Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 23
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Sverrir
LOG gera skilyrðislausa kröfu um merkingar umbúða hættulegra efna
með varnaðarmerkingum á íslensku. Fyrirtæki geta því verið skaða-
bótaskyld vegna slysa sem verða vegna rangrar notkunar efnavöru ef
merkingum er ábótavant.
Könnun á merkingum hættulegrar efnavöru
Einungis 19% vöru-
tegunda merktar
samkvæmt reglugerð
Nýtt
Nýtt
lambakjöt
í Nýkaupi
í DAG, fimmtudag, kemur
nýtt lambakjöt í verslun Ný-
kaups í Kringlunni. Kjötið er
úr fyrstu sumarslátrun árs-
ins. I fréttatilkynningu frá
Nýkaupi kemur fram að nýtt
lambakjöt sé nú um viku fyrr
á markað en í fyrra og fram-
boð á nýju lambakjöti nær yf-
ir lengra tímabil en áður. Þró-
unin hefur verið hröð og
skammt er síðan það þótti
fréttnæmt að lambaslátrun
færi fram um miðjan ágúst.
Nýkaup mun því bjóða upp á
ferskt lambakjöt 6 mánuði
ársins, eða frá fyrstu viku í
júlí til jóla. Verð á nýju
lambakjöti í Nýkaupi er það
sama og á eldra kjöti. A
næstu dögum er væntanlegt
nýtt lambakjöt í aðrar versl-
anir Nýkaups.
Nýjar ís-
lenskar róf-
ur á markað
FYRIR helgina komu í versl-
anir nýjar íslenskar rófur. Að
sögn Aðalsteins Guðmunds-
sonar hjá Ágæti eru rófurnar
frá Þorvaldi bónda í Fossvog-
inum hér í Reykjavík og Aðal-
steinn segist ekki vita til að
nýjar rófur hafi áður verið
svona snemma á ferðinni. Um
er að ræða forræktaðar rófur
sem þýðir að meiri vinna en
ella liggur að baki ræktun-
inni.
Kílóverðið úr búð er að
sögn Aðalsteins á bilinu 390-
420 krónur.
ÞEGAR heilbrigðiseftirlit sveitarfé-
laga um land allt safnaði gögnum um
flokkun og merkingu á 119 hreinlæt-
isefnum á úðabrúsum, ræstivöru fyr-
ir salerni, skóvörum og fægilegi kom
í ljós að einungis 19% voru rétt
merktar.
Þetta kemur fram í nýútkominni
skýrslu sem gefin er út af eiturefna-
sviði Hollustuverndar ríkisins.
Könnun á merkingum efnavöru fór
fram á vormánuðum 1997.
Engar vamaðarmerkingar á
skóvömm og fægilegi
I skýrslunni kemur fram að engin
varnaðarmerking var á íslensku á
skóvörum og fægilegi og er ástandið
verst þegar þeir vöruflokkar eru
annars vegar.
Af hreinsiefnum var merkingum í
um helmingi tilfella ábótavant og 12
af 22 hreinsiefnum á úðabrúsum.
Aminning og frestur til úrbóta
Að sögn Áma Davíðssonar heil-
brigðisfulltrúa Kjósarsvæðis hefur
hvert heilbrigðiseftirlitssvæði eftirlit
með smásölum og heildsölum á sínu
svæði og framfylgir kröfum sem þeir
gera til þessara aðila. „Almennt eru
úrræði heilbrigðiseftirlitsins að setja
tímasettan frest til úrbóta og ef sá
frestur rennur út stöðva þá sölu á
umræddri vörutegund."
Árni segir æskilegast að beina
eftirlitsstarfinu að heildsölum eða
framleiðendum því þeir merkja vör-
urnar og þá gilda sömu úrræði.
Hann bendir á að ástandið hafi
batnað töluvert hjá innflytjendum
eftir að könnunin var gerð því þeir
hafa í auknum mæli leitað ráðgjafar
hjá Hollustuvemd ríkisins og hjá
heilbrigðiseftirliti. Einnig bjóða fyr-
irtæki þá þjónustu að aðstoða við
merkingar á hættulegum efnum og
hefur EFFI aðallega fengist við slíkt.
Almenningur láti vita
„Það er rétt að almenningur sé vel
á verði og komi athugasemdum um
merkingar á framfæri við heilbrigð-
isfulltrúa í sínu sveitarfélagi og
einnig getur fólk haft samband við
verslanir, heildsala eða smásala.
Best er að þekkja úr þær vörur sem
þarf að merkja betur á því að þær
eru gjarnan með erlendum texta og
varnaðarmyndum."
Árni segir að heilbrigðiseftirlitið
verði vart við að nokkuð stór hópur
íslendinga getur ekki lesið erlend
tungumál utan á brúsum og dósum
og þess vegna sénauðsynlegt að allar
leiðbeiningar séu á íslensku.
„Það eru dæmi um ranga notkun
efna og jafnvel hafa orðið slys vegna
þess að fólk gat ekki lesið leiðbein-
ingarnar. Lög gera skilyrðislausa
kröfu um merkingar umbúða hættu-
legra efna með varnaðarmerkingum
á íslensku og fyrirtæki geta því verið
skaðabótaskyld vegna slysa sem
verða vegna rangrar notkunar efna-
vöru ef merkingum er ábótavant.“
A
Uthlutun tollkvóta vegna innfluttra landbúnaðarafurða
Um 100 tonn af innfluttu kjöti
FYRIR skömmu rann út tilboðs-
frestur í tollkvóta vegna innflutn-
ings á ostum, nautakjöti, kjöti af
alifuglum og unnum kjötvörum
sem leyft verður að flytja til lands-
ins á lægri gjöldum á síðari helm-
ingi þessa árs.
Að sögn Olafs Friðrikssonar
deildarstjóra hjá landbúnaðarráðu-
neytinu kom ekki til útboðs á toll-
kvóta vegna innflutnings á svína-
kjöti, hreindýrakjöti og strútakjöti
þar sem umsóknir voru minni en
það magn sem í boði var.
„Níu tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á ostum en til-
boðum var tekið frá átta fyrirtækj-
um um innflutning á 49.300 kílóum.
Þau fyrirtæki eru Dreifing ehf með
3.000 kíló, Hagkaup með 12.800
kíló, Lyst ehf með 8.000 kíló, Östa-
og smjörsalan sf með 16.270 kíló,
Osthúsið með 2.500 kíló, Ómar
Haffjörd með 480 kíló, Pönnu pizz-
ur með 250 kíló og Sólstjai-nan ehf
með 6.000 kíló.
Þrjú tilboð bárust um innflutn-
ing á nautakjöti, samtals 35.000 kg
og voru það fyrirtækin Dreifing
ehf með 30.000 kíló, Kjötumboðið
hf með 4.000 kíló og Veitingahúsið
Perlan með 1.000 kíló
Hvað snertir alifuglakjöt voru
fimm tilboð sem bárust. Tekið var
á tilboðum fjögurra fyrirtækja á
24.900 kflóum. Dreifing er með
6.500 kíló, Kjötumboðið með 500
kíló, Nóatún með 16.600 kíló og
Veitingahúsið Perlan með 1.300
kíló.“
Að lokum segir Ólafur að sex til-
boð hafi borist um tollkvóta vegna
innflutnings á unnum kjötvörum.
Tilboðum var tekið frá þremur fyr-
irtækjum: Dreifing með 15.000
kíló, Nóatún með 10.200 kíló og
Sólstjarnan ehf með 11.000 kíló.
Nýkaup
Verðið hefur ekki hækkað
í KJÖLFAR þráláts orðróms um
að verð hafi hækkað í verslunum
Nýkaups vill Finnur Árnason
framkvæmdastjóri koma eftirfar-
andi á framfæri: „Frá því að
hverfaverslanir Hagkaups fengu
nafnið Nýkaup hafa verið gerðar
423 verðbreytingar. Þar af hafa 74
vöruliðir hækkað í verði en 349
vörutegundir lækkað i verði. Verð-
vísitala Nýkaups hefur lækkað lítil-
lega frá þessum tíma eða úr 100,04
í 99,96 stig.
Þessi niðurstaða er fengin með
því að verð er borið saman á öllum
vörum. Samtals var grunnurinn
16.332 vörur og verð þann 3. júní
þegar verslanir báru nafn Hag-
kaups borið saman við verð 27. júní
í verslunum Nýkaups.
Við höfum haldið því fram að
verð í verslunum Nýkaups sé
óbreytt, þ.e. hafi ekki hækkað.
Hagkaupsverslanirnar eru
sjálfsafgreiðslubúðir og að því leyti
eru þær mjög ólíkar Nýkaupi þar
sem lögð er áhersla á persónulega
þjónustu við viðskiptavininn og
ferskleika hvort sem um er að
ræða fisk- eða kjötvörur, grænmeti
eða ávexti."
ífram Htjélk
Margir þekkja lífræna
ab-mjólk sem hefur verið á
markaði um nokkurt skeið
við miklar vinsældir.
Með framieiðslu lífrænnar
drykkjarmjólkur á íslandi er
stigið enn frekari skref á
þessari braut.
Áherslur lífrænnar framleiðslu:
1. Að viöhalda náttúrulegu jafnvægi í umhverflnu
2. Að auka frelsl og eðllslæga hegöun dýra
3. Afurðlr komist til neytenda í eins fersku og upprunalegu
ástandi og kostur er.
Hrlstist fyrir notkun
Lífræn mjólk er ekki fitusprengd. Rjóminn flýtur því upp og
myndar rjómalag ofan á mjólkinni. Hristu hana vel áður en
hún er notuð, þá dreifist rjóminn aftur um mjólkina.
Samkvæmt kröfum heilbrigðisyfirvalda er lífræn mjólk
gerilsneydd eins og önnur mjólk.
Takmarkað magn - dýrarl framleiðsla
Magn þeirrar lífrænu mjólkur sem við getum boðið er
takmarkað enn sem komið er. Lífræn framleiðsla er
tímafrekari og fyrirhafnarmeiri en önnur
mjólkurvöruframleiðsla. Af því leiðir einnig að hún er dýrari
sem kemur fram í hærra verði. Þess er þó gætt að halda
auknum kostnaði í algjöru lágmarki en áhersla er lögð á að
verðmunurinn skili sér sem mest lil bóndans og verði á þann
hátt hvatning til aukinnar lífrænnar framleiðslu.
Fyrir þá sem aðhyllast lífræn markmið er lífræn
§ £ drykkjar mjólk nú loks komin á markað. Hún kemur
• frá bænum Neðra-Hálsi í Kjós og er unnin til dreifingar
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík samkvæmt reglum um
lífræna landbúnaðarframleiðslu. Framleiðslan er vottuð af
vottunarstofunni Túni ehf.
\
- A
! 1
www.simaskra.is
SÍMASKRÁIN
gefin út daglega! S|M|NN