Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 23
Abiola byrlað
hægvirkt eitur?
Abiga, Lagos. Reuters.
WÖLE Soyinka, hinn heimsþekkti
nigeríski leikritahöfundur og nóbels-
verðlaunahafí, telur að Moshood
Abiola, fyrrverandi stjórnarand-
stöðuleiðtogi, hafí verið myrtur en
ekki látizt úr hjartaáfalli, eins og nið-
urstaða krufninga hljóðaði upp á.
I fyrradag tilkynnti herforingja-
stjórnin í Nígeríu að hún hygðist
sleppa hundruðum pólitískra fanga
úr haldi, þar á meðal 400 manns sem
hnepptir voru í varðhald á valdadög-
um Sanis Abacha hershöfðingja, sem
lézt í júní.
„Eg er sannfærður um að Abiola
var byrlað einhvers konar hægverk-
andi eitur,“ sagði Soyinka í fréttavið-
tali á sjónvarpsstöðinni CNN.
Herforingjastjórnin í Nigeríu setti
Abiola í fangelsi 1994, eftir að hann
gerði tilkall til forsetaembættisins,
en hann virtist sigurvegari forseta-
kosninga árið áður, sem stjórnin
ógilti. Hann dó 7. þ.m. á fundi með
fulltrúum nígeríski’a og bandarískra
stjórnvalda, skömmu áður en til stóð
að fangelsisvist hans lyki.
Soyinka sagði í fyrirlestri sem
hann hélt í fyrradag í Emory-háskól-
anum í Atlanta, þar sem hann hefur
starfað sem prófessor frá því hann
flúði Nígeríu 1995, að tlmasetning
fráfalls Abiola væri grunsamleg.
Fleiri dæmi væru um að pólitískir
fangar í Nígeríu hefðu fengið spraut-
ur gegn vilja sínum.
Vísbending
um samsæri
Hann sagði ennfremur að hann
hefði fengið í hendur orðsendingu frá
samherjum í Nígeríu nokkrum dög-
um fyrir andlát Abiolas, þess efnis að
samsæri væri í gangi gegn Abiola „og
það mun koma til framkvæmda á
næstu dögum“. Soyinka sagðist hafa
komið orðsendingunni áleiðis til
Sameinuðu þjóðanna.
Soyinka hlaut nóbelsverðlaunin í
bókmenntum 1986, fyrstur Afríku-
búa. Hann flúði land 1995, þegar
hann varð þess var að til stæði að
handtaka hann fyrir gagnrýni á her-
foringjastjómina.
Raðnauðgari hand-
tekinn á Flórída
Orlando. Reuters, Daily Telegraph.
FERÐAMENN og hótelrekendur á
Oriando-svæðinu á Flórída anda nú
léttar eftir að lögregla handtók í gær
mann, sem grunaður er um að hafa á
undanfórnum vikum ráðizt inn á að
minnsta kosti níu pör á hótelher-
bergjum á vinsælasta ferðamanna-
staðnum, rænt þau og nauðgað kon-
unum.
Maðurinn, sem var handtekinn í
nágrenni Orlando, heith’ Kenneth Ta-
ylor og er fertugur svertingi. Nokkr-
um klukkustundum fyrir handtökuna
hafði hann ráðizt vopnaður á ung
áströlsk hjón, rænt þau og nauðgað
konunni.
Taylor er grunaður um að hafa
undanfarinn mánuð stundað árásir af
þessu tagi á hótelum á svæðinu sem
liggur á milli Orlando og Disney
World, en það er mjög fjölsótt af
ferðafólki.
Ung brezk hjón og önnur indversk
voru á meðal nýjustu fórnarlamba
mannsins. í flestum tilvikum komst
árásarmaðurinn inn til fórnar-
lambanna með því að þykjast vera
hótelstarfsmaður, en dró síðan upp
byssu. I sumum tfífellum þvingaði
maðurinn pörin til kynlífsleikja fyrir
Eftirlýsingarteikning lögreglu
af nauðgaranum.
framan hann áður en hann nauðgaði
konunni.
Árásimar voru farnar að valda
ferðaþjónustuaðilum á svæðinu mikl-
um áhyggjum, en í upphafi þessa ára-
tugar varð ferðaþjónusta á sama
svæði fyrir skakkaföllum vegna raðar
vopnaðra rána.
Reuters
UNGUR piltur í félagsskap tveggja breskra hermanna, sem hvfla sig eftir næturvörslu við vegartálma
lögi-eglunnar við Garvaghy-veg í Portadown á Norður- Irlandi í gær.
Afhendir IRA vopn sín?
London. Reuters.
BRESK stjórnvöld fögnuðu í gær
merkjum þess að írski lýðveldisher-
inn (IRA) væri í þann mund að láta
af hendi hluta af vopnum sínum, í
samræmi við friðarsamkomulagið
sem undirritað var á páskadag.
Dagblaðið The Express skýrði
frá því í gær að óopinberar viðræð-
ur um afhendingu vopna hefðu þeg-
ar átt sér stað og jafnvel hefði verið
valinn hugsanlegur afhendingar-
staður. Talsmaður Tonys Blairs,
forsætisráðherra Bretlands, stað-
festi í gær að ýmislegt benti til þess
að IRA hygðist fullnægja skilyrðum
friðarsamningsins áður en hið nýja
þing á Norður-írlandi tekur form-
lega til starfa í september næst-
komandi. Hann vísaði því hins veg-
ar á bug að nokkrar ráðstafanir í þá
veru hefðu þegar verið gerðar.
Tveir írskir lögreglumenn særð-
ust lítillega í fyrrinótt er þeir voru
að rannsaka bögglasprengju sem
skæruliðahreyfíng mótmælenda á
Norður-frlandi hafði sent á hótel í
Dublin.
Ráðstefna í Kóm um stofnun alþjóðlegs sakadómstóls
Málamiðlun hafnað
Róm. Reuters.
HÓPUR sextíu lýðræðisríkja hafn-
aði í málamiðlunartillögu að sam-
komulagi um stofnun alþjóðlegs
sakadómstóls sem lögð var fram i
gær. Tillagan gerði m.a. ráð fyrir
því að ríki ættu val um hvort lög-
saga dómstólsins næði til þeirra.
Enn ríkir því ágreiningur um
grundvallaratriði í samningnum á
milli ríkjanna sextíu annars vegar,
og Bandaríkjanna, Frakklands,
Kína og Rússlands, hins vegar.
Lagt var til að ríkisstjórnir gætu
við undirritun samningsins tiltekið
hvert gildissvið hans væri gagnvart
þegnum þeirra.
Sextíu ríkja hópurinn vill hins
vegar að lögsaga dómstólsins nái án
undantekninga til þjóðarmorða,
stríðsglæpa og glæpa gegn mann-
kyni, óháð samþykki ríkisstjórna.
Lokadrög að samkomulagi um
hinn alþjóðlega sakadómstól verða
rædd til þx-autar í ráðstefnunni í
dag en frestur til að ná samningum
um málið rennur út á miðnætti í
kvöld.
va\i íoeð öllum nýjum Mazda-bílum'