Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
BLÖNDALSBÚÐ, skógarhús Skógræktarfélags
Austurlands í Eyjólfsstaðaskógi.
Blöndalsbúð, skógar-
hús Skógræktarfélags
Austurlands, vígð
Vaðbrekku, Jökuldal - Skógarhús
Skógræktarfélags Austurlands í
Eyjólfsstaðaskógi var vígt síðastlið-
inn sunnudag og hlaut það nafnið
Blöndalsbúð til heiðurs Sigurði Blön-
dal fyrrverandi skógræktarstjóra.
Vígslan var í tilefni af 60 ára afmæli
félagsins. Húsið stendur á 100 hekt-
ara landsvæði úr landi Eyjólfsstaða
á Völlum sem Guttormur Pálsson
fyrsti skógarvörður á Hallormsstað
og fyrsti formaður Skógræktarfé-
lags Austuriands keypti fyrir félagið
árið 1994 til friðunar og skógræktar.
Plöntun í iandið hófst ekki að
marki fyrr en um 1957 undir stjórn
Sigurðar Blöndal þáverandi skógar-
varðar á Haliormsstað. Nú nýverið,
fjörutíu árum seinna, sá Sigurður
einnig um grisjun í skógarreitnum
og voru þá meðal annars felld hvít-
grenitré er plantað var árið 1957 og
nú eru 11 — 12 metra há og voru bolir
þeirra notaðir í þrjár flaggstangir
við húsið
Smíði hússins hófst árið 1996 og
var að mestu unnin í sjálfboðavinnu
meðlima félagsins á lóð Trésmiðju
Fljótsdalshéraðs og var húsið síðan
flutt upp í Eyjólfsstaðaskóg. Húsið
er 40 fermetrar að grunnfleti á tveim
hæðum, 66 fermetrar alls.
Athöfnin byrjaði með að Sigurður
Blöndal fór með gesti í skógargöngu
og sýndi árangur plöntunar og grisj-
unar í skóginum sem hann hefur að
mestu haft umsjón með. Sigurður
Blöndal lagði því næst hornstein að
húsinu og sett var brík yfir útskorin
af Skúla Magnússyni yfir með áletr-
un um vígsiudag. Síðan flutti pró-
fasturinn Einai- Þorsteinsson á Eið-
um ávarp og bæn og tilkynnti nafn
hússins sem er Blöndalsbúð eins og
áður er getið. Fjöldi manns flutti
ávörp við þetta tækifæri og flutti fé-
laginu kveðjur og gjafir við þessi
merku tímamót í sögu þess. Að end-
ingu voru léttar veitingar á boði
Skógræktarfélags Austurlands í
húsinu og á verönd þess en sólskin
og blíða var á vígsludaginn.
Morgunblaðið/Silli
GUÐNI Halldórsson, sagnfræðingur, og Marit Áhlén, fornleifafræð-
ingur, fluttu erindi um Garðar Svavarsson og um rúnasteina á Norð-
urlöndum.
Á sloðum Garð-
ars Svavarssonar
Húsavík - Að tilhlutan Norðursigl-
inga ehf. á Húsavík var haldið upp á
dag Garðars Svavarssonar hinn 27.
júní sl. á Húsavík.
Dr. Marit Áhlén, fomleifafræðing-
ur frá Svíþjóð, flutti íyrirlestur um
rúnasteina á Norðurlöndum og
hvaða sögu þeir segja um ferðir vík-
inga. Glöggt má af hinum mikla
fjölda þeirra steina er finnast sjá að
á tímum víkinganna ferðuðust menn
ótrúlega víða og langt en slíkir stein-
ar eru jafnan minnisvarðar og ekki
síst um þá sem létust í fjarlægum
löndum.
Guðni Halldórsson, sagnfræðing-
ur, forstöðumaður Safnahússins á
Húsavík, flutti erindi um útrás nor-
rænna manna, einkum á 9. og 10.
öld, siglingar þeirra og skipakost.
Fjallaði hann nokkuð um frásagnir
Landnámabókar um landkönnun
Garðars Svavarssonar svo og land-
nám Náttfara.
Fyrirlestramir vora haldnir í
Gamla-Bauk en um kvöldið var siglt
út undir Víkurfjöll þar sem á að hafa
verið svæði Náttfara. Þegar Sunn-
lendingar kanna slóðir Ingólfs kanna
Húsvíkingar slóðir Garðars Svavars-
sonar sem þar hafði vetursetu fjór-
um áram áður en Ingólfur nam land.
BJÖRGUNARÞYRLAN TF-Líf var notuð í björgunaræfingunni.
Umfangsmikil björg-
unaræfíng á Vesturlandi
Grundarfirði - Umfangsmikil björg-
unaræfing fór fram á norðanverðu
Snæfellsnesi hjá björgunarsveitum
SVFI sl. laugardag. Um 100 manns
tóku þátt í þessari æfingu og var hér
um að ræða björgunarsveitarfólk
allt frá Þorlákshöfn til ísafjarðar.
Hópurinn hafði aðsetur í björgunar-
skólanum á Gufuskálum og komu
þátttakendur seinnipart föstudags
en fóra heim á sunnudag.
Æfingin var hugsuð fyrir björg-
unarsveitir á vesturhluta landsins
og var skipulögð sem björgunar-
bátaæfing. Sautján bátar og skip
komu að æfingunni sem og þyrla
Landhelgisgæslunnar. Upphaflega
var gert ráð fyrir að æfingin ætti
sér stað fyrir framan Hellissand og
Rif en af því gat ekki orðið þar sem
norðanáttin var allt of mikil og var
þá verið að taka tillit til ungling-
anna sem léku sjúklingana. Var því
brugðið á það ráð að hafa æfinguna
UMFANGSMIKILL búnaður er oft notaður í köfunarstarfi.
í Grundarfirði þar sem sú vindátt stjórn á svæði 5 skipulagði æfing-
nær sér ekki eins upp þótt auðvitað una, en formaður hennar er Baldur
hafi verið nokkuð hvasst. Svæðis- Gíslason.
Skógræktarfelag Austurlands 60 ára
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
BJÖRN Bjarnason og Sigurður Blöndal með heiðursfélagaskjölin
sem að sjálfsögðu eru römmuð inn í afurðir skógarins. Rammarnir
eru unnir úr lerki af Hlyn og Fddu á Miðhúsum.
Heiðurs-
félagar
útnefndir
Vaðbrekka, Jökuldal - í tilefni
af 60 ára afmæli Skógræktarfé-
lags Austurlands voru við hátíð-
arkvöldverð í Hótel Svartaskógi
tveir heiðursfélagar útnefndir
af formanni félagsins Orra
Hrafnkelssyni. Nafnbótina
hlutu þeir Sigurður Blöndal
fyrrverandi skógarvörður og
skógræktarstjóri, og Björn
Bjarnason bóndi og skógrækt-
arfrömuður í Birkihlið í Skrið-
dal.
Sigurður Blöndal hefur
starfað með skógræktarfélag-
inu mest allan aldur þess og
verið óþreytandi við að að-
stoða félagið á allan hátt auk
þess sem Sigurður er mikill
hugsjónamaður um skógrækt
og framgang hennar allan
bæði hér austanlands þar sem
vagga skógræktar stendur
sem og um land allt, auk þess
sem Sigurður er mikilvirkur
hvað alla fræðslu og útbreiðslu
„fagnaðarerindis" skógræktar
varðar.
Björn Bjarnason bóndi í
Birkihlíð í Skriðdal hefur búið
þar 51 ár og allan þann tíma
unnið að skógrækt í iandi sínu
og er frumherji hvað bænda-
skógrækt varðar hér á Austur-
landi en nú hefur Björn fengið
sporgöngumenn í bændaskóg-
ræktinni. Frá 1982 hefur allt
land Birkihlíðar verið afgirt og
friðað til skógræktar. Björn er
aldursforseti Skógræktarfé-
lagsins og hefur starfað með
því svo lengi sein elstu menn
muna.
Þeir Sigurður Blöndal og
Björn Bjarnason eru einarðir
hugsjónarmenn hvað allan
framgang skógræktar á Aust-
urlandi varðar, hafa eytt í hana
ómældum tíma og aldrei spurt
um daglaun að kveldi.