Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Eitt ár er liðið frá því Hong Kong varð aftur hluti af Kína
Forsetinn varar við
frekari þrengingum
Reuters
TUNG Chee-hwa, æðsti embættísmaður Hong Kong, heldur skálaræðu á hátíðarkvöldverði í gær í tilefni af
því að ár er liðið frá því breska nýlendan fyrrverandi varð aftur hluti af Kína.
Efnahagssam-
dráttur setur
mark sitt á
hátiðahöldin
Hong Kong. Reuters.
JIANG Zemin, forseti Kína, sagði í
Hong Kong í gær, þegar þess var
minnst að ár er liðið frá því breska
nýlendan íyrrverandi varð aftur
hluti af Kína, að íbúar eyjunnar
mættu búast við frekari þrenging-
um áður en efnahagur hennar rétti
úr kútnum.
„Umrótinu er ekki lokið. Fram-
hald verður á efnahagsörðugleikun-
um í Hong Kong um sinn,“ sagði Ji-
ang í ávarpi á íþróttaleikvangi í
Hong Kong þar sem haldið var upp
á afmælið með fjölleikasýningu.
Forsetinn talaði í fóðurlegum tón
til íbúa hins kapítalíska útvarðar
Kína og lofaði fullum stuðningi la'n-
versku kommúnistastjómarinnar
við tilraunir Hong Kong til að rétta
efnahaginn við. Hann kvaðst fullviss
um að Hong Kong-búar gætu sigr-
ast á erfiðleikunum þar sem þeir
ættu digra varasjóði og nytu góðs af
öflugri stjómsýslu og hagskipan.
Hátíðahöldin þóttu alldaufleg
enda eru íbúamir ekki í miklu há-
tíðarskapi vegna efnahagslægðar-
innar í Hong Kong frá því krúnuný-
lendan fyrrverandi varð aftur hluti
af Kína fyrir ári. Þetta er fyrsti
efnahagssamdrátturinn í Hong
Kong í 13 ár og hagfræðingar telja
litlar líkur á efnahagsbata næsta
hálfa árið að minnsta kosti.
Verðhmn hefur orðið á hluta-
bréfa- og fasteignamörkuðum Hong
Kong og fyrirtæki af ýmsum toga,
svo sem verslanir, fasteignasölur og
veitingahús, hafa kvartað yfir sam-
drætti. Mörg fyrirtæki hafa lagt
upp laupana eða dregið saman segl-
in og atvinnuleysið er nú hið mesta í
15 ár þótt það sé enn tiltölulega lítið
miðað við mörg ríki heims.
Blóðbaðinu mótmælt
Efnt var til fámennra mótmæla í
tilefni af heimsókn Jiangs, en það
sýnir að kínverska kommúnista-
stjómin hefur ekki kveðið niður allt
andóf frá því hún fékk yfírráð yfir
Hong Kong.
Tugir mótmælenda kröfðust þess
að Jiang segði af sér og fordæmdu
fjöldamorð kínverska hersins á
Torgi hins himneska friðar í Peking
1989. Fólkið hélt á mótmælaborðum
með vígorðunum „Leysið andófs-
mennina úr haldi“ og „Dragið morð-
ingjana í Peking fyrir rétt“. Fjórir
lögreglumenn báru konu á brott en
hún var leyst úr haldi síðar um dag-
inn.
Tugir annarra Hong Kong-búa,
sem höfðu tapað fé á fasteignavið-
skiptum á kínverska meginlandinu,
söfnuðust einnig saman nálægt
byggingu þar sem Jiang snæddi há-
tíðarkvöldverð. Þeir festu hundrað
blöðmr við mótmælaborða í von um
að geta vakið athygli forsetans á
vanda þeirra en lögreglan meinaði
þeim að koma borðanum á loft.
Fólkið sprengdi þá blöðrumar í
mótmælaskyni og gekk í burtu.
Tung Chee-hwa, æðsti embættis-
maður Hong Kong, flutti ræðu í há-
tíðarveislunni og fór lofsamlegum
orðum um kínversku ráðamennina
sem völdu hann í embættið. „Sá
mikli stuðningur sem við höfum
fengið frá landi okkar hefur orðið til
þess að við merkjum mun betur um-
hyggju og hlýju stórfjölskyldunnar í
föðurlandi okkar.“
Qian Qichen, varaforseti Kína,
sagði í ræðu sinni að kínverska
stjómin væri staðráðin í að fram-
fylgja kenningunni um „eitt land,
tvö kerfí“, sem tryggja á Hong
Kong veruleg sjálfstjómarréttindi.
Jiang fór í verslanamiðstöð til að
ræða við kaupmenn og viðskiptavini
fýrir veisluna. Mikill mannfjöldi
safnaðist saman í kringum forset-
ann og troðningur varð þegar fólkið
mddist til að taka í hönd hans.
Annars staðar í Hong Kong virt-
ust þó fáir í hátíðarskapi enda hafa
margir íbúanna áhyggjur af lífsvið-
urværi sínu. „Við höfum ekki hugs-
að um hátíðahöldin," sagði sölukona
í Hong Kong. „Við vonum bara að
efnahagurinn batni.“
Nýr flug-völlur opnaður
Jiang opnar í dag nýjan flugvöll í
Chek Lap Kok sem tekur við hlut-
verki gamla flugvallarins nálægt
höfninni. Nýi flugvöllurinn og
mannvirkin sem tengjast honum
kostuðu 20 milljarða Bandaríkja-
dala, andvirði 1.400 milljarða
króna.
Nokkram klukkustundum eftir
opnunarathöfnina verður Bill Clint-
on Bandaríkjaforseti fyrsti erlendi
þjóðhöfðinginn sem notar nýja flug-
völlinn, en Hong Kong er síðasti
viðkomustaður forsetans í níu daga
heimsókn hans til Kína.
Reuters
Mikki mús
í Feneyjum
NÝJA skemmtiferðaskipið
Töfrar Disneys (Disney Magic)
var á siglingti hjá Feneyjum í
gær. Það var smi'ðað á Italíu, en
heimahöfn þess verður í
Canaveral á Flórída. Skipið
heldur þaðan í jómfrúrferð sína
30. júlí.
Kínaferð Clintons Bandarikjaforseta lýkur í Hong Kong
Kína auki viðskiptafrelsi
Shanghai. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseta var
vel tekið er hann heimsótti kauphöll-
ina í Shanghai i gær. Hann hvatti
bandaríska þingmenn til að endur-
nýja rétt Kínverja til að fá svonefnd
bestukjör í viðskiptum við Bandarík-
in, sem tryggir innfluttum kínversk-
um vöram tollfrelsi. Hins vegar yrðu
Kínveijar að auka viðskiptafrelsi og
fella niður innflutningshömlur, sagði
hann.
Clinton sagði að hafnaði þingið að
veita Kínverjum bestukjör myndi
það verða til að „slíta í sundur efna-
hagstengsl okkar, hindra okkur í að
hagnast á vextinum í Kína, stefna í
hættu samstarfi okkar í alþjóðamál-
um til langs tíma - við myndum snúa
baki við stærstu þjóð heims einmitt
þegar samvinna um frið og stöðug-
leika er mikilvægari og árangursrík-
ari en nokkru sinni fyrr“.
Engin málamiðlun um WTO
Bandaríski forsetinn minntist
einnig á áhuga Kínverja á að fá aðild
að Heimsviðskiptastofnuninni, WTO.
Bandaríkjamenn hafa beitt sér gegn
aðild Kína á þeirri forsendu að
stjómvöld í Peking verði fyrst að
uppfylla skilyrði WTO um viðskipta-
frelsi áður en aðild komist á dagskrá.
Charlene Barshefsky, viðskipta-
fulltrúi Bandaríkjanna, sagði frétta-
mönnum að ekki kæmi til greina að
komast að einhvers konar pólitískri
málamiðlun um aðild Kína. WTO
væri ekki stjórnmálastofnun. Mikill
halli er á innbyrðis viðskiptum Kína
og Bandaríkjanna, hinu fyrmefnda í
hag.
Mildð fylgdarlið er með forsetan-
um, embættismenn, þingmenn og
fulltrúar hagsmunasamtaka auk
fréttamanna. Fulltrúar bandarískra
banka og tryggingafélaga höfðu
bundið nokkrar vonir við heimsókn-
ina, talið að Clinton tækist ef til vill
að fá því framgengt að þeir fengju
starfsleyfi í Kína en af því varð ekki.
Clinton kemur til Hong Kong í
dag og var gert ráð fyrir því að hann
myndi m.a. hitta að máli Martin Lee,
sem situr á þingi Hong Kong, er lýð-
ræðissinni og harður gagnrýnandi
kommúnistastjómarinnar. Búist er
við að mannréttindamál og ýmis við-
skiptamál verði efst á dagskrá hjá
bandaríska forsetanum í Hong
Kong. Um 1.200 bandarísk fyrirtæki
eru með viðskipti í borginni og líta
þau flest á hana sem leið inn á hinn
risastóra markað í Kína en þar búa
um 1.200 milljónir manna. Um
50.000 Bandaríkjamenn búa í Hong
Kong.
Aðstoðaröryggisráðgjafi Clintons,
James Steinberg, sagði í gær að
Bandaríkjamenn myndu ekkki fara
að óskum Kínastjómar og hætta að
selja Tævönum vopn. Eingöngu væri
um tæki til varnar að ræða.
Bein útsending
kom á óvart
Clinton sagði í viðtali við kín-
verska sjónvarpið, sem birta á í dag,
að hann hefði orðið „dálítið undr-
andi“ á því að fréttamannafundi hans
með Jiang Zemin forseta og ræðu
bandaríska forsetans í Pekinghá-
skóla skyldi vera sjónvarpað beint.
Clinton hvatti í ræðu sinni í háskól-
anum til aukins frelsis í Kína og ýmis
orðaskipti forsetanna á fréttamanna-
fundinum þóttu óvenju hreinskilin.
Uppreisnar-
menn lýsa
morði á
hendur sér
SAMTÖK vopnaðra íslams-
trúarmanna, sem era róttæk-
ustu skæraliðasamtökin í Al-
sír, hafa lýst ábyrgð á morði
berbasöngvarans Lounes
Matoub í síðustu viku á hend-
ur sér. Matoub var vinsæll í
heimalandi sínu, m.a. fyrir
andstöðu sína gegn bæði rík-
isstjórninni í Alsír og íslömsk-
um uppreisnarmönnum.
Meira en 65.000 manns hafa
fallið í átökunum í Alsír síð-
ustu árin og fórust að minnsta
kosti fimm í sprengingu í
gærmorgun í Algeirsborg.
Portúgalir
senda ekki
her
STJÓRNVÖLD í Portúgal
ákváðu í gær að verða ekki
við óskum uppreisnarmanna í
Guinea-Bissau og senda her-
menn til Afríkuríkisins til að
aðstoða við að koma þar á
friði. Antonio Guterres, for-
sætisráðherra Portúgals,
sagði Portúgal einungis geta
stutt mannúðarstarfsemi í
landinu eða aðstoðað flótta-
fólk þaðan en bein hemaðarí-
hlutun kæmi ekki til greina.
Finnsk her-
flugvél fórst
FLUGMÖNNUM finnskrar
herflugvélar af gerðinni
Hawk, sem vora við æfingar
norður af Helsinki, tókst að
forða sér úr vélinni áður en
hún fórst í gærdag. Er þetta
sjöunda Hawk-flugvélin sem
ferst síðan snemma á níunda
áratugnum.
Jeltsín í fram-
boð á ný?
STJÓRNLAGADÓMSTÓLL
í Rússlandi mun úrskurða í
október hvort Borís Jeltsín
forseti megi bjóða sig fram í
forsetakjörinu árið 2000, að
sögn forseta dómstólsins.
Samkvæmt ákvæðum stjóm-
arskrár má enginn gegna
embættinu tvö kjörtímabil í
röð. Jeltsín var á sínum tíma
kjörinn forseti þegar landið
var enn hluti Sovétríkjanna
gömlu og endurkjörinn en
óljóst er hvort fyrra tímabilið
telst með.
Börnum sé
ekki fleygt í
ruslatunnur
SAMTÖK um velferð bama á
Italíu festa nú spjöld á rasla-
tunnur um alla Ítalíu. Á
spjaldinu er mynd af stór-
eygðu ungbami sem stingur
höfðinu upp úr tunnu og í
textanum eru mæður, er ekki
vilja ala bam sem þær ganga
með, hvattar til að fleygja
ekki afkvæminu í tunnuna. 13
nýfædd böm hafa fundist lát-
in á víðavangi á Ítalíu það
sem af er árinu, m.a. í fata-
hengjum og á raslahaugum.