Morgunblaðið - 17.07.1998, Síða 29

Morgunblaðið - 17.07.1998, Síða 29
MORGUNB LAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 29 AÐSENDAR GREINAR Aldrei myndi ég kalla Markús Möller „ný-komma“ MARKÚS Möller skrifar í Mbl. 9. júlí sl. athugasemdir við þrjár greinar mínar í sama dagblaði og þakka ég honum áhuga hans. Grein Markúsar undir- strikar vel þau ólíku lífsviðhorf, sem hvor um sig hefur. Mér finnst það dálítill ljóður á annars skemmtilegri grein Markúsar hversu stutt er í uppnefningar er hann kallar mig „gjafakvótasinna". Ég hef aldrei ætlast til að neinum sé gefið neitt. Til þess að svo mætti vera þyrfti fyrst að svipta heila atvinnugrein, útgerð í þessu tilfelli, stjórnarskrárvörðum atvinnuréttindum hennar bótalaust, og gefa henni þau svo aftur. Petta gerðist ekki, því að hvorki er hægt að gefa mönnum það, sem þeir eiga fyrir, né getur ríkisvaldið gefið öðr- um það, sem það á ekki sjálft. Svo einfalt er það. Það er að vísu mögu- legt þegar jafnmikil kerfisbreyting, og upptaka kvótakerfisins er gerð, að fáir einstaklingr verði fyiir órétt- læti. Ekki hafa slíkir aðilar þó gert kröfur um bætur eða leiðréttingar, né aðrir fyrir þeirra hönd. Menn biðja aðeins um nýjan skatt, auð- lindagjald eða að kvótakerfið verði lagt niður. Markúsi Möller gerðar upp skoðanir Lái mér hver sem er að ég hafi ekki ætlað Markúsi að lofa hverjum einstaklingi 67 þús. kr. á ári ein- hvern tíma í framtíðinni. Þetta eru 5.600,00 kr. á mánuði eða tæpar 11 þús. kr. á hvern vinnandi mann. Ég fullyrði að mánaðarkaup verður hækkað um 11 þús. kr. löngu áður en „kvótagjöf1 Markúsar kæmi til greina, (enda þyrfti að veiða 600 þús. tonn af þorski (þ.e. þorskígild- um) áður en það væri hægt) enda fái sjávarútvegurinn frið fyrir nýrri skattheimtu og eilífu hringli stjórn- valda með starfsgrundvöll sinn. Er það ekki einmitt Markús Möller, sem vill láta færa mönnum gjafir á kostnað útgerðarinnar? Hvergi kemur betur fram mismunur á lífs- skoðunum okkar Markúsar, en í þessu atriði. Mai'kús lítur á lands- menn sem þegna og þiggjendur, sem eigi að taka á móti gjöfum af^ náð ríkis- valdsins. Ég lít hins vegar á landsmenn sem starfandi þátttakendur í verðmætasköpun þjóðfélagsins. Lands- menn eru fyrirvinna ríkissjóðs en ekki á framfæri hans. Það er ríkissjóður, sem er á framfæri landsmanna. Þessum mismunandi viðhorfum er best lýst af Sigurði Nordal er hann ber þjóðfélags- hætti nútímans og sögualdar saman í „Fomar mennth’ 11“ bls 86. Sigurður skrif- ar: „Þar sem nútíminn virðist mjög stefna að því að gera þegnana að húsdýrum ríkisvaldsins, með öllum þeim þægindum, áhyggjuleysi, / Eg er fylgjandi veiði- leyfagjaldi eða auð- lindagjaldi, segir Jóhann J. Olafsson í fyrri grein sinni, ef eig- endur kvótans borga það hverjir öðrum en ekki í ríkissjóð. tryggingum og ábyrgðarleysi og aftur á móti með öllum þeim skorti á sjálfsvirðingu sjálfsábyrgð, skerð- ingu á frelsi og ábyrgð sem þessu fylgir, þá var þjóðfélag sögualdar tilraun til hins gagnstæða." Heim- speki Sigurðar Nordal á vaxandi er- indi til okkar í dag, ef við viljum halda vöku okkar og ekki á verr að fara. Síðan Sigurður Nordal ritaði hin fleygu orð hefur það gerst að „Velferðarkerfið" þ.e.a.s. fagfélög þess og rikisvaldið hafa tekið sér eins konar „veiðileyfi" á sjúklinga, nemendur og gamalmenni. Ef ekki væri fyrir hjartagæsku starfsfólks þess, væri velferðarkerfið hrunið. Hvernig á að dreifa verðmætum? Markús Möller segir mig engan greinarmun gera á því 1) hvernig á að gera sem mest verðmæti úr fiskistofnunum og 2) hvernig á að dreifa þeim verðmætum. Þetta er rétt hjá Markúsi. Ég sé þetta sem eina heild. Fyrra atriðið næst með kvótakerfi, eignarrétti á varanleg- um kvótum og framsali. Síðara at- riðið sér opið hagkerfi og frjáls markaður einstaklinga um. Opið hagkerfi og frjáls markaður er ótrúlega fljótur að dreifa verðmæt- um um allt þjóðfélagið. Islendingar eru með 10. hæstu tekjur á mann í heiminum og mismunur á tekjum manna er minni hér en annars stað- ar. Ég tel tiltölulega mikinn efna- hagslegan jöfnuð æskilegan í þjóð- félaginu og ör viðskipti manna á milli með eignir og verðmæti. Al- gjör jöfnuður samkvæmt hugmynd- um sósíalista þar sem menn fá jafn- vel ekki að njóta hæfileika sinna fyrir öfund og afbrýðisemi er óframkvæmanlegur nema öll ís- lenska þjóðin verði fyrst klónuð. Frelsi til sjálfsþroska og sam- keppni dregur vagninn. Ríkisrekst- ur er ekki skilyrði velferðarkerfis- ins. Velferðarkerfið er betra ef uppspretta þess er áhugi, skilning- ur og kærleikur í stað fógetavalds og einokunar. , ,Því dáð hvers eins er öllum góð hans auðna félagsgæfa og markmið eitt hjá manni og þjóð hvem minnsta kraft að æfa.“ kvað Einar Benediktsson árið 1898. Rögnvaldur „yfirlýstur" fylgismaður veiðigjalds Það virðist hafa farið fram hjá Markúsi Möller við lestur greina minna að ég er fylgjandi veiði- leyfagjaldi eða auðlindagjaldi, ef eigendur kvótans borga það hverjir öðrum en ekki í ríkissjóð. Rögn- valdur Hannesson, prófessor í Björgvin getur skýrt skoðanir sínar best sjálfur. Ef ég skil viðtal við hann í ríkisútvarpinu rétt, þá vill hann taka auðlindaskatt í „fyrstu umferð" þ.e.a.s. þangað til að allir eru búnir að kaupa kvóta af öðrum. Að mínu mati er auðlindaskattur aðeins viðbótarskattur. í sjávarút- ‘ vegi myndast enginn hagnaður, sem núverandi skattakerfi nær ekki til. Höfundur er stórkaupmaður og lýð- veldissinni. Jóhann J. Olafsson Um sjúkraþjálfun misþroska barna í UPPHAFI kynn- umst við barninu, fáum góðar upplýsingar hjá foreldrum og tökum svo hreyfiþroskapróf. Það segir okkur hvern- ig barnið stendur mið- að við jafnaldra sína og hver hreyfivandamál barnsins eru. Út frá öllu þessu leggjum við svo línur um meðferð- ina. Hvaða vandamál eru það helst sem við rek- umst á hjá misþroska bömum? Lélegt jafnvægi, bæði í kyrrstöðu og á hreyfingu. Samhæfíngu handa og fóta er ábótavant, einnig er oft skert samhæfing augna og handa. Bömin hafa lélega líkamsvitund. Snertiskyn, rúmskyn og áttaskyn er oft brenglað. Erfiðleikar geta verið við stjórn á krafti og hraða hreyfinga. Þol og úthald er lélegt og vöðva- kraftur minnkaður. Léleg sjálfsmynd, lítið sjálfsör- yggi og stundum skert sjálf- stjórn. Bömin eiga vanalega ekki við öll þessi vandamál að stríða, heldur einungis hluta þein'a, og við vinnum með þeim samkvæmt því sem fram kemur við skoðun. Meðferðin er oft- ast sambland af fleiri en einni þjálf- unaraðferð. Oftast byrjum við að vinna með þjálfun skynsviða og byggjum þá á Sl-meðferð. Við leggjum áherslu á örvun jafnvægisskyns, snertiskyns, hreyfi- og vöðvaskyns. Bamið er ekki meðvitað um hverju við emm að ná fram og ræður ferðinni að hluta undir okkar handleiðslu. Þegar barnið fer að sýna framfar- ir á þessum sviðum og við sjáum að það er farið að hafa ánægju af því að hreyfa sig fóram við að leiða inn alls konar færniþjálfun þar sem markvisst eru æfðir þeir þættir sem böm nota í sínum leikjum. í þessum hluta meðferðarinnar er barnið meðvitað um þá færni sem við erum að þjálfa. Dæmi um þetta em alls konar hopp, sipp, hjóla- og bolta- leikir o.s.frv. Hluti bamanna þarf svo að auki þolþjálfun, styrktar- þjálfun og þjálfun í vatni. Mikilvægt er fyrir foreldra að vita hvar bam þeirra stendur og er þeim velkomið að íylgjast með meðferð- inni. Einnig veitum við tilvísandi lækni upplýs- ingar um skoðun, með- ferð og árangur með- ferðar. Oft er haft sam- band við leikskóla eða skóla bamsins og stuðningsaðilum þess boðið að koma og fylgj- ast með meðferð. Það getur gefið þeim hug- myndir um hvemig þeir geti örvað bamið á hreyfisviði. Það er mjög gefandi að vinna með misþroska börnum í þjálfun og oft má sjá einhvern ár- angur eftir nokkuma vikna með- Mikilvægt er fyrir foreldra misþroska barns, segir Áslaug Guðmundsdóttir, að vita hvar barn þeirra stendur. ferð. Framfarir eru þó einstak- lingsbundnar, enda vandamál barn- anna mismikil og miserfið og þau þurfa mislangan þjálfunartíma. Sum þurfa einungis 2 til 3 mánuði til að koma sér á rétt ról meðan önnur koma til okkar í eina til tvær þjálfunarhrinur á ári nokkur ár í l'Öð. Þegar árangur fer að koma í ljós má sjá hvernig hreyfingar bamsins breytast smátt og smátt. Það verð- ur ömggara með sig og ánægjan af hreyfingu eykst. Markmiðið er að bamið hafi ánægju af meðferðinni, finni gleðina í að hreyfa sig og reyna á sig og að það upplifi nýja tilfinningu fyrir líkamanum og hvernig nota má hann. Það er svo von okkar að þessi ný- fædda gleði í hreyfingunni færist yfir í daglega lífið og að bamið fari að hreyfa sig meira og þjálfi sig þannig sjálft. Höfundur er sjúkraþjáifari hjá SLF. Áslaug Guðmundsdóttir Sagan endurtekur sig í Hafnarfírði SÚ ákvörðun nýs meirihluta í bæjar- stjóm Hafnarfjarðar, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, að hækka verulega launagreiðslur til bæj- arstjóra og bæjarfull- trúa hefur vakið mikla ahygli og eðlilegt um- tal. Hækkunin er ekki lítíl. A annað hundrað þúsund króna hækkun til bæjarstjórans ný- kjöma, oddvita sjálf- stæðismanna, Magnús- ar Gunnarssonar, og hækkun til bæjarfull- trúa og bæjarráðs- manna nemur tugum þúsunda og enn meiri til forseta bæjarstjórnar og formanns bæjar- ráðs, sem koma úr meirihlutaflokk- unum. Við þessi tíðindi rifjast upp fyrir bæjarbúum og öðmm landsmönn- um sú síbylja áróðurs, sem forystu- menn þessara flokka dembdu yfir Hafnfirðinga og aðra fyrir síðustu kosningar um meinta skuldasöfnun þáverandi meirihluta Alþýðuflokksins og slaka fjármálastjóm. En fjárhagsvandinn virðist ekki hafa verið meiri en svo, að for- ystumenn þessara hægriflokka taka um það ákvörðun á fyrstu vikum nýs kjörtíma- bils, að hygla sjálfum sér með ofangreindum hætti og verja til þess fleiri milljónum á ári hverju. Einkavinavæðingin Einhver kann ef til vill að segja sem svo, að ekkert sé undarlegt við það, að hinn nýi bæjarstjóri í Hafnarfirði skammti sér laun og sposlur upp á um 600 þúsund í hverjum mánuði, því slík laun hljóti hann að hafa haft sem umboðsmað- ur Sjóvár-Almennra í Hafnarfirði og einnig Samvinnuferða, en þar mun hann hafa haft þau störf með höndum sem verktaki og því rekið þau undir eigin hlutafélagi. Ef henn héldi þeim rekstri áfram samhliða bæjarstjórastarfinu, sem ekkert er enn upplýst um, þá gæti hann auð- veldlega þénað á aðra milljón á hverjum mánuði. Það þykir ef til vill Fjárhagsvandi Hafnar- fjarðar virðist ekki vera meiri en svo, segir Stefán Gunnlaugsson, að fyrsta verk nýs meirihluta er að hækka sín eigin laun. einkavinavæðingarsinnum íhaldsins ekki stórar tölur, en almennu launa- fólki blöskrar. Þessi nýi hægri meirihluti í Hafn- arfirði hefur það einnig á sinni stefnuskrá að einkavæða þjónustu í Hafnarfírði. Það verður því vafa- laust skammt í það, að Rafveitan verði seld, slökkviliðið fært undir Reykjavík, áhaldahúsinu lokað og Stefán Gunnlaugsson þjónusta Félagsmálastofnunar boð- in út, svo fátt eitt sé nefnt af öllum þeim möguleikum sem frjálshyggju- liðið í Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokki hefur velt upp i gegnum tíð- ina. Við þessar aðstæður kemur það ekki á óvart, að formaður Starfs- mannafélags Hafnarfjarðarbæjar fagnar óspart þessari nýju launa- stefnu íhalds og framsóknar og hef- ur sagt í fjölmiðlum, að hann bíði þess nú að almennir starfsmenn fái að njóta sömu hækkunar og topp- arnir hafa skammtað sér. Það er líka eðlilegt að einn ný- kjörinn bæjarfulltrúi minnihlutans, Jóna Dóra Karlsdóttir úr Alþýðu- flokknum, hefur undrast þessa for- gangsröðun nýs meirihluta, sem hafði það að meginmarkmiði í kosn- ingabaráttunni í vor, að treysta fjármálastöðu bæjarins og draga úr útgjöldum. Ekki í fyrsta skipti Þessi framkoma íhalds og fram- sóknar á ekki að koma Hafnfirðing- um á óvart, a.m.k. ekki þeim bæjar- búum sem muna tímana tvenna. Eldri Hafnfirðingar þekkja vinnu- brögð íhaldsins frá árum áður í mál- um af þessum toga. Rifjast þar upp atburðir á fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum. Fram til 1962 var íhald- ið í minnihluta og réðst þá harka- lega að bæjarstjórum Alþýðuflokks- ins. Það er mér ennþá í fersku minni, þegar íhaldið lagði einn bæj- arstjóra Hafnfirðinga, Helga Hann- esson, í einelti áram saman, vegna þess að of vel þótti þeim við hann gert í launum. Það var auðvitað fjarri öllu lagi, en tilgangurinn helg- aði meðalið. Sá er þessar línur ritar gegndi einnig störfum bæjarstjóra á áranum 1954-1962 og fór heldur ekki varhluta af eilífum en ástæðu- lausum athugasemdum vegna bæj- arstjóralauna. Það var því þvert á allt þetta, þegar íhald og framsókn náðu völdum í Hafnarfirði árið 1962 og réðu nýjan bæjarstjóra. Laun hans vora hækkuð ríflega um helm- ing frá því sem var, þegar Alþýðu- flokkurinn réð ferðinni! Eru þau ekki kunnugleg vinnu- brögðin? Sagan endurtekur sig nú 36 áram síðar. Sömu flokkar komast til valda. Laun toppanna eru hækkuð. Það hefur sem betur fer aðeins gerst tvisvar í 90 ára kaupstaðar- sögu Hafnarfjarðar, að íhald og framsókn hafi komist til valda. Síð- ast árið 1962 eins og áður var nefnt. Sá meirihluti sprakk sem betur fer eftir aðeins eitt ár. Og nú eru þessir flokkar aftur mættir til leiks. Von- andi að valdatíð þeirra verði jafn- stutt og í fyrra sinnið. Og svo von- andi aldrei aftur. Hafnfirðingar eiga betra skilið. Höfundur er fv. bæjarstjóri í Hafn- arfirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.