Morgunblaðið - 02.07.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Sérblöð í dag
HM '98
á Netinu
FRÉTTIR
Sumarslátrun
sauðfjár hafín
Fyrstu
lömbunum
slátrað í
Þykkvabæ
í GÆR hófst sumarslátrun í slát-
urhúsi Þríhyrnings í Þykkvabæ,
en aldrei fyrr hefur verið byrjað
jafnsnemma á slátrun sauðfjár.
42 dilkar fóru til sölu í verslun
Nýkaups, en neytendur geta nú
fengið ferskt lambakjöt sex mán-
uði ársins.
Að sögn Torfa Jónssonar slát-
urhússtjóra Þríhyrnings hafa
bændur verið hvattir til að lengja
sláturtíðina, en Markaðsráð
kindakjöts greiðir 1.200 krónur
fyrir hvern sumarslátraðan dilk
auk þess sem sláturhúsið greiðir
364 krónur fyrir kílóið í upphafi
tímabilsins. Fara þessar tölur
lækkandi eftir því sem nær dreg-
ur haustinu, en þá fær bóndinn
241 krónu á kíióið. „Meðalvigtin í
gær var nokkuð góð, eða 12 kíló,
en þyngsti dilkurínn vó 15,6 kíló
og kom frá Sigurjóni Pálssyni í
Steinum undir Eyjafjöllum,“
sagði Torfí.
Eftirspurn vaxandi
„Við erum að selja þetta kjöt
ferskt úr lgötborðinu hjá okkur
til að byrja með, en seinna í sum-
ar verður þessi vara komin í
sjálfsafgreiðsluumbúðir. Verðið
er það sama og á eldra kjöti,
þannig að verslunin er að selja
þetta með miklu lægri álagningu.
En markmiðið er að vera með
ferska vöru eins lengi og hægt er
og nú getum við boðið neytend-
um ferskt lainbakjöt frá júlíbyij-
un fram undir jól,“ sagði Finnur
Árnason framkvæmdastjóri Ný-
kaups.
----------------------- !
Forsætisnefnd Alþingis
um endurupptöku I
Beiðni
Sverris Her-
mannssonar
hafnað
FORSÆTISNEFND Alþingis hafn- ^
aði í gær beiðni lögmanns Sverris
Hermannssonar, fyrrverandi banka-
stjóra Landsbankans, um endurupp-
töku á greinargerð Ríkisendurskoð-
unar um Landsbankamálið og að
skipaður yrði sérstakur ríkisendur-
skoðandi til að annast meðferð þess.
Forsætisnefndin samþykkti einnig á
fundi sínum í gær að ganga frá end- '
urráðningu Sigurðar Þórðarsonar í j
embætti ríkisendurskoðanda. i
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, sagði forsætisnefndina ekki
geta orðið við beiðni Sverris með til-
vísan til laga um Ríkisendurskoðun,
þar sem kveðið sé á um að sjálfstæði
sé forsenda þess hlutverks sem Rík-
isendurskoðun gegni í stjórnkerfinu.
„Þar er líka skýrt tekið fram að Rík-
isendurskoðun er engum háð í störf-
um sínum og að ríkisendurskoðandi í
njóti sjálfstæðis í starfi og sé ekki j
bundinn af fyrirmælum um einstaka
þætti. Þess vegna teljum við að það '
séu ekki forsendur fyrir þvi að for-
sætisnefnd verði við þessum tilmæl-
um,“ sagði Ólafur.
------»^4-----
Heilsugæslan í Reykjavík
Engin breyt-
ing á af- |
greiðslutíma
ÁÐUR boðuð lenging á afgreiðslu-
tíma heilsugæslustöðva í Reykjavík
var afturkölluð í gær vegna breyttra
forsendna, segir í frétt frá héraðs-
lækninum í Reykjavík.
Allar heilsugæslustöðvarnar í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi verða
opnar milli klukkan 8 og 19 alla virka |
daga nema heilsugæslustöðvarnar í j
Árbæ, Fossvogi og Hlíðasvæði sem
eru opnar til klukkan 17.
Óvíst hvort nýju sveitarstjórnarlögin hafa gengið f gildi
Hugsanleg mistök könnuð
HAFIN er athugun á því í félags-
málaráðuneytinu hvort mistök hafi
orðið við birtingu nýju sveitarstjórn-
arlaganna, sem Alþingi samþykkti
28. maí sl., og hvort ákvæði laganna
um gildistöku þeirra frá og með 1.
júní sl. standist.
Páll Sigurðsson, prófessor í lög-
fi-æði við Háskóla Islands, bendir á í
grein í Morgunblaðinu í gær að við
formlega lögtöku, eftir samþykkt
frumvarpsins á Alþingi, hafi átt sér
stað augljós og afdrifarík mistök,
sem telja verði að valdi þvi, að gildis-
taka laganna frestist um allnokkra
mánuði. Páll segir að þótt tekið sé
fram í lögunum að þau öðlist gildi 1.
júní 1998, fái sú dagsetning ekki
staðist, því að forseti Islands og fé-
lagsmálaráðherra hafi undirritað lög-
in fyrst 3. júní og þau ekki verið birt í
Stjórnartíðindum fyrr en 5. júní.
Páll bendir einnig á að skv.
ákvæðum stjórnarskrárinnar öðlist
lög fyrst gildi, eftir að forseti hefur
staðfest þau með undirritun sinni og
að stjómarskráin kveði einnig á um
að birta skuli lög, sem jafnframt sé
gildisskilyrði. Vegna þessa verði að
beita ákvæðum laga nr. 64/1943 um
birtingu laga og stjórnvaldserinda
en skv. þeim verða lög fyrst bindandi
fyrir alla „frá og með 1. degi þess
mánaðar, er liðnir eru 3 almanaks-
mánuðir hið skemmsta frá útgáfu-
degi þess blaðs Stjórnartíðinda er
fyrirmælin voru birt“. Telur Páll því
ljóst að sveitarstjórnarlögin taki
ekki gildi fyrr en 1. október nk.
Sveitarstjómir vinna
eftir nýju lögunum
Sesselja Árnadóttir, lögfræðingur
í félagsmálaráðuneytinu, segir að
þetta mál sé nú til athugunar í ráðu-
neytinu. „Staðreyndir málsins eru
þær að þessi lög voru samþykkt á
Alþingi 28. maí, á fimmtudegi. Siðan
kom hvítasunnuhelgi og 1. júní ber
upp á annan í hvítasunnu. 2. júní
bárust gögnin frá Alþingi til ráðu-
neytisins. Þau voru send samdægurs
til undirritunar forseta, sem undir-
ritaði lögin 3. júní. Þau voru svo send
Stjórnartíðindum og birtust 5. júní,“
segir hún.
„Við höfum ekki sjálfkrafa fallist á
rök Páls varðandi gildistöku laganna
en við erum að skoða þetta mál,“
sagði Sesselja. Hún kvaðst ekki geta
sagt til um hvernig brugðist yrði við.
Sesselja sagði aðspurð að sveitar-
stjórnir störfuðu nú þegar eftir nýju
lögunum í einstökum atriðum, s.s.
varðandi fundarboðanir o.fl. Hins
vegar væri ekki farið að vinna eftir
neinum stefnumarkandi atriðum lag-
anna enn sem komið væri.
Morgunblaðið/Aðalheiður
ODDUR Þorsteinsson verkstjóri í sláturhúsi Þríhyrnings kannar vænleika lamba frá Sigurði bónda Jónssyni í
Varmahlíð en hann sendi tuttugu Iömb til slátrunar í gær.
VIDSIOFn AMNNULÍF
REKSTUR
SÍF
hagnast
SÍF boðar betri
afkomu/B2
HLUTABREF
Metsölu-
dagur
Selja 1% í
íslandsbanka/BI
Monica Seles tapaði
óvænt á Wimbledon / C1
David Beckham baðst af-
sökunar við heimkomu / C4
Um 90% hjúkrunarfræðinga
tóku uppsagnir sínar aftur
UM 90% þeirra hjúkrunarfræðinga
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Land-
spítalanum sem ætluðu að hætta
störfum í fyrrinótt hafa dregið upp-
sagnir sínar til baka.
Að sögn Ernu Einarsdóttur,
hjúkrunarforstjóra Sjúkrahúss
Reykjavíkur, hafa um 30 manns af
þeim 266 hjúkrunarfræðingum sem
upprunalega sögðu upp hætt störf-
um. Erna segist gera ráð fyrir að
auglýst verði eftir nýjum starfs-
mönnum strax um helgina.
Hlutfallslega flestir hafa hætt
störfum á lyflækninga- og endur-
hæfingarsviði. Lyflækningadeild-
irnar, sem eru þrjár, missa allar
2-3 starfsmenn.
Á slysa- og bráðamóttöku hafa
sex hjúkrunarfræðingar ekki snúið
aftur til starfa, af rúmlega þrjátíu
sem þar eru að jafnaði. Guðbjörg
Pálsdóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri segir að missirinn sé sérstak-
lega slæmur vegna þess að margir
hafi einnig verið að hætta á síðustu
mánuðum, allt frá áramótum.
Flestir hafa hætt á
barnalækningasviði
Á Landspítalanum var hlutfall
þeirra hjúkrunarfræðinga sem
komu aftur til starfa hæst á lyf-
lækningasviði, eða 95%. Hlutfalls-
lega flestir hafa hætt störfum á
barnalækningasviði, eða 71%, en
yfirmenn sjúkrahússins leggja
áherslu á að ekki sé útilokað að
fleiri af hjúkrunarfræðingum þar
eigi eftir að snúa aftur. A öðrum
Hlutfall hjúkrunar- fræðinga á Landspítala sem hafa dregið tilbaka uppsagnir sinar
Lyflækningasvið 95%
Bráðamóttaka 88%
Handlækningasvið 86%
Geðsvið 81%
Kvenlækningasvið 80%
Barnalækningasvið 71%
1 l
sviðum var hlutfallið á bilinu
80-88%.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri Landspítala, segir að
brottfall hjúkrunarfræðinga hafi
verið mest á krabbameinslækn-
ingadeild, en að öðru leyti hafi
dreifingin verið tiltölulega jöfn á
deildir. „Það eru mikið til ungir
hjúkrunarfræðingar með tveggja
ára starfsreynslu eða minna sem
eru að hugsa sinn gang. Þeir hafa
litlum réttindum að tapa og geta
því tekið sér umhugsunarfrest og
skoðað stöðuna.“
I fyrrinótt var lýtalækningadeild
sjúkrahússins lokað vegna starfs-
mannaskorts og sjúklingar fluttir
annað, en gert er ráð fyrir að hún
verði opnuð aftur í dag.
Anna segir að vegna samanlagðra
áhrifa uppsagnanna og sumarleyfa
verði ekki full starfsemi á sjúkra-
húsinu en útskriftir af deildum
verði þó ekki fleiri en venjulega.