Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 63
FÓLK ÍFRÉTTUM
JAMIE Redknapp
og Louise giftu sig í vikunni.
Fótbolta- og
poppstjarna
í það heilaga
FÓTBOLTAKAPPINN Jamie
Redknapp, sem spilar með Li-
verpool, gekk að eiga unnustu
sína Lousie, sem er bresk
poppstjarna, um borð í
snekkju við Bermúda-eyju nú í
vikunni. Brúðkaupið átti upp-
haflega að vera á næsta ári en
skötuhjúin ákváðu með
skömmum fyrirvara að nýta
óvæntan frítíma Redknapp frá
boltanum og láta pússa sig
saman.
Redknapp á við hnémeiðsli
að stríða og gat því ekki verið
með á HM. Þess í stað eyddi
hann þremur vikum með sinni
heittelskuðu á Bermúda. For-
eldrar, afar og ömmur beggja
voru viðstödd auk bróðurs
Redknapps, en athöfnin fór
fram á snekkjunni Lady Erica
sem er í eigu milljarðamær-
ingsins Nigels Prescotts.
Hinn 25 ára gamli Red-
knapp og hin 23 ára gamla
Louise, sem var eitt sinn í
kvennasveitinni Eternal, trú-
lofuðu sig á síðasta ári og búa
í íbúð Redknapps í Liverpool.
Brúðkaupsferð var ekki fyrir-
huguð því Louise mun syngja
á góðgerðarsamkomu í Hyde
Park um næstu helgi.
Rappari
skotinn
RAPPARINN Russel Jones,
öðru nafni 01’ Dirty Bastard,
meðlimur sveitarinnar Wu-
Tang Clan, var
skotinn þegar
íbúð hans í
Brooklyn var
rænd á þriðju-
dagskvöldið.
Jones hlaut
skotsár í bakið
en fregnir
herma að líðan hans sé eftir
atvikum.
Að sögn lögreglunnar var
Jones á heimili sínu þegar
tveir grímuklæddir menn
komu inn um ólæstar útidyrn-
ar, gripu skartgripi, skutu
rapparinn og flúðu. Ættingjar
Jones fóru með hann á sjúkra-
húsið.
Tveir aðrir þekktir rappar-
ar, B.I.G. og Tupac, hafa látist
af skotsárum síðustu tvö árin.
Hásetinn Hildur veður
í karlmönnum
„ÉG VEÐ í karlmönnum,“ segir
hún hlæjandi, „en þeir eru allir
lofaðir." Hún er átján ára, heitir
Hildur Einarsdóttir og er háseti
á Bjarma frá Tálknafirði, eina
kvenkyns veran um borð.
Ætlar ekki að eyða
peningunum í vitleysu
Auk hennar á Bjarma eru sjö
karlmenn, þar á meðal faðir henn-
ar, vélstjórinn, og frændi hennar,
skipstjórinn. Henni líkar vel lífið á
sjónum og finnst í góðu lagi að
vera eini kvenmaðurinn um borð.
Hún segist meira að segja stríða
strákunum alveg miskunnarlaust.
Hildur er Tálknfirðingur en
býr í Keflavík, þar sem hún
stundar nám í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Þetta er í fyrsta sinn
sem hún vinnur á sjó og hún hef-
ur ekki orðið fyrir vonbrigðum
með launin. Hún segist ákveðin í
að eyða ekki sumarkaupinu í vit-
leysu, heldur leggja það fyrir.
Aðspurð um hvað hún geri um
borð segist hún aðallega vera í
aðgerð og svo hlaupi hún í skarð-
ið þar sem með þurfi. Sjóveikin
hefur alveg látið hana í friði, svo
hún unir glöð við sitt á miðunum
þar til skóli hefst á ný með
haustinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HILDUR Einarsdóttir nýtur sín vel á sjónum og hefur aldrei orðið sjóveik.
Mikið úrval af
nýjum herrafatnaði
Verðdæmi:
Jakkafötfrá ........9.
Skyrturfrá ...1.900
Buxurfrá ...2.900
Skór frá ...2.900
Stakir jakkar frá. ...4.900
Vesti...............1.900
Rýmingarsala hefst í dag
30—60% afsláttur