Morgunblaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998 33 *
VIÐ afliendingu Verslunarverðlaunanna í húsakynnum Samtaka verslun-
arinnar. Frá vinstri: Stefán S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri SV/FÍS,
Guðrún Björk Stefánsdóttir, Þórhildur Stefánsdóttir, Sigríður Sól Björns-
dóttir og Jón Ásbjörnsson, formaður Samtaka verslunarinnar, FÍS.
Þrjár konur hljóta
V erslunarverðlaunin
Á HÁSKÓLAHÁTÍÐ 1998 var til-
kynnt um vinningshafa Verslun-
arverðlaunanna sem afhent voru
í fyrsta sinn nemendum í við-
skiptafræðum við Háskóla Islands
sem valið höfðu sér lokaverkefni
á sviði verslunar.
Verðlauni eni veitt af Samtök-
um verslunarinnar - Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna og eru kr.
200 þúsund. Verðlaunin hlutu að
þessu sinni Sigríður Sól Bjöms-
dóttir sem skrifaði um „Verslunar-
svæði flugstöðva" og systumar
Guðrún Björk og Þórhildur Stef-
ánsdætur, en þær fjölluðu í loka-
verkefni sínu um „Þjónustuhagn-
aðarkeðju - mannauður í verslun".
Akraborg-
arblús á
Akranesi
SKAGALEIKFLOKKURINN
sýnir Akraborgarblús í Bíóhöllinni
á Aki-anesi í kvöld kl. 20.30. Flutt
verður dagskrá þar sem stiklað er á
stóru úr sögu Skallagríms hf. sem
átti og rak Akraborgina. Akraborg-
in var eitt helsta einkenni Aki-aness
og tengdist bænum á margan hátt
fyi-ir utan að vera samgöngutæki.
Aðgangur að Akraborgarblús er
ókeypis.
Fimm kórar
FIMM kórar á Akranesi halda
tónleika í Grundarskóla á Aki-anesi
fimmtudagskvöldið 16. júlí. Kórarn-
ir eru Barnakórinn, Kvennakórinn,
Grundartangakórinn, Sönghópur-
inn Sólarmegin og Kór eldri borg-
ara.
Kristniboðar
kvaddir
KVEÐJUSAMKOMA fyrir kristni-
boðana Hrönn Sigurðardóttur og
Ragnar Gunnarsson og fjölskyldu
og Kristínu Bjarnadóttur verður í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58, í kvöld kl. 20.30. Flutt verður
hugvekja og einnig verður einsöng-
ur og kvartettsöngur.
I fréttatilkynningu frá Sambandi
íslenskra kristniboðsfélaga segir:
„Kristniboðarnir Hrönn, Ragnar og
Kristín hafa starfað áður í Kenýu
og fara nú þangað aftur. Kristín
mun kenna á vegum norska barna-
skólans í Nairóbí en Hrönn og
Ragnar fara til Kapengúría í
Pókothéraði. Þar er fræðslumiðstöð
á vegum lúthersku kirkjunnar í
Kenýu. Tuttugu ár eru síðan ís-
lenskir kristniboðar hófu að starfa
meðal pókotamanna, þjóðflokks
sem er álíka fjölmennur og íslenska
þjóðin. Þeir hafa stutt mjög skóla-
starf í héraðinu og kirkjulegt starf
er í miklum vexti.“
National
Geographic
Channel í
Fjölvarpi
NÝ sjónvarpsstöð, National Geo-
graphic Channel, hefur bæst við
hinar 13 sem fyrir eru í Fjölvai-pi
Isþenska útvarpsfélagsins.
I fréttatfikynningu segir:
„National Geographic rannsóknar-
félagið var stofnað árið 1888 og hef-
ur um langt árabil gefið út samnefnt
tímarit sem 44 milljónir manna um
allan heim lesa nú að staðaldri. Síð-
an félagið sneri sér að gerð sjón-
varpsþátta árið 1965 hefur það hlot-
ið fleiri en 800 verðlaun fyrir nátt-
úrulífsþætti, þar á meðal um 85 Em-
my-verðlaun auk tveggja tilnefninga
til Óskarsverðlauna. Náttúrulífs- og
heimildarmyndir Nationai Geograp-
hic eru með því besta sem framleitt
er í heiminum."
LEIÐRÉTT
Styrktaraðila ógetið
í GREININNI „Vatnsskírn jafn-
ingja“ sem birtist í Fólki í fréttum,
þ. 11. júlí s.l., láðist að geta þess að
Flakk, eða vímulausar ferðir fyrir
ungiinga á aldrinum 16-25, er sam-
starfsverkefni á vegum Samvinnu-
ferða-Landsýnar, Landsbanka Is-
lands, Eurocard og Jafningja;
fræðslu framhaldsskólanema. í
myndatexta var að auki farið rangt
með skírnarnafn Tómasar Knúts-
sonar kafara. Viðkomandi eru beðn-
ir velvirðingar á leiðum mistökum.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur 4
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa fellur niður
ídag.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir
Fella- og Hólakirkja. Helgistund á
fimmtudögum kl. 10.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni
og í síma 567 0110.
Akraneskirkja. Kvöldstund í Akra-
neskirkju í kvöld kl. 21. Sjónvarps-
trúboðar kristilegu sjónvarps-
stöðvarinnar Omega, Kolbi'ún og
Guðlaugur Laufdal sem leiða
kvöldþáttinn Kvöldljós, þjóna
ásamt gestum.
Vídalínskirkja. Foreldramorgun
kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Bænastund kl. 20.
ATVIIMNUAUGLÝSINGAR
Óskum eftir að ráða í
eftirtalin störf:
Starfsmann á lager
Vinnutími frá 9—18. Þarf að vera röskur, þjón-
ustulundaður með ríka skipulagshæfileika og
vöruþekkingu. Aldur 23 ára eða eldri. Reynsla
af svipuðum störfum æskileg.
Starfsmann í afgreiðslu
Þarf að hafa ríka þjónustulund og góða fram-
komu. Aldur 23 ára eða eldri. Reynsla af svip-
uðum störfum æskileg. Vinnutími frá 13—18.
Gjaldkera á kassa
Þarf að vera mjög nákvæmur, með góða og
örugga framkomu, ríka þjónustulund og geta
unnið undir álagi. Reynsla af svipuðum störf-
um æskileg. Aldur 23 ára eða eldri. Vinnutími
frá 13-18.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst. Umsóknum skal skila skriflega til
Morgunblaðsins merktum: „Framtíðarstarf
- Útilíf".
UTILIF
m
Kennarar!
Við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki eru lausartil umsóknar kennara-
stöður í eftirtöldum greinum:
Sérkennsla fyrir starfsbraut Fullt starf
Danska
Félagsfræði
Líffræði
Ritvinnsla
Fullt starf
Fullt starf
V2 staða
1/2 staða
Upplýsingar veitir aðstoðarskólameistari í
síma 453 5588
Umsóknarfrestur ertil 1. ágúst nk.
Skólameistari.
Læknar
Læknir óskast til starfa frá og með 1. október
nk. á Heilsugæslustöðina Hornbrekku á
Ólafsfirði.
Stöðin er H-1-stöð. Heilsugæslulæknir sinnir
einnig hjúkrunar- og dvalarheimili, þar sem
eru 30 vistmenn. Sérfræðiviðurkenning í
heimilislækningum æskileg.
Ólafsfjörður er í 60 km fjarlægð frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Á Ólafsfirði er öll almenn þjónusta, svo sem leikskóli, grunnskóli,
tónlistarskóli, nýtt iþróttahús, sundlaug, gott skíðasvæði, 9 holu golf-
völlur og knattspyrnuvellir. Læknisbústaðurinn er alls 198 fm með
bílgeymslu.
Umsóknum skal skilað á þartil gerðum eyðu-
blöðum, sem fást hjá Landslæknisembættinu,
til Kristjáns H. Jónssonar, forstöðumanns, og
veitir hann einnig nánari upplýsingar í síma
466 2480.
Fyrir hönd stjórnar,
Kristján H. Jónsson.
Rafvirki óskast
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar
eftir að ráða rafvirkja til starfa sem fyrst. Unnið
samkvæmt ákvæðisvinnutaxta. Nánari upplýs-
ingar gefur Magnús í síma 892 5586.
Handflakarar
Óskum eftir að ráða vana handflakara í flat-
fisk.
Upplýsingar gefur Dóri í síma 421 2420.
ÝMISLEGT H HÚSIMÆOI ÓSKAST || ATVINIMUHÚSNÆÐI
Sumarferð
Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík
verðurfarin laugardaginn 15. ágúst nk.
Farið verður um Kjalarnes, komið við í
Hvammsvík, síðan ekið til Nesjavalla; Nesja-
vallastöðin og framkvæmdir skoðaðar.
Að lokum verður stansað í Heiðmörk og stöðv-
ar Vatnsveitu Reykjavíkur skoðaðar.
Nánar auglýst síðar.
Að koma úr námi
4ra manna fjölskylda sem er að flytja heim eftir
framhaldsnám í Bandaríkjunum, vantar hús-
næði til leigu frá og með 1. ágúst.
Reyklaus og reglusöm, öruggar greiðslur.
Upplýsingar í síma 554 2366 eða 567 4351.
Faxafen
Til leigu er ca 200 m2 götuhæð við Faxafen.
Hentar vel fyrir sérverslun, hárgreiðslustofu
eða aðra þjónustustarfsemi. Sanngjörn leiga.
Upplýsingar veitir Ragnar Tómasson hdl., sími
568 2511 og 896 2222.
Fulltrúaráð.