Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 23
MORGUNB LAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 23 K :ílÉi88EI!U Þjóðverjar snúa aftur til Rúss- lands UM 400 fjölskyldur af þýskum uppruna, sem fluttu búferlum til Þýskalands í leit að betra lífi eftir hrun Sovéti-íkjanna, hafa snúið aftur til Rússlands á síðustu mánuðum, að sögn rússneskra embættismanna í gær. „Fjölskyldunum tókst ekki að laga sig að þýska þjóð- félaginu og þær áttu í fjár- hagslegum erfiðleikum," sagði einn embættismannanna. Um 200.000 manns af þýskum uppruna fluttust til Þýska- lands á árunum 1990-95. Khatami til- nefnir innan- ríkisráðherra MOHAMMAD Khatami, for- seti írans, tilnefndi í gær vinstrimanninn Abdolvahed Mousavi-Lari í embætti innan- ríkisráðherra í stað Abdollah Nouri, sem neyddist til að segja af sér vegna ásakana íhaldssamra klerka um að hann hefði kynt undir félags- legri og pólitískri ólgu í land- inu. Ráðgert er að tilnefningin verði borin undir atkvæði á þinginu 22. júlí. Fátæktin eykst á Italíu 2,2 MILLJÓNIR af 20 millj- ónum ítalskra fjölskyldna lifðu undir fátæktarmörkum á liðnu ári og þeim fjölgaði um 100.000 frá því árinu áður, að því er fram kemur í opinberri skýrslu sem birt var í gær. Samkvæmt skilgreiningu ítal- skra yfirvalda telst tveggja manna fjölskylda fátæk ef tekjur hennar eru undir með- allaunum landsmanna, eða 600.000 lírum, 24.000 krónum, á mánuði. Vilja aðstoða Rússa BANDARÍKJASTJÓRN hef- ur boðist til að aðstoða Rússa vegna tölvuvandans, sem tengist ártalinu 2000, í því skyni að koma í veg fyrir að vandamálið valdi óskunda í tölvum rússneskra kjarnorku- heraflans. Stjórnin telur að Rússar eigi ekki forrit sem geta leyst vandann. 88 ára kona barði mann til bana 88 ÁRA gömul kona í Virginíu í Bandaríkjunum hefur játað að hafa barið 51 árs gamlan mann til bana með hafnabolta- kylfu. Maðurinn var helmingi stærri en konan og verjandi hennar hélt því fram í fyrstu að hún væri ekki nógu sterk til að geta banað manni með kylf- unni. Konan, sem er þekkt í heimabæ sínum fyrir að aka hraðskreiðum bílum og klæð- ast stuttum pilsum, ákvað þó að játa morðið á sig til að kom- ast hjá því að verða dæmd til dauða eða í lífstíðarfangelsi. Hún fékk 10 ára skilorðsbund- inn fangelsisdóm. Obuchi líklegastur til að taka við af Hashimoto Túkýd. Reuters. KEIZO Obuchi, utanríkisráðherra Japans, var í gær talinn líklegastur til að verða valinn leiðtogi stjórnarflokks landsins og næsti forsætisráð- hen-a í stað Ryutaros Hashimotos sem hefur ákveðið að segja af sér vegna kosningaósigurs flokksins á sunnudag. Reuters-fréttastofan kvaðst hafa áreiðanleg- ar heimildir íyrir því að stærsta fylkingin í stjómarflokknum, Frjálslynda lýðræðisflokkn- um, hefði ákveðið að styðja framboð Obuchi í leiðtogakjöri flokksins á þriðjudaginn kemur. Seiroku Kajiyama, annað hugsanlegt leiðtoga- efni, er í sömu fylkingu og flest bendir til þess að hann verði ekki í framboði. Heimildarmaður í stjórnarflokknum sagði að Kajiyama, sem er 72 ára og þjáist af sykursýki, hefði fallist á að bjóða sig ekki fram gegn því að hann fengi valdamikið embætti, hugsanlega embætti fjármálaráðherra. Umbótasinnar vilja Koizumi Önnur fylking í stjórnarflokknum, undir for- ystu Hiroshis Mitsuzuka, fyrrverandi fjármála- ráðherra, ákvað í gær að hvetja tvo af forystu- mönnum sínum, Yoshiro Mori eða Junichiro Koizumi, til að gefa kost á sér í embættið. Mori er formaður ráðs, sem mótar stefnu stjómar- flokksins, og Koizumi fer með heilbrigðis- og velferðarmál í stjórninni. Ungir umbótasinnar í þingflokknum eru sagðir styðja Koizumi og telja hann líklegastan til að koma á róttækum umbótum í efnahagsmálum. Um fjórðungur 366 þingmanna Frjálslynda lýðræðisflokksins er í fylkingu Obuchis utanrík- isráðhema og fylking Koizumis og Moris er að- eins minni. Talið er að munurinn sé um tólf þingmenn. Heimildarmaður í stjórnarflokknum sagði að Obuchi væri að íhuga „róttækar aðgerðir“ til að rétta efnahag landsins við en vildi ekkert segja um frétt þess efnis að hann hygðist slaka á að- haldsstefnu stjórnarinnar. Hashimoto hefur verið gagnrýndur fyrir strangt aðhald í ríkis- fjármálum til að minnka fjárlagahallann og það er ein af ástæðum þess að kjósendur sneru baki við flokki hans í kosningunum til efri deildar þingsins á sunnudag. Þessi stefna er einnig talin hafa stuðlað að umrótinu á fjármálamörkuðum landsins. Obuchi þykir litlaus stjórnmálamaður og ekki hafa mikla þekkingu á efnahagsmálum. Margir hagfræðingar efast því um að hann sé rétti mað- urinn til að verða næsti forsætisráðherra lands- ins. „Hann myndi líklega grípa til skammtíma- aðgerða... en hvað kerfisbreytingar varðar er ekki líklegt að hann geri meira en Hashimoto,“ sagði japanski hagfræðingurinn Mikihiro Matsuoka. Kosningum flýtt? Margii- fréttaskýrendur í Tókýó spá því að næstu kosningar til neðri deildar þingsins, sem ættu að vera eftir rúm tvö ár, fari fram í byrjun næsta árs. Nokkrir þeirra telja að Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn geri óformlegan samning við stjórnarandstöðuna, sem er með meirihluta í efri deild þingsins, um að hún samþykki efna- hagsaðgerðir stjómarinnar, m.a. skattalækkan- ir, gegn því að kosningunum verði flýtt. Aðrir fréttaskýrendur spá því að stjórnarand- staðan knýi fram kosningar með því að tefja af- greiðslu aukafjárlaga og frumvarpa stjórnarinn- ar, sem er með meirihluta í neðri deildinni. Efri deild þingsins getur ekki hafnað lögum, sem neðri deildin samþykkir, en hún getur hins veg- ar tafið lagasetninguna í tvo mánuði, sem kemur sér illa fyrir stjórnina nú þegar skjótra efna- hagsaðgerða er þörf. Reuters KOSOVO-Albanir flytja vistir til fjallaþorpa sem skæruliðasveitir aðskilnaðarsinna hafa á valdi sínu. Annan boðar leiðtogafund Sao Paulo. Reuters. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ), leggur til að boðað verði til leiðtogafundar árið 2000. Ráðstefna sem slík gæfi gott tækifæri til þess að líta um öxl og leggja mat á sögu vorra tíma, sigra og vonbrigði. „Leiðtogafund- inum væri ætlað að varpa ljósi á 20. öldina, þá grimmilegustu í sög- unni,“ sagði Annan, á fundi með fólki úr viðskiptalífinu í Sao Paulo í Brasilíu. Framkvæmdastjóri SÞ beindi orðum sínum einnig til forkólfa í viðskiptalífinu og bað þá styðja SÞ og starf þeirra í ríkara mæli. Hann sagði það liðna tíð að SÞ væru „fangi hugmyndafræðilegra átaka. Nú gera menn sér ljósa nauðsyn þess að eiga góða samskipti við við- skiptalífið". Annan sagði leiðtogafundinn lík- lega verða haldinn í New York. Samhliða honum yrði boðað til fundar frjálsra félagasamtaka, því að Umhverfisráðstefnan í Río de Janeiro hefði markað tímamót í samskiptum SÞ við grasrótar- hi'eyfingar um heim allan og sann- að nauðsyn góðs samstarfs Sa- meinuðu þjóðanna við frjáls félaga- samtök. Friðarumleitanir í Kosovo-héraði Iranir lýsa stuðningi við tengslahópinn Bonn. Reuters. STJÓRNVÖLD í íran hafa lýst yf- ir stuðningi sínum við tilraunir vestrænna þjóða til að komast að friðsamlegri lausn í Kosovo, að því er utanríkisráðuneyti Þýskalands skýrði frá í gær. Utanríkisráðherra Irans, Kamal Kharrazi, sagði í samtali við utan- ríkisráðherra Þýskalands, Klaus Kinkel, að Iran og aðrar aðildar- þjóðir Samtaka íslamskra ríkja styddu tilráunir „tengslahópsins" svonefnda til að binda enda á átök milli skæruliðasveita aðskilnaðar- sinnaðra Kosovo-Albana og serbneskra öryggissveita. Tengsla- hópinn skipa fulltrúar Bandaríkj- anna, Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Rússlands. Kharrazi sagði ennfremur að samtökin, sem Iran veitir nú for- ystu, væru mótfallin aðskilnaði Kosovo-héraðs frá Serbíu, og að þau væru hlynnt hugmyndum tengslahópsins um takmarkaða sjálfsstjórn héraðsins. Hann vísaði á bug fregnum þess efnis að íranskir hermenn legðu skæruliða- sveitum aðskilnaðarsinna lið. I tilkynningu þýska utanríkis- ráðuneytisins kemur einnig fram að Kinkel og Kharrazi hafi ákveðið að hafa frekara samráð vegna málsins. www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.