Morgunblaðið - 15.07.1998, Side 15

Morgunblaðið - 15.07.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998 15 Fyrsti valréttar- samningurinn FYRSTI valréttarsamningurinn á íslenskum verðbréfamarkaði var gerður 3. júlí sl. en þá keypti líf- eyrissjóðurinn Framsýn valrétt á úrvalsvísitölu aðallista Verð- bréfaþings íslands af íslands- banka. Valréttarsamningar nýt- ast Qárfestum m.a. til að veija stöðu sína á markaði og gefa þeim möguleika á spákaup- mennsku umfram það sem hing- að til hefur tíðkast, að því er fram kemur í frétt frá Islands- banka. Á meðfylgjandi mynd sjást Tryggvi Pálsson, framkvæmda- stjóri íslandsbanka, Bjarni Brynjólfsson, sjóðsstjóri hjá líf- eyrissjóðnum Framsýn og Heiðar Guðjónsson, verðbréfamiðlari hjá íslandsbanka, handsala samning- inn við undirritun. Deutsche hyggur á útþenslu vestanhafs WUrzburg, Þýzkalandi. Reuters. DEUTSCHE Bank AG kveðst íhuga möguleika á að kaupa eða komast í samstarf við bandaríska fjárfestingarbanka til að skipa sér í fremstu röð fjármálastofnana í heiminum á næstu fimm árum. Aðalframkvæmdastjóri Deut- sche, Rolf Breuter sagði að bank- inn hefði ekkert sérstakt fyrirtæki í huga að svo stöddu, en kannaði öll sem kæmu til greina. Bankinn væri þess albúinn að láta til skarar skríða ef ákjósanlegt tækifæri gæf- ist. Yfirlýsing Breuers mun líklega endurvekja vangaveltur um að stærsti banld Þýzkalands kunni að ganga til liðs við bandaríska aðila á við J.P. Morgan, Merrill Lynch, Goldman Sachs, Lehman Brothers eða PaineWebber. Nokkrir segja af sér Breuer reyndi einnig að eyða efasemdum um stuðning bankans við fjárfestingararm sinn. Nokkrir hæfir menn eins og Frank Quattro- ne hafa sagt skilið við bankann að undanfömu. Sérfræðingar hafa sagt að brott- för þessara manna sýni að tilraun Deutsche til að komast í röð vold- ugustu banka heims með því að ráða hálaunaða sérfræðinga sé dæmd til að mistakast. Þeir segja að bankinn verði að sameinast öðr- um banka, kaupa annað fyrirtæki eða leggja heimsveldisdrauma á hilluna. Breuer sagði að fyrirtæki, sem til greina kæmi að kaupa, kynnu að lækka í verði þegar verð hlutabréfa í fjárfestingarbönkum í Wall Street fari að falla eftir stöðugar hækkan- ir í sjö ár. Verðið væri þó ekld aðal- atriðið, góðir framtíðarmöguleikar skiptu meira máli. Hann sagði að Deutsche hefði úr 40 milljörðum marka að spila, en kvað sameignarfyrirtæki eða sam- starfssamning einnig koma til greina. Breuer harmaði brottför Qu- attrone og tveggja samstarfs- manna frá Kalifomíu-fyrirtæki bankans, Technology Group, sem hefur veitt Credit Suisse First Boston þjónustu á tölvu- og hug- búnaðarsviðinu. Hann neitaði að ræða vangavelt- ur um að Deutsche íhugi kaup á fjárfestingarbanka í San Francisco, Hambrecht & Quist Inc., sem hefur sterka markaðs- stöðu í tæknigeiranum og er met- inn á um 1 milljarð dollara. Shell leitar að olíu við Falklandseyjar London. Reuters. ROYAL Dutch/Shell hefur tekið við olíuleit borpallsins Borgny Dolphin við Falklandseyjar, þar sem Lasmo Plc hefur ekki tekizt að finna olíu, að sögn fyrirtækisins. Shell fær leyfi til að bora austan við svæði þar sem fyrirtækið Amerada Hess hætti við boranir í maí þegar fundizt höfðu merki um kolvatnsefni, en ekki í nýtanlegum mæli. Amerada hóf fyrst fyrir- tækja að bora við Falklandseyjar seint í apríl. Talsmaður Lasmo sagði að þótt olía hefði ekki enn fundizt væri enn ástæða til bjartsýni. Leyft hefur verið að bora eftir olíu á 12.800 ferkílómetra haf- svæði, sem hefur verið skipt í sjö leitarsvæði norðan við Falklandseyjar á einu síðasta ókannaða landgranni heims. Næsta fyrirtæki á eftir Shell, sem mun bora, er Lundin Oil AB í Svíþjóð. Að svo búnu fær Amerada Hess aftur að bora. Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf. Aðalfundur Aöalfundur Hlutabréfasjóös Búnaöarbankans hf. veröur haldinn fimmtudaginn 23. júlí 1998, kl. 16:30, Hafnarstræti 5, 4. hæö. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar félagsins fyrir liðið starfsár. 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar. 4. Tillaga um breytingu á 5. gr. samþykkta félagsins varðandi heimild stjórnar til hækkunar á hlutafé um allt að 500.000.000 kr. til viðbótar við núverandi heimild, þannig að heildarhlutafé félagsins verði allt að 2.000.000.000 kr. og til að ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör sem skulu ráðast af virði eigna og skuldbindinga sjóðsins og markaðsaðstæðum á hlutabréfamarkaði. Markmið með hlutafjár- hækkuninni er að afla félaginu fjár til fjárfestinga í hlutabréfum og öðrum framseljanlegum verðbréfum samkvæmt fjárfestingarstefnu félagsins. Lagt er til að hluthafar víki frá áskriftarrétti sínum vegna hækkunarinnar og að heimildin gildi til ársloka 2003. 5. Heimild félagsins til kaupa á eigin hlutabréfum. 6. Kosning stjórnar. 7. Kosning endurskoðanda. 8. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðanda. 9. Önnur mál. BUNAÐARBANKINN VERÐBRÉF - byggir á trausti Austurstræti 5, 155 Reykjavík, Sími 525-6060, Bréfasími 525-6099, Netfang, verdbref@bi.is Sólgleraugu með styrkleika Lausn í sólinni fyrir þá sem nota gleraugu. Verð frá 9.500 kr. LIIMSAINl Aðalstræti 9, sími 551 5055

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.