Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 54

Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR PHILIPS Aloris • 900 Mhz. • Þyngd símtóls 170 g. • Dregur allt að 100 metra innanhúss. • Dregur allt að 300 metra utanhúss. • íslenskur leiðarvísir. ^Steðgreitt: 1 PHILIPS - hvergi ódýrara PHIUPS Xalio Þrjár gerðir • Stafrænn sími. • Þyngd símtóls 170 g. • Dregur 100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • Ekkert suð, kristaltær hljómur. • íslenskur leiðarvísir. (p 17.900,- DeTeWe TWINNY MAGIC • Stafrænn sími. • Þyngd talfæris 158 g. • Dregur 50-100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • Ekkert suð, kristaltær hljómur. • Möguleiki á 4 símtólum. • íslenskur leiðarvísir. ^Steðgrett: 1 )) • Aukasímtól: 9.900,- _______________s BOSCH Dect-Com 557 • Stafraenn sími. • Ekkert suð, kristaltær hljómur. • Þyngd talfæris 210 g. • Dregur 50-100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • Hægt að bæta við 5 aukasímtólum. ^Steðgreitt: 1 4w900j—^) SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is Umboðsmenn um land allt Styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs 1998 3,5 milljón- um úthlutað LOKIÐ er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1998 og þar með tuttugustu og fyrstu út- hlutun úr sjóðnum. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs- ins, nr. 361 frá 30. september 1977, er tilgangur sjóðsins að veita styrki til stofnana og annarra að- ila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verð- mæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Fjórðungur af árlegu ráðstöf- unarfé sjóðsins skal renna til Frið- lýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruvemdarráðs, annar fjórðungur skal renna til varð- veislu fornminja, gamalla bygg- inga og annarra menningarverð- mæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjóm sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita viðbót- arstyrkir til þarfa, sem getið er hér að framan. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. I samræmi við 6. gr. skipulags- skrár fyrir sjóðinn hafa þeir aðilar, sem skipa skulu menn í stjóm sjóðsins valið eftirtalda menn til setu í henni fyrir yfirstandandi kjörtímabil, sem hófst hinn 1. jan- úar 1998 og stendur til ársloka 2001, en þeir eru: Hulda Valtýsdóttir, blaðamaður, formaður, skipuð af forsætisráð- herra. Birgir Isl. Gunnarsson, seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka íslands. Jónína Michaelsdóttir, rithöfund- ur, Hulda Kristinsdóttir, kjóla- meistari, og Bjöm Teitsson, skóla- meistari, sem kjörin vora af Al- þingi. Ritari sjóðsstjómar er Sveinbjöm Hafliðason, lögfræð- ingur. I samræmi við 5. gr. skipulags- skrár sjóðsins vora styrkir aug- lýstir til umsóknar í fjölmiðlum um sl. áramót með umsóknarfresti til og með 27. febrúar sl. Til úthlutunar í ár koma allt að 7.000.000 þar af skal fjórðungur, 1.750 þús. kr., renna til Friðlýsing- arsjóðs til náttúraverndar á veg- um Náttúraverndarráðs og fjórð- ungur, 1.750 þús. kr., skal renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningar- verðmæta á vegum Þjóðminja- safns, skv. ákvæðum skipulags- skrár. Allt að helmingi úthlutunarfjár á hverju ári er varið til styrkja skv. umsóknum og voru því allt að kr. 3.500.000 til ráðstöfunar í þennan þátt að þessu sinni. Alls bárast 92 umsóknir um styrki að fjárhæð um 65,5 millj. kr. Úthlutun styrkja fyrir árið 1998 Þjóðminjasafn íslands, til tölvu- skráningar safngripa, björgun friðlýstra minja á Húsafelli og uppskrift gamalla kopíubóka safnsins, kr. 1.750.000 þús. Náttúraverndarráð vegna Frið- lýsingarsjóðs. Samkvæmt upplýs- ingum frá Náttúrarverndarráði auglýsti það hinn 14. desember 1997 eftir hugmyndum um verk- efni til styrkveitinga úr Friðlýs- ingarsjóði og rann umsóknarfrest- ur út 1. febrúar 1998. Tvær um- sóknir bárast en vegna ófullnægj- andi upplýsinga tók stjórn Frið- lýsingarsjóðs ekki afstöðu til þeirra á síðasta fundi sínum. Hún mun leita frekari hugmynda og afla gagna um verkefni til styrk- veitinga úr Friðlýsingarsjóði og veita síðan styrki í samræmi við reglur sjóðsins. Kr. 1.750.000. Úthlutun styrlq'a skv. umsókn- um: Hljóðbókagerð Blindrafélags- ins, til að ljúka heildarútgáfu Is- lendingasagna á hljóðbók, kr. 250.000 þús. Djúpavogshreppur, vegna endurbyggingar húss frá 1840 sem byggt var sem íbúðarhús fyrir verslunarstjóra Löngubúðar svokallað ,,Kaupmannshús“; Landsbókasafn Islands - Háskóla- bókasafn, til lúkningar viðgerða á um 75 innrömmuðum Islandskort- um í eigu safnsins; Sigríður D. Kristmundsdóttir, Rannsókn á ævi og verkum dr. Bjargar C. Þorláks- son (1874-1934); Hið íslenska bók- menntafélag, Útgáfa mannanafna- skrár Annála 14-1800, kr. 200.000 þús. Byggðasafn Rangæinga og V- Skaftfellinga vegna flutnings og endurbyggingar barnaskólahúss frá Litla-Hvammi í Mýrdal sem byggt var árið 1901; Héraðsnefnd Barðstrendinga, vegna lokaáfanga nýbyggingar minjasafns á Hnjóti; Ljósmyndastofa Reykjavíkurborg- ar, vegna varðveislu ljósmynda- safns Óskars Gíslasonar, ljós- myndara og kvikmyndagerðar- manns; Viðar Hreinsson vegna rit- unar ævisögu Stephans G. Steph- anssonar; Jón Ásgeirsson vegna vinnu til útgáfu safns ísl. söngdansa (ísl. þjóðlög); Hvala- miðstöðin á Húsavík til að setja upp upplýsinga- og fræðslumið- stöð um hvali og og lífríki þeirra hér við land; Nína Margrét Gríms- dóttir vegna hljóðritunar á píanóv- erkum dr. Páls Isólfssonar og Vestfirska félagið vegna kynning- ar á sögu Jóns Sigurðssonar, for- seta, bæði hér heima og erlendis hlutu 150.000 þús. kr. styrk. 100 þús. króna styrk hlutu: Framfara- félag Flateyjar og Minjaverndar vegna lokaátaks til endurhleðslu og og lagfæringa á gömlum sjó- minjum við norðurströnd Flateyj- ar á Breiðafirði; Islenski lúðu- bankinn ehf., til að útbúa sérhæfða kennslustofu í náttúrafræðum o.fl., Byggðasafn Hafnarfjarða vegna tækjakaupa til tölvuskráningar á ljósmyndasafni byggðasafnsins; Leikfélag Reykjavíkur til að skrá- setja og flokka muni og minjar í vörslu Leikfélags Reykjavíkur, Collegium Musicum, Landsbóka- safni, vegna tölvuskráninga upp- lýsinga um hinn íslenska tónlistar- arf 1500-1800; Einar E. Sæ- mundssen, vegna úrvinnslu upp- mælinga og frekari rannsókna á görðum að Skriðu í Hörgárdal og Múlakoti í Fljótshlíð; Kvenfélagið Iðja vegna ýmsissa framkvæmda við skógræktar- og útivistarsvæð- ið Asdísarlundur í Miðfirði; Kar- ólína Hulda Guðmundsdóttir vegna könnunar á gróðurfari í mýrlendi í landi Fitja í Skorradal; Kvikmyndaverstöðin ehf., vegna heimildarkvikmyndar um sambúð manns og lands: „Bújörðin ís- land“; „Voces Thules“, vegna framkvæmda á upptöku „Þorláks- tíða“ og Lífsmynd, vegna heimild- armyndar um lífríki og mannlíf við Þingvallavatn. Fuglaverndarfélag Islands til verndunar íslenska arn- arins hlaut 90.000 þús. kr. styrk og Ragnheiður Viggósdóttir vegna tölvuskráningar og tölvumyndun- ar íslenskra póst-korta frá fyrri hluta þessarar aldar kr. 60.000 þús.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.