Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 30
30 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
i
i
?
I
f
1
}
I
•*.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kemur
saman á aukafundi í New York dagana
8.-10. júní. Eina viðfangsefnið verður að
ræða baráttuna gegn ólöglegri framleiðslu,
sölu, dreifíngu og neyslu á fikniefnum.
Sameinuðu þjóðirnar ætla að leggjast á eitt
í baráttunni og fulltrúar 185 landa munu
vonandi sameinast um yfírlýsingu, sem
markar upphaf átaksins. Ragnhildur
Sverrisdóttir kynnti sér forsendur „fíkni-
efnafundar“ Sameinuðu þjóðanna, sem
verður að líkindum öflugasta samkoma sem
haldin hefur verið um fíkniefnavandann.
- J I ' >V. | * /f ' ' ■ * f
mi %
FÁTÆKIR bændur afla sér og sínum lífsviðurværis með ræktun ópíumvalmúa. Sameinuðu þjóðirnar ætla að
leggja mikla áherslu á að bjóða þeim aðra kosti.
RÁTT FYRIR að fíkni-
efnafundur Sameinuðu
þjóðanna hefjist ekki fyrr
en á morgun, mánudag,
liggur þegar fyrir hver verða helstu
áhersluefnin, enda hefur undirbún-
ingur fundarins staðið lengi. Þjóð-
arleiðtogamir ætla að sameinast
um áætlun til að ná tökum á fíkni-
efnavandanum, hvernig draga eigi
úr eftirspum og hvemig eigi að
draga úr og að lokum útrýma ólög-
legri ræktun ópíumvalmúans, kóka-
jurtarinnar og annarra fíkniefna,
sem ræktuð em úti í náttúranni. Sú
útrýming á að nást árið 2008.
Þjóðarleiðtogarnir ætla einnig að
leita lausna til að ráðast gegn verk-
smiðjuframleiddum fíkniefnum,
eins og amfetamíni, og setja aðild-
arþjóðunum ákveðinn frest til að
bæta löggjöf sína, með það að
markmiði að vinna gegn peninga-
þvætti, sem er fylgifiskur fíkniefna-
sölu, tryggja framsal fíkniefnasala
írá einu landi til annars og bæta
upplýsingagjöf landa á milli um
samtök fíkniefnasala.
Sameinuðu þjóðimar hafa greini-
lega tekið þann pól í hæðina að eng-
inn árangur náist nema markið sé
sett nógu hátt. Leiðtogar öflugustu
ríkja vestrænna koma til fundarins,
þ.á m. Bandaríkjanna, Frakklands,
Italíu, Spánar, Bretlands og
Kanada, en þangað koma líka full-
trúar þeirra landa sem mestur
straumur fíkniefna kemur frá, s.s.
Kólumbíu, Mexíkó, Bólivíu og Perú.
, Sameinuðu þjóðimar telja, að þeg-
ar svo margir þjóðarleiðtogar leggi
hönd á plóg sem raun ber vitni
skapist raunveralegur grandvöllur
til að berjast gegn þessum vágesti á
alþjóðavísu.
En hvers vegna taka Sameinuðu
þjóðimar við sér núna? Vissulega
hafa þær áður samþykkt ýmsar að-
gerðir til að spoma við dreifingu og
neyslu fíkniefna, síðast 1988, en ár-
angurinn hefur látið á sér standa
vegna togstreitu aðildarþjóðanna.
„Framleiðsluþjóðirnar“ hafa átt
undir högg að sækja innan samtak-
anna, því sumir hafa viljað varpa
allri ábyrgðinni á alþjóðlegum
fíkniefnavanda á þær. Þær hafa
hins vegar vísað á „neysluþjóðirn-
ar“ og sagt að ef engin væri eftir-
spumin myndi framleiðsla fátækra
þjóða sjálfkrafa leggjast af.
Heimurinn verður sífellt minni
og mörkin milli norðurs og suðurs,
austurs og vesturs, era að hverfa.
Eina skynsamlega leiðin til að berj-
ast gegn fíkniefnunum er því sú
sem Sameinuðu þjóðimar hafa
ákveðið að fara, að berjast saman
gegn framleiðslu og neyslu um all-
an heim.
Sameinuðu þjóðimar hafa líka
lýst því yfir að ekki dragi aukin
tækni úr þeim kjarkinn. Þrátt fyrir
að stundum sé haft á orði að glæpa-
menn hafi einstakt lag á að vera
ávallt skrefi á undan yfirvöldum í
tæknimálum, þá mega þeir sín von-
andi lítils gegn gervihnattaeftirliti
og alþjóðlegu upplýsingaflæði, sem
Sameinuðu þjóðimar ætla sér
óspart að beita. Upplýsingar frá
gervihnöttum munu t.d. gera kleift
að bregðast við hart, sé ræktun óp-
íumvalmúa eða kókajurtar hafin á
nýju svæði.
Rísavaxinn markaður
„Fíkniefnamarkaðurinn veltir
um 400 milljörðum Bandaríkjadala
á ári og er því stærri en markaður
með olíu og gas, stærri en efna- og
lyfjamarkaðurinn og veltan er
tvisvar sinnum meiri en í allri bíla-
framleiðslu heimsins," sagði Kofi
Annan, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna í erindi sem hann hélt þegar
honum var veitt heiðursdoktors-
nafnbót við háskólann í Kingston á
Jamaica í apríl sl. Hann benti á, að
ekkert land væri laust við ólögleg
fíkniefni. „Verkefni þjóðarleiðtoga,
sem hittast á aukafundi allsherjar-
þingsins, er risavaxið og það snertir
framtíð ungs fólks um allan heim.
Við getum ekki vikist undan því.“
Talan sem aðalritarinn nefndi er
svo stjamfræðileg að það er erfitt
að átta sig á henni. 400 milljarðar
Bandaríkjadala era 28,8 billjarðar,
eða 28.800 milljarðar króna.
Kofi Annan ritaði einnig formála
að skýrslu Sameinuðu þjóðanna um
ástand fíkniefnamála í heiminum,
en hún kom út á síðasta ári. Þar
sagði aðalritarinn, að þrátt fyrir að
neysla fíkniefna hafi fylgt mann-
kyninu í aldir, þá hafi fíknin breiðst
svo út um heiminn síðastliðna fimm
áratugi að bregðast yrði hart við á
alþjóðavísu. „Sameinuðu þjóðunum
er skylt að eiga framkvæði að því
að vekja almenning til vitundar um
fíkniefnavandann, sem lætur að sér
kveða hjá öllum þjóðfélagshópum
allra þjóða,“ sagði aðalritarinn.
700 þúsund fjölskyldur rækta
kókajurt og valmúa
Samkvæmt upplýsingum Sam-
einuðu þjóðanna er áætlað að um
fjórar milljónir manna hafi lífsvið-
urværi af ræktun kókajurtarinnar
og ópíumvalmúa, eða um 700 þús-
und fjölskyldur í Asíu og Suður-
Ameríku. Þetta era fátækir bænd-
ur, sem verða að treysta á þessa
framleiðslu til að sjá sér og sínum
farborða.
Pino Arlacchi, forstöðumaður
þeirrar stofnunar Sameinuðu þjóð-
anna sem hefur fíkniefnamál á sinni
könnu, United Nations
International Drag Control
Programme (UNDCP), hefur lagt á
það áherslu að gefa verði þessum
bændum í Asíu og Suður-Ámeríku
færi á að hætta ræktun kókajurtar
og ópíumvalmúa, með því að styðja
þá til annarra verka. ÚNDCP hef-
ur sett sér það markmið að útrýma
ólöglegri ræktun á næsta áratug. „í
baráttunni gegn fíkniefnum þarf að
leggja mesta áherslu á að sannfæra
íbúa heimsins um að hægt sé að út-
rýma vandanum, í stað þess að
sætta sig við hann,“ var haft eftir
Pino Arlacchi í fréttabréfi Samein-
uðu þjóðanna í síðasta mánuði.
„Ráðstefna Allsheijarþingsins
markar upphaf stríðsins gegn fíkni-
efnum og mun sannfæra fólk um að
við getum náð marki okkar um
fíkniefnalausan heim.“
Pino Arlacchi er enginn nýliði í
baráttu gegn glæpum, því hann fór
fremstur í flokki þegar ítalska rík-
isstjómin snerist gegn skipulagðri
glæpastarfsemi þar í landi. Honum
vex ekki nýtt verkefni í augum og
hefur lýst því yfir að ræktunar-
svæði kókajurtar og ópíumvalmúa í
heiminum sé samanlagt um 4.500
ferkílómetrar, „aðeins á stærð við
hálft Puerto Rico. Það er því engin
ástæða til að ætla að ekki sé hægt
að stöðva þessa framleiðslu á ára-
tug.“
UNDCP hefur um hríð aðstoðað
þau lönd, þar sem fíkniefnafram-
leiðslan er mest, til að gefa bænd-
um þar kost á að hafa í sig og á með
öðram hætti. Það er gert með því
að styðja stjórnvöld landanna á
breiðum granni til aukinnar sjálfs-
bjargar og hagsældar, með þvi að
byggja upp menntun, heilsugæslu,
stjómkerfið sjálft, tryggja fæðu-
framboð, veita þeim lán og aðgang
að mörkuðum. Á undanfómum ald-
arfjórðungi hefur víða tekist ágæt-
lega til. Ræktun á kókajurt dróst til
dæmis saman um 95 af hundraði í
Perú og í héraði í Pakistan, þar sem
valmúarækt var landlæg, hillir nú
undir að henni verði alveg hætt.
Það sama á við um Tæland.
En góður, jafnvel frábær, árang-
ur hér og þar um heiminn hefur
ekki dregið úr framboði fíkniefn-
anna, því um leið og jurtir era rifn-
ar upp með rótum á einum stað er
plantað á öðram. Samkvæmt upp-
lýsingum UNDCP er ástæðan sú,
að fjárveitingar hafa verið tak-
markaðar og því ekki verið hægt að
hjálpa öllum mögulegum ræktend-
um og ræktunarlöndum til sjálfs-
bjargar á annan hátt. Á síðastliðn-
um tíu árum var 700 milljónum
Bandaríkjadala (um 50 milljörðum
króna) varið til þróunaraðstoðar,
sem hafði það markmið eitt að
tryggja aðra kosti en ræktun óp-
íumvalmúa og kókajurtar og dugði
skammt. Árið 1995 rann til dæmis
aðeins 1,5% af allri þróunaraðstoð
til þessa verkefnis.
Sameinuðu þjóðirnar ætla að
snúa við blaðinu og tryggja að að-
ildarríkin láti miklu meira fé af
hendi rakna til þróunarstarfs af
þessu tagi, svo hægt verði að ráðast
til atlögu á öllum ræktunarsvæðum
heimsins.
Svo er auðvitað hugsanlegt að
ræktendur vilji alls ekki láta af iðju
sinni, þrátt fyrir að annar kostur
bjóðist og skipulögð glæpasamtök
taka afskiptum vart þegjandi. Þess
vegna leggja Sameinuðu þjóðirnar
einnig mikla áherslu á herta lög-
gæslu. „Ekki verður hægt að upp-
ræta ólöglega ræktun nema með al-
þjóðlegu átaki. Ríkisstjórnir, al-
þjóðlegar stofnanir, óopinberar
stofnanir, þróunarsjóðir og fjár-
málastofnanir eiga þarna hlutverki
að gegna,“ segir í yfirlýsingu
UNDCP vegna væntanlegs fundar
Allsherjarþingsins. Þar kemur