og hljómfegurð
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju
og Hörður Askelsson organisti eru á
tónleikaferðalagi til Norðurlanda og
Eistlands. Á efnisskránni eru m.a.
verk eftir Jón Nordal, Jón Leifs,
Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson og Jónas Tómasson.
Hörður Áskelsson lék á nýtt orgel
dómkirkjunnar í Bergen á einleiks-
tónleikum á Listahátíð í Bergen. Þar
lék hann m.a. verk eftir Þorkel Sig-
urbjömsson, Jón Nordal og Jónas
Tómasson og vöktu tónleikamir
mikla athygli. Mótettukórinn hefur
þegar haldið fimm tónleika. Þeir
fyrrstu vom hluti af listahátíðinni í
Bergen 30. maí. Kórinn söng einnig í
dómkirkjunni í Ósló 1. júní og fékk
þar góðar viðtökur.
Á miðvikudag söng kórinn í Egel-
brektskirkjunni í Stokkhólmi og í
Uppsaladómkirkju á fimmtudag.
Kórinn söng í Klettakirkjunni í
Helsingfors 6. júní og síðustu tón-
leikar verða í Tallinn 8. júní í tilefni
opinberrar heimsóknar forseta ís-
lands til Eistlands.
Gagnrýnendur hrifnir
Vel hefur verið skrifað um kórinn,
stjórnandann og íslensku tónskáld-
in. Bergens Tidende hefur lítið ann-
að en gott að segja um stjómandann
Hörð Askelsson og sérstakt lof hlýt-
ur Jón Nordal fyrir verk sín. Tón-
listargagnrýnandinn Espen Selvik
segir að hápunktur tónleika
Mótettukórsins hafí verið tónverkið
Óttusöngur að vori eftir Jón Nordal
og lofar söngvarana Þóm Einars-
dóttur og David Clegg. Hann segir
líka að tónlist þeirra Þorkels Sigur-
bjömssonar, Jónasar Tómassonar
og Jóns Nordals hafi verið spenn-
andi og höfðað til hlustenda, boðið
hafi verið í senn upp á frumleik og
hljómfegurð. Verk Hjálmars H.
Ragnarssonar, Te Deum for a capp-
ella kor, þykir gagnrýnandanum
hófsamt en um leið nútímalegt og
lifandi.
Morgunblaðið/Jim
ÞEIR voru hýrir á svip ungu sveinarnir í Drengjakór Laugarnes-
kirkju, þegar ljósmyndari smellti af þeim mynd á æfingu.
Ellefu hlutu
heiðursstyrki
SPRON
HEIÐURSSTYRKIR Menningar- og styrktar-
sjóðs SPRON vora afhentir við hátíðlega athöfn í
Borgarleikhúsinu í gær, laugardaginn 6. júní. 11
einstaklingar og hópar hlutu styrld, alls að upphæð
sex milljónir króna. Styrkþegar em: Heiðursstyrk-
ir að upphæð kr. 1.000.000: Caput-hópurinn fyrir
framúrskarandi vandaðan hljóðfæraleik og frum-
kvæði í flutningi nýrrar tónlistar og Ferðafélag ís-
lands fyrir 70 ára farsælt starf að ferðamálum í
landinu. Styrkurinn er veittur með hliðsjón að sam-
starfssamingi Ferðafélags íslands og SPRON.
Heiðurstyrkir að upphæð kr. 500.000: Sigrún
Hjálmtýsdóttir, söngkona, fyrir glæsilegan söng á
íslensku ópemsviði og lifandi túlkun í smærri sem
stærri verkum; Bókaútgáfan Bjartur fyrir ein-
stakt hugmyndaríki á sviði bókaútgáfu og kynn-
ingu á hvers konar nýsköpun í bókmenntum;
Kammersveit Reykjavíkur fyrir vandaðan list-
flutning og áratuga starf við uppbyggingu tónlist-
arlífs í Reykjavík og Sumartónleikar í Skálholti
fyrir að kynna landsmönnum hið breiða svið
kirkjutónlistar með öflugu tónleikahaldi og örva
um leið íslensk tónskáld til afreka á því sviði.
Heiðursstyrkir að upphæð kr. 400.000: Islenska
óperan, myndlistarkonan Rúrí, Bergljót Arnalds,
rithöfundur og leikkona, Kristín Jóhannesdóttir,
leikstjóri og Samtökin Gróður fyrir fólk í land-
námi Ingólfs fyrir markvisst og öflugt starf að
gróðurvemd á höfuðborgarsvæðinu.
Fer með aðalhlutverk
í óperu eftir Britten
ÍSLENSK sópransöngkona, Guð-
rún Jóhanna Jónsdóttir, búsett í
Lundúnum, fer um þessar mundir
með aðalkvenhlutverkið í upp-
færslu Mayer-Lismann óperannar
á Turn of the Shrew eftir Benjamin
Britten og er sýningin framlag óp-
erahússins til Spitalfield Marcet
tónlistarhátíðarinnar sem nú er
haldin í leikhúsi sem stendur í
hjarta þessa gamla útimarkaðar
borgarinnar.
Guðrún Jóhanna lauk framhalds-
námi í söng frá Trinity College of
Music í Lundúnum árið 1996 og fór
með aðal sönghiutverkið í ópera-
uppfærslu skólans við brautskrán-
ingu. Frá þeim tíma hefur hún unn-
ið að því að afla sér hvers kyns
reynslu á óperasviðinu og komið víða fram auk
þess að starfa með einu af fjölmörgum litlum
óperufélögum í borginni, The Mayer-Lismann
Opera, bæði sem söngvari og sviðsstjóri í
tveimur uppfærslum þess.
Aðalkvenhlutverkið í þessari óperu Brittens
er stærsta hlutverk Guðrúnar Jóhönnu til
þessa og segir hún að í því felist mikil viður-
kenning fyrir sig. The Tum of the Shrew bygg-
ist á skáldsögu eftir Henry James
og segir frá ungri kennslukonu sem
ræður sig til kennslu tveggja bama
á sveitasetri nokkra. Látin
kennslukona og ráðsmaður staðar-
ins ganga aftur og ofsækja ungu
konuna og börnin í þessari magn-
þrangnu draugasögu sem lýkur
með harmrænum hætti. Síðasta
sýning óperannar á hátíðinni verð-
ur í dag sunnudag, 7. júní. I vik-
unni stóð til að halda námskeið um
óperauppfærslur undir stjóm
söngkonunnar, kennarans og leik-
stjórans, Jeanne Henny, í tengsl-
um við hátíðina og vora gestir þess
frá vinafélagi Covent Garden óper-
unnar.
Guðrún stefnir að því að halda
sína fyrstu einsöngstónleika hér heima að námi
loknu í ágúst nk. og lítur á það sem stórt skref
sem hún hlakkar til að takast á við. Að öðra
leyti segir hún ýmislegt í bígerð hjá sér. Henni
sé að takast að verða sér úti um umboðsmann
og þá taki væntanlega við ferðir og hæfnispróf
hjá ýmsum óperafélögum. „Oftar en ekki er
þetta spurning um heppni - og mikla þolin-
mæði!“ segir Guðrún að lokum.
Guðrún Jóhanna
Jónsdóttir
Vortónleikar
drengjakórs
Laugarnes-
kirkju
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju
heldur vortónleika í Langholts-
kirkju mánudaginn 8. júní kl. 20.
Drengjakórinn er nú að ljúka
sínu áttunda starfsári og í honum
eru 44 drengir á aldrinum 8-19
ára. Deild eldri félga hefur nú
starfað í tvo vetur og sungið með
kómum á tónleikum og við önn-
ur tækifæri.
Stjórnandi kórsins er Friðrik
S. Kristinsson. Undirleikari er
Peter Máté. Ennfremur hefur
Björk Jónsdóttir, söngkona, að-
stoðað við raddþjálfun undan-
farna vetur.
Drengjakórinn er á förum í
söngferðalag til Englands í þess-
um mánuði. Þar munu þeir heim-
sækja félaga sína úr drengjakór
Crosfield-skólans í Reading, en
þeir voru gestir drengjakórsins á
síðasta ári og héldu nokkra tón-
leika hér á landi. Ennfremur
halda þessir þrír drengjakórar
sameiginlega tónleika í St. Mich-
ael’s Comhill Church í City of
London 23. júní.
Lancer 75 hestöfl •öryggispúðar fyrír ökumann og farþega •Fjarstýrðar
samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvíndur með slysavörn •Rafhitun í
framsætum •Rafstýrðir upphitaðir útispeglar •Vindskeið o.m.fl.
MITSUBJSHILANCER kostarfrakr.
1.350.000
HEKLA