Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Háskólinn á Akureyri Steingrím- ur Jónsson prófessor í haffræði DOKTOR Steingrímur Jónsson hef- ur nýverið verið ráðinn prófessor í haffræði við Háskólann á Akureyri. Steingrímur er útibússtjóri Haf- rannsóknastofnun- ar á Akureyri og prófessor við Há- skólann á Akur- eyri. Hann lauk cand. scient.-námi í hafeðlisfræði frá Kaupmannahafnar- háskóla 1985. Lokaritgerð hans fjall- aði um strandsti-auma við strendur Jótlands. Hann lauk doktorsprófi í hafeðlisfræði 1990 við Háskólann í Björgvin. Doktorsritgerðin fjallaði um gerð og drifkrafta hringrásar í norðurhöfum, bæði á stórkvarða og millikvarða, með sérstöku tilliti til hringrásar í Framsundi, milli Sval- barða og Grænlands. Að loknu námi starfaði hann við Hafrannsókna- stofnun í Reykjavík um eins árs skeið á vegum Vísindaráðs. í mars 1991 var útbú Hafrann- sóknastofnunar á Akureyri formlega opnað og tók Steingi'ímur þá við úti- bússtjórastarfinu, en því fylgdi einnig starfsskylda við Háskólann á Akureyri. Steingrímur stjórnaði þverfaglegum vistfræðirannsóknum í Eyjafírði sem voru samstarfsverk- efni Hafrannsóknastofnunar, Há- skólans á Akureyri og Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins. Skólaárið 1996-1997 dvaldi Steingrímur við Ai- fred Wegener Institut fúr Polar und Meeresforschung í Bremerhaven við rannsóknir á Austur-Grænlands- straumi. Hann hefur gert grein fyrir rannsóknum sínum í ýmsum erlend- um vísindatímaritum. Steingrímur er kvæntur Ásrúnu K. Sigurðardóttur, lektor í hjúkrun- arfræði, og eiga þau tvö böm. Uppmæl- ingataxtar sprengdir ÞAÐ hefur verið mikið um að vera á Borgarvelli, gæsluvelli við Sunnuhlíð á Akureyri síðustu vik- ur. Þar hafa börn á aldrinum 4 til 10 ára hannað og smíðað hús af mikilum krafti og hefur aðsóknin verið mjög góð. „Hér eru sprengdir allir upp- mælingataxtar og maður gerir lít- ið annað en að keyra efni í mann- skapinn," sagði Gunnar Björgvins- son, starfsmaður bæjarins. Smíðavöllurinn hefur verið starfræktur í um þrjár vikur og það var komið að því að mála byggingarnar í vikunni. Það gekk því mikið á er ljósmyndari Morg- unblaðsins var þar á ferð. Börnin sveifluðu penslum og málningar- dósum. í þeim hópi voru Jóhann og Friðrik sem voru að mála þakið á sinni byggingu. Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson Morgunblaðið/Kristján Ferðafélag Akureyrar og atvinnumálanefnd Kort með sjö göngu- leiðum á Yaðlaheiði FERÐAFÉLAG Akureyrar í sam- vinnu við atvinnumálanefnd Akur- eyrar hefur gefið út kort með sjö gönguleiðum á Vaðlaheiði. Ferðafélag Akureyrar og at- vinnumálanefnd hafa átt með sér samstarf frá árinu 1991, en nefndin hefúr styrkt félagið m.a. varðandi útgáfu korta, gerð göngubrúar og lagfæringa í Lamba, einum skála fé- lagsins, en hann er í Glerárdal. Ingvar Teitsson, formaður gönguleiðanefndar, kvaðst vonast til þess að útgáfa kortsins myndi auðvelda bæði heimamönnum og ferðalöngum að njóta útivistar í ná- grenni bæjarins og góðs útsýnis sem víða væri að fmna á umrædd- um gönguleiðum. Eitt af markmið- um félagsins væri að stuðla að ferðalögum almennings og kort það sem nú hefði verið gefið út þjónaði því hlutverki ágætlega. Berglind Hallgrímsdóttir at- vinnumálafulltrúi sagði að sárlega hefði vantað ýmsar upplýsingar fyr- ir ferðamenn, m.a. um gönguleiðir í nágrenni Akureyrar og hefði það í upphafi verið ástæða þess að sam- starf hófst milli nefndarinnar og ferðafélagsins. Upplýsingar um leiðimar eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku og kortinu verður dreift á ýmsa staði á Norðurlandi, en m.a. liggur það frammi í Upplýsinga- miðstöð ferðamanna á Akureyri. Sjö ólíkar gönguleiðir Fyrsta leiðin er 2,5 kílómetra leið um Vaðlareit, þá er kort af leið austur yfir Vaðlaheiði um Geldings- árskarð en hún er 12 kílómetrar, þriðja leiðin er gamli Þingmanna- vegurinn yfir Vaðlaheiði, sem er 10 kílómetra langur, vegurinn yfir Bfldsárskarð er einnig 10 kílómetr- ar, en lengsta leiðin er yfir Göngu- skarð og að Reykjum í Fnjóskadal, 26 kflómetrar. Loks er kort af leið upp á Staðarbyggðafjall, sem er 8 kflómetra löng, og inn eftir bökkum Eyjafjarðarár, frá Brunnaá við Akureyri og að Blómaskálanum Vín í Eyjafjarðarsveit, en hún er 13 kílómetra löng. Morgunblaðið/Kristján MATTHILDUR Sigurjónsdóttir varaformaður atvinnumálanefndar, Berglind Hallgrímsdóttir atvinnumálafulltrúi og Ingvar Teitsson for- maður gönguleiðanefndar Ferðafélags Akureyrar skoða kortið. Söng- vökur að hefjast SÖNGVÖKUR eru að hefjast í Minjasafnskirkjunni en líkt og undanfarin ár verða söngvökur haldnar í kirkjunni öll þriðjudags- og miðviku- dagskvöld og hefst dagskráin kl. 21. Á söngvökum eru flutt sýn- ishorn íslenskrar tónlistar- sögu, svo sem rímur, tvíund- arsöngur, sálmar og eldri og yngri sönglög. Flytjendur eru Rósa Kristín Baldursdóttir og Hjörleifur Hjartarson og Þór- arinn Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir. Dagskráin stendur í um klukkustund og er miðaverð 700 krónur. Morgunblaðið/Erlendur Haraldsson Bflasýning í Grímsey Grímsey. Morgunblaðið. AKSJÓN Fimmtudagur 2. júlí 21:00 Þ-Sumarlandið Þátt- ur ætlaður ferðafólki á Akur- eyri og Akureyi'ingum í ferða- hug. r—' (POÍLINN>n \ kvöld Cuðmundur Rúnar Lúðvíksson skemmtir Föstudags- og laugardagskvöld Dúettinn „í hvítum sokkum" sér um fjörið. Staður með sál. Opnar kl. 20.00 öll kvöld. Gallerí Perla í Hrísey GALLERÍ Perla var opnað í Hrísey á þjóðhátíðardaginn og verður galleríið opið fram í miðjan ágúst. Þrettán konur í eynni reka Gallerí Perlu sem er á neðri hæðinni í húsi veitingastaðarins Brekku. tírvalið er fjölbreytt, prjónavörur, hannyrðir af ýmsu tagi og minjagripir svo eitthvað sé nefnt, en konurnar þrettán fást allar við handverk. Þórunn Arnarsdóttir, ein kvennanna, sagði að ráðist hefði verið í að opna galleríið í kjölfar stefnumótunarverkefnis í ferða- þjónustu. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og við erum ánægðar,“ sagði hún. Gallerí Perla er opið daglega frákl. lltil 19. Djass í Deiglunni Fjórar eyfírsk- ar söngkonur HEITIR fimmtudagar verða að venju í Deiglunni á hverju fimmtu- dagskvöldi í sumar, í júlí og ágúst- mánuði, en Jazzklúbbur Akureyrar og Túborg sem styrkir tónleikana gerir klúbbnum kleift að veita ókeypis aðgang. Fjórar landsþekktar eyfirskar söngkonur hefja sumardjassinn þetta sumarið, þær Erla Stefáns- dóttir, Erna Gunnarsdóttir, Helena Eyjólfsdóttir og Inga Eydal, enþær koma fram á tónleikum í kvöld, fimmtudagskvöldið 2. júlí, kl. 21. Þeim til stuðnings leikur hljómsveit skipuð Benedikt Brynleifssyni á trommur, Óskari Einarssyni á píanó og Jóni Rafnssyni á bassa. Sumardjass stallsystranna verðui’ á hlýjum og ljúfum nótum og gera má ráð fyrir að flestir fái að heyra einhver af sínum uppáhaldslögum á efnisskránni. FYRSTA bílasýning sem sögur fara af í Grímsey var lialdin þar nýlega. Sýndir voru Subaru For- ester og Opel Vectra og var það bflasala Sigurðar Valdimarsson- ar á Akureyri, sem er umboðsað- ili fyrir Ingvar Helgason og Bfl- heima sem stóð fyrir sýningunni. Hér má sjá bflana fyrir norðan heimskautsbaug. I [ l i I I i I í i > I r i i I I i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.