Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 64
í
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
JHnrgmmMalíit)
S3.Lausnir
Nýherja fyrir
Lotus Notes
ÍTSI Premium Partner
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kókaín og
kannabis-
plöntur
fundust
LÖGREGLA hefur lagt hald á um
300 grömm af kókaíni, 160 grömm
af hassi og 250 kannabisplöntur í
fórum manns á þrítugsaldri sem
aldrei herur komið við sögu fíkni-
efnamála áður.
Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi í
viku vegna málsins en hefur nú ver-
ið látinn laus og er rannsókn máls-
ins á lokastigi og telst það upplýst
eftir yfirheyrslur yfir allmörgum
aðilum.
I fréttatilkynningu frá lögregl-
unni kemur fram að málið hafi kom-
ið upp fyrir mánaðamót þegar um
150 g af kókaíni og 80 g af hassi
fundust við leit í bifreið. Við fram-
haldsrannsókn var lagt hald á ann-
að eins magn, auk kannabisplantn-
anna 250.
Tekinn með tæpt kflö af
fíkniefnum í Leifsstöð
Þá hefur lögreglan frá því á
þriðjudag unnið að rannsókn á máli
sem kom upp þegar tollverðir í
Leifsstöð fundu 800 grömm af hassi
og um 130 g af amfetamíni í fórum
manns sem var á leið til landsins.
Um er að ræða mann um fertugt
sem ekki hefur áður komið við sögu
fíkniefnamála og telst málið upp-
lýst.
Féll í
Illagil
DRENGUR slasaðist á höfði er
hann féll í Illagil, sem gengur
upp úr Hestvík í Þingvallavatni
við bæinn Nesjar, um hálftíu í
gærkvöldi.
Honum var bjargað upp úr
gflinu af samferðafólki. Það kall-
aði á aðstoð og fóru lögregla og
sjúkrabfll á staðinn. Drengurinn
var síðan fluttur á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur þar
sem gert var að meiðslum hans,
en þau voru ekki sögð alvarleg.
Morgunblaðið/Davíð Ólafsson
YFIR Faxaflóa skein kvöldsólin á Milton, í baksýn er Reykjanesskaginn og álverið í Straumsvík.
Breti í hnattflugi á físi lendir í Reykjavík eftir erfítt flug frá Grænlandi
Hélt að mín hinsta
stund væri upp runnin
BRETINN Brian Milton lenti
fisi sínu á Reykjavíkurflugvelli
klukkan átta í gærkveldi eftir
rúmlega átta klukkustunda
flug frá bænum Kulusuk á
Grænlandi og er hann fyrstur
til að fljúga þessa leið á físi.
Milton, sem hefur nærri lokið
ferð sinni kringum hnöttinn,
hreppti slæmt veður um miðbik
leiðarinnar. „Ég hélt að mín
hinsta stund væri upp runnin á
Ieiðinni,“ varð Milton að orði
þegar hann lenti. „Hraðinn var
kominn niður í ellefu hnúta
þegar verst var og um tíma var
ég í 12 þúsund feta hæð en
helst vil ég ekki fara hærra en
3000 fet, ég er frekar loft-
hræddur,“ sagði Milton og hló
við.
Milton segir þessa ferð ekki
þá verstu á leið sinni, flugið yf-
ir Beringshaf hafí verið enn
verra. „Þá var vélin um tíma öll
þakin ís og ég reyndar Iíka.“
f dag er ferðinni heitið til
Hafnar og þaðan til Bretlands.
„Ég stefni á að vera kominn til
London um helgina en þar hóf
Morgunblaðið/Jim Smart
Á ÁFANGASTAÐ á Reykjavíkurflugvelli eftir erfiða ferð.
ég för mina fyrir 114 dögum,"
sagði Milton, sem upphaflega
stefndi á að fara hringinn á
áttatíu dögum en er kominn að-
eins fram úr áætlun, aðallega
vegna tafa í Rússlandi.
Hugmyndir um að ísland aðstoði Eystrasaltsríkin við að undirbúa NATO-aðild
Þjálfun strandgæzlu og’
flugumferðarstjóra rædd
AÐ UNDANFÖRNU hafa verið
ræddar hugmyndir um að ísland
leggi sitt af mörkum til að aðstoða
Eystrasaltsríkin þrjú við undirbún-
ing aðildar að Atlantshafsbandalag-
inu (NATO). Meðal hugmynda, sem
eru til athugunar, er að strand-
gæzluliðar og flugumferðarstjórar
frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen
sæki þjálfun hingað til lands, til
Flugmálastjórnar annars vegar og
Landhelgisgæzlunnar hins vegar.
Atlantshafsbandalagið og einstök
aðildarríki þess hafa að undanförnu
veitt Eystrasaltsríkjunum margvís-
legan stuðning við að styrkja vamir
sínar og eftirlit með landamærum
og landhelgi, í því skyni að þau
verði í stakk búin fyrir NATO-aðild
þegar þar að kemur. ísland hefur til
þessa lagt lítið af mörkum til þessa
starfs, en m.a. í samvinnu við
Bandaríkin hafa íslenzk stjórnvöld
leitað leiða til að leggja ríkjunum
þremur lið.
Bandarísk þátttaka hugsanleg
Að sögn Hjálmars W. Hannes-
sonar, skrifstofustjóra alþjóðaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, eru
tvær hugmyndir til umræðu í þessu
sambandi. Annars vegar hefur verið
rætt að íslendingar aðstoði ríkin við
uppbyggingu flugumferðarstjómar-
kerfis. Hefur fulltrúi Flugmála-
stjórnar farið til Eistlands og Lithá-
ens til að skoða málið og er niður-
staða hans sú að íslendingar gætu
boðið flugumferðarstjórum frá
Eystrasaltsríkjunum upp á þjálfun
hér á landi.
Bandaríkin hafa aðstoðað Eystra-
saltsríkin við uppbyggingu flugum-
ferðarstjórnarkerfis og samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins telja
bandarísk stjórnvöld að Island sé
vel fallið til þjálfunar fyrir flugum-
ferðarstjóra frá löndunum þremur
vegna langs samstarfs hérlendra
flugumferðarstjóra við bandaríska
flugherinn. Hjálmar segir Banda-
ríkin hafa látið í ljósi áhuga á að
taka þátt í þessu verkefni ef af verð-
ur.
Hins vegar hefur verið rætt um
að ísland aðstoði Eystrasaltsríkin
við uppbyggingu strandgæzlu og
var sú hugmynd fyrst reifuð af
liálfu Davíðs Oddssonar á fundi for-
sætisráðherra Norðurlanda og
Eystrasaltsríkjanna. Hjálmar segir
að í þeim efnum komi einnig til
greina að strandgæzluliðar frá
Eystrasaltsríkjunum komi hingað
til lands til þjálfunar hjá Land-
helgisgæzlunni.
„Þetta eru verkefni, sem geta
komið að gagni og þar sem Island
getur lagt eitthvað til málanna,"
segir Hjálmar W. Hannesson. Hann
leggur þó áherzlu á að enn sé aðeins
um hugmyndir að ræða.
Kuldi og knatt-
spyrna draga
úr umferð á
hálendinu
LANDVERÐIR í Herðubreiðar-
lindum, Hvannalindum og í Kverk-
fjöllum segja umferð á þeim slóðum
töluvert minni en í fyrra. Um mán-
aðamótin höfðu 134 gist í Kverk-
fjöllum, á sama tíma í fyrra höfðu
165 gist þar. Þótti það heldur lélegt,
að sögn Þórs Vilmundarsonar, land-
varðar í Kverkfjöllum.
Þau Þór, Kári Kristjánsson, land-
vörður í Hvannalindum, og Inga
Dagmar Karlsdóttir, landvörður í
Herðubreiðarlindum, telja slæmt
veður skýra dræma umferð en kalt
hefur verið í veðri á þessum slóðum
það sem af er sumri.
Þór og Kári telja einnig að heims-
meistarakeppnin í fótbolta hafi haft
sitt að segja. „Umferðin tók a.m.k.
kipp eftir að keppninni lauk og þá á
ég við umferð ferðamanna sem ferð-
ast á jeppum á eigin vegum, ekki
skipulagðar ferðir,“ segir Þór.