Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Gömul og ný skemmti- tónlist Reuters Forn andlit á sýningu TONLIST I ð II ó Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðsson fluttu létta tónlist eftir Debussy, Faure, Schubert og Brahms. Þriðjudagurinn 30. júní 1998. ÞAÐ NÝMÆLI að flytja létta tónlist á þriðjudögum í Iðnó virðist endanlega taka á sig þá mynd að verða að mestu helgað dægurtón- list og djassi, það sem eftir lifir sumars. Skilgreiningin „létt tón- list“ er oftlega misnotuð til að að- greina góða og lélega tónlist eða tónlist sem annars vegar er ein- göngu ætluð til æðri íhugunar og hins vegar skemmtunar. Þetta tengist atferli fólks og á ef til vill rætur sínar að rekja til þess munar sem er á hegðun fólks, er í einn stað ástundar alvai-lega íhugun og annars vegar skemmtir sér. Tónleikar Steinunnar Bimu og Þorsteins Gauta hófust á „Petite suite“ eftir Debussy, sem er samin 1888, á þeim tíma þegar Debussy hefur ekki fullmótað tónstíl sinn, og er frekar hefðbundinn í hljómskip- an og lagferli. Svítan er falleg, kafl- amir frekar stuttir og tónmálið ein- falt og var þessi létti „dúett“ fallega og músíkalst leikinn. Annað við- fangsefnið, Dolly svite op. 56 eftir Faure, er upphaflega samið fyrir pí- anóeinleik og fyrsti þátturinn oft leikinn sérstaklega, enda besti þátt- urinn. Þessi „dúkku“svíta er ekki stór tónlist en var mjög fallega flutt. Meginverk tónleikanna var Fantasía í f-moll op. 103, eftir Schubert, er meistarinn samdi 1828. Astæðan fyrir því að Schubert samdi mikinn fjölda tví- leiksverka fyrir píanó, mun vera samkvæmt beiðni frá útgefanda hans, er vildi ná þýska markaðin- um með léttum tvíleiksverkum, sem vora á þeim tíma mjög vinsæl til heimilisbrúks. Fantasían er meðal stærri tvíleiksverka meistar- ans og þar má m.a. heyra Schubert reyna sig við fúgugerð. Upphafs- stefið er ein af fallegri tónhug- myndum meistarans og var að mörgu leyti vel flutt, þótt bæði fúg- an og „sinfóníski" þátturinn væra helst til hljómmikil. Valsarnir eftir Brahms og ung- versku dansamir vora ekki fullæfðir og þar bar á ónákvæmni, sem ekki á að vera í leik jafn ágætra tónlistarmanna og Stein- unnar Bimu og Þorsteins Gauta, þótt um létta og alvöralitla heimil- istónlist sé að ræða. Hugmyndin, að bjóða upp á létta tónlist, er góð en þó er hætta á að- greiningu, það er, að svonefnd klassísk „létt tónlist" er jafn langt frá djass- og dægurtónlist og alvar- leg klassísk tónlist og þar leikur tíminn okkur grátt, því hin klass- íska, af léttari gerðinni, er oftast gömul en djassinn og sérstaklega dægurlögin flest ný, eða frá síðari hluta 20. aldarinnar, þannig að skilgreiningin „gömul og ný skemmtitónlist" ætti best við um það sem væntanlega verður boðið upp á í Iðnó í sumar. Jón Ásgeirsson ÞESSI andlitsmynd á múmíu af ungum dreng er á meðal um 1.000 mynda sem fundist hafa í Fayoum-eyðimörkinni í Eg- yptalandi. Andlitsmyndirnar vöktu í fyrstu litla athygli fornleifafræðinga og listfræð- inga, en nú er litið á þær sem tengingu á milli listar fornald- ar og miðalda. Hluti myndanna er nú á sýningu í Benaki-safn- inu í Aþenu. Þórarinn Eldjárn sem- ur við Yöku- Helgafell ÞÓRARINN Eldjárn rithöfundur og bókaforlagið Vaka-Helgafell hafa gengið frá samningi um að forlagið fari með útgáfumál hans frá og með 1. júlí 1998, bæði heima og erlendis en undanfarin ár hefur Forlagið gefið út bækur Þórarins. í samkomulaginu felst að Vaka- Helgafell gefur út nýjar bækur Þór- arins auk þess að endurútgefa eldri verk hans. Þá annast bókaforlagið sölu á útgáfurétti á bókum hans til erlendra bókaforlaga. Þórarinn er nú með nýtt smásagna-safn í smíð- um sem væntanlega kemur út í haust. Þórarinn Eldjárn er í ár tilnefnd- ur til Evrópsku bókmenntaverð- launanna af íslands hálfu fyrir skáldsögu sína, Brotahöfuð og hann er einnig tilnefndur til Norrænu barnabókaverðlaunanna í ár ásamt Sigrúnu Eldjárn fyrir eftirtaldar barnaljóðabækur: Óðfluga, Heims- kringla, Halastjarna og Gleym mér ei sem er eftir Sigi’únu en með ljóð- skreytingum Þórarins. -------------- Samstarfs- samningar I.C. Art og TVG-Zimsen undirrituðu hinn 25. júní 1998 samstarfssamning sem gildir næstu 12 mánuði. Við undirritun styi-kir TVG-Zimsen ís- lenska listamenn á sölusýningum í Bandaríkjunum að upphæð kr. 500.000 - fimm hundrað þúsund. Hinn 26. júní 1998 undirrituðu I.C. Art og Islenska útvarpsfélagið samstarfssamning sem gildir næstu 12 mánuði. Við undirritun styrkir íslenska útvarpsfélagið íslenska listamenn með auglýsingabirtingum að andvirði 500.000 kr. - fimm hundruð þúsund. sumarsveifla Sígild TðNLlST Sigurjónssafn EINSSÖNGSTÓNLEIKAR Verk eftir Sigfús Einarsson, Sig- valda Kaldalóns, Karl O. Runólfs- son, Gunnar Reyni Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Leifs, Kern og Gershwin. Þórunn Guð- mundsdóttir sópran; Krstinn Örn Kristinsson, píanó. Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar, þriðjudaginn 30. júní kl. 20.30. OF MIKIL veðurblíða er næstum því verri en kafaldsbylur þegar tón- leikahald er annars vegar, eins og sást af reytingsaðsókninni á fyrstu þriðjudagstónleikum sumarsins í Sigurjónssafni á Laugarnesi. Dag- skráin var annars fjölbreytt og sum- arlétt í seinni endanum, og myndaði Maður hefur nú Gunnars Reynis velvalda brú milli íslenzku gullaldar- laganna og sígildu dægurlaga Kerns og Gershwins; í alla staði vandað lagaval og vel upp raðað. Þórunn Jónsdóttir hefur fremur lítið látið til sín heyra á tón- leikapöllum höfuðborgarsvæðisins undanfarið og hátt í ár ef ekki meira síðan undirritaður heyrði hana síðast, en hvíldin virtist ekki hafa verið til mikils vanza, miðað við þá framför sem maður varð var við nú. Röddin hafði breikkað, textaframburður var orðinn skýr- ari og tjáningin um leið frjálslegri, þó að textainntakið hefði stundum mátt vera tilfinningaþrungnara, einkum í eldri íslenzku lögunum. Píanótónn Kristins Arnar er sífellt að mýkjast og verða söngrænni; jafnvægið við sönginn var undan- tekningarlítið til fyrirmyndar og undirleikurinn almennt kominn í úrvalsflokk, enda þótt hann mætti stöku sinni vera ögn þyngri og markvissari í hendingarmótun. Eftir svolítið varfæmislegt upp- haf í Ein sit ég úti á steini og Nótt eftir Sigfús Einarsson hófst fyrsta flugið með glæsilegu niðurlagi í Gígjunni. Betlikerling Kaldalóns var vel mótuð, en textinn hefði boð- ið upp á dýpri tilfinningatúlkun en hér náðist, og er þar meðferð Elsu Waage í söngvaraveizlunni í Borg- arleikhúsinu í fyrra enn ofarlega í minni. Kankvísi Karls O. Runólfs- sonar og gáski í Laxness-lögunum Dans - Vikivaki og Hjá lygnri móðu komst vel til skila, ekki síður en húmoríska hliðin á Hjálmari H. Ragnarssyni nokkra síðar, Yfirlýs- ing, einu af glansnúmeram Ingveld- ar Ýrar Jónsdóttur, sem eftir þessu að dæma má fara að eiga von á sam- keppni í kómísku deildinni. Þeim Þórunni tókst að laða fram sérkennilegan frumleika Jóns Leifs í Máninn líður og Vögguvísu með íðilfögrum líðandi söngstróf- um, oft senza vibrato og sérlega syngjandi löngum píanóhending- um, en í fyrra lagi Hjálmars, Hjá fljótinu, sem stappar nærri litlu meistaraverki, lituðu af kínverskri pentatóník og „Leifskri" þríunda- skyldri hljómafærslu, vantaði nokkuð upp á skriðþunga móðunn- ar miklu hjá Kristni. Leikræn tjáning er mikilvæg í seinna lagi Hjálmars, hinu fyrrgetna Yfirlýs- ing, sem flutt var af snarpri kímni. Barnagæla frá Nýa íslandi eftir Gunnar Reyni Sveinsson við Lax- ness-texta var sungin af meiri til- finningu en flest þar á undan, og í hinu Weill-leita Maður hefur nú, sem fyrir fram virðist vonlaust fyr- ir sópran, tókst Þórunni að dekkja röddina nægilega mikið á brjóst- tónasviði til að meðferðin yrði sannfærandi eftir hina hugmynda- mótandi frumúttekt Bubba Morthens í Skilaboð til Söndru, við feikigóðan undirleik Kristins. Sígrænu perlumar tvær eftir Jerome Kern, The Way You Look Tonight og hið þeldekkra Can’t Help Lovin’ Dat Man (síðarnefnt úr Show Boat) tókust mjög vel, og þó að söngleikahefðin bandaríska virð- ist sjaldnast miðuð við háa sópran- höfuðtóna (enda eitur fyrir texta- miðlun af stóru sviði), gekk flest ljómandi vel upp. Píanóið var að vísu óþarflega fínlegt í fyrra laginu og svolítið órólegt í því seinna. Lokanúmerin voru eftir meist- ara Gershwin. Fyrst Lorelei („Sally“, 1920) þar sem Þórunn skilaði music hall-blendnum burlesque-stíl lagsins með glans, þrátt fyrir að píanóið hefði mátt rúlla áfram með meiri knæpubrag hjá Kristni. Næst birtist hið ódauðlega The Man I Love; ágæt- lega flutt burtséð frá fullmiklu rú- batói í viðlaginu. Að því loknu kom að mörkum hins mögulega fyrir klassískt menntaða hljómlistar- menn - I Got Rhythm - þar sem slagharpan, eins og nærri má geta, var aðskiljanlegum spölkornum frá sveiflu Tatums eða Petersons, þó að Kristni tækist merkilega vel upp í stuttum einleikskafla lagsins. Þórunn reyndist í þeim efnum sigldari, enda framhaldsmenntuð í heimabæ Hoagy Carmichaels, og var ljóst af innlifaðri frammistöð- unni, að söngkonan lumaði á tölu- vert meiri tjáningarbreidd en vænta mátti. Ríkarður Ö. Pálsson Fyrirsjáan- legur Qölda- morðingi KVIKMYNDIR Stjörnubfó SWITCHBACK ★ Leikstjóri og handrit Jeb Stuart. Tónlist Basil Poledouris. Kvik- myndatökustjóri Oliver Wood. Að- alleikendur Dennis Quaid, Danny Glover, Jared Leto, R. Lee Ermy, Ted Levine, William Fichtner. 115 mín. Bandarísk. Paramount. 1997. ÞAÐ er ekki margt um þessa fyrirsjáanlegu mynd að segja og fæst gott. Switchback (merkir brautarspor í brekku, þýðandan- um því viss vorkunn að játa sig mátaðan þar sem fátt er um slík fyrirbæri hérlendis), er byrj- endaverk Jebs Stuart, handrits- höfundar The Fugitive og Die Hard, og ber viðvaningsháttur- inn þess glögg merki. Það leynir sér heldur ekki að þetta er fyrsta verkefni höfundarins á handritasviðinu, unnið meðan hann sat enn á skólabekk. (Grunnskóla?). Myndin kolféll á síðasta ári og fær inni í kvik- myndahúsi sjálfsagt til þess eins að liðka fyrir myndbandasöl- unni. Ótrúlega lítið spennandi frá upphafi til enda, óþjáll bræð- ingur úr tveimur sögum. Annars vegar af puttaferðalangi (Jared Leto) sem fær far með vafasöm- um náunga (Danny Glover), hin af alríkislögreglumanninum LaCrosse (Dennis Quaid) á hæl- um óþekkts fjöldamorðingja sem hefur son hans í haldi. LaCrosse er kominn langt með að klúðra leitinni, sem snúist hefur upp í e.k. drepskák og er, þegar myndin hefst, farinn að starfa í óþökk yfirmanna sinna hjá FBI. Fleiri hliðarsögur eru til þess eins að draga hlutina á langinn, einkum kosningastríð um fógetaembætti í smábæ í Klettafjöllunum. Þar koma við sögu R. Lee Ermy, Ted Levine og William Fichtner. Versti gall- inn við þennan langhund er þó ótrúlegt spennuleysi í leikstjórn og handriti og afleitur leikur Qu- aids, Letos og Glovers, sem eru hver öðrum verri. Þeim er reyndar vorkunn því persónurn- ar eru bæði marflatar og óeðli- legar. Svo virðist sem Kanar séu komnir með fjöldamorðingja á heilann, þó afraksturinn sé af- leitur. Lömbin þagna nánast eina, minnisstæða myndin slíkr- ar tegundar á áratugnum. Von- andi linnir þessari framleiðslu enda botninn fundinn. Myndin á stjörnuna skilið vegna ágætrar kvikmyndatöku (næsta verkefni Woods var hin minnisstæða og vel tekna Face/Off), örfárra brelluatriða og Ermy tekst að gera furðu mikið úr engu. Sæbjörn Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.