Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 29

Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 29 ALOE VERA ALOE VERA GEL , 1998 LINAN FRÁ USA: KL€IN ...er glæsilegri og fullkomnari en nokkru sinni fyrr. Helstu útsölustaðir: Örnirtn Reykjavík, Hjóliö v/Eiöistorg Seltjarnarnesi, Músik og Sport Hafnarfirði, Stapafell Keflavík, Pípó Akranesi, Olíufélag útvegsmanna (safirði, Hegri Sauðárkróki, Sportver Akureyri, KÞ Húsavík, Króm & Hvítt Höfn, Klakkur Vík, Skeljungsbúöin Vestmannaeyjum, Birgir Oddsteinssson Hveragerði, Hjólabær Selfossi. Barðastrandarsýsla Hvítur sandur, skeljar og kuðungar VINIR veganna standa fyrir sand- kastalakeppnum víðsvegar um Barðastrandarsýslu í sumar. Keppnisreglurnar eru einfaldar; öllum heimil þátttaka, leyfð verk- færi eru fata og skófla, og til skrauts má nota allt það sem finnst í fjörunni og næsta nágrenni hennar. Hvítar sandfjörurnar í Barða- strandarsýslu eru óþrjótandi upp- spretta sköpunargleði og sandur- inn er fyrirtaks byggingarefni í kastala og hvers kyns mannvirki af öllum stærðum og gerðum. AU- skyns skeljar og kuðunga er að finna í fjörunni, svo auðvelt ætti að vera að skreyta kastalana fagur- lega. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá glæsilegustu kastalana, auk þess sem allir fá viðurkenningarskjal fyiir þátttökuna. Sandkastala- kepnnir eru fyrirhugaðar á fimm stöðum í sumar. Sú fyrsta fer fram í Breiðuvík sunnudaginn 5. júh', þá verður keppt á Rauðasandi 19. júh, á Tálknafirði 26. júlí, í Flókalundi 2. ágúst og Hvestu í Arnarfirði 9. ágúst. Vinir veganna taka þó fram í tilkynningu að dagsetningar þessar séu með fyrirvara um breytingar vegna veðurs og/eða sjávarfalla. TREK 8QD SPORT, KVENREIÐHJÓL Ein af fjölmörgum gerðum fjallahjóla fyrir alla aldurshópa með ævilangri ábyrgð á stelli og gaffli. Öll varahluta- og verkstæðisþjónusta. SKEIFUNNI 11, SÍMI 588-9890 Framkvæmdir vegna ferðamála á Ólafsfírði Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir GRILLVEISLA á Hótel Ólafs- firði var haldin til að fagna Jónsmessunni. ÖRHINNÍ ALLAR GÖTUR SÍÐAN 1925 FYRIRTÆKIÐ Sæunn Axels ehf. á Olafsfirði stóð fyrir Jónsmessu- brennu sl. miðvikudagskvöld og bauð starfsfólki sínu í grillveislu á Hótel Ólafsfirði á eftir til að þakka því fyrir vel unnin störf. Og við það tækifæri var fyrsta skófiustungan tekin að nýjum kjarna smáhýsa og nýrri smábátahöfn, sem grafa á inn af Ólafsfjarðarvatni. Það var Ás- geir Asgeirsson, forstjóri Sæunnar Axels ehf., sem tók skóflustung- una. Að sögn Kristjáns Ragnars As- geirssonar ferðamálafulltrúa eru þær framkvæmdir, sem fyrirtækið er nú að ráðast í, ætlaðar til þess að auka möguleika í ferðaiðnaði á Ólafsfirði sem og að höfða frekar til fjölskyldufólks. En einnig hefur vantað gistirými fyrir stærri hópa, þar sem hótelið getur einungis hýst um 20 manns. „Nú þegar á að hefja byggingu á fjórum smáhýs- um, sem hvert hefur tvö herbergi og snyrtingu og útbúa smábáta- höfnina. En ætlunin er að hafa kanóa, árabáta og sportbáta með utanborðsmótor til afnota fyrir gesti smáhýsanna, sem notað gætu þá m.a. til fiskveiða á Ólafsfjarðar- vatni en talsverð bleikjuveiði hefur verið þar, sem og eitthvað um sjáv- arfiska. I framhaldi af þessum framkvæmdum er síðan ætlunin að byggja fjóra stærri bústaði. Allir bústaðirnir verða bjálkakofar inn- fluttir frá Finnlandi. Stefnt er á að fjögur fyrstu smáhýsin og höfnin verði tilbúin í september nk.“ Kristján Ragnar sagðist vera bjartsýnn á þessar framkvæmdir því hótelið væri á uppleið hvað nýt- ingu varðaði og bærinn virtist vera að komast inn á kortið sem ferða- mannastaður, einnig hefði fisk- vinnslan gengið mjög vel og væri það góðum mannskap og góðu skipulagi að þakka en um eitt hundrað manns starfa hjá fyrir- tækinu. „Ætlunin er að Hótel Ólafsfjörður muni árlega standa að Jónsmessubrennu og tilheyrandi til að vekja fólk til umhugsunar um Jónsmessuna og gera þar með þessum merkisdegi hærra undir höfði.“ Sæunn Axels ehf. er fjölskyldu- fyrirtæki sem hingað til hefur aðal- lega verið í fiskiðnaði þ.e. saltfisk- verkun, frystingu og þurrkun. En fyrir rúmu ári festi fjölskyldan kaup á Hótel Ólafsfirði og er það rekstrarfyrirtækið Brimnes ehf., sem er í eigu sömu aðila, sem rek- ur hótelið. 98% hreint ALOE VERA húðgel. Nærandi, styrkjandi og rakagefandi Naturlægemiddel MT nr. 6145493 Útsölustaðir: Stella Bankastræti, Hygea Kringlunni, Laugavegi og Austurstræti, Kaupf. Skagfirðinga, Stjörnuapótek Akureyri, Hilma Húsavík, Vestmannaeyja- apótek, Laugamesapótek. Einnig fæst ALOE VERA sjampó fyrir hár og húð, krem, lotion, varasalvar, 2 gerðir og sólkrem. NÝTT NÝTT a) Fljótandi sápa með pumpu. b) *Creme Xtreme* dag- og næturkrem. c) Lotion, 500 ml brúsi með pumpu. Bankastræti 3, sími 551 3635. Póstkröfusendum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.