Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 59
Fyrir hvað borgar
Barcelona
alla miðvikudaga
frð kr. 29.532
Heimsferðir fljúga vikulega
frá 15. júlí til Barcelona.
Bókaðu meðan enn er laust.
Austurstræti 17, 2. hæö.
Sími 562 4600.
FLÍSASKERAR
OG FLÍSASAGIR
t :±=; ín
i k jÉ: 1*L
Stórhöfða 17, við GuUinbrú,
sími 567 4844
viðskiptavinurinn?
gym - sa
í góðu formi í sumar
4ra vikna fitubrennslu-
námskeið hefjast 6. júlí
Hjólabrennsla, tækjaþjálfun, teygjur,
fitumæling, viktun, aðhald.
Verð aðeins 5.500.
Munið sumartilboðin
Mánaðarkort á aðeins 3.900
Einnig tilboð á öðrum kortum
GYM —
heilsurækt fyrir alla
Suðurlandsbraut 6 (bakhús),
sími 5S8 8383.
Steilblazer... sm- 6.990.-
Victorblazer... nm.- 8.990.-
Victorbuxur... 5^9r 3.990.-
Mikið úrval af
sumarbolum
Verð frá kr. 690
JACK&JONES
UNLIMITED
Laugavegi 95-97, sími 552 1 844,
Kringlan, sími 581 1944.
Frá Ingibjörgu Daníelsdóttur:
MAÐUR fer með bílinn sinn í
skoðun. Þar kemur í ljós að skipta
þarf um öxulhosu öðrum megin.
Hann kaupir hosuna og föstudag-
inn 19. júní fer hann síðan í Bílkó í
Kópavogi, því þar er hægt að gera
hlutina sjálfur og líka fá aðstoð við
það, sem viðkomandi getur ekki
sjálfur. Minn maður kemst að raun
um að hann getur ekki gert þetta,
svo hann fær aðstoð hjá manninum
sem selur þessa þjónustu. Eitthvað
fínnst mínum manni fagmaðurinn
ekki bera sig rétt að þessu og spyr
hvort ekki þurfi að losa tvær skrúf-
ur, sem honum fannst þjóna til-
gangi í þessu öllu, en bifvélavirkinn
kvað þessar skráfur ekki hafa neitt
með þetta að gera. Eftir að hafa
baslað við þetta í tvo tíma gefst bif-
vélavirkinn upp og vill hætta við
allt saman. Til að geta hætt við
þarf að fá bolta í staðinn fyrir þann
sem hann skemmdi, þegar hann
tók hann úr.
Bifvélavirkinn segir að hægt sé
að fá annan bolta á verkstæði, sem
er við hliðina. Þar er engan bolta
að fá, svo minn maður fer á Að-
alpartasöluna og þar fær hann
rétta boltann. Hann rekur raunir
sínar fyrir manni sem þar starfar
og biður hann að athuga þetta fyrir
sig. Það var auðfengin aðstoð. Sá
maður sér undireins hvað þarf að
gera og það tók hann u.þ.b. 2 mín-
útur að losa það sem var fyrir-
staða. Síðan er farið að setja sam-
an. Þar kom líka babb í bátinn. Nú
var ekki hægt að koma stykkinu
upp á aftur.
Þá leggur hinn fróði maður (bif-
vélavirkinn) til að losa skráfurnar
tvær sem áður var um getið. Gekk
þá vel að ganga frá öllu saman.
Ekki er öll sagan sögð. Nú kom að
því að borga fyrir allt saman. Þetta
verk, sem önnur þjónusta áætlar
frá 1-2 tíma, tók hinn lærða mann
tæpa 4 tíma og kostaði 9.600.00 kr.
Minn maður var orðinn þreyttur og
leiður, svo hann bara borgaði og
kom heim sársvekktur yfír öllu
þessu.
Daginn eftir fer hann að hugsa
að þetta geti ekki átt að vera svona
dýrt. Hann hringir í nokkur bif-
reiðaverkstæði og spyr hvað þetta
kosti. Það var frá 3.000 kr. til 6.000
kr. Áætlað frá hálftíma og upp í 2
tíma að vinna verkið.
Minn maður var nú ekki kátur
með þetta, svo hann hringir í Bílkó
og segist ekki ánægður með þetta
verð. Fátt var um svör hjá fag-
manninum, en hann kveðst ætla að
athuga þetta. Eftir athugun kveðst
hann geta borgað til baka 1.250.00
kr. Það er verð á lyftu í 1 tíma. Nú
var kellu farið að renna í skap. Fer
af stað við annan mann (svona til
að hafa vitni) til að fá nótu fyrir
þessu. Þar talar hún við fagmann-
inn og spyr um nótu. Já, já, það var
auðfengið. Nema þegar var komið
inn á kontórinn. Þá útlistar fag-
maðurinn fyrir viðkomandi að ekki
sé hægt að gefa nótu nema kassa-
kvittun finnist, sem gæti verið í
ruslinu og þeim sé velkomið að
leita í ruslinu, tekur upp kassa á
stærð við eplakassa og lætur hann
á borðið. Þegar hann er spurður
hvort víst sé að kassakvittunin sé
örugglega í téðum kassa, segist
hann ekkert vita um það. Grunur
læddist þá að kellu að ekki væri
allt í sómanum og spyr hvort hann
hafí nokkuð stimplað þetta inn í
kassann (sem sé tekið greiðslu án
þess að hafa virðisaukann með).
Verður hann þá hinn reiðasti, seg-
ist hættur við að leyfa þeim að leita
og segir þeim að koma sér út. „Ut
með ykkm-, út með ykkur.“
Á viðskiptavinurinn að borga
fyrir vankunnáttu og ráðaleysi fag-
mannsins?
Að lokum. Við viljum þakka
starfsmanni hjá Aðalpartasölunni
fyrir einstaka lipurð og hjálpsemi.
Eitt er víst að það verður mælt
með því fyrirtæki við þá sem þurfa
á fagmennsku þeirra að halda.
Ekki verður mælt með þjónustu
Bílkó.
INGIBJÖRG DANÍELSDÓTTIR,
Hjaltabakka 24, Reykjavík.
f Þakrennur
Þakrennur
og rör
frá...
ÍSIBA
BLIKKAS hf
Símar 557 2000 og 557 7101
Skemmuyegi 36 Bleik gata
Kópavogi
SUMAR-
TILBOÐ
ú stökum jökkum
og buxum