Morgunblaðið - 16.07.1998, Page 2

Morgunblaðið - 16.07.1998, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bankamenn mótmæla breytingum á afgreiðslutíma Telja breytingu brot á kjarasamningi Stinnings- kaldi í morguns- árið VINDUR fór upp í sex vindstig milli klukkan 6 og 9 í gærmorgun í Reykjavík samkvæmt upplýsingum Veðurstofu Islands. Þótt stinningskaldi sé algengur hér um slóðir hefur fólk verið óviðbúið eftir blíðviðrið, sem fólk sunnanlands hefur átt að venjast síðustu vikurnar, og lögreglan var kölluð út á nokkra staði þar sem þak- plötur voru farnar að fjúka. Laufgaðar krónur taka mikinn vind Lögreglan segir að í flestum tilvikum hafi einhverjar fram- Morgunblaðið/Árni Sæberg kvæmdir verið í gangi á staðn- um en ekki hafí verið um full- frágengnar byggingar að ræða. I einni vindhviðunni brotnaði tré á Suðurgötunni en trén taka á sig mikinn vind þegar krónan er laufguð. SAMBAND íslenskra bankamanna telur að lenging afgreiðslutíma nokkurra útibúa Islandsbanka, SPRON og Sparisjóðs Hafnarfjarð- ar sé skýlaust brot á kjarasamningi. Friðbert Traustason, formaður SIB, segir að taki bankastofnanirnar ekki mark á mótmælum sambandsins verði þetta mál tekið upp við gerð næstu kjarasamninga, en samningur aðilanna rennur út 1. september nk. Aldrei hefur verið gerður skrifleg- ur samningur um vinnutíma banka- manna, en í áratugi hefur ríkt munn- legt samkomulag um að bankar séu opnir frá klukkan 9.15 til 16 á virk- um dögum, auk möguleika á að hafa opið milli 17 og 18 á fimmtudögum. I kjarasamningi SÍB segir hins vegar að leita skuli samkomulags milli banka annars vegar og/eða SÍB hins vegar um breytingar á afgreiðslu- tíma. Friðbert sagði að bankamenn hefðu margsinnis boðið bönkunum upp á viðræður um breytingar á af- greiðslutímanum, en því hefði ávallt verið hafnað. Afstaða bankanna hefði verið sú að þetta væri atriði sem hver og ein bankastofnun tæki sjálfstæða ákvörðun um. Rætt við næstu kjarasamninga Friðbert sagðist telja það ótví- ræða afturför ef opna ætti fyrir al- gjört frelsi í afgreiðslutíma banka. Menn ættu að reyna að forðast að í bönkum myndaðist sams konar ástand og í verslunum þai- sem margir lýstu vinnuaðstæðum tvo mánuði á ári sem þrælabúðum. Það væri ekki í samræmi við þróunina að lengja vinnutíma fólks; hún væri ffekar sú að rýmka frítíma fólks. „Bankarnir hafa á allra síðustu ár- um fjárfest fyrir hundruð milljóna í tæknibúnaði til að geta þjónustað viðskiptavini utan afgreiðslutíma. Fólk getur nánast gert öll sín við- skipti í gegnum bankalínur, banka- síma og hraðbanka, þar með talið að greiða reikninga, taka út peninga, millifæra og fá upplýsingar. Það eina sem þú getur ekki gert er að skipta peningum í klink,“ sagði Friðbert. Friðbert sagðist vona að bankar tækju mið af mótmælum SÍB og tækju upp viðræður um skynsamleg- ar breytingar á vinnutíma. Annars yrði þetta rætt við gerð næstu kjara- samninga eftir eitt ár. Strókur í Öskjuhlíð 50.000 hafa séð Strók STJÓRN Veitustofnana Reykja- víkurborgar hefur samþykkt að gefa goshvemum í Öskjuhlíð- inni, en hann er gerður af manna höndum, nafnið Strókur. Efnt var til samkeppni um nafn á hverinn og bárust 586 tillögur. Dómnefnd, sem í sátu Helgi Hjörvar, Jóna Gróa Sigurðar- dóttir og Þorsteinn Gylfason, varð sammála um að velja nafnið Strókur. Atján gerðu tillögu um þetta nafn og verður á næstu dögum dregið um hver fær verð- launaféð. Að sögn Alfreðs Þorsteins- sonar, stjómarformanns Veitu- stofnana, hefur mikil aðsókn verið að hvemum frá því hann var tekinn í notkun í janúar sl. Talið er að um 50 þúsund manns hafí séð hverinn gjósa. Alfreð segir þetta sýna réttmæti þess að búa til hver á þessum stað. Héraðsdómur staðfestir ökuleyfíssviptingu með vísan til umdeildrar reglugerðar Urskurður kærður til Hæstaréttar HÉ RAÐSDÓMUR Reykjavíkur staðfesti í gær úrskurð lögreglunn- ar í Reykjavík um að svipta mann ökuleyfí vegna hraðaksturs. Þetta er sama niðurstaða sami dómari komst að í sambærilegu máli sem dæmt var í sl. mánudag. Fyrir helgi féll hins vegar úrskurður annars dómara þar sem ökuleyfissvipting í hliðstæðu máli var felld úr gildi. Tómas Jónsson hæstaréttarlögmað- ur segist munu kæra úrskurðinn frá í gær til Hæstaréttar. Málavextir eru þeir að 7. júlí sl. mældi lögreglan ökumann á 95 km hraða þar sem hann ók vestur Hr- ingbraut, en þar er hámarkshraði 50 km. Ökumaðurinn mótmælti þessu og taldi sig hafa verið á 80-83 km hraða. í úrskurði héraðsdóms segir að samkvæmt 101 gr. umferðarlaga verði að telja það mjög vítaverðan akstur ef ekið er á nær því tvöföld- um hámarkshraða. Vísað er til ákvæða reglugerðar nr. 280/1998 um viðurlög við umferðarlagabrot- um. „Ákvæði þessi þyngja refsingar og ökuréttarsviptingar vegna um- ferðarlagabrota frá því sem áður var og með því að reglugerðin er sett með stoð í lögum er hún gild refsiheimild og ber að byggja á henni,“ segir í dómnum og var eins mánaðar ökuleyfissvipting lögregl- unnar því staðfest. Tómas Jónsson hæstaréttarlög- maður er verjandi mannsins, sem úrskurðurinn frá í gær varðar, og einnig verjandi manns, sem fyrir nokkrum dögum fékk bráðabirgða- sviptingu fellda úr gildi vegna efa- semda annars héraðsdómara um lagagildi ofangreindrar reglugerð- ar. Tómas sagði í samtali við Morg- unblaðið að þar sem Arngrímur Is- berg, sá héraðsdómari sem kvað upp úrskurðinn í gær, hefði rökstutt hann með tilvísun til reglugerðar- innar hefði gefíst tilefni til þess að leita til Hæstaréttar með málið. Arngrímur hefði kveðið upp nokkra úrskurði þar sem bráða- birgðasviptingar væru staðfestar undanfama daga en þessi væri sá fyrsti þar sem vísað væri til laga- stoðar reglugerðarinnar. Tómas sagði að væntanlega fengist niður- staða Hæstaréttar í næstu viku og þar með lægi fyrir hvort byggja mætti bráðabirgðaökuleyfissvipt- ingu á hinni umdeildu reglugerð. „Það er ótækt að það virðist fara eft- ir því hvaða dómari er á vakt í Hér- aðsdómi Reykjavíkur hvaða réttará- stand ríkir í borginni," sagði Tómas. Laugavegur opnaður 25. júlí ENDURBÓTUM á Laugavegi hefur seinkað um 10 daga. Upp- haflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að gatan yrði opnuð fyrir umferð í gær en nú er stefnt að því að hleypa umferð á Laugaveginn hinn 25. júlí. Þór Gunnarsson hjá Verk- fræðistofunni Hniti hefur eftirlit með framkvæmdunum. Hann segir tafirnar fyrst og fremst stafa af því að fleyga þurfti mun meira úr klöpp sem liggur þarna undir en ráð var fyrir gert. Klöppin liggi hærra en menn höfðu áætlað. Hann segir að einnig hafi verið bætt inn í verkið gatnamótum Frakkastígs og Laugavegar, þau hafi ekki verið inni í útboðinu. Þetta tvennt valdi því að verkið sé á eftir upphaflegum áætlun- um. Verkið hafi í heildina gengið vel og áætlanir verktakans, Istaks, staðist. Þór segir að nú sé unnið á gatnamótum Barónsstígs og Laugavegar. Kaflinn frá Frakka- stíg að Vitastíg sé nánast tilbú- inn, þar sé eftir að leggja eitt maíbikslag á akbrautina en það verði gert í vikulokin. ------------- Ursagnir í Ólafsfirði ALLIR stjórnarmenn í Alþýðu- bandalagsfélaginu í Ólafsfirði hafa sagt sig úr flokknum. Samtals hafa tíu af 25 félagsmönnum gengið úr Alþýðubandalaginu á síðustu dög- um. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu frá Bimi Val Gíslasyni, fyrrverandi formanni félagsins. < i n i 4 i i i i € 4 í 4 C 4 c i c I Sérblöð í dag VIÐSIOPn MVINNULÍF LANSÍMINN Breiðband í vanda Samkeppnisráð úrskurðar/B4 HUGBÚNAÐUR Má læra af írum Öflug menntun skilyrði/B6 : Jack Nicklaus hættir að : keppa við „krakkana“/B2 Biikar í undanúrslit bikarkeppni karla/B8 100 VSRÐTILBOÐ Á HVERT Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is C f I G ! I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.