Morgunblaðið - 15.07.1998, Síða 24

Morgunblaðið - 15.07.1998, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ fltangpmftbifrtí STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. NÝJAR SKÝRSLUR RÍKISENDUR- SKOÐUNAR RÍKISENDURSKOÐUN hefur nú sent frá sér skýrslur um kostnað bæði Seðlabanka íslands og Búnaðarbanka íslands vegna veiðiferða, risnu o.fl. Athyglisvert er, að skýrslurnar um þessa tvo banka einkennast af hófsemd í umfjöllun um einstök atriði. Má gera ráð fyrir, að hún taki m.a. mið af þeirri gagn- rýni, sem Ríkisendurskoðun varð fyrir vegna umfjöllunar stofnunarinnar um málefni Landsbankans. Nú liggur fyrir, að allir bankarnir þrír, Landsbanki, Búnað- arbanki og Seðlabanki, gáfu Alþingi rangar upplýsingar um kostnað vegna veiðiferða, þótt þær upphæðir, sem um er að ræða hjá síðarnefndu bönkunum tveimur séu mun lægri en hjá Landsbankanum. Hvort sem um háar eða lágar upphæðir er að ræða er auðvitað óviðunandi, að Alþingi fái ekki réttar upplýs- ingar frá ríkisfyrirtækjum eða ríkisstofnunum. Má gera ráð fyrir, að þær miklu umræður, sem af því hafa spunnizt leiði til meiri nákvæmni í upplýsingagjöf til Alþingis í framtíðinni. Jafnframt er ljóst, að það sjónarmið, sem Seðlabankinn hefur sett fram af þessu tilefni á fullan rétt á sér, þ.e. að auðvitað verða þessar stofnanir að fá nægan tíma til að undirbúa svör sín til þingsins. í Búnaðarbankanum hafa verið settar skrifleg- ar reglur um veiðiferðir, sem útiloka að efnt sé til slíkra ferða án þess að þær tengist sérstaklega viðskiptavinum bankans og þar með hagsmunum hans. Búnaðarbankinn hefur haft íbúð á leigu í London og eru rök- in fyrir því þau, að með því sparist kostnaður vegna dvalar starfsmanna á hótelum í borginni í erindum bankans þar. Ráð- stafanir af þessu tagi eru alltaf umdeilanlegar og alla vega er Ijóst, að sparnaðurinn þarf að vera ótvíræður til þess að slík út- gjöld séu réttlætanleg. í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram, að í báðum bönk- unum, sem hinar nýju skýrslur fjalla um sé frágangur risnu- reikninga að mestu leyti óaðfínnanlegur og í þeim tilvikum, sem leita hafí þurft frekari skýringa hafí þær allar reynzt fullnægj- andi. Fram kemur að skilningur bankastjóra Búnaðarbankans um að ferðakostnaður vegna einkaerinda væri hluti af launakjörum hefur verið sá sami og fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Petta sýnir nauðsyn þess, að ráðningarsamningar við bæði bankastjóra og aðra starfsmenn séu skriflegir þannig að ekki þurfí að deila um atriði sem þessi. Starfskjörum bankastjóra Búnaðarbankans eftir breytingu á rekstrarformi hans um ára- mót hefur verið breytt og er slíkur ferðakostnaður ekki lengur hluti af kjörum þeirra. í heild er ljóst, að allar þær umræður, sem orðið hafa um rík- isbankana á þessu ári hafa orðið til þess að gamlir siðir og venj- ur hafa verið lagðar af. Það er sá árangur af slíkum umræðum, sem mestu skiptir. GAMLIÞÓR OG SAGA ÞORSKASTRÍÐANNA STJÓRN Slysavarnafélags íslands hefur ákveðið að skóla- skipið Sæbjörg, sem áður var um 35 ára skeið varðskip Landhelgisgæzlunnar og hét þá Þór, verði selt til Húsavíkur. A að nota það sem hótel þar í bæ. Fá íslenzk skip hafa komið jafnmikið við íslandssögu þessar- ar aldar og gamli Þór. Skipið tók þátt í þremur þorskastríðum íslendinga við Breta, 1958-61, 1972-73 ög 1975-76. Skipið komst oft í hann krappan er það varð fyrir ásiglingum herskipa brezka flotans, það tók landhelgisbrjóta og klippti á togvíra fjölda brezkra togara. Helgi Hallvarðsson skipherra segir í Morgunblaðinu í gær: „Mér fmnst furðulegt ef skipið á að enda sem matsölu- og gisti- staður og einkennilegt að enginn vilji halda því til haga. Helzt vildi ég að það væri minjasafn um þau þorskastríð sem við höf- um gengið í gegnum en það tók þátt í þeim öllum, eitt íslenzkra varðskipa. Ef þetta væri hús þá væri löngu búið að friðlýsa það en þar sem þetta er skip þá virðist mega gera hvað sem er við það.“ Taka má undir það með Helga Hallvarðssyni að bezt færi á því að ekkert yrði af sölu Þórs til Húsavíkur, heldur yrði skipið gert upp í sem upprunalegastri mynd og yrði safn um sögu þorskastríðanna. Það er merkileg saga, sem á erindi við kom- andi kynslóðir; sagan af því hvernig íslendingar náðu yfirráð- um yfír fiskimiðunum við landið og tókst að vernda þau fyrir of- veiði og rányrkju. Landhelgisgæzlan á án efa í fórum sínum mikið af gripum, sem setja myndu svip á slíkt safn. Verði hins vegar ekki aftur snúið með söluna á skipinu ber að leggja á það ríka áherzlu að sögu þess og hlutverki verði gerð sem bezt skil. Frétt er annaðhvort rétt eða röng Það eru hættulegar villigötur, sem fjölmiðlar villast inn á, þegar þeir í æsingi augnabliks- ins, eða þránni eftir „stórskúbbi“, vaða fram og birta „fréttir“ sem þeir hafa ekki sannreynt. Agnes Bragadéttir fjallar um ástæður þess að slíkt hendir og þann skaða sem fjölmiðlar verða fyrir, þegar slíkur „fréttaflutningur“ hendir þá. UPP Á síðkastið hafa ákveðnir hlutir gerst í bandarískri blaða- og fréttamennsku, sem hafa orðið ýmsum í blaðamannastéttinni á Islandi að umhugsunarefni. I einu til- viki var stórfrétt dregin til baka, þar sem á daginn kom, að ekki reyndust nógu traustar heimildir að baki frétt- inni, til þess að hægt væri að stað- hæfa að hún væri sönn. I öðru tilviki var upplýst að ungur blaðamaður hafði logið svo til öllu sem hann hafði skrifað í blaðið sem hann vann hjá í tvö og hálft ár og í þriðja tilvikmu var um að ræða dálkahöfund sem varð uppvís að því að ljúga upp tilvist við- mælenda sinna, leggja þeim orð í munn og skálda upp fréttaviðburði í kringum þá. í öllum tilvikum var um fjölmiðla að ræða, sem leitast við að láta taka sig alvarlega og líta á sig sem virðulega fjölmiðla. Bandaríska fréttastofan CNN hef- ur löngum þótt hafa á að skipa snörp- um fréttamönnum sem hafa á ýmsan hátt staðið sig vel. Vissulega hafa margir í Evrópu verið gagnrýnir á CNN fyrir það hversu bandarísk stöðin er og staðbundin á ýmsan hátt í fréttaflutningi, en ekki alþjóðleg og á stundum jafnvel með yfirbragði æsifrétta. En stöðin hefur einnig hlotið lof íyrir fréttaflutning af mörg- um viðburðum, ekki síst af vettvangi átaka og bardaga. Fyrsti þátturinn hófst á skúbbi Eins og fram hefur komið hér í Morgunblaðinu og annars staðar, hafa CNN og tímaritið Time sem bæði eru að megninu til í eigu Time Warner-fyrirtækisins hafið samstarf um fréttaþátt, NewsStand, sem var m.a. ætlað að skapa CNN nafn í rann- sóknarblaðamennsku, en á því sviði hafa þeir ekki þótt ýkja sterkir hing- að til. Fyrsti þátturinn fór í loftið í byrjun júnímánaðar og fyrsta fréttin var „skúbb“ um að bandaríski herinn hefði beitt taugagasi a.m.k. 20 sinnum gegn óvinasveitum í Lagos í Víetnam, árið 1970, í leynilegum árásarferðum þangað. „Skúbbið“ var niðurstaða af átta mánaða rannsókn- um og vakti þegar í stað heimsathygli. Þótti hinn nýi samvinnufréttaþáttur Time og CNN fara af stað með glæsibrag með sinni fyrstu frétt. En Adam var ekki lengi í Paradís og þau systkin Time og CNN ekki heldur, því nú í byrjun júlí, viður- kenndu yfirmenn CNN að ekkert væri hæft í fréttum sem stöðin flutti um beitingu taugagassins. Stjórnar- formaður fyrirtækisins, Tom John- son, bað áhorfendur og fyrrverandi hermenn í Víetnam afsökunar og sagði að engar sannanir væru fyrir hendi fyrir áðurnefndum ásökunum. í kjölfarið sagði aðalframleiðandi þáttarins NewsStand, April Oliver, af sér og aðstoðarframleiðendum hans var sagt upp. Peter Arnett fékk ákúr- ur, en við það var látið sitja, enda er hann lifandi goðsögn í bandarískri fjölmiðlun vegna stríðsfréttaflutnings síns í gegnum tíðina. Auk þess stað- hæflr Arnett að hann hafi komið afar lítið við sögu við gerð sjónvarpsfrétt- arinnar og um fréttafrásögnina sem birtist í kjölfar þáttarins í tímaritinu Time, undir hans höfundarnafni, sagði hann að hann hefði ekki einu sinni lagt „eina kommu“ til prentút- gáfunnar. Eigi sú staðhæfing hans við rök að styðjast vakna aftur ýmsar spurning- ar um trúverðugleika þessara fjöl- miðla og þeirra sem þar starfa, ef settar eru á prent heilu fréttafrá- sagnimar merktar ákveðnum blaða- mönnum eins og þeir væru höfundar, en þeir hafa svo ekki einu sinni barið frásagnirnar augum, hvað þá að þeir séu höfundar að þeim. Fregnir bárust út um það að blaða- menn á Time væru æfir yfir þessu fjölmiðlahneyksli, því þeir höfðu hvergi komið við sögu við vinnslu „fréttarinnar" umdeildu. Þeir höfðu ekki yfirfarið hana, kannað sannleiks- gildi hennar, eða gert nokkurn skap- aðan hlut í tengslum við vinnslu frétt- arinnar, en bára samt sem áður jafn- mikla ábyrgð á klúðrinu út á við og CNN, vegna þess að þátturinn NewsStand, er samvinnuverkefni beggja fjölmiðlanna. Út frá sjónarhóli blaðamannsins hef ég fullan skilning á reiði blaða- mannanna hjá Time, því þeir komu hvergi við sögu við vinnslu „fréttar- innar“. Það mætti ímynda sér að Morgunblaðið og einhver sjónvarps- stöð hér á landi ákvæðu að vinna sameiginlega að fréttaþáttargerð og sjónvarpsstöðin tjaldaði sínum fræg- asta fréttahauk í fyrsta þáttinn, til þess að hefja þáttinn með flugelda- sýningu. Síðan kæmi á daginn, að ekki væri fótur fyrir fréttinni. Það er alveg ljóst, að ritstjóm Morgunblaðs- ins myndi kunna sam- starfsaðilanum, umræddri sjónvarpsstöð og hinum svoneftida „fréttahauk", litlar þakkir. Onnur nýleg dæmi úr bandarískri fjölmiðlun, þar sem blaða- eða fréttamenn hafa misstigið sig eru m.a. þau að einn dálkahöfund- ur Boston Globe, Patricia Smith, missti nýverið starf sitt fyrir að skálda upp viðmælendur og fréttavið- burði í dálkum sínum og sama gerðist með ungan blaðamann í Washington, Stephen Glass, sem starfaði hjá The New Republic, en hann ýmist laug að hluta eða öllu leyti í 27 greinum af 41 sem hann hafði skrifað fyrir blaðið á undanfómum tveimur og hálfu ári. Það sem mér finnst vera hvað Það versta er að glata trausti ánægjulegast við þessa atburði í bandarískri fjölmiðlun er hin opna umræða um fjölmiðlun og þýðingu á sannleiksgildi frétta, sem risið hefur í kjölfar þeirra. Draumurinn að skúbba Draumur sérhvers blaðamanns er að skrifa stórfrétt - að hafa átt frum- kvæði að því að afla fréttarinnar, tryggja að réttar og sannar heimildir væru að baki fréttinni, að hafa sjálfur skrifað fréttina frá upphafi til enda og að vera fyrstur með fréttina, uppslátt- inn, það sem okkar blaðamanna á milli nefnist „skúbb“. Auðvitað vill enginn skúbba með þeim ósóma að fara með ranga frétt, en slys gerast hjá okkur eins og öðr- um. Traustasta jarðsamband og að- hald okkar blaða- og fréttamanna, er að starfa hjá traustum og virtum fjöl- miðli, sem gerir kröfur til okkar, um gæði, vönduð vinnubrögð, heiðarleika og það að okkar leiðarljós í starfi sé sannleikurinn. Með því að fá slíkt fjöl- miðlauppeldi og því að hafa sem vinnuveitanda bakhjarl sem rís undir ofangreindum kröfum, þolum við það flest hver, að vera svolitlar príma- donnur að eðlisfari. Það er fátt sem jafnast á við tilfinn- inguna af því að skúbba. Streð, fyrir- höfn, endurteknar tilraunir og hlaup gleymast í einni andrá, þegar blaða- maðurinn er orðinn sannfærður um að hann er kominn með „söguna" og að hans útgáfa er hin rétta. Þá bíður hans einungis sú ánægja, að sjá eða heyra „fréttina sína“ sem hann oft lít- ur á sem nokkurs konar afkvæmi sitt, sem uppslátt í þeim fjölmiðli sem hann starfar við. Allt er í heiminum afstætt, frétta- mat er þar engin undantekning. Það, sem við hér á Morgunblaðinu teljum stórfrétt, telja þeir, sem öðram frétta- miðlum stýra, hugsanlega smáfrétt og öfugt. Það sem fjölmiðlar í Bandaríkj- unum telja stórfrétt, getum við á ís- landi talið til smáfréttar og svo fram- vegis. Svo er það kerlingin hún Öfund sem leikur stundum nokkuð stórt hlutverk, a.m.k. hér á landi, þegar einn fjölmiðill hefur skúbbað með góða frétt - þá tekur við samtrygging hinna, með það að reyna að þegja fréttina í hel, eða a.m.k. að svæfa hana um stundarsakir, og byrja svo

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.