Morgunblaðið - 17.07.1998, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 17.07.1998, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ íslendingar verða á meðal þátttakenda á Expo 2000 Reikna með 40 milljón gestum í Hannover Morgunblaðið/Arnaldur DR. REINHARD Volke er aðalframkvæmdastjóri heimssýningarinnar Expo 2000. TEKIN hefur verið ákvörðun um að íslendingar verði á meðal þátt- takenda á Heimssýningunni Expo 2000 í Hannover um aldamótin. Búist er við miklum áhuga ís- lenskra fyrirtækja á sýningunni en ljóst er að kostnaður af þátttök- unni verður ekki undir 100 milljón- um króna. Af þeim 189 þjóðum sem boðin hefur verið þátttaka hafa 177 þegar ákveðið að vera með. Talið er að 40 milljón gestir sæki sýning- una þá 153 daga sem hún stendur. Frá þessu var greint á kynningar- fundi með Dr. Reinhard Volke, að- alframkvæmdastjóra heimssýning- arinnar, sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir í gær. Að sögn Dr. Volke verður sýn- ingin haldin undir yfirskriftinni: Mannkyn, náttúra og tækni, frá 1. júm' til 31. október. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp af aðstand- endum heimssýningarinnar að við- burðurinn eigi að skila af sér hagn- aði eða koma út á sléttu fjárhags- lega. Þetta hefur í för með sér að þátttakendur þurfa m.a. sjálfir að standa straum af húsnæðiskostnaði á svæðinu og fjöldi sýningargesta má ekki fara undir 40 milljónir til að endar nái saman. Volke segist vonast til að Expo 2000 sýningin verði nokkurs konar vegvísir inn í nýtt árþúsund þar sem aðilar í iðnaði og vísindum kynni hugmyndir sínar og svör við þeirri alþjóðavæðingu og þeim fé- lagslegu breytingum sem eru að eiga sér stað í veröldinni: „Eg á von á því að fyrirtæki og fjárfestar leggi mikið af mörkum til að gera veg sinn á sýningunni sem mestan í Ijósi þeirrar fjölmiðla athygli sem við- burðurinn nýtur um víða veröld“. Áætlað er að 70% gestanna komi frá Þýskalandi, 25% frá öðrum Evrópulöndum og 5% komi frá löndum utan Evrópu. Ekki undir 100 milljónum króna Benedikt Höskuldsson, forstöðu- maður viðskiptaþjónustu utanríkis- ráðuneytisins, segir ljóst að þátt- tökukostnaður Islendinga við sýn- inguna í Hannover verði ekki undir 100 milljónum króna sem er tals- vert meira en útgjöldin í kringum sýninguna í Lissabon sem námu um 75 milljónum, sé tekið mið af sömu forsendum um stærð sýning- arsvæðis, fjölda starfsmanna o.s.frv.: „Þar munar þó mestu að í Hannover þarf að greiða sérstak- lega fyrir sýningarsvæðið sem var ókeypis í Lissabon“. Næsta skref verður að setja sam- HAGNAÐUR af rekstri Hlutabréfa- sjóðs Búnaðarbankans nam rúmum 6,7 milljónum króna á tímabilinu 1. maí 1997 til 30. apríl 1998. Heildar- eignir sjóðsins í lok reikningsársins voru um 916,8 milljónir króna. Þar af var 41% bundið í innlendum hlutabréfum, um 36% í innlendum skuldabréfum og 23% í erlendum verðbréfum. Af innlendum hluta- bréfum í eigu sjóðsins voru íúmlega 88% skráð á Verðbréfaþingi íslands og um 67% af skuldabréfum. Fylgstu meö nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is an undirbúningsnefnd í haust sem leggja á grunninn fyrir íslenska sýningarbásinn, útlit hans og þær áherslur sem þar eiga að ríkja. Bendedikt segist eiga von á að íslensk fyrirtæki og aðilar úr at- vinnulífmu sýni Expo 2000 meiri áhuga en Lissabon sýningunni, að- allega vegna sterkra tengsla og mikilla fjárfestinga íslenskra fyrir- tækja í Þýskalandi. Samtals átti Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hlut í tæplega 80 íslenskum hlutafélögum í lok reikn- ingsárs. Vægi sjávarútvegsfyrn-- tækja er 32%, verslunar- og þjón- ustufyrirtækja 30%, samgöngufyrir- tækja 14%, iðnaðar- og verktakafyi-- irtækja 15% og banka- og fjármála- fyrirtækja 9%. Vamarsigur Að sögn Guðbjörns Maronssonar, forstöðumanns eignavörslu Búnað- arbankans Verðbréf, er afkoman vel viðunandi. „Hlutabréfavísitala Verð- bréfaþings Islands lækkaði um 21% á tímabilinu 1. maí 1997 til 30. apríl 1998. Á sama tíma lækkaði gengi hlutabréfa í Hlutabréfasjóði Búnað- arbankans um liðlega 2%. Þetta er ein besta ávöxtun sem íslenskur hlutabréfasjóður hefur sýnt í gegn- um þessa niðursveiflu á innlendum hlutabréfamarkaði. Því má sannar- lega segja að góður varnarsigur hafi unnist." I lok reikningsársins voru hlut- hafar 3.806, en voru 1.938 í byrjun þess. Meðalinneign hvers hluthafa er um 240 þúsund krónur, en að sögn Guðbjöms hafa flestir þeirra að markmiði að fjárfesta í hlutabréf- um og nýta um leið það skattalega hagræði sem af því hlýst án þess að taka of mikla áhættu. „Með hliðsjón af gengisþróun hlutabréfa í sjóðnum á reikningsárinu ættu hluthafar að geta vel við unað,“ segir hann. Sun Micro búnaður tengir tæki og tölvunet San Francisco. Reuters. SUN Microsystems Inc. kveðst vinna að þróun nýs hugbúnaðar, sem kallast Jini og gerir kleift að tengja öll tölvuvædd tæki tölvuneti og getur þessi uppgötvun haft víðtækar af- leiðingar í för með sér. Jini er rannsóknaráætlun, sem er hugmynd eins stofnenda Sun Micro, Bill Joy. Tilgangurinn er að einfalda gagnvirkni hvers konar tölvuvæddra tækja að sögn ráðamanna Sun. Með hugbúnaðinum verður auðvelt að tengja til dæmis farsíma, kjöltutölvur og heimilistæki hvers konar tölvuneti. „Hugmyndin er mjög einföld," sagði Mike Clary, einn yfirmanna Jini áætlunarinnar, „og getur haft víðtækar afleiðingar með því að gera hluti einfaldari." Um 40-45 starfsmenn Sun vinna að þróun Jini undir stjórn Jims Waldo, yfirverkfræðings Jini, sem hefur unnið að einföldun tölvuneta síðan 1992. Notagildi hugbúnaðarins fyrir neytendur verður prófað eftir um það bil hálfan mánuð. Ef hugbúnaðurinn fellur neytend- um vel í geð er gert ráð fyrir að Jini verði sett á markað einhvern tíma í haust. ------------------ Motorola skil- ar rekstrar- hagnaði Chicago. Reuters. MOTOROLA fjarskiptarisinn skilaði rekstrarhagnaði upp á 6 milljónir dollara á öðrum ársfjórðungi, eða 1% á hlutabréf, ef frá eru skilin sérstök útgjöld. Sérfræðingar í Wall Street höfðu yfirleitt búizt við rekstrartapi upp á 4 sent á bréf. Skráð voru sérstök út- gjöld upp á 1,91 milljarð dollara fyrir skatta, eða 2,23 dollara á hlutabréf eftir skatta. Þessi útgjöld voru meðal annars 1,98 milljarða dollara kostn- aður vegna margs konar samþjöpp- unar í framleiðslu, kostnaðarlækk- unar og ráðstafana vegna endur- skipulagningar. Á móti vó sala eigna að nokkru leyti. Að útgjöldunum meðtöldum nam tap á öðrum ársfjórðungi 1,3 milljörð- um dollara, eða 2,22 dollurum á hluta- bréf, miðað við hagnað upp á 268 milljónir dollara, eða 44 sent á hluta- bréf, á sama tíma í fyrra. Heildarsala á ársfjórðungnum minnkaði um 7% í 7,0 milljarða dollara úr 7,5 milljörðum dollara á sama tíma í fyrra. Robert Growney forstjóri sagði í tilkynningu að afkoman á öðrum árs- fjórðungi endurspeglaði enn minnk- andi eftirspurn og áframhaldandi verðþrýsting í heiminum. -------♦-♦-♦------ Gates-fyrir- tæki kaupir Outline Press Hollywood. Reuters. CORBIS Corp., fyrirtæki í eigu Bills Gates, sem útvegai’ ljósmyndir og listrænt efni á alnetinu, hefur eign- azt Outline Press, alþjóðlega ljós- myndastofu sem sérhæfir sig í ljós- myndum af frægu fólki. Corbis-fyrirtækið í Seattle segir að með samrunanum verði það fremsta fyrirtæki heims sem útvegi ljósmyndir af frægu fólki. Samkvæmt samningi um kaup á fyrirtækinu verður Outline deild í Corbis og mun starfa undir nafninu Corbis Outline. Starfsmenn eru rúm- lega 50. Skrifstofur Outline verða sem fyrr í Los Angeles og New York borg. Stofnandi Outline, Jim Roehrig, mun halda áfram að hafa umsjón með starfsemi Corbis Outline sem framkvæmdastj óri. Safn Corbis hefur að geyma um 23 milljónir mynda og þar af er hægt að fá rúmlega 1,3 milljónir á Netinu. Apple Inc. kemur enn á óvart með hagnaði San Francisco. Reuters. APPLE tölvufyrirtækið hefur enn komið á óvart í Wall Street með miklu meiri hagnaði en búizt hafði verið við á síðasta ársfjórð- ungi og hefur fyrirtækið nú skilað hagnaði þrjá ársfjórðunga í röð. Apple fyrirtækið hefur verið endurnýjað og náð sér á strik eft- ir mikinn halla í fyrra. Apple seg- ir að nýja velgengni megi þakka góðri sölu á G3 Power Macintosh og PowerBook tölvum. Að sögn fyrirtækisins skilaði það hagnaði upp á 101 milljón dollara, eða 65 sent á hlutabréf, á þriðja ársfjórðungi fjárhagsárs þess er lauk 26. júní - miðað við tap upp á 56 milljónir dollara, eða 44 sent á hlutabréf, á sama tíma í fyrra. Að eingreiðslum undanskildum skilaði Apple hagnaði á síðasta ársfjórðungi upp á 75 milljónir dollara, eða 50 sent á hlutabréf - miðað við 33 sent á hlutabréf eins og spáð hafði verið í Wall Street. ,Ápple skilaði mesta hagnaði um árabil og í lok ársfjórðugsins eigum við minni birgðir en aðrir helztu framleiðendur einkatölva," sagði Steve Jobs aðalfram- kvæmdastjóri. BEKO fékk viðurkenningu í hinu virta breska tímariti WHAT VIDEO sem bestu sjónvarpskaupin. |» Myndlampi Black Matrix • 100 stööva minni • Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring • Aukatengi f. hátalara • íslenskt textavarp Umboösmenn: Lágmúla 8 • Sími 533 2800 | Reykjavík: Byggt & Búiö, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi.Kf.Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestflrölr: Geirseyrarbúöin.Patreksfiröi.Rafverk.Bolungarvík. « Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri.KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: KHB, Egilsstöðum Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. Kf. Stöðfiröimga, Stöövarfiröi. Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavfk. Rafborg.Grindavfk. Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans 6,7 milljóna króna hagnaður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.