Morgunblaðið - 16.07.1998, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
l/efabu fu/’cw / mio Canaar- C ' ó'Uu ö'&ru Ertu enrv ofZ þL/oZra. / s/rnann?.'egM óorga eg\ Vrþer- Eyrirjx& 'þe&g&ucí ■ og þ&mau þér að verAx iO ^
© KFS/Distr. BULLS V L
Ferdinand
© 1998 PIB Copenhagen
Dlst. by UFS, Inc. Rgft.Kfc
- - :M u j|
iM&l' U
MWLi m P1
1 \'ll jm’
Smáfólk
HEY,CHUCK,HOU)
COME YOU NEVER
- CALLME?
N——'Ufl
YOU RE RI6HT..
I’M 50RRY..I
5H0ULD HAVE
CALLEP YOU...
'zr
UJHYDONTYOU
HAH6 UP, ANP
l'LL CALLYOU
RI6HT 6ACK..
rei-------
THAT'5 NOT
TH6 5AMB
THIN6.
CHOCK!
I TH0U6HTV |*M NOT
YOU U)ERE / GOOP AT
ON THE ( PH0NIN6..
PHONE..
i?
Hæ, Kalli, hvernig
stendur á því að
þú hringir aldrei
í mig?
Þú segir satt...
mér þykir það
leitt... ég hefði
átt að hringja í
þig •••
Af hverju legg-
urðu ekki á, og
ég hringi strax
aftur í þig ...
ÞAÐ ER EKKI
ÞAÐ SAMA,
KALLI!
Ég hélt að þú værir
í símanum ...
Mér lætur ekki vel að tala
í síma ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Súnbréf 569 1329
Utboð án grennd-
arkynningar?
Frá Fríðu Björnsdóttur:
FYRIR hönd íbúa í húsum við Heið-
argerði, sem liggja að skólalóð
Hvassaleitisskóla, óska ég eftir svör-
um við því hvort heimilt er lögum
samkvæmt að bjóða út byggingar-
framkvæmdir á borð við verulega
stækkun Hvassaleitisskóla án þess
að fyrst hafí farið fram grenndar-
kynning meðal íbúa í nærliggjandi
húsum.
Hafa borgaryfirvöld gert sér grein
fyrir því ónæði og þeim hömlum sem
lagðar verða á íbúana í tengslum við
þessar framkvæmdir og eftir þær
eru orðnar að veruleika?
Stækkun skólans nemur 8,2 metr-
um í „L“ út frá núverandi skólabygg-
ingu. Hæð viðbyggingarinanr á að
verða jöfn skólahúsinu, sem íbúum
finnst nú þegar nægilega hátt og fyr-
irferðarmikið, sér í lagi þegar mið er
tekið af því að húsin við Heiðargerði,
sem snúa að skólalóðinni, eru annað-
hvort ein hæð eða ein hæð og lágt
ris. Skólinn gnæfir nú þegar eins og
hátt fjall yfir þessum litlu húsum í
sólarátt og ástandið á eftir að versna
verulega með tilkomu stækkunarinn-
ar. Ekki hefur heyrst frá borgaryfir-
völdum varðandi þessa stækkun en
hins vegar var fyrirhugað, skömmu
fyrir kosningar, að tekin yrði
skóflustunga að þessari nýbyggingu,
líklega í pólitískum tilgangi. Skólayf-
irvöld sjálf komu þó í veg fyrir það,
þar sem mönnum þar á bæ þótti slíkt
ekki viðeigandi úr því grenndar-
kynning hafði ekki enn farið fram.
Það sem á ef til vill eftir að verða
hvað óbærilegast varðandi þessa
byggingu eru byggingarfram-
kvæmdirnar sjálfar, sem munu
standa yfir í að minnsta kosti eitt ár,
samkvæmt áætlun, og líklega lengur
ef dæma má af gangi byggingar-
framkvæmda almennt hér í borginni.
Ibúar í áðurnefndum húsum þurftu
að búa undir margra metra hárri
bárujárnsgirðingu í ein 3 eða 4 ár á
meðan íþrottahús skólans var reist.
Það er því fyrirkvíðanlegt að eiga
eftir að þurfa að hafa aðra álíka girð-
ingu yfir sér næstu ár, í aðeins
göngustígsbreiddar fjarlægð frá lóð-
um okkar.
I vetur og það sem af er sumri
hefur ástand á skólalóð Hvassaleitis-
skóla verið algjörlega óviðunandi.
Skólayfirvöld í skólanum sjálfum
munu hafa óskað eftir að vaktmaður
yrði fenginn til að gæta lóðarinnar
um helgar. Því var ekki sinnt. Það
hefði þó ekki veitt af því, því rúður
hafa verið brotnar ítrekað í skólan-
um og í aukaskólastofunni sem
stendur á lóðinni og blasir við úr
gluggum okkar. Kveikt hefur verið í
á lóðinni og gashylki sprengd þar og
nú síðast tókst börnunum að kveikja
í verkfæragámi sem stendur á lóð-
inni í tengslum við unglingavinnuna.
Af þessu má sjá að ástandið í kring-
um Hvassaleitisskólann hefur verið
algjörlega óviðunandi í meira en ár
og á líklega ekki eftir að batna við
það að byggingarframkvæmdir hefj-
ist með viðeigandi bílaumferð á
svæði sem ber engan veginn umferð
stórra flutningabíla né stórvirkra
vinnuvéla. Væri ekki úr vegi að
kannað yrði hvenig gætt verður ör-
yggis ungra bama sem þurfa að
komast í skólann í vetur sömu leið og
verktakamir munu fara með bíla
sína. Ibúar eru orðnir langþreyttir á
aðgerðarleysi yfirvalda og nú síðast
þeim yfirgangi sem þeim er sýndur
með því að bjóða út verkið án undan-
genginnar grenndarkynningar.
Það væri óskandi að yfirvöld
kynntu sér aðstæður betur áður en
hafist er handa og sinntu þeirri
skyldu sinni að hafa samband við
fólk í nágrenninu áður en útboð er
auglýst í Morgunblaðinu, eins og
gerðist sunnudaginn 12. júlí.
Fyrir hönd íbúa í húsum við Heið-
argerði, næst Hvassaleitisskóla,
FRÍÐA B JÖRN SDÓTTIR,
Heiðargerði 32, Reykjavík.
Norræn mál
og norrænt hús
Frá Gunnari Stefánssyni:
VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Islands, hefur nýlega, og
ekki í fyrsta sinn, bent á nauðsyn
þess að Islendingar leggi rækt við
sína skóladönsku til að eiga beinan
aðgang að hinu norræna samfélagi.
Vel sé henni fyrir að hamra á þessu,
á því er sannarlega full þörf. Að vísu
fæ ég með engu móti skilið að sú
ákvörðun að setja ensku fram fýrir
dönsku sem fyrsta erlent mál í skól-
um landsins verði til að styrkja
dönskuna eins og Vigdís hefur haldið
fram. Ég held að fremur sé ástæða
til að óttast að þessi stefnubreyting
grafi undan stöðu dönskunnar og
reynist þannig óheillaspor gagnvart
aðild okkar að norrænu málsamfé-
lagi. En úr því sem komið er verður
reynslan að leiða það í ljós.
Við íslendingar læmm dönsku
vegna samskipta okkar við aðrar
Norðurlandaþjóðir, til þess að geta
notað hana (í okkar „skandinavísku"
mynd) í samskiptum við Norður-
landafólk. Því til stuðnings eigum við
meðal annars stofnun eins og Nor-
ræna húsið í Reykjavík. Án starf-
semi þess í þrjátíu ár er alveg víst að
tengsl okkar við norræna menningu
væru nú orðin miklu minni og veikari
en þau þó eru. Það stríðir gegn því
grundvallarsjónarmiði sem starf
hússins byggist á að leyfa Islending-
um að flytja þar fyrirlestra á ensku
yfir Norðurlandabúum. Slíkt gerðist
um daginn, þegar auglýst var að ís-
lensk kona flytti erindi á ensku um
íslenska kvikmyndagerð. Um það má
segja að svo bregðast krosstré sem
önnur tré. Treysti íslendingar sér
ekki til að semja fyrirlestra á Norð-
urlandamáli til flutnings í Norræna
húsinu á að leggja þeim til aðstoð við
þýðingu. Nóg er ásælni enskunnar í
þjóðfélaginu þótt annað eins vígi og
Norræna húsið gefist ekki upp.
GUNNAR STEFÁNSSON,
Kvisthaga 16, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.