Morgunblaðið - 16.07.1998, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU AUGLÝSIIMGAR
Krefjandi og fjölbreytt störf
hjá Islandsbanka
Vegna aukinna umsvifa leitum við að
starfsfólki í eftirtalin störf á fyrirtækjasviði.
Störf í skjalamiðlun
Um er að ræða störf í skjalamiðlun fyrirtækjasviðs.
Skjalamiðlun annast frágang, bókun og útfærslu samn-
inga sem gerðir eru í viðskiptastofu. Skjalamiðlun
sinnir einnig eftirliti, upplýsingagjöf og þróunarverk-
efiium tengdum nýjum tegundum samninga. Markmið
skjalamiðlunar er að veita viðskiptavinum Islands-
banka hf. bestu þjónustu sem völ er á í frágangi og
afgreiðslu samninga, bæði hvað varðar öryggi og
hraða. Störfin eru krefjandi og fjölbreytt, enda mikil
gróska og breytingar á íslenskum fjármálamarkaði.
Starfsumhverfið er h'flegt og byggir á náinni samvinnu
á milli starfsmanna.
Við leitum að starfsmanni með viðskiptafræðimennt-
un af endurskoðunar- eða fjármálasviði eða aðra
sambærilega menntun.
Við leitum einnig að starfsmönnum með stúdentspróf
af viðskiptabraut eða aðra sambærilega menntun.
Æskilegt er að hafa þekkingu eða reynslu af bókhaldi
og helstu notendaforritum (Excel, Word) ásamt
kunnáttu í ensku.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Ottó
Hansson, forstöðumaður rannsókna.
Störf í viðskiptastofu
Miðlun á gjaldeyri — millibankaborð
Um er að ræða spennandi starf í líflegu umhverfi
sem krefst mikilla samskipta við starfsmenn og við-
skiptavini bankans. Lögð er áhersla á faglegan metnað
og krefst starfið mikillar vinnu. Starfið felst í viðskipt-
um með gjaldeyri og afleiður við innlendar og erlendar
fjármálastofnanir og stjórnun á gjaldeyrisjöfnuði
bankans. Menntun á sviði viðskiptafræði, hagfræði
eða raunvísinda er æskileg.
Miðlun á verðbréfum - viðskiptaborð
Um er að ræða miðlun hlutabréfa og skuldabréfa til
fagfjárfesta. Lögð er áhersla á faglegan metnað og
krefst starfið mikillar vinnu. Unnið er náið með rann-
sóknum fyrirtækjasviðs að þróun nýrra fjármálatækja.
Mikil og hröð þróun á sér stað á fjármálamarkaði
sem spennandi er að taka þátt í. Menntun á sviði
viðskiptafræði, hagfræði eða raunvísinda er æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Ásgeirsson, forstöðu-
maður viðskiptastofu.
Umsóknir um þessi störf sendist fyrir 24. júli 1998, til
Guðmundar Eiríkssonar, starfsmannaþjónustu
íslandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík.
Islandsbanks er leiðandi afl á gjaldeyris- og afleiðumarkaði og á viðskipti við mörg af helstu
fjármálafyrirtœkjum heimsins. Bankinn er stœrsti aðilinn á íslenskum skuldabréfamarkaði, er í
foiystu á hlutabréfamarkaði og er eini aðilinn sem býður valrétti á íslenskum verðbréfamarkaði.
NÁMSGAGNASTOFNUN
Útgáfustörf
Hjá Námsgagnastofnun eru eftirtalin störf laus
til umsóknar nú þegar:
1. Staða útgáfustjóra
Starfið felst í yfirumsjón með námsefnis-
gerð, áætlanagerð og þátttöku í yfirstjórn
Námsgagnastofnunar. Útgáfustjóri annast
samningagerð við höfunda og hefur eftirlit
með framvindu þeirra.
Leitað er eftir háskólamenntuðum starfs-
manni með kennslureynslu og reynslu af
stjórnun og útgáfustarfsemi.
2. Staða ritstjóra
Leitað er eftir starfsmanni til að annast rit-
stjórn námsefnis fyrir grunnskóla, einkum
efnis í dönsku, ensku, samfélagsfræði og
íslensku fyrir 1.—7. bekk. Aðrar námsgreinar
geta einnig komið til greina í stað þessara.
Viðkomandi þarf að hafa háskólapróf og
kennslureynslu.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu á reyklaus-
um vinnustað. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg
Ásgeirsdóttir, forstjóri, í síma 552 8088.
Umsóknir sendist Námsgagnastofnun,
Laugavegi 166, pósthólf 5020,125 Reykjavík,
fyrir 20. júlí 1998.
Ingólfs Apótek
Óskum eftir að ráða lyfjatækna eða starfskrafta,
helstvana, til starfa. Vinnutími: 13—18. Skrif-
legar umsóknir sendist Ingólfs Apóteki, Kringl-
unni 8—12 fyrir 21. júlí nk.
Knattspyrnufélagið VALUR auglýsir eftir:
Framkvæmdastjóra
og skrifstofustjóra
Framkvæmdastjóri
Á verksviði hans eru fjármál,
markaðsmál, starfsmanna-
og skipulagsmál og stjórn á
daglegum rekstri félagsins.
Skrifstofustjóri
Starf hans felst í umsjón með
bókhaldi og upplýsingakerfi
félagsins, launaútreikningum
auk almennra skrifstofustarfa.
Þekking á Fjölniskerfum er æskileg.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf fyrir
einstaklinga sem eiga auðvelt með að umgangast fólk
á öllum aldri.
Umsóknir merktar Knattspyrnufélaginun VAL skal
senda í pósthólf 12370,132 Reykjavík fyrir 23. júlí n.k.
Ollum umsóknum verður svarað.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið
starfsfólk
í neðangreindan leikskóla:
Nýr leikskóli við Seljaveg
Leikskólakennarar eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk.
Matrádur.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Elín Mjöll
Jónasdóttir í síma 551 6312.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 563 5800.
LANDSPÍTALINN
.../ þágu mannúðar og visinda...
Hjúkrunarfræðingar
Geðdeild
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar á nætur-
vaktir á geðdeildir Landspítala og að Kleppi.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmda-
stjórar geðdeildar Landspítala alla virka daga
frá kl. 9 til 17, sími 560 2600.
Kvennadeild
Legudeild
Hjúkrunarfræðingar óskast á legudeild kvenna,
bæði í fastar stöður og til afleysinga. Deildin
er sérhæfð á sviði kvensjúkdóma og boðið er
upp á einstaklingshæfða hjúkrun.
Móttökudeild
Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður óskasttil starfa
á nýja móttökudeild kvenna. Á deildinni verður
bráðamóttaka og veitt ýmis sérhæfð þjónusta
vegna kvensjúkdóma.
Vöknun
Hjúkrunardeildarstjóri óskast á vöknun kvenna-
deildar. Viðkomandi þarf að hafa a.m.k. 5 ára
starfsreynslu í hjúkrun og æskileg er menntun
og/eða reynsla á sviði svæfingahjúkrunar/
gjörgæslu og stjórnunar. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf í byrjun ágúst nk.
Sængurkvennadeild
Ljósmæður/hjúkrunarfræðingar óskast til
starfa á sængurkvennadeild A.
Göngudeild
Aðstoðardeildarstjóri óskast á göngudeild
kvenna. Deildin annast aðallega mæðraeftirlit
og foreldrafræðslu. Viðkomandi þarf að hafa
a.m.k. 5 ára starfsreynslu sem Ijósmóðir og
einnig er æskileg menntun eða reynslu í stjórn-
un.
Upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurbjörns-
dóttir í síma 560 1000.
Barnaspítali Hringsins
Vökudeild
Hjúkrunarfræðingar óskast á vökudeild (gjör-
gæsla fyrir nýbura). í boði er námskeið/fræðsla
um hjúkrun og meðferð veikra nýbura og ein-
staklingsbundin aðlögun með reyndum hjúkr-
unarfræðingum.
Upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardóttir
í síma 560 1040.
Ungbarnadeild
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á ung-
barnadeild. Deildin er 12 rúma deild sem ann-
ast veik börn á aldrinum 0—2 ára.
Upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurbjörns-
dóttir í síma 560 1000.
/-------------------------------------------------------
Laun samkv. gildandi samningi vidkomandi stéttarfélags
og fjérmélaródherra.
Umsóknareyðublöð fést hjó starfsmannahaldi
Ríkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum é Landspitala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ékvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
s______________________________________________________/
Kælitæknir
Fyrirtæki á sviði kæliiðnaðar óskar eftir starfs-
manni. Mögulegt er að taka viðkomandi á
samning. Æskilegt er að viðkomandi hafi
grunn í kælitækni.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknir sendist inn á afgr. Mbl. merktar:
„K-4210", fyrir 21. júlí.