Morgunblaðið - 15.07.1998, Page 35

Morgunblaðið - 15.07.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998 3ij* Dýraglens Grettir Tommi og Jenni J Ljóska Smáfólk Ég er með þrjár drottningar, tvo Svo að ég legg út! gosa, fjórar tíur og eina áttu ... Svo að ég legg út! Ég er með tvo ása, fjóra kónga, þrjá tvista og eina níu ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sfmi 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fræðastörf Brynjólfs biskups Sveinssonar Frá Einari G. Péturssyni: í BRÉFUM til Morgunblaðsins þriðjudaginn 7. júlí var grein eftir Þorstein Guðjónsson um nýja út> gáfu á Eddukvæðum gerða af Gísla Sigurðssyni. Ekki ætla ég að gera þessa grein að umtalsefni heldur segja örfá orð um Brynjólf biskup Sveinsson sem Þorsteinn hefur réttilega góð orð um. Allt er það al- deilis rétt svo langt sem það nær, en þar langar mig til að bæta fáeinum atriðum við, sem mér sýnist vanta í formála Gísla og því of fáum kunn- ugt. Málið er mér skylt, því að ég hef oft fjallað um einstaka þætti af fræðastarfsemi Brynjólfs og síðast í nýlegri doktorsritgerð minni Eddu- ritum Jóns Guðmundssonar lærða. Við vitum ekki hvað kvæðasafnið, sem lengi var kallað Sæmundar- Edda og síðar Eddukvæði, kallaðist á miðöldum. Það er misskilningur að kenna kvæði þessi við Sæmund fróða, því að hann hefur hvorki ort kvæðin eða safnað þeim. Heitið er óheppilegt vegna þess að það fellur saman við heiti Snorra-Eddu. Elsta heimildin um Eddu kennda við Sæ- mund fróða er í Grænlands annál- um, sem Jón lærði samdi upp. úr 1620 fyrir Hólamenn, sennilega Þorlák Skúlason síðar biskup. Það rit var gefíð út fyrir 20 árum af Olafí Halldórssyni í safnritinu: Grænland í miðaldaritum. Þar taldi Jón lærði, að Snorra-Edda væri eins konar útþynning á Sæmundar- Eddu. Hugmynd Jóns lærða um Sæmundar-Eddu fylgja síðan ýms- ir fræðimenn á 17. öld, t.d. Arn- grímur Jónsson lærði, Björn Jóns- son á Skarðsá og Brynjólfur biskup Sveinsson, sem taldi Eddu Sæ- mundar glataða og þótti mikill skaði. Með öðmm orðum hugmynd- in um Eddu kennda við Sæmund fróða kemur fyrst fram hjá Jóni lærða. Brynjólfur biskup Sveinsson hafði snemma á sínum biskupsár- um (1639-1674) áform um að skrifa mikið rit um fornan noiTænan átrúnað. Hann átti flest gömul handrit Snorra-Eddu, sem fáanleg voru. Eftir að Brynjólfur Sveinsson fékk Völsunga sögu í hendur 1641 lét hann ýmsa skýra fyrir sig kvæð- ið Brynhildarijóð, sem þar er, og er einnig varðveitt undir heitinu Sig- urdrífumál í Konungsbók Eddu- kvæða. Einhver sem við þessar skýringar fékkst skrifaði kvæðið upp heilt til loka eftir Konungsbók, en síðar glataðist úr handritinu heil örk eða kver. Þorsteinn segir réttilega að litlu hafi munað að Konungsbók glatað- ist með öllu, en einnig er það rétt að litlu munaði að hún varðveittist heil. Þegar Brynjólfur biskup Sveinsson fékk konungsbók Eddu- kvæða í hendur 1643 taldi hann þar vera komna Eddu Sæmundar fróða. EINAR G. PÉTURSSON fi'æðimaður, Árnastofnun. Opinbert svínarí og land- brot umhverfisráðherra Frá Bjarna Guðmundssyni: FLUTNINGUR Landmælinga ís- lands verður brátt til lykta leiddur. Þessi fáránlega ákvörðun, sem tek- in var af umhverfisráðherra fyrir tveimur áram, ætlar þrátt fyrir fjölda mótmæla að ná fram að ganga, en um leið með afdrifaríkum afleiðingum fyrir stofnunina og starfsmenn hennar. Margt misjafnt hefur komið upp á yfirborðið að undanfórnu, sumt ágætt en annað stórfurðulegt. Meðal þess síðarnefnda má nefna aðför að ágætum forstjóra stofnun- arinnar til margra ára, Agústi Guð- mundssyni, sem eytt hefur lengst- um hluta starfsævi sinnar til upp- byggingar kortagerðar í landinu. í dag er almannarómur að honum hafi verið velt úr starfi að undirlagi eftii-manna sinna, sem áður voru hans nánustu samstarfsmenn, fyrir litlar sem engar sakir. Það er gott fyrir skattborgara þessa lands að vita hvernig farið er með fjármuni þeirra, en þegar Landsbanki ís- lands losaði sig við þrjá banka- stjóra og réði einn í staðinn, þá setti umhverfisráðheiTa þrjá for- stjóra yfir Landmælingar Islands í stað eins áður. Enda er ljóst að ráð- herra hefur lengi verið með allt í nærhaldinu vegna flutningsmálsins, svo mikið að hann hefur látið allt eftir þeim sem vilja flytja með, jafnvel þó þeir hafi ýmislegt á sam- visþunni og lítt til verka hæfir. í fjölmiðlum að undanfórnu hafa forsvarsmenn Landmælinga ís- lands farið mikinn gegn þeim starfsmönnum sem haft hafa ráð og rænu á að forða sér burtu áður en flutningurinn ríður yfir. Er nóg að nefna offarir gegn þeim sem vinna að kortagerð og kortasölu fyrir Mál og menningu, sem lengi hefur rekið heilbrigða samkeppni í bókaútgáfu og virðist ekki slá vindhöggin í kortaútgáfu. Eitthvað hefur sam- keppnin farið fyrir brjóstið á einok- unarapparati ríkisins, því í stað þess að svara fyrir sig með bættri vöra reyna þeir að níða samkeppn- isaðilann niður í svaðið. Þetta minn— ir óþægilega á aðfarir gömlu kaup- félaganna gegn smákaupmönnum til sveita. Nei Guðmundur Bjarnason, nú er nóg komið! Það væri nær að laga til í kofanum og brýna starfsmenn til betri verka en að stunda opin- bert landbrot í krafti pólitískrar bá- bilju og sturta tugum eða hundruð- um milljóna okkar skattborgaranna niður í ræsið. Framtíð íslenskrar kortagerðar verður ekki borgið með aðfór sem þessari, heldur væri nær að einkavæða stofnunina og hlífa þegnum landsins við sukki og svínaríi sem virðist grassera í skjóli opinbers rekstrar. BJARNI GUÐMUNDSSON, Hlíðarhjalla 67, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efní til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.